Launaskrið og staða efnahagsmála rædd á fundi þjóðhagsráðs
Frummat kjaratölfræðinefndar á umfangi og þróun launaskriðs var til umræðu á fundi þjóðhagsráðs síðastliðinn fimmtudag. Launaskrið er skilgreint sem sá hluti launaþróunar sem fer umfram kostnaðarmat og innbyggðar hækkanir þeirra kjarasamninga sem eru í gildi á hverjum tíma. Greining kjaratölfræðinefndar var gerð að ósk stýrihóps ríkisstjórnar, ASÍ og SA sem var að störfum var síðastliðið sumar í tengslum við þríhliða samtal þessara aðila um verðlagsþróun í samhengi við kjarasamninga á almennum vinnumarkaði.
Á fundinum var jafnframt farið yfir stöðu aðgerða í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, Alþýðusambands Íslands, Samtaka atvinnulífsins og Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna kjarasamninga á almennum vinnumarkaði sem var undirrituð 8. október sl.
Loks var á fundinum kynning frá Seðlabanka Íslands um stöðu og horfur í efnahagsmálum og umræður um þær.