12. desember 2025 /
Dómsmálaráðuneytið

Sex umsækjendur um embætti ráðuneytisstjóra dómsmálaráðuneytisins

Hari

Alls bárust sex umsóknir um embætti ráðuneytisstjóra dómsmálaráðuneytisins sem auglýst var þann 25. nóvember 2025. Umsóknarfrestur rann út þann 10. desember 2025.

Umsækjendur eru eftirtaldir:

  • Ása Arnfríður Kristjánsdóttir, deildarstjóri
  • Bjarni Már Magnússon, prófessor
  • Dís Sigurgeirsdóttir, skrifstofustjóri
  • Páll Egill Winkel, sérfræðingur
  • Ragna Bjarnadóttir, skrifstofustjóri
  • Signý Rut Friðjónsdóttir, deildarstjóri

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, skipar í embættið þegar nefnd sem falið verður að meta hæfni umsækjenda hefur lokið störfum. Skipað er í embættið til fimm ára í senn.

Var efnið hjálplegt?