Frumvarp um RÚV afgreitt úr ríkisstjórn
Frumvarp menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um breytingar á lögum um Ríkisútvarpið var samþykkt á fundi ríkisstjórnar á þriðjudaginn síðastliðinn. Frumvarpið tók breytingum eftir birtingu í samráðsgátt stjórnvalda.
Frumvarpið miðar að því að draga úr umsvifum Ríkisútvarpsins á fjölmiðlamarkaði og er liður í aðgerðaáætlun stjórnvalda í málefnum fjölmiðla. Það tengist jafnframt áformum um að hækka fjárframlög til einkarekinna fjölmiðla. Kjarnabreytingarnar sem frumvarpið felur í sér eru tvíþættar:
- Dregið verði úr fjárframlagi ríkisins til Ríkisútvarpsins sem nemur tíu prósentum (10%) af auglýsingatekjum Ríkisútvarpsins.
- Felldar verða brott kvaðir um lágmarksfjölda útvarps- og sjónvarpsstöðva sem Ríkisútvarpinu er skylt að dreifa um allt land.
Frumvarpið tók þeim breytingum eftir samráð að fallið var frá fyrri áformum um „þak“ á auglýsingatekjur RÚV. Samhliða því var ákveðið að flýta gerð nýs þjónustusamnings ráðherra við Ríkisútvarpið. Í nýjum þjónustusamningi verða RÚV lagðar auknar skyldur á herðar, m.a. um samnýtingu tækjabúnaðar og annað samstarf við einkarekna fjölmiðla í samræmi við aðgerðaáætlun stjórnvalda fyrir íslenska fjölmiðla.
Víðtækt samráð leiddi til breytinga
Við vinnslu frumvarpsins og aðgerðaáætlunarinnar var haft samráð við fjölmiðla, Ríkisútvarpið, Blaðamannafélag Íslands, fulltrúa auglýsenda, framleiðendur o.fl. Frumvarpsdrög voru birt í samráðsgátt stjórnvalda á tímabilinu 25. september–12. október 2026 og bárust sex umsagnir.
Unnið var úr athugasemdum og sú breyting gerð að fallið var frá því að kveða á um 2,8 milljarða kr. hámark („þak“) á auglýsingatekjur Ríkisútvarpsins. Með því var brugðist við athugasemdum hagaðila í samráðsgátt þar sem fram komu sjónarmið um að slíkt „þak“ á auglýsingatekjur Ríkisútvarpsins gæti leitt til undirverðlagningar auglýsinga á íslenskum auglýsingamarkaði.
Samhliða því hefur verið ákveðið að flýta gerð nýs þjónustusamnings menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra við Ríkisútvarpið. Nýr þjónustusamningur hefði átt að taka gildi í upphafi árs 2028 en tekur þess í stað gildi um mitt ár 2027. Við gerð nýja þjónustusamningsins verða Ríkisútvarpinu lagðar auknar skyldur á herðar um samstarf við einkarekna fjölmiðla, sem er í anda þeirrar sýnar sem birtist í aðgerðaáætlun stjórnvalda fyrir íslenska fjölmiðla. Þar segir meðal annars:
“Stjórnvöld telja því mikilvægt að standa vörð um Ríkisútvarpið - en undir breyttum formerkjum. Þess vegna verður skerpt á þeirri sýn stjórnvalda, í þjónustusamningi við Ríkisútvarpið, að RÚV gegni mikilvægu stuðningshlutverki við fjölmiðla landsins. Staða Ríkisútvarpsins í vistkerfi íslenskra fjölmiðla markist ekki af samkeppni við aðra fjölmiðla, heldur miði starfsemi RÚV að auknu samstarfi innan fjölmiðlaumhverfisins. Slíku samstarfi verði ætlað að efla umhverfið í heild sinni í samkeppni íslenskra fjölmiðla við erlenda tæknirisa.”
Ekki er lagt til að hækka hlutfall tekjuskerðingar af auglýsingatekjum Ríkisútvarpsins, líkt og flestir umsagnaraðilar lögðu til. Greining á fjárhagsáhrifum frumvarpsins sýnir að 10% skerðing felur í sér neikvæð áhrif á sjóðstreymi Ríkisútvarpsins, að teknu tilliti til mótvægisaðgerðar sem lýtur að lífeyrisskuldbindingum félagsins. Ríkisútvarpið vinnur nú þegar að fækkun stöðugilda á grundvelli fyrirliggjandi tekjuáætlunar. Frekari tekjuskerðing myndi leiða til enn meiri fækkunar stöðugilda og/eða samdráttar í dagskrárframboði hjá Ríkisútvarpinu. Markmið stjórnvalda með frumvarpinu er ekki að skerða fjölmiðlaþjónustu Ríkisútvarpsins í almannaþágu, heldur að styrkja innlent fjölmiðlaumhverfi í heild sinni.
Tvær veigamiklar breytingar
Frumvarpið felur í sér tvær veigamiklar breytingar á starfsemi Ríkisútvarpsins líkt og áður segir:
Lágmarksfjöldi stöðva felldur út
Felldar verða út kvaðir um lágmarksfjölda útvarps- og sjónvarpsstöðva sem Ríkisútvarpinu er skylt að dreifa um allt land.
10% skerðing á auglýsingatekjum
Tekjur RÚV af útvarpsgjaldi verða skertar um fjárhæð sem nemur 10% af auglýsingatekjum RÚV á ári hverju. Fjárhæðinni verður síðan varið til aukins stuðnings við einkarekna fjölmiðla.
Þessum breytingum, samhliða áformum um hækkun fjárframlaga til einkarekinna fjölmiðla, er ætlað að:
- Koma í veg fyrir að breytingar á tekjuöflun Ríkisútvarpsins leiði til þess að meira auglýsingafé renni úr landi.
- Tryggja að slíkar breytingar skili sér raunverulega til annarra íslenskra fjölmiðla.
- Ríkisútvarpið verði áfram aðgengilegur auglýsingavettvangur sem auglýsendur og framleiðendur telja forsendu þess að framleitt verði íslenskt efni og kvikmyndaðar auglýsingar.
Frumvarpið hefur verið lagt fram á Alþingi og mun ráðherra mæla fyrir því á morgun, miðvikudag. Lagt er upp með að frumvarpið verði að lögum í janúar 2027.