26. október 2026 /

Úrskurður nr. 463/2026

Hinn 26. október 2026 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 463/2026

í stjórnsýslumáli nr. KNU26020007

Kæra [...]

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 2. febrúar 2026 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Albaníu (hér eftir kærandi), ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 29. janúar 2026, um frávísun frá Íslandi.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2016/399 um för yfir landamæri, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Samkvæmt skýrslu lögreglu, dags. 30. janúar 2026, hafði lögregla afskipti af kæranda við eftirlit á Keflavíkurflugvelli þegar kærandi kom til landsins með flugi frá Varsjá að kvöldi 28. janúar 2026. Kærandi hafi verið í för með karlmanni (hér eftir M) og lögregla boðið þeim til frekari viðræðna í aðstöðu lögreglunnar vegna gruns um forsendubrest dvalarleyfis M. M hafi verið með dvalarleyfi hér á landi sem maki EES-borgara en hann hafi greint frá því að kærandi væri kærasta sín. Kæranda hafi verið kynntur réttur sinn til að leita sér m.a. aðstoðar lögmanns á eigin kostnað samkvæmt 11. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi greint frá því að ætla að dvelja hér á landi til 4. febrúar 2026 og að hún ætti bókað flug til Parísar en hún hafi ekki vitað með hvaða flugfélagi. Kærandi hafi greint frá því að eiga 500 evrur inni á bankakorti en ekki getað staðfest það. Aðspurð um dvalarstað hafi kærandi greint frá því að hún hygðist dvelja hjá M. Hún hafi ritað heimilisfang á upplýsingablað sem hafi stangast á við heimilisfang sem M hafi gefið upp við lögreglu. Kærandi hafi greint frá því að þetta væri fyrsta skipti hennar hér á landi og að hún hafi viljað sjá hvar M byggi. Einnig hafi kærandi greint frá því að hana langaði að sjá ,,Crystal beach“ en ekki nefnt neina aðra staði. Aðspurð hafi kærandi sagst vera meðvituð um að M væri ennþá löglega giftur en vissi ekki hvort hann hefði hafið skilnaðarferli. Einnig hafi kærandi ekki vitað hvar M ynni en hún hafi sagt hann vinna við rafmagnshurðir. Kærandi hafi sagst hafa starfað sem fréttaþulur í Albaníu en að hún væri búin að stofna eigið fyrirtæki sem tengdist förðun. Ósamræmi hafi verið í frásögnum M og kæranda í samtölum við lögreglu, m.a. varðandi það hvað þau hygðust gera hér á landi, um störf kæranda og M, dvöl M í Albaníu og gistingu kæranda hér á landi.

Fram kemur í lögregluskýrslunni að lögregla hafi tekið ákvörðun um að frávísa kæranda á grundvelli c- og d-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga þar sem megintilgangur ferðar hennar hingað til lands hafi tengst M sem hann hafi verið í brottvísunarferli hjá Útlendingastofnun. Í kjölfar þess hafi kæranda verið boðið að nýju að sýna staðfestingu þess efnis að hún ætti 500 evrur á bankakorti sínu en hún hafi ekki viljað gera það. Tæpum níu klukkustundum síðar hafi kærandi viljað sýna lögreglu bankainnistæðu sína sem hafi verið 1.234 evrur en þá hafi hún þegar haft nægan tíma til að gera viðeigandi ráðstafanir þar að lútandi.

Í hinni kærðu ákvörðun kemur fram að kæranda hafi verið frávísað frá Íslandi á grundvelli c- og d-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Engar viðbótarathugasemdir fylgdu ákvörðuninni. Kæranda var leiðbeint um að hún gæti óskað eftir rökstuðningi með vísan til 1. mgr. 21. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi óskaði ekki eftir rökstuðningi.

Kærandi kærði ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum til kærunefndar útlendingamála 2. febrúar 2026. Samhliða kæru lagði kærandi fram fylgiskjöl. Hinn 9. febrúar 2026 lagði kærandi fram greinargerð vegna málsins ásamt fylgiskjölum. Gögn frá lögreglu bárust kærunefnd 20. febrúar 2026. Viðbótarupplýsingar frá lögreglu bárust 1. og 6. október 2026.

III. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi hafi komið hingað til lands skömmu fyrir miðnætti 28. janúar 2026 með flugi frá Varsjá. Við komu hennar á Keflavíkurflugvöll hafi lögreglumenn haft afskipti af henni í því skyni að kanna hvort hún uppfyllti skilyrði fyrir landgöngu. Kærandi hafi greint frá því að hún væri komin til landsins sem ferðamaður og hygðist dvelja hér í nokkra daga. Því til staðfestingar hafi kærandi sýnt fram á bókað flug úr landi 4. febrúar 2026. Kærandi hafi jafnframt upplýst að hún hafi nægt fjármagn til dvalarinnar og sýnt lögreglumönnum innistæðu á bankareikningi sínum. Aðfaranótt 29. janúar 2026 hafi kæranda verið birt ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum um tilkynningarskyldu kæranda á tilteknu svæði flugvallarins á grundvelli 3. mgr. 114. gr. laga um útlendinga. Með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness hafi ákvörðunin verið felld úr gildi. Þá hafi ákvörðun um að frávísa kæranda verið birt kæranda rúmum 17 klukkustundum eftir að hún hafi verið tekin, en hún hafi þar að auki verið án rökstuðnings.

Kærandi byggir aðallega á því að afskipti lögreglu af kæranda og hin kærða ákvörðun hafi verið ólögmæt og ekki staðist áskilnað laga. Kærandi hafi verið að fara yfir innri landamæri Schengen-svæðisins en samkvæmt 12. gr. laga um landamæri sé einstaklingum, óháð ríkisfangi, heimilt að fara yfir innri landamæri án þess að landamæraeftirlit fari fram. Einstaklingur sem ferðist á milli Schengen-ríkja eigi því réttmætar væntingar til þess að vera ekki stöðvaður í reglubundnu landamæraeftirliti við komuna. Gera verði skýran greinarmun á landamæraeftirliti annars vegar og lögreglueftirliti hins vegar. Afskipti lögreglu af kæranda hafi skýrlega falið í sér landamæraeftirlit þar sem hún hafi verið stöðvuð við komu frá öðru Schengen-ríki og krafin svara og gagna um tilgang dvalar og fjárhag, eingöngu í þeim tilgangi að meta hvort hún uppfyllti skilyrði fyrir komu til landsins. Þar sem upphafleg afskipti lögreglu af kæranda hafi verið ólögmæt hafi öll málsmeðferðin sem fylgdi í kjölfarið og hin kærða ákvörðun um frávísun verið það sömuleiðis. Telur kærandi því að fella beri ákvörðunina úr gildi þegar af þeirri ástæðu.

Verði ekki fallist á framangreinda málsástæðu byggir kærandi á því til vara að hin kærða ákvörðun sé ólögmæt vegna verulegra annmarka á málsmeðferðinni og þar sem hún sé efnislega röng. Kærandi hafi sýnt fram á með ótvíræðum hætti að hún hefði nægileg fjárráð til dvalarinnar, þ.m.t. fyrir gistingu, fæði og öðrum útgjöldum. Þá hafi kærandi leitt líkur að tilgangi dvalar sinnar, þ.e. að hún væri komin hingað sem ferðamaður, með því að sýna fram á bókaðan flugmiða úr landi. Þar sem ákvörðunin byggi á röngu mati á gögnum skorti hana lagastoð. Því standist hin kærða ákvörðun ekki kröfur lögmætisreglunnar. Þá telur kærandi að við meðferð málsins hafi lögregla brotið gegn leiðbeiningar- og rannsóknarskyldu sinni, sbr. 7. og 10. gr. stjórnsýslulaga. Jafnframt hafi hin kærða ákvörðun ekki haft að geyma rökstuðning og samrýmist hún því ekki skýrleikareglu stjórnsýsluréttar. Þá hafi birting ákvörðunarinnar ekki verið í samræmi við málshraðareglu 9. gr. stjórnsýslulaga og 20. gr. sömu laga sem fjalli um birtingu stjórnvaldsákvörðunar. Þannig hafi ákvörðun um frávísun verið tekin kl. 00:33 hinn 29. janúar 2026 en ekki verið birt fyrir kæranda fyrr en kl. 17:19 sama dag eða rúmum 17 klukkustundum síðar. Á þessum tíma hafi frelsi kæranda verið skert og henni verið gert að sæta tilkynningarskyldu.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 49. gr. laga um útlendinga er útlendingi sem ekki þarf vegabréfsáritun til landgöngu heimilt að dveljast hér á landi í 90 daga frá komu til landsins. Dvöl í öðru ríki sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu telst jafngilda dvöl hér á landi. Kærandi er ríkisborgari Albaníu og þarf því ekki vegabréfsáritun til landgöngu hér á landi, enda er hún handhafi vegabréfs með lífkennum.

Ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun kæranda, dags. 29. janúar 2026, byggir á c- og d-liðum 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017.

Í 106. gr. laga um útlendinga er kveðið á um frávísun við komu til landsins. Samkvæmt ákvæðinu er m.a. heimilt að vísa útlendingi frá landi við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum frá komu þegar hann hefur ekki tilskilið leyfi til dvalar eða vinnu eða getur ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn er upp fyrir dvölinni, sbr. c-lið ákvæðisins. Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um útlendinga segir m.a. að ákvæði c-liðar mæli fyrir um að heimilt sé að vísa útlendingi frá landi ef hann geti ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn sé upp fyrir dvölinni. Sé ákvæðið efnislega samhljóða c-lið 1. mgr. 5. gr. reglugerðar (EB) nr. 562/2006 um för fólks yfir landamæri. Þá er í greinargerðinni vísað til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri nr. 866/2017. Samkvæmt 5. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er heimilt að vísa útlendingi frá landi eftir reglum 1. mgr. þótt sjö sólarhringa fresturinn sé liðinn. Þó verður meðferð máls að hefjast innan níu mánaða frá komu hans til landsins. Samkvæmt 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga tekur lögreglustjóri ákvörðun um frávísun við komu til landsins samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laganna. Útlendingastofnun tekur ákvörðun um frávísun eftir komu til landsins og aðrar ákvarðanir samkvæmt XII. kafla laganna.

Með reglugerð nr. 866/2017 um för yfir landamæri voru innleidd ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2016/399 um setningu sambandsreglna um för fólks yfir landamæri (e. Schengen Borders Code) og tók reglugerðin við af áðurnefndri reglugerð nr. 562/2006. Í 5. gr. reglugerðar nr. 866/2017 er mælt fyrir um skilyrði fyrir komu útlendinga til landsins sem hvorki eru EES- né EFTA borgarar. Kemur þar fram að útlendingur sem hvorki er EES- né EFTA-borgari, sem hyggst dvelja á Schengen-svæðinu, þ.m.t. Íslandi, í allt að 90 daga á 180 daga tímabili verði, auk þeirra skilyrða sem koma fram í 106. gr. laga um útlendinga, að uppfylla þau skilyrði sem fram koma í a- til e-liðum ákvæðisins. Samkvæmt viðauka 3 við reglugerð nr. 866/2017 skal útlendingur framvísa gildum, lögmætum og ófölsuðum ferðaskilríkjum eða öðru kennivottorði sem heimilar honum för yfir landamæri. Ferðaskilríki skal vera gefið út á sl. 10 árum til þess að það teljist gilt og gildistími ferðaskilríkis vera í a.m.k. þrjá mánuði umfram brottfarardag, sbr. a-lið. Þá skal útlendingur, samkvæmt b-lið, hafa gilda vegabréfsáritun sé hann ekki undanþeginn áritunarskyldu, nema hann hafi gilt dvalarleyfi eða gilda vegabréfsáritun til langs tíma, sbr. viðeigandi viðauka í reglugerð um vegabréfsáritanir. Jafnframt má útlendingur ekki vera skráður í Schengen-upplýsingakerfið í þeim tilgangi að meina honum komu til landsins, sbr. c-lið, né teljast ógna þjóðaröryggi, allsherjarreglu, almannaheilsu eða alþjóðasamskiptum ríkisins eða annars Schengen-ríkis, sbr. d-lið. Loks þarf viðkomandi, samkvæmt e-lið, að geta fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar og sýnt fram á að hann hafi nægt fé sér til framfærslu meðan á dvölinni stendur og til ferðar til upprunalands eða gegnumferðar til þriðja lands, eða að hann sé í aðstöðu til að afla sér slíks fjár á lögmætan hátt.

Samkvæmt 3. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 866/2017 er landamæraverði m.a. heimilt, í því skyni að sannreyna að skilyrði ákvæðisins fyrir komu til landsins séu uppfyllt, að krefja útlending samkvæmt 1. mgr. um tiltekin gögn vegna ferðalaga af persónulegum ástæðum. Þar á meðal eru gögn sem sýna fram á tryggt húsnæði, svo sem boðsbréf frá gestgjafa eða önnur gögn um fyrirhugaðan dvalarstað, gögn sem staðfesta ferðaáætlun, staðfesting á bókun skipulagðrar ferðar eða önnur gögn sem varpa ljósi á fyrirhugaða ferðaáætlun, auk gagna um heimferð, svo sem farmiða.

Ráða má af ákvörðun lögreglu í máli kæranda að kæranda hafi verið frávísað þar sem megintilgangur ferðar hennar hingað til lands hafi tengst M en hann hafi verið í brottvísunarferli hjá Útlendingastofnun samkvæmt lögregluskýrslu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hafi M langan brotaferil hér á landi og hafi honum verið birt ákvörðun um brottvísun og endurkomubann 3. febrúar 2026. Tengsl kæranda við M gáfu lögreglu tilefni til að gera ríkari kröfur til þess að kærandi legði fram gögn til stuðnings frásögn sinni og leggja aukið mat á trúverðugleika hennar. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að kærandi hafi sjálf gerst uppvís að afbrotum í tengslum við skipulagða brotastarfsemi, að hún hafi dvalið hér á landi með ólögmætum hætti eða stundað hér ólögmæta atvinnu. Nægja framangreindar upplýsingar þ.a.l. ekki einar og sér til að draga í efa framburð kæranda um tilgang dvalar hennar hér á landi. Auk framangreinds má ráða af skýrslu lögreglu að horft hafi verið til þess að kærandi hafi eingöngu getað nefnt einn stað sem hana langaði að sjá hér á landi og að ekki hafi fulls samræmis gætt milli kæranda og M um tilgang dvalar þeirra hér á landi. Þá hafi frásögn hennar um dvalarstað hennar ekki samrýmst því heimilisfangi sem hún hafi ritað á upplýsingablað.

Hinn 14. september 2026 óskaði kærunefnd eftir nánari upplýsingum frá lögreglu um meðferð málsins, m.a. um tímasetningar helstu aðgerða lögreglu. Einnig óskaði kærunefnd eftir upplýsingum um hvort kærandi hafi verið innt eftir staðfestingu á farmiða úr landi og hótelgistingu hér á landi og hvort kærandi hafi orðið við því. Hinn 1. október 2026 barst kærunefnd upplýsingaskýrsla frá lögreglu þar sem málsmeðferð lögreglu er rakin í tímaröð og eru helstu atriði hennar í samræmi við þá málsatvikalýsingu sem þegar hefur verið lýst. Í skýrslunni kemur m.a. fram að lögregla hafi ekki talið ástæðu til að óska eftir staðfestingu á flugmiða hennar úr landi þar sem frásögn hennar og M um að hann hafi keypt flugmiða fyrir hana úr landi 4. febrúar 2026 hafi ekki verið dregin í efa. Þá hafi lögregla ekki talið ástæðu til að óska eftir upplýsingum um bókun vegna gistingar þar sem kærandi og M hafi bæði greint frá því í samtölum við lögreglu að hún myndi gista heima hjá M. Svör kæranda um hvar hún hygðist gista hafi ekki verið óskýr en hún hafi hins vegar gefið upp rangar upplýsingar um fyrirhugaðan dvalarstað sinn á upplýsingablaði. Þá hafi lögregla ekki óskað eftir staðfestingu á ferðaáætlun kæranda þar sem hún hafi ekki greint frá sérstökum ferðaáformum öðrum en að sjá hvar M væri búsettur.

Samkvæmt gögnum málsins á M að baki langan brotaferil hér á landi og hefur lögregla haft ítrekuð afskipti af honum, m.a. vegna brota gegn almennum hegningarlögum. Einnig hlaut M einn dóm hér á landi árið 2023. Tengsl kæranda við M gáfu lögreglu tilefni til að líta til aðstæðna M við mat á tilgangi dvalar kæranda hér á landi og gera ríkari kröfur til þess að kærandi gerði grein fyrir þeim tilgangi. Í því samhengi horfir kærunefnd einkum til frásagna þeirra um að þau væru kærustupar sem hafi verið í sambandi um nokkuð skeið, þau kváðust ætla að dvelja saman hér á landi og ferðast saman um landið. Framangreint misræmi í frásögn kæranda um fyrirhugaðan dvalarstað hennar hér á landi gaf lögreglu jafnframt tilefni til að framkvæma ítarlegra trúverðugleikamat á frásögn hennar. Ekki verður séð af skýrslu lögreglu að kærandi hafi verið spurð út í misræmið milli framburðar síns og þeirra upplýsinga sem hún ritaði á upplýsingablaðið og liggur því ekki fyrir ástæða misræmisins eða skýring kæranda á því. Jafnframt voru ólíkar frásagnir kæranda og M, t.a.m. um þá staði sem þau hygðust skoða hér á landi, ekki bornar undir kæranda og kærandi ekki innt eftir skýringu á því. Er þessi þáttur málsmeðferðar lögreglu ekki í samræmi við rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga og kröfur stjórnsýsluréttar um vandaða stjórnsýsluhætti, einkum í ljósi þess að framangreind atriði voru metin kæranda í óhag. Þá horfir kærunefnd til þess að þrátt fyrir að kærandi hafi gefið rangar upplýsingar á upplýsingablaði verði ekki annað séð en að lögregla hafi talið framburð kæranda um fyrirhugaðan dvalarstað sinn hér á landi vera skýran og lagt hann til grundvallar, enda óskaði lögregla ekki eftir staðfestingu á bókun fyrir gistingu. Verður því ekki séð að hinar röngu upplýsingar hafi réttlætt þá niðurstöðu lögreglu að kærandi hafi ekki verið talin hafa leitt líkur að þeim tilgangi sem hún hafi gefið upp, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. Verður jafnframt ekki talið að sýnt hafi verið fram á að tilgangur dvalar kæranda hafi verið ólögmætur eða annar en hún hafi lýst.

Í 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri eru m.a. tilgreind hlutlæg skilyrði sem líta ber til við mat á því hvort skilyrði c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga séu uppfyllt. Hafi lögregla haft grunsemdir um að tilgangur dvalar kæranda hér á landi væri annar en framburður hennar bar með sér er það mat ekki stutt haldbærum gögnum til að unnt sé að beita c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga um mál hennar. Áréttast í þessu sambandi að ákvörðun um frávísun er íþyngjandi stjórnvaldsákvörðun. Að virtum gögnum málsins hefur kærandi lagt fram fullnægjandi gögn með vísan til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri. Að framangreindu virtu hefur kærandi leitt nægar líkur að þeim tilgangi sem hún gaf upp fyrir dvöl sinni hér á landi og eru skilyrði til frávísunar, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, því ekki uppfyllt. Er því óhjákvæmilegt að fella þennan hluta hinnar kærðu ákvörðunar úr gildi.

Samkvæmt d-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er m.a. heimilt að vísa útlendingi frá við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum frá komu ef hann getur ekki sýnt fram á að hann hafi eða eigi tryggð nægileg fjárráð til dvalar hér á landi og til heimferðar. Fram kemur í athugasemdum við ákvæðið að meta þurfi hverju sinni hvenær útlendingur teljist hafa nægileg fjárráð til framfærslu og til heimferðar. Þá yrði skilyrðum um nægileg fjárráð til heimferðar t.d. fullnægt með framvísun farmiða. Samkvæmt 2. mgr. 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri skal við mat á því hvort útlendingur teljist hafa nægileg fjárráð m.a. tekið mið af lengd og tilgangi dvalar. Mat á fjárráðum megi byggja á reiðufé, ferðatékkum og greiðslukortum sem útlendingur sé handhafi að. Í skýrslu lögreglu kemur fram að kærandi hafi greint frá því að hún ætti bókað flug til Parísar en hún hafi ekki vitað með hvaða flugfélagi. Jafnframt hafi kærandi greint frá því að eiga 500 evrur inni á bankakorti en hún hafi ekki getað staðfest það. Tæpum níu klukkustundum síðar hafi kærandi sýnt lögreglu bankainnistæðu sína sem hafi verið 1.234 evrur. Ráða má af skýrslu lögreglu að þar sem kærandi hafi haft nægan tíma til að fá lagt inn á bankareikning sinn hafi lögregla metið ótrúverðugt að um hafi verið að ræða hennar eigin fjármuni en ljóst er að lögreglan lagðist ekki í rannsókn á þessum þætti málsins. Kærandi var hvorki innt eftir skýringum á því hvers vegna hún framvísaði 1.234 evrum eftir að hafa áður gefið upp að hún ætti 500 evrur á bankakorti né innt eftir gögnum sem gætu varpað ljósi á uppruna fjármunanna, svo sem yfirliti yfir nýlegar millifærslur. Þar sem þetta atriði var ekki rannsakað nánar liggja hvorki fyrir skýringar kæranda á umræddu ósamræmi né gögn sem benda til þess að fjármunirnir hafi ekki verið í hennar eigu. Að mati kærunefndar verður kærandi að njóta vafans sem af þessu leiðir.

Líkt og að framan greinir kemur fram í upplýsingaskýrslu lögreglu, dags. 1. október 2026, að lögregla hafi ekki talið ástæðu til að óska eftir staðfestingu á flugmiða kæranda úr landi þar sem frásögn hennar og M um að hann hafi keypt flugmiða fyrir hana úr landi 4. febrúar 2026 hafi ekki verið dregin í efa. Jafnframt hafi lögregla ekki talið ástæðu til að óska eftir upplýsingum um bókun vegna gistingar þar sem frásögn kæranda og M um að kærandi myndi gista heima hjá M hafi verið skýr. Verður því ráðið að lögregla hafi lagt til grundvallar að það fjármagn sem kærandi hefði undir hendi yrði ekki nýtt til kaupa fyrir flugferð úr landi eða gistingu. Að teknu tilliti til framlagðra fjármuna kæranda, þess að fyrirhuguð dvöl hennar hér á landi var tæp vika, hún var talin hafa þegar greitt fyrir farmiða til heimferðar og hugðist dvelja í heimahúsi meðan á dvölinni stæði, verður að telja að kærandi hafi sýnt fram á nægileg fjárráð til dvalar hér á landi og til heimferðar. Voru skilyrði til frávísunar á grundvelli d-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga þ.a.l. ekki fyrir hendi þegar ákvörðun lögreglu var tekin. Er því óhjákvæmilegt að fella hina kærðu ákvörðunar úr gildi.

Að öllu framangreindu virtu er hin kærða ákvörðun um frávísun kæranda á grundvelli c- og d-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga felld úr gildi. Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er ekki ástæða til að taka afstöðu til annarra athugasemda kæranda við málsmeðferð lögreglu.

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum er felld úr gildi.

The decision of the Police Commissioner of Suðurnes District is vacated.

Jóna Aðalheiður Pálmadóttir

Vera Dögg Guðmundsdóttir

Var efnið hjálplegt?