Fyrsta skóflustunga að nýrri Þjóðarhöll
Fyrsta skóflustunga að nýrri Þjóðarhöll í Laugardal var tekin í dag, fimmtudaginn 12. nóvember 2026. Þar með eru framkvæmdir formlega hafnar við nýjan heimavöll íslenskra landsliða í innanhússíþróttum, mannvirki sem stenst alþjóðlegar kröfur um keppnisaðstöðu. Ný Þjóðarhöll markar tímamót í uppbyggingu Laugardals og gjörbyltir aðstöðu barna og ungmenna í Laugardal til æfinga, keppni og skólastarfs.
Athöfnin hófst kl. 13:00 í Laugardalshöll að viðstöddum fjölda gesta. Ávörp fluttu Thomas Möller, formaður stjórnar Þjóðarhallar ehf.; Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra; Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur; Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra; Sveinbjörn Jónsson, verkefnastjóri hjá Íslenskum aðalverktökum; og Willum Þór Þórsson, forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.
Að ávörpum loknum var gengið út á lóð Þjóðarhallar, þar sem ungt afreksíþróttafólk úr landsliðum og félögum í Laugardal tók fyrstu skóflustunguna.
Fyrstu skóflustunguna tóku:
- Helga Jenný Vigfúsdóttir – Handknattleikssamband Íslands
- Hulda María Agnarsdóttir – Körfuknattleikssamband Íslands
- Fjölnir Logi Halldórsson – Blaksamband Íslands
- Þorsteinn Orri Ólafsson – Fimleikasamband Íslands
- Hjalti Björnsson – Glímufélagið Ármann
- Saga Björgvinsdóttir – Knattspyrnufélagið Þróttur
„Með skóflustungunni hefst nýr kafli í íslenskri íþróttasögu. Ný Þjóðarhöll verður heimavöllur landsliðanna okkar og vettvangur stórra stunda, og hún bætir jafnframt aðstöðu barna og ungmenna í Laugardal. Það er við hæfi að ungt afreksíþróttafólk taki fyrstu skóflustunguna, því það er fyrir það og komandi kynslóðir sem við byggjum þetta hús,“ segir Thomas Möller, formaður stjórnar Þjóðarhallar ehf.
„Það er óhætt að segja að þetta sé gleðidagur. Að baki þessum áfanga liggur mikil vinna sem hófst í mennta- og barnamálaráðuneytinu, í góðu samstarfi við borgina, fjármálaráðuneytið og íþróttahreyfinguna. Ég þakka öllum sem hafa lagt hönd á plóg og unnið að því að gera þetta að veruleika. Svona náum við árangri þegar við tökum höndum saman,“ segir Inga Sæland, ráðherra íþróttamála. „Nú hefjast framkvæmdir við verkefni sem svo margir hafa beðið eftir. Það er mikið tilhlökkunarefni!“
„Þetta er dagur sem margir hafa beðið eftir lengi. Mörg fyrirheit hafa verið gefin en nú er loksins hafist handa enda lætur ríkisstjórnin hendur standa fram úr ermum. Þjóðarhöllin er gott dæmi um verkefni sem sýnir hverju er hægt að áorka þegar sameinast er um skýra framtíðarsýn og langtímamarkmið,“ segir Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra.
„Með Þjóðarhöllinni er Reykjavíkurborg að fjárfesta í framtíð barna og ungmenna í Reykjavík. Þjóðarhöllin mun bylta aðstöðu íþróttafélaganna Þróttar og Ármanns í Laugardal og skapa ný tækifæri fyrir grunnskólabörn til íþróttaiðkunar, hreyfingar og þátttöku í öflugu félagsstarfi. Um leið styrkjum við Laugardalinn enn frekar sem hjarta íþrótta, útivistar og lýðheilsu á Íslandi,“ segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri.
Þjóðarhöllin er afrakstur samstarfs ríkis, Reykjavíkurborgar og íþróttahreyfingarinnar. Hún verður um 17.700 fermetrar, með 8.600 sætum, og getur tekið allt að 12.000 gesti á viðburðum. Stefnt er að því að Þjóðarhöllin verði tilbúin í janúar 2030, í tæka tíð fyrir heimsmeistaramót karla í handknattleik 2031 sem Ísland heldur ásamt Danmörku og Noregi.
Um Þjóðarhöll
- Nýtt fjölnota mannvirki fyrir innanhússíþróttir, menningu, kennslu og viðburði, í Laugardal sunnan við Laugardalshöll. Þjóðarhöllin tengist bæði Laugardalshöll og Frjálsíþróttahöllinni.
- Um 17.700 m², 8.600 sæti og allt að 12.000 gestir á viðburðum.
- Laugardalshöll, sem var vígð 1965, uppfyllir ekki lengur alþjóðlegar kröfur um keppnisaðstöðu og landsliðin hafa leikið þar á undanþágu.
- Verksamningur um hönnun og byggingu var undirritaður 30. september 2026 við Íslenska aðalverktaka og samstarfsaðila þeirra: ASK arkitekta, COWI, LPO arkitekter, Ísloft, EOH og Landhönnun. Samningurinn var gerður að loknu forvali og samkeppnisútboði.
- Samningsupphæð er 16,825 milljarðar króna með virðisaukaskatti, bundin vísitölu byggingarkostnaðar frá janúar 2026. Ríkissjóður Íslands og Reykjavíkurborg fjármagna verkefnið.
- Þjóðarhöll ehf. var stofnuð í janúar 2024 og er í eigu ríkissjóðs Íslands (55%) og Reykjavíkurborgar (45%).
- Stefnt er að BREEAM-umhverfisvottun með einkunnina „Very Good“. Þjóðarhöllin verður hönnuð samkvæmt algildri hönnun, sem tryggir að húsið verði opið öllum almenningi.
Myndir til birtingar
Vinsamlegast merkið myndirnar: Ljósmynd: Þráinn Kolbeinsson
Myndir af Þjóðarhöll í fullri upplausn:
Vinsamlegast merkið þær: Mynd: Þjóðarhöll ehf.
Nánari upplýsingar um verkefnið eru á thjodarholl.is.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Hrannar Hafsteinsson, verkefnastjóri hjá Þjóðarhöll ehf.
Sími 860 4410 · hrannar@thjodarholl.is