16. desember 2025 /
Dómsmálaráðuneytið

Átján útskrifast úr fangavarðanámi

Birgir Jónasson, settur fangelsismálastjóri, við útskriftina síðastliðinn föstudag
Birgir Jónasson, settur fangelsismálastjóri, við útskriftina síðastliðinn föstudag

Síðastliðinn föstudag, þann 12. desember, útskrifuðust 18 nemendur úr fangavarðanámi Fangelsismálastofnunar sem starfrækt er hjá Mennta- og starfsþróunarsetri lögreglu hjá embætti ríkislögreglustjóra.

Námið er eitt ár og samanstendur af tveimur önnum og starfsnámi sem tekið er yfir sumarmánuðina. Námið er þróunarverkefni sem dómsmálaráðuneytið fól Mennta- og starfsþróunarsetri lögreglu fyrst að sinna árið 2024 og var því framhaldið í ár og er þetta því annar árgangurinn sem útskrifast. Þróunarverkefnið felur í sér að starfrækja og þróa fangavarðanám í samvinnu við Fangelsismálastofnun og byggja upp gott samstarf á milli stofnanna. Allir nemendur sem útskrifuðust voru starfandi fangaverðir og á þessum tveimur árum hafa 38 fangaverðir verið útskrifaðir.

Almenn ánægja hefur verið með samstarfið og nú í lok árs 2025 tók dómsmálaráðuneytið ákvörðun um að halda núverandi fyrirkomulagi áfram. Í útskriftinni var það tilkynnt að Fangelsismálastofnun og Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglu hafa undirritað fimm ára samstarfssamning um fangavarðanámið í núverandi mynd, hvort sem það er grunnnám eða í sí- og endurmenntun.

Árið 2026 verður lögð áhersla á sí- og endurmenntun auk þess sem fangavarðanámið verður endurskoðað, eins og það hefur verið kennt síðastliðin tvö ár, til að gera gott enn betra.  Markmið námsins eru að gefa fangavörðum góða innsýn í regluverkið sem Fangelsismálastofnun starfar eftir, þekkingu á mannlegum þáttum sem og samskiptafærni og verkfæri í kistuna til að takast á við það óvænta sem getur komið upp í starfinu.

Var efnið hjálplegt?