12. nóvember 2026 /
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Innviðaráðuneytið

Íslensku menntaverðlaunin 2026

{image.Description}
Halla Tómasdóttir forseti Íslands ávarpar samkomuna á Bessastöðum /Mynd: Mummi Lú

Íslensku menntaverðlaunin 2026 voru veitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum 10. nóvember. Verðlaunin eru veitt í fimm flokkum; fyrir framúrskarandi skóla- eða menntaumbótastarf, kennslu, þróunarverkefni, iðn- og verkmenntun, auk sérstakra hvatningarverðlauna.

Markmið verðlaunanna er að vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum. Að auki er veitt hvatning til einstaklings, hóps eða samtaka sem stuðlað hafa að menntaumbótum er þykja skara fram úr. Verðlaunin ná til leik-, grunn- og framhaldsskólastigs, sem og til listnáms og félags- og tómstundastarfs.

A. Framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur

Verðlaunin í ár fær Starfsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti fyrir að þróa einstaklingsmiðað nám sem hefur það að markmiði að þroska með nemendum hæfni sem gerir þeim fært að takast á við fjölbreytt viðfangsefni daglegs lífs. Starfsbrautin er ætluð nemendum með fötlun eða sérstaka námserfiðleika og markvisst er unnið að því að auka sjálfstæði þeirra og sjálfsábyrgð.

Margrét Jónsdóttir Njarðvík, skólameistari Fjölbrautaskólans í Breiðholti, og Sigurður Fjalar Jónsson fagstjóri starfsbrautarinnar taka við verðlaununum úr hendi forseta Íslands /Mynd: Mummi Lú
Margrét Jónsdóttir Njarðvík, skólameistari Fjölbrautaskólans í Breiðholti, og Sigurður Fjalar Jónsson fagstjóri starfsbrautarinnar taka við verðlaununum úr hendi forseta Íslands /Mynd: Mummi Lú

Námið er sniðið að hverjum nemanda og áhersla lögð á að hlusta á óskir þeirra. Vettvangs- og fræðsluferðir, útinám, heimsóknir, ratleikir, verkleg viðfangsefni, sköpun, hreyfing, hönnun og lausnaleit eru dæmi um þær fjölbreyttu kennsluaðferðir sem áhersla er lögð á.

B. Framúrskarandi kennari

Verðlaunin í ár hlýtur Sandra Ómarsdóttir, kennari í Seljaskóla í Reykjavík, fyrir framúrskarandi sviðslistakennslu.

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. afhendir Söndru Ómarsdóttur, kennara í Seljaskóla í Reykjavík, viðurkenningu sem framúrskarandi kennari/ Mynd: Mummi Lú
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. afhendir Söndru Ómarsdóttur, kennara í Seljaskóla í Reykjavík, viðurkenningu sem framúrskarandi kennari/ Mynd: Mummi Lú

Á hverju ári setur Sandra upp metnaðarfullar og vandaðar leiksýningar með nemendum í Seljaskóla sem hafa vakið mikla og verðskuldaða athygli. Sýningarnar þykja einkennast af faglegum vinnubrögðum, ríkri listrænni sýn og vandaðri útfærslu þar sem hvert smáatriði er úthugsað.

C. Framúrskarandi þróunarverkefni

Verðlaunin í ár eru veitt verkefninu Söngvavori sem er samstarfsverkefni leikskóla og tónlistarskóla. Síðast liðið vor náði verkefnið til ríflega 3000 barna í 140 leikskólum og 15 tónlistarskólum víða um land. Á hverju ári er valið íslenskt tónskáld og verk þess útsett sérstaklega með raddsvið leikskólabarna og getu ungra hljóðfæraleikara í huga. Leikskólabörnin heimsækja tónlistarskólana og æfa með nemendum á aldrinum 10–16 ára sem leika undir á hljóðfæri. Verkefninu lýkur með tónleikum í menningarhúsum hvers sveitarfélags. Reynsla af verkefninu og rannsóknir sýna að upplifunin af því að stíga á svið og flytja tónlist fyrir framan fjölskyldur og nærsamfélag hefur mótandi áhrif á sjálfsmynd og félagsfærni barna.

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra veitir Elfu Lilju Gísladóttur verkefnisstjóra Söngvavors og Júlíönu Rún Indriðadóttur, skólastjóra Tónskóla Sigursveins, viðurkenningu fyrir framúrskarandi þróunarverkefni /Mynd: Mummi Lú

D. Framúrskarandi iðn- eða verkmenntun

Í ár koma verðlaunin í hlut Verkmenntaskólans á Akureyri fyrir sjálfbæra kennslustofu, nýsköpunarverkefni sem er til fyrirmyndar um markvissa umhverfismennt. Í skólanum hefur verið sett upp sólarorkuver og aðstaða sköpuð fyrir nemendur til að fást við margs konar verkefni sem tengjast sjálfbærri orkunotkun. Markmiðið er að útskrifaðir nemendur hafi þekkingu til að leysa orkumál samtímans á sjálfbæran hátt.

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, afhendir Ástu Fönn Flosadóttur aðstoðarskólameistara VMA og Hauki Eiríkssyni brautarstjóra viðurkenningu fyrir framúrskarandi iðn- eða verkmenntun /Mynd: Mummi Lú

E. Hvatningarverðlaun

Hvatningarverðlaun Íslensku Menntaverðlaunanna eru veitt einstaklingi, hópi eða samtökum sem stuðlað hafa að menntaumbótum er þykja skara fram úr. Í ár hlýtur þessi verðlaun Opni Leikskóli MEMMM fyrir mikilvægt starf í þágu barnafjölskyldna með ung börn.

Opni leikskólinn býður barnafjölskyldum aðstöðu til að hittast; leika, syngja og skapa í örvandi umhverfi. Starfsemin mætir þörfum fjölskyldna sem bíða eftir leikskólaþjónustu og skapar börnum og foreldrum tækifæri til samveru, leiks og fræðslu. Á síðasta skólári voru heimsóknir í skólann um 5.200.

Guðfinna S. Bjarnadóttir formaður viðurkenningarráðs veitir Kristínu Stefánsdóttur, formanni samtakanna sem standa að MEMMM, og Helgu Hreiðarsdóttur leikskólakennara hvatningarverðlaun íslensku menntaverðlaunanna /Mynd: Mummi Lú

Að menntaverðlaununum standa embætti forseta Íslands, mennta- og barnamálaráðuneytið, innviðaráðuneytið, Félag um menntarannsóknir, Grunnur – félag fræðslustjóra og stjórnenda skólaskrifstofa, Kennaradeild Háskólans á Akureyri, Kennarasamband Íslands, Listaháskóli Íslands, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök áhugafólks um skólaþróun, Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar og Samtök iðnaðarins.

Mennta- og barnamálaráðuneytið, innviðaráðuneytið og Samtök iðnaðarins fjármagna verkefnið.

Athygli er vakin á því að þegar er hægt að senda inn tillögur að tilnefningum fyrir næsta ár, sjá á www.skolathroun.is þar sem einnig er að finna nánari upplýsingar um verðlaunahafa og tilnefningar.

Var efnið hjálplegt?