10. nóvember 2026 /
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Fyrirkomulag húsnæðisstuðnings við leigjendur endurskoðað

{image.Description}
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur skipað starfshóp um endurskoðun á fyrirkomulagi húsnæðisstuðnings við leigjendur. Markmið endurskoðunarinnar er að gera húsnæðisstuðning við leigjendur markvissari og tryggja að hann nýtist betur tekju- og eignaminni hópum á leigumarkaði.

Hlutverk starfshópsins er að vinna tillögur til ráðherra um breytt fyrirkomulag húsnæðisstuðnings við leigjendur á grundvelli laga um húsnæðisbætur. Hópurinn mun meðal annars líta til fyrirkomulags húsnæðisstuðnings á Norðurlöndum og ábendinga alþjóðastofnana til íslenskra stjórnvalda um húsnæðisbætur.

Einnig verður horft til samspils húsnæðisbóta við annan húsnæðisstuðning við leigjendur, svo sem stofnframlög til almennra íbúða og sérstakan húsnæðisstuðning sveitarfélaga.

Þá mun starfshópurinn skoða hvort breytt fyrirkomulag húsnæðisstuðnings við leigjendur eigi að gilda, að hluta eða öllu leyti, um húsnæðisstuðning við búseturéttarhafa í húsnæðissamvinnufélögum. Gert er ráð fyrir að hópurinn skili skýrslu með tillögum sínum til ráðherra fyrir 30. apríl nk.

Aðgerðir til að styrkja stöðu leigjenda og bæta leigumarkaðinn

 

Starfshópurinn er skipaður í samræmi við boðaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum sem kynntar voru í vor, auk aðgerða til að styrkja stöðu leigjenda og bæta leigumarkaðinn.

Starfshópurinn er svo skipaður:

  • Yngvi Ómar Sigrúnarson, formaður.
  • Rún Knútsdóttir, fulltrúi félags- og húsnæðismálaráðuneytisins.
  • Róbert Farestveit, fulltrúi Alþýðusambands Íslands.
  • Jana Eir Víglundsdóttir, fulltrúi BHM, BSRB og Kennarasambands Íslands.
  • Regína Valdimarsdóttir, fulltrúi Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.
  • Ólafur Garðar Halldórsson, fulltrúi Samtaka atvinnulífsins.

Með starfshópnum starfar Kristín Sandra Karlsdóttir, sérfræðingur á skrifstofu húsnæðis- og skipulagsmála í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu.

Var efnið hjálplegt?