19. október 2026 /
Dómsmálaráðuneytið
Ásta Sóllilja ráðin aðstoðarmaður dómsmálaráðherra
Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Þorbjargar S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra. Ásta Sóllilja mun starfa ásamt Þórdísi Valsdóttur, aðstoðarmanni.
Ásta Sóllilja lauk laganámi frá Háskóla Íslands árið 2003 og er hæstaréttarlögmaður.
Hún var um árabil lögfræðingur í innanríkisráðuneytinu og síðar innviðaráðuneytinu en hefur undanfarin ár verið lögmaður hjá ríkislögmanni. Hún verður í tímabundnu leyfi frá störfum sínum hjá embættinu meðan hún gegnir starfi aðstoðarmanns ráðherra.