21. október 2026 /
Heilbrigðisráðuneytið
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Hjúkrunarheimilið Hlévangur opnað eftir endurbætur

{image.Description}
Hlévangur í Reykjanesbæ. Fyrstu íbúar eru þegar fluttir inn.

Hjúkrunarheimilið Hlévangur í Reykjanesbæ hefur verið tekið í notkun á ný eftir gagngerar endurbætur. Haldið var upp á opnun heimilisins í gær þar sem gestum og gangandi gafst kostur á að skoða húsnæðið að loknum vel heppnuðum framkvæmdum. Þar eru 24 hjúkrunarrými og fyrstu íbúarnir eru þegar fluttir inn. Húsið er á tveimur hæðum með skjólríkum inngarði. Öll rými eru einbýli með sérbaðherbergi og á báðum hæðum eru bjartar setustofur fyrir íbúana.

Hlévangi var lokað um síðustu áramót þegar nýtt hjúkrunarheimili Hrafnistu fyrir 80 íbúa var opnað við Nesvelli í Reykjanesbæ. Fljótlega var farið að skoða kosti þess að opna Hlévang tímabundið að nýju, ekki síst til að bregðast við alvarlegri stöðu á bráðamóttöku Landspítala vegna skorts á hjúkrunarrýmum fyrir einstaklinga sem á þurftu að halda að lokinni meðferð á spítalanum.

Húsnæði Hlévangs er í eigu Reykjanesbæjar. Að undangengnum viðræðum heilbrigðisráðuneytis, félags- og húsnæðismálaráðuneytis og fjármálaráðuneytis var ákveðið að leita samninga við Reykjanesbæ um leigu á húsnæðinu. Samningar gengu greiðlega, Reykjanesbær annaðist endurbætur húsnæðisins í góðu samstarfi við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sem jafnframt tók að sér að reka heimilið.

Í ávarpi við opnun Hlévangs ræddi Alma D. Möller heilbrigðisráðherra um þær aðgerðir sem stjórnvöld hafa ráðist í til að mæta uppsafnaðri innviðaskuld sem kallað hefur á skjótar lausnir, auk mikillar uppbyggingar á næstu árum. Inga Sæland, sem fer fyrir uppbyggingu hjúkrunarrýma, lagði áherslu á mikilvægi þess að taka utan um elsta aldurshópinn og veita fólki kærleik, öryggi og hlýju. Opnun Hlévangs hefði gengið afar vel og væri enn eitt stóra skrefið í þjóðarátaki um fjölgun hjúkrunarrýma.

Mikil fjölgun hjúkrunarrýma

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er rík áhersla lögð á málefni eldra fólks. Gert er ráð fyrir að ríflega 1.500 hjúkrunarrými verði tekin í notkun fyrir lok árs 2030 – þar af 1.355 ný rými.