15. október 2026 /
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Norðurlönd, Eystrasaltsríkin og Úkraína efla samstarf um menningu og gervigreind

{image.Description}
Mynd:

Menningarmálaráðherrar Norðurlanda, Eystrasaltsríkjanna og Úkraínu samþykktu sameiginlega yfirlýsingu um vernd menningararfs, sköpunarfrelsis og gervigreind á fundi í Tallinn dagana 6.–7. október.

Á fundinum var lögð áhersla á mikilvægi alþjóðlegs samstarfs til að vernda tungumál, menningu og réttindi skapandi fólks á tímum örra tæknibreytinga og aukinnar óvissu.

Ráðherrarnir ræddu meðal annars áhrif gervigreindar á menningargeirann, samkeppnishæfni skapandi greina og mikilvægi þess að tæknin styðji við fjölbreytni tungumála og menningar í stað þess að ógna henni. Þá var rætt um stafræna varðveislu menningararfs og mikilvægi þess að tryggja öryggi menningarverðmæta á tímum stríðs og krísa.

Í sameiginlegri yfirlýsingu fundarins er lögð áhersla á þrjú meginmarkmið:

  • Að efla samstarf um vernd menningar og menningararfs, meðal annars með stafrænni varðveislu.
  • Að standa vörð um sköpunarfrelsi, réttindi listafólks og höfundarrétt.
  • Að auka þekkingarmiðlun og samstarf um gervigreind, menningu og menningararf.

Fulltrúar tólf sendinefnda tóku þátt í fundinum. Fyrir hönd Íslands sátu fundinn Sigrún Brynja Einarsdóttir, ráðuneytisstjóri menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins, og sérfræðingur ráðuneytisins.