15. október 2026 /
Heilbrigðisráðuneytið

Ný námsleið í áfengis- og vímuefnaráðgjöf við Háskólann á Akureyri

{image.Description}

Háskólaráð Háskólans á Akureyri (HA) hefur samþykkt að setja á laggirnar nýja námsleið; þriggja ára bakkalárnám í Áfengis- og vímuefnaráðgjöf við Hjúkrunarfræðideild skólans. Gert er ráð fyrir að fyrstu nemendurnir hefji nám haustið 2027. Háskólinn hóf undirbúning námsins fyrir rúmu ári í nánu samstarfi við SÁÁ en heilbrigðisráðuneytið veitti skólanum jafnframt 10 m.kr. styrk til að styðja við stofnun námsleiðarinnar.

„Með þessu nýja námi á háskólastigi er vægi fagsins styrkt innan  heilbrigðiskerfisins. Eins er það í samræmi við áherslu heilbrigðisráðuneytisins um að allt nám til starfsleyfis löggiltra heilbrigðisstétta fari fram hjá formlegum menntastofnunum. Stöðumat á áfengis- og vímuefnameðferðarkerfinu sýndi að skortur á sérhæfðu starfsfólki takmarkar getu þess til að mæta vaxandi og fjölbreyttum þörfum. Nýtt háskólanám í áfengis- og vímuefnaráðgjöf er því mikilvægt skref til að efla nýliðun og fagmennsku, bæta gæði þjónustunnar og mæta betur þörfum fólks með vímuefnavanda og fjölskyldna þess,“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.

„Það er okkur í HA mikil gleði að geta nú boðið uppá á nám í Áfengis og vímuefnaráðgjöf til bakkalársgráðu. Þetta nýja námsframboð er algerlega í takti við framtíðarsýn Háskólans á Akureyri um að leggja áherslu á rannsóknir og menntun sem þar sem tekist er á við áskoranir samfélagsins og auka með því samfélagslega velferð. Geta okkar til að bjóða uppá þetta sem fjarnám með staðarlotum gerir okkur auk þess kleift að þjóna öllum þeim sem vilja mennta sig á þessu sviðið óháð staðsetningu og aðstæðum“ segir Brynjar Karlsson, forseti fræðasviðs Háskólans á Akureyri.

Nám löggiltra heilbrigðisstétta hjá formlegum menntastofnunum

SÁÁ hóf á sínum tíma kennslu og þjálfun fyrir áfengis- og vímuefnaráðgjafa og hefur stéttin verið löggilt um árabil. Frá árinu 2023 hefur Símenntun Háskólans á Akureyri séð um bóklega hluta námsins en verklegi hluti þess fer enn fram á heilbrigðisstofnunum SÁÁ.

Eins og fram kemur í tilkynningu HA er námið það fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Þá sé með námsleiðinni brugðist við brýnni þörf fyrir formlega háskólamenntun á þessu sviði og aukinni eftirspurn eftir sérhæfðu fagfólki innan heilbrigðis- og velferðarþjónustu. Megináherslur í náminu eru á klíníska þekkingu og færni, að styrkja fagmennsku og rannsóknarlæsi. Einnig verða þróuð sex ný og sérhæfð klínísk námskeið í áfengis- og vímuefnaráðgjöf.