ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en fimm ára.
27. júní 2013
/
Mennta- og barnamálaráðuneytið

Auglýsing um styrki til námskeiða í íslensku haustið 2013

Auglýst er eftir umsóknum um styrki til námskeiða í íslensku sem ekki eru hluti af almennu námi á grunn- eða framhaldsskólastigi. Markmiðið með styrkjunum er að gefa öllum sem búsettir eru á Íslandi færi á að öðlast þá færni í íslensku að þeir geti orðið virkir samfélagsþegnar.

Fræðsluaðilar og fyrirtæki sem bjóða starfsmönnum sínum upp á skipulagða kennslu í íslensku og eru á fyrirtækjaskrá geta sótt um styrki. Fyrirtæki, sem ekki eru fræðsluaðilar, þurfa að láta undirritaðan samning við hæfan fræðsluaðila er annast kennsluna fylgja umsókninni.

  • Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi.
  • Umsóknareyðublöð og úthlutunarreglur eru aðgengilegar á vef mennta- og menningarmálaráðuneytis.
  • Umsóknir skal senda á postur@mrn.is.
  • Umsóknarfrestur er til 9. ágúst 2013.