29. október 2026 /

Úrskurður nr. 466/2026

Hinn 29. október 2026 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 466/2026

í stjórnsýslumáli nr. KNU26020059

Kæra [...]

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 16. febrúar 2026 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Rúmeníu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 9. febrúar 2026, um brottvísun og endurkomubann til Íslands í sjö ár.

Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi. Til vara krefst kærandi þess að endurkomubanni verði markaður skemmri tími.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, EES-samningurinn, sbr. lög nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið, tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2004/38 um rétt borgara Sambandsins og aðstandenda þeirra til frjálsrar farar og dvalar á yfirráðasvæði aðildarríkjanna , auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Samkvæmt gögnum málsins skráði kærandi dvöl sína fyrst í þjóðskrá hér á landi 28. nóvember 2018. Kærandi hefur stundað atvinnu hér á landi nær óslitið frá komu fram til ágúst 2024 en frá þeim tíma hefur hann þegið greiðslur frá Atvinnuleysistryggingasjóði.

Samkvæmt umsögn frá lögreglu, dags. 1. september 2025, voru fyrstu afskipti lögreglu af kæranda hér á landi 14. mars 2023 og hefur hann verið skráður sakborningur í 15 málum sem fela í sér 29 brot gegn almennum hegningarlögum eða umferðalögum. Mál kæranda snúi flest að sölu og dreifingu áfengis, vímuefna og fíkniefna. Það sé mat lögreglu að kærandi muni halda áfram brotaferli sínum og ógna grundvallarhagsmunum samfélagsins. Nú séu sex opin mál skráð á kæranda sem feli í sér ellefu brot í heildina. Samkvæmt yfirliti hefur kærandi gengist undir tvær sektargerðir, dags. 4. apríl 2024, fyrir brot gegn umferðarlögum nr. 77/2019, lögum um leigubifreiðaakstur nr. 120/2022, áfengislögum nr. 75/1998, lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 auk vopnalaga nr. 16/1998, og dags. 2. júní 2025 fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni.

Samkvæmt skýrslu lögreglu, dags. 29. desember 2025, var kærandi stöðvaður við akstur bifreiðar í almennu eftirliti lögreglu. Vakti það athygli lögreglu að tveir ólögráða drengir sætu í aftursætum bifreiðarinnar. Kærandi hafi viðurkennt að fá greitt fyrir að skutla fólki án þess að hafa réttindi til þess. Kærandi hafi verið handtekinn vegna gruns um sölu fíkniefna. Við líkamsleit á kæranda hafi fundist reiðufé. Við leit í bifreið kæranda hafi fundist mikið magn áfengis, fíkniefna og lyfja í sölueiningum auk fjármuna. Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur nr. R-262/2026, þann 17. janúar 2026, var kærandi úrskurðaður í gæsluvarðhald til 23. janúar 2026. Í úrskurðinum kemur fram að lögreglu hafi borist tilkynning 17. janúar 2026 um aðila sem hafi verið sagður vera að selja ungmennum áfengi úr bifreið sinni. Við leit í bifreið kæranda hafi fíkniefni, fíknilyf og mikið magn áfengis fundist ásamt greiðsluposa og reiðufé. Við húsleit heima hjá kæranda hafi fundist gríðarlegt magn fjármuna, fíkniefna og fíknilyfja. Umbúnaður efna og lyfja hafi bent til mikils skipulags og sé kærandi undir grun um skipulagða brotastarfsemi. Lögregla telji miklar líkur á því að kærandi eigi samverkamenn. Úrskurðurinn var staðfestur af Landsrétti 19. janúar 2026. Nánar er fjallað um brotaferil kæranda í kafla IV.

