Dagur íslenskrar tungu 2026: Verðlaunahafar og 30 ára afmæli
Vilhjálmur Þorsteinsson, stofnandi og stjórnarformaður Miðeindar og höfundur Netskrafls, hlaut verðlaun Jónasar Hallgrímssonar árið 2026. Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn í Eddu í gær en félagið Gefum íslensku séns hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir stuðning við íslenska tungu.
Dagur íslenskrar tungu er haldinn hátíðlegur ár hvert á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, 16. nóvember. Dagurinn var fyrst haldinn hátíðlegur árið 1996 og fagnar því 30 ára afmæli í ár.
Vilhjálmur hefur lagt mikilvægan grunn
Í umsögn dómnefndar kemur fram að á tímum örra tæknibreytinga, spjallmenna og gervigreindar sé lífsnauðsynlegt að íslenskan verði ekki skilin útundan. Mikilvægt sé að þróa tækni sem styður notkun tungumálsins og gerir fólki kleift að nota íslensku í stafrænum samskiptum og daglegu lífi. Vilhjálmur hefur starfað við forritun og upplýsingatækni í um fjóra áratugi og komið að mörgum ólíkum verkefnum á því sviði. Eitt það afdrifaríkasta er hagnýting á gagnagrunni Árnastofnunar, Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls, en á henni byggði Vilhjálmur upp Netskrafið árið 2014. Í kjölfarið vann hann að Greyni, málgreini fyrir íslensku, og stofnaði máltæknifyrirtækið Miðeind sem hagnýtir gögn og gagnagrunna íslenskunnar og hannar verkfæri íslenskunni til framdráttar, svo sem þýðingartól, málrýni, talgreiningartækni og ljóslýsingu.
Dómnefnd vekur jafnframt athygli á samfélagslegri sýn Miðeindar, en fyrirtækið er tilgangsdrifið og leggur áherslu á að þróa opinn hugbúnað sem nýtist almenningi, atvinnulífi og vísindasamfélaginu.
Í niðurlagi rökstuðnings dómnefndar segir: „Á íslensku má alltaf finna svar,“ segir í ljóði Þórarins Eldjárns. Vilhjálmur Þorsteinsson hefur sannarlega lagt sitt af mörkum til þess að á íslensku megi áfram alltaf finna svar.
Vinir íslenskunnar
Í þakkarræðu sinni fór Vilhjálmur yfir hina hröðu tæknibreytingar sem hafa átt sér stað og mikilvægi þess að íslenskan eigi góða vini:
„Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar eru veitt einstaklingi, en verkið er unnið af hópi. Hjá Miðeind starfar fólk sem gæti hæglega unnið í banka, eða hjá erlendum tæknirisum, á eflaust umtalsvert betri launakjörum. En það kýs að vinna fyrir íslenskuna, af hugsjón og vilja til að styðja málstaðinn með snilli sinni. Ég tek við heiðrinum fyrir þeirra hönd og þakka þeim.
Máltækniáætlun stjórnvalda var okkur mikil lyftistöng, og opin gögn Árnastofnunar hafa verið ómetanleg sem grunnur rannsókna og þróunar. Það er ekki tilviljun að íslenskan stendur betur í gervigreindinni en flest tungumál af hennar stærð. Það er vegna þess að skipulega hefur verið unnið að því að safna, skrá og opna gögn - af metnaði sem á rætur að rekja allt til handritanna sem hýst eru í þessu húsi - og því þarf að halda áfram.
Sama hugsun býr að baki Snöru, rafræna safninu af orðabókum og heimildaritum sem Miðeind hýsir nú og heldur við. Þannig verða slík verk notuð og bætt í framtíðinni: rafrænt og á skjá fremur en á pappír. Við finnum til ábyrgðar gagnvart því að geyma og styðja íslenskuna í því framtíðarformi og mæta fjölbreyttum hópi notenda þar sem þeir eru staddir.
Í samhengi Snöru og orðabóka get ég ekki látið hjá líða að minnast Marðar Árnasonar, sem er nýfallinn frá. Mörður var meðal annars ritstjóri Íslenskrar orðabókar og höfundur Slangurorðabókarinnar, og lagði víða hönd á plóg fyrir málstaðinn. Þar er genginn einn af bestu vinum íslenskunnar og sannarlega skarð fyrir skildi.“
Tungumálanám ekki bundið við kennslustofur
Sérstaka viðurkenningu fyrir stuðning við íslenska tungu hlaut félagið Gefum íslensku séns, sem á rætur að rekja til Háskólaseturs Vestfjarða.
Verkefnið byggir á þeirri hugmynd að allir sem tala íslensku geti verið „almannakennarar“ og hjálpað öðrum að tileinka sér tungumálið. Með því að sýna þolinmæði, skilning og halda áfram að tala íslensku í stað þess að skipta sjálfkrafa yfir í ensku geti allir lagt sitt af mörkum til íslenskunáms annarra. Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus í íslenskri málfræði, tók við viðurkenningunni fyrir hönd félagsins.
Í rökstuðningi dómnefndar er sérstaklega bent á að framlag íslenskumælandi fólks til máltileinkunar innflytjenda fái oft minni athygli en skyldi. Tregða til að tala íslensku við þá sem eru að læra málið geti verið ein helsta hindrunin í íslenskunámi.
Dómnefnd lýsir verkefninu sem „mikilvægu grasrótarstarfi sem nálgast íslenskukennslu á frumlegan og skilningsríkan hátt“ og minnir á að tungumálanám sé ekki bundið við kennslustofur heldur eigi sér stað alls staðar í samfélaginu.