Framtíðarsýn um samhæfða stafræna innviði í þágu farsældar barna
Stýrihópur mennta- og barnamálaráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga um samhæfða stafræna innviði í þágu farsældar barna hefur lokið störfum. Hópurinn vann að sameiginlegri framtíðarsýn ráðuneytisins og Sambandsins um öflun og nýtingu gagna og stafræna þróun hins opinbera í málefnum barna. Framtíðarsýnin er unnin í tengslum við samkomulag ráðuneytisins og Sambandsins sem undirritað var 23. september 2025.
Markmið framtíðarsýnarinnar er að skapa forsendur fyrir markvissri hagnýtingu gagna í þágu farsældar barna og tryggja samhæfingu tæknilegra staðla og lausna. Lögð er áhersla á að upplýsingar sem þurfa að fylgja barni milli kerfa og þjónustustiga séu áreiðanlegar, öruggar og aðgengilegar þeim aðilum sem hafa heimild til að nýta þær. Markmiðið er ekki að safna öllum upplýsingum um börn á einn stað heldur að tengja betur saman þá innviði og kerfi sem þegar eru til.
Mikil samstaða var innan stýrihópsins um mikilvægi þess að tryggja rekstur þeirra kerfa sem þegar eru í notkun og skoða hvernig kerfi og lausnir sem hafa reynst vel í einstökum sveitarfélögum megi nýta á landsvísu. Jafnframt var lögð áhersla á að byggja áfram á þeim stafrænu innviðum sem þegar eru til og styrkja tengingar milli kerfa.
Í stýrihópnum sátu Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir formaður, Hlynur Bjarki Karlsson, sem fulltrúar ráðuneytisins, Þórdís Sveinsdóttir og Óskar Jörgen Sandholt, sem fulltrúar Sambandsins.
Mennta- og barnamálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga halda nú sameiginlega áfram vinnu við að hrinda framtíðarsýninni í framkvæmd. Nýr aðgerðarhópur ráðuneytisins og Sambandsins, í samstarfi við hagaðila, mun móta aðgerðaáætlun til næstu ára og forgangsraða þeim verkefnum sem nauðsynleg eru til að ná markmiðunum.
Meðal verkefna hópsins verður að vinna að samræmingu hugtaka og gagna, skýra eignarhald og ábyrgð á kerfum og gögnum, skoða hvernig tengja megi betur saman núverandi lausnir og móta tillögur að rekstrar- og fjármögnunarlíkani ríkis og sveitarfélaga fyrir stafrænar lausnir í málefnum barna. Stefnt er að því að meginmarkmið framtíðarsýnarinnar verði komin til framkvæmda fyrir lok árs 2028.