4. nóvember 2026 /
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Áfram fjárfest í orkusparnaði og samkeppnishæfni garðyrkjunnar

{image.Description}
Þriðji áfangi er hafinn í fjárfestingarátaki stjórnvalda og garðyrkjubænda sem miðar að orkusparnaði í gróðurhúsum.

Þriðji áfangi er hafinn í fjárfestingarátaki stjórnvalda og garðyrkjubænda sem miðar að orkusparnaði í gróðurhúsum. Átakið hófst vorið 2025 með styrkjum Loftslags- og orkusjóðs til garðyrkjubúa á grundvelli breytinga sem Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra gerði á reglugerð um sjóðinn. Nú hefur verið opnað fyrir styrkina í þriðja skipti.

 

„Árangurinn hefur verið fram úr björtustu vonum,“ segir ráðherra. „Árið 2025 skiluðu aðgerðirnar sér í raforkusparnaði upp á 18 GWst eða sem nemur árlegri rafmagnsnotkun 6 þúsund rafbíla. Og það vill svo til að það voru einmitt 6 þúsund rafbílar sem bættust á göturnar á Íslandi árið 2025. Þannig að hér erum við að anna orkuþörf vegna orkuskipta í vegasamgöngum nánast að fullu með bættri nýtingu á þeirri orku sem þegar er framleidd. Í ofanálag eru aðgerðirnar til þess fallnar að styðja við framleiðni í ylrækt, draga úr rekstrarkostnaði bænda til lengri tíma og styrkja samkeppnishæfni íslenskrar grænmetisframleiðslu.“

Styrkirnir eru veittir til framleiðenda garðyrkjuafurða og taka m.a. til LED-ljósabúnaðar, tölvu- og stýribúnaðar og gardínukerfa. Heildarfjárhæð til úthlutunar verður allt að 150 milljónir króna og nemur hver styrkur að hámarki 40% af heildarkostnaði hvers verkefnis eða 20 m.kr. fyrir hvern framleiðanda.

Nánari upplýsingar er að finna á vef Loftslags- og orkusjóðs og er umsóknarfrestur til 9. desember 2026.

Orkusparandi aðgerðir í gróðurhúsum

Var efnið hjálplegt?