Með bréfi Útlendingastofnunar, dags. 22. janúar 2026, var kæranda tilkynnt að til skoðunar væri að brottvísa honum og ákvarða endurkomubann með vísan til allsherjarreglu, almannaöryggis eða almannaheilbrigðis, sbr. 1. og 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga. Í bréfinu vísaði Útlendingastofnun til gagna frá Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu og úrskurðar Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. R-262/2026, sem staðfestur var með úrskurði Landsréttar nr. 49/2026, dags. 19. janúar 2026 en samkvæmt gögnum lægi fyrir grunur um að kærandi ætti að baki refsiverð brot hér á landi þar á meðal sölu og dreifingu fíkniefna, áfengis og lyfja. Einnig voru raktar upplýsingar m.a. frá Skattinum og Þjóðskrá Íslands. Með bréfinu var kæranda veittur sjö daga frestur til að leggja fram greinargerð vegna málsins. Bréfið var birt fyrir kæranda 23. janúar 2026. Við birtingu kvaðst kærandi ætla að leggja fram andmæli vegna málsins og lagði kærandi fram andmæli 6. febrúar 2026. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 9. febrúar 2026, var kæranda vísað brott frá Íslandi á grundvelli 1., sbr. 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga og honum ákvarðað endurkomubann til landsins í sjö ár, sbr. 1. mgr. 96. gr. sömu laga.

Hinn 16. febrúar 2026 var ákvörðunin kærð til kærunefndar útlendingamála. Kæranda var skipaður talsmaður samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um útlendinga 17. febrúar 2026. Kærandi lagði fram greinargerð 2. mars 2026. Viðbótargögn bárust frá Útlendingastofnun 31. mars, 8. og 12. maí, 25. september og 7. og 19. október 2026. Þá bárust frekari gögn og athugasemdir frá kæranda 12. október 2026.

Við meðferð máls kæranda hjá kærunefnd bárust upplýsingar frá Lögreglustjóranum á Vestfjörðum, dags. 31. mars 2026, þar sem afskipti höfðu verið höfð af kæranda 29. mars 2026, leitað hafi verið í bifreið kæranda og talsvert magn fjármuna og fíkniefna fundist í bifreiðinni. Væri hafin rannsókn lögreglu í tengslum við þetta mál. Ennfremur barst kærunefnd erindi frá Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, dags. 25. september 2026, um það að kærandi sæti lögreglurannsókn þar vegna gruns um ólöglega sölu áfengis og peningaþvætti í kjölfar afskipta af kæranda 25. september 2026.

III. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð vísar kærandi til málsmeðferðar Útlendingastofnunar. Kærandi andmæli því mati stofnunarinnar að hann sé alvarleg ógn við íslenskt samfélag með vísan til allsherjarreglu og almannaöryggis. Kærandi hafi engan dóm hlotið hér á landi, einungis sektargerðir. Kærandi telur slíkt mat ekki samrýmast meðalhófi og breyti það ekki matinu að hann hafi áður sætt gæsluvarðhaldi. Séu fyrirliggjandi brot kæranda lögð til grundvallar ákvörðun um brottvísun sé með alvarlegum hætti vegið að frjálsri för fólks á EES-svæðinu. Kærandi telur að endurkomubanni hans sé markaður of langur tími og telur að bannið skuli vara skemur en sjö ár og eigi lengur en tvö ár. Endurkomubannið sé úr hófi og ekkert samræmi sé á milli þeirra sem hlotið hafi refsidóma og þeirra sem ekki hafi hlotið slíka dóma. Með vísan til jafnræðissjónarmiða og meðalhófs sé þess krafist að endurkomubanni verði markaður skemmri tími.

Í viðbótarathugasemdum vísar kærandi til þess að honum hafi verið birt ákæra og bíði hann málsmeðferðar fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur vegna hennar. Ekki skuli ákvarða brottvísun fyrr en því sakamáli hafi verið lokið. Kærandi eigi rétt á að vera viðstaddur aðalmeðferð í máli sínu, sbr. 164. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Þá vísar kærandi til þess að hann teljist saklaus uns sekt sé sönnuð.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í samræmi við 7. gr. EES-samningsins, sbr. lög nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið, hefur tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2004/38 um rétt borgara Sambandsins og aðstandenda þeirra til frjálsar farar og dvalar á yfirráðasvæði aðildarríkjanna verið tekin upp í íslenskan rétt, sbr. m.a. XI. kafla laga um útlendinga sem felur í sér sérreglur um útlendinga sem falla undir samninginn um Evrópska efnahagssvæðið.

Í 95. gr. laga um útlendinga er fjallað um brottvísun EES- eða EFTA-borgara eða aðstandanda