24. nóvember 2026 /
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Innviðaráðuneytið
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Utanríkisráðuneytið

Starfshópur um endurskoðun ETS-kerfisins óskar umsagna

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, skipaði í haust starfshóp um hagsmunagæslu í tengslum við endurskoðun viðskiptakerfis ESB með losunarheimildir (ETS-kerfið). Hópurinn er skipaður fulltrúum úr fjármála- og efnahagsráðuneytinu, innviðaráðuneytinu, utanríkisráðuneytinu, Umhverfis- og orkustofnun og umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytinu.

Hlutverk starfshópsins er að undirbúa viðbrögð við löggjafartillögum framkvæmdastjórnar ESB vegna endurskoðunar ETS-kerfisins sem kynntar voru 17. júlí sl., þ.e. COM (2026) 616 og tengdar gerðir.

Við vinnu sína hefur hópurinn þegar tekið mið af þeim umsögnum íslenskra hagaðila sem bárust í samráðsgátt framkvæmdastjórnarinnar, Have Your Say, í nóvember sl. Hafi aðilar hug á að koma á framfæri sínum sjónarmiðum eða athugasemdum við tillöguna skal það gert á netfangið urn@urn.is. Frestur til að senda inn ábendingar og/eða athugasemdir er til loka dags 29. nóvember nk.

Var efnið hjálplegt?