Vinna við fjórðu þyrluna sett í forgang
Ákveðið var á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun að flýta því ferli að Landhelgisgæslan fái fjórðu þyrluna. Þyrlan verður staðsett á Akureyri.
Óskað verður eftir 600 milljóna króna framlagi við aðra umræðu fjárlagafrumvarpsins til að hefja framkvæmdir við flugskýli fyrir þyrluna sem fyrst.
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra tók málið upp á fundi ríkisstjórnarinnar. Fjórða þyrlan eykur verulega getu Landhelgisgæslunnar til að halda uppi viðbragðsgetu á hafsvæðinu í kringum Ísland. Gera má ráð fyrir að með henni verði tvær þyrlur til taks 95 til 98 prósent hluta árs en ekki 60 prósent eins og nú er. Sjöundu áhöfninni verður bætt við og áætlaður kostnaður verður um einn milljarður á ári. Reikna má með að ferlið geti tekið eitt til þrjú ár.
„Markmið þessarar ríkisstjórnar hefur verið að fjölga þyrlum Landhelgisgæslunnar úr þremur í fjórar á kjörtímabilinu. Ég hef talað fyrir að fjórða þyrlan yrði staðsett á Akureyri og það hafa líka fleiri gert. Hörmulegt sjóslys í vikunni minnir okkur á hversu miklu skiptir að Landhelgisgæslan geti brugðist skjótt við þegar mannslíf eru í húfi. Það er á ábyrgð stjórnvalda að búa stofnuninni sem best skilyrði til þess. Ég er þess vegna mjög ánægð að hafa fengið umboð til að flýta þessu ferli.“
Í forgangi hjá Landhelgisgæslunni
Um leið og ríkisstjórnarfundi lauk upplýsti ráðuneytið forstjóra Landhelgisgæslunnar og framkvæmdastjóra siglingasviðs um ákvörðun ríkisstjórnarinnar.
Í erindi ráðuneytisins var óskað eftir því að Landhelgisgæslan setti í forgang vinnu við að kanna hvaða möguleikar séu í boði varðandi leigu á þyrlu og upplýsinga aflað um fyrsta mögulega afhendingartíma. Þá á að kanna hvort mögulegt sé að finna aðra þyrlu til bráðabirgða sem hægt væri að nota þar til leiguþyrla fæst afhent til notkunar.