ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en fimm ára.
2. júní 2014
/
Mennta- og barnamálaráðuneytið

Embætti þjóðleikhússtjóra laust til umsóknar

Embætti þjóðleikhússtjóra er laust til umsóknar, sbr. 6. gr. leiklistarlaga, nr. 138/1998. Þjóðleikhússtjóri er forstöðumaður Þjóðleikhússins og stjórnandi þess.


Embætti þjóðleikhússtjóra er laust til umsóknar, sbr. 6. gr. leiklistarlaga, nr. 138/1998. Þjóðleikhússtjóri er forstöðumaður Þjóðleikhússins og stjórnandi þess. Hann markar listræna stefnu leikhússins í samráði við þjóðleikhúsráð, stýrir leikhúsinu samkvæmt samþykktri starfs- og fjárhagsáætlun og ber ábyrgð á listrænum og fjárhagslegum rekstri þess.  Um frekara hlutverk þjóðleikhússtjóra og starfsemi Þjóðleikhússins vísast nánar til ákvæða leiklistarlaga.

Mennta- og menningarmálaráðherra skipar þjóðleikhússtjóra í embætti til fimm ára í senn, frá og með 1. janúar 2015. Í embætti þjóðleikhússtjóra skal skipaður einstaklingur með menntun á sviði lista og staðgóða þekkingu og reynslu á starfi leikhúsa. Leitað er eftir einstaklingi með stjórnunarreynslu, leiðtoga- og samskiptahæfni, með brennandi áhuga á sviði leiklistar og hæfileika til nýsköpunar.

  • Um laun þjóðleikhússtjóra fer eftir ákvörðun kjararáðs samkvæmt lögum um kjararáð nr. 47/2006,  með síðari breytingum, sbr. 39. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996.
  • Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og starfsferil sendist mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 101 Reykjavík, eða á postur@mrn.is.
  • Umsókn skal jafnframt fylgja greinargerð um hugmyndir umsækjanda er varðar framtíðarsýn hans á starfsemi Þjóðleikhússins.
  • Nánari upplýsingar veitir Jens Pétur Hjaltested.

Umsóknarfrestur er til og með 1. september 2014.