19. október 2026
/
Mennta- og barnamálaráðuneytið

Niðurstöður sveitarfélaga og skóla í PISA veittar

{image.Description}

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur tekið ákvörðun um að upplýsa sveitarfélög og grunnskóla um sínar niðurstöður í PISA 2025.

Upplýsingarnar verða veittar að lokinni frekari gagnagreiningu ráðuneytisins úr hrágögnum OECD.

Nánari upplýsingar um áreiðanleika niðurstaðna er að finna í undirkaflanum Um greiningu niður á sveitarfélög og skóla neðst í frétt ráðuneytisins um niðurstöður PISA í stærstu sveitarfélögum landsins.

Upplýsingagjöfin fellur vel að áherslu ráðuneytisins undanfarin misseri að fá fram heildstæða yfirsýn yfir stöðu íslenskra barna í námi. Nýju stöðu- og framvindupróf Matsferils í lesskilningi og stærðfræði voru lögð fram í vor og verða niðurstöður birtar opinberlega eftir skólum næsta vor ásamt niðurstöðum í lesfimi samkvæmt reglugerð mennta- og barnamálaráðherra. Með þeim verður hægt að bera saman niðurstöður milli skóla og jafnframt fylgjast með þróun milli ára. Í febrúar tilkynnti ráðuneytið um þátttöku í TIMSS – alþjóðlegri rannsókn sem metur árangur nemenda í stærðfræði og náttúrufræði á heimsvísu sem mun fjölga mælikvörðum á stöðu íslenskra nemenda í alþjóðlegum samanburði. Þá birti ráðuneytið í sumar dreifingu lokaeinkunna í grunnskólum landsins. Með heildstæðri yfirsýn geta menntayfirvöld beint aðgerðum þar sem þörfin er mest og stuðlað að bættum námsárangri og framtíðartækifærum barna.

Uppfært 27.10.26 kl. 13:51

Var efnið hjálplegt?