Skipar svæðisráð um strandsvæðisskipulag fyrir Austfirði
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur skipað svæðisráð um strandsvæðisskipulag fyrir Austfirði. Svæðisráðið starfar á grundvelli laga um skipulag haf- og strandsvæða nr. 88/2018 og reglugerða sem settar eru á grundvelli þeirra.
Strandsvæðisskipulag fyrir Austfirði var samþykkt af innviðaráðherra í mars 2023. Hlutverk svæðisráðsins er að fjalla um álitamál sem félags- og húsnæðismálaráðherra, og eftir atvikum Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, beinir til svæðisráðsins. Ef endurskoða þarf strandsvæðisskipulag eða gera breytingu á því í samræmi við 14. gr. laganna skal ráðherra óska eftir því við svæðisráðið að það endurskoði skipulagið eða vinni tillögu að breytingu á því.
Guðjón Bragason er formaður svæðisráðsins og Albertína Friðbjörg Elíasdóttir varafulltrúi formanns. Í ráðinu eiga einnig sæti fulltrúar aðliggjandi sveitarfélaga, innviðaráðuneytisins, atvinnuvegaráðuneytisins, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun er svæðisráðinu til ráðgjafar. Stofnunin leggur ráðinu til aðstöðu og starfsmann vegna funda ráðsins.
Skipunartími svæðisráðsins er þar til að loknum næstu alþingiskosningum.