Hæfnisnefnd metur tvo umsækjendur hæfasta
Hæfnisnefnd um umsækjendur um embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hefur skilað umsögn sinni til ráðuneytisins.
Það var niðurstaða nefndarinnar að María Káradóttir og Margrét Kristín Pálsdóttir teljast hæfastar til að gegna embættinu. Að mati nefndarinnar stóðu þær fremstar umsækjenda þegar lagt hafði verið mat á hæfni út frá þeim hæfnisþáttum sem komu fram í auglýsingu og fullnægðu best þeim hæfniskröfum sem settar voru fram.
Þeir fjórir umsækjendur sem boðaðir voru í viðtal og kynningar við nefndina fengu afrit af umsagnardrögum og var boðið að senda ábendingar eða athugasemdir. Allir fjórir nýttu þann rétt sinn en í ábendingum og athugasemdum komu ekki fram upplýsingar sem höfðu áhrif á heildarmat. Niðurstaða hæfnisnefndarinnar breyttist því ekki.