25. nóvember 2026 /
Innviðaráðuneytið

Eftirlit með netöryggi mikilvægra innviða samræmt og stjórnsýsla gerð einfaldari

Pexels

 

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra mælti á Alþingi í gær fyrir frumvarpi til breytinga á lögum um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða (nr. 78/2019). Markmiðið er að samræma eftirlit með netöryggi mikilvægra innviða og gera stjórnsýslu málaflokksins einfaldari og skilvirkari.

Í frumvarpinu er lagt til að eftirlit með framkvæmd laganna verði fært á eina hendi, til Fjarskiptastofu. Stofnunin hafi þegar mótað aðferðafræði og byggt upp sérþekkingu á áhættumiðuðu netöryggiseftirliti. Breytingin væri í samræmi við tillögur stýrihóps um endurskoðun stjórnskipulags netöryggismála (mars 2026) og stefnu ríkisstjórnarinnar um einföldun stjórnsýslu.

„Ein öflug stofnun er betur í stakk búin til að framfylgja kröfum laganna með samræmdum hætti, nýta sérþekkingu betur og einfalda samskipti við þá mikilvægu innviði sem lögin taka til. Það er mitt mat að breytingarnar stuðli að skýrara og samræmdara eftirliti með netöryggi mikilvægra innviða og að auknum viðnámsþrótti þeirrar þjónustu sem samfélagið reiðir sig á á hverjum degi,“ segir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra.

Embætti landlæknis, Samgöngustofa og Umhverfis- og orkustofnun munu eftir sem áður ákveða, ásamt Fjarskiptastofu og Seðlabanka Íslands hvert á sínu fagsviði, hvaða aðilar teljast rekstraraðilar nauðsynlegrar þjónustu. Því er áfram gert ráð fyrir nánu samráði stofnananna við Fjarskiptastofu.

Frumvarpið felur ekki í sér útgjaldaaukningu en fyrirhugað er að taka fjármögnun eftirlitsins til heildstæðrar endurskoðunar við innleiðingu á NIS2, nýrrar netöryggistilskipunar ESB.

Breytt hlutverk netöryggisráðs

Í frumvarpinu er einnig lagt til að netöryggisráð fái breytt hlutverk og skýrari lagagrundvöll. Ráðið verði sameiginlegur vettvangur Fjarskiptastofu, netöryggissveitarinnar CERT-IS og embættis ríkislögreglustjóra og skipað tveimur fulltrúum frá hverjum aðila. Þar yrði skipst á upplýsingum um netöryggisógnir og unnið saman að fyrirbyggjandi ráðstöfunum og aðgerðum eftir því sem við á.

Var efnið hjálplegt?