Drög að nýjum lögum um bókhald lögð fram í Samráðsgátt
Drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um bókhald hafa verið birt í Samráðsgátt stjórnvalda. Frumvarpinu er ætlað að leysa af hólmi bókhaldslög frá árinu 1994 og færa reglurnar til samræmis við nútímaumhverfi en í dag er bókhald að mestu fært og varðveitt með rafrænum hætti. Í frumvarpsdrögum er lagt til að skýrðar verði reglur um ábyrgð á bókhaldi, færslu og leiðréttingu bókhaldsfærslna, bókhaldsgögn, varðveislu og aðgengi að þeim og gerð ársreikninga þeirra aðila sem ekki falla undir önnur lög um ársreikninga.
Í frumvarpinu er jafnframt lagt til að meginreglur um rafrænt bókhald verði festar í lög og reglur skýrðar um ábyrgð á bókhaldi, bókhaldsfærslur og leiðréttingar þeirra, varðveislu gagna og aðgang að þeim.
Frumvarpið er í samræmi við áherslur í stefnu stjórnvalda um hagstæð rekstrarskilyrði fyrirtækja, stafvæðingu og aukna skilvirkni í samskiptum fyrirtækja og hins opinbera.
Smærri félögum hlíft við kostnaði
Einnig er lagt er til að félög sem falla undir lög um ársreikninga verði almennt skyldug til að færa bókhald í rafrænu bókhaldskerfi en félög sem eru innan stærðarmarka örfélaga verði undanþegin þeirri skyldu. Með því er leitast við að hlífa smærri félögum við miklum kostnaði og fyrirhöfn. Á sama tíma nær skyldan til þeirra félaga sem eru komin yfir viðmiðunarmörk örfélaga og þar sem ætla má að umfang viðskipta og bókhalds sé almennt meira og ávinningur af rafrænu bókhaldskerfi, svo sem aukin sjálfvirkni, rekjanleiki og áreiðanleiki bókhaldsgagna, sé meiri.
Brugðist við breyttu tækniumhverfi
Ákvæði um varðveislu bókhaldsgagna eru einnig endurskoðuð. Núgildandi reglur taka mið af því að gögn séu varðveitt á tilteknum stað, en í dag eru rafræn gögn oft vistuð í skýjaþjónustu og geta verið geymd á fleiri en einum stað. Þetta hefur haft það í för með sér að erfitt hefur verið fyrir hinn bókhaldsskylda að fara eftir ákvæði laganna um að bókhaldsgögn séu varðveitt hér á landi. Gögn geta verið vistuð eða afrituð á fleiri en einum stað og flust milli gagnavera án þess að bókhaldsskyldur aðili hafi fulla vitneskju um staðsetningu þeirra á hverjum tíma. Því kann að vera óljóst hvort farið sé að kröfu laganna þótt öryggi, varðveislutími og aðgengi séu fullnægjandi. Landfræðileg staðsetning gagna tryggir ein og sér hvorki örugga varðveislu þeirra né að unnt sé að kalla þau fram þegar á þarf að halda. Í frumvarspdrögunum er miðað að því að tryggja að gögn séu varðveitt með öruggum hætti og unnt sé að nálgast gögnin þegar þörf krefur og þar með með bregðast við breyttum aðstæðum vegna tækniþróunar við bókhald.
Skylda um skoðunarmann felld niður og gerð að heimild
Í frumvarpinu er almenn skylda til að velja skoðunarmann felld brott. Skiptar skoðanir hafa verið um ágæti yfirferðar skoðunarmanna en ekkert eftirlit hefur verið með vinnu og hæfi þeirra. Velji félag að kjósa sér skoðunarmann eru gerðar ítarlegri kröfur til skoðunarmanna og þeirra vinnu. Heimild er fyrir ráðherra að setja nánari kröfur um hæfiskilyrði skoðunarmanna í reglugerð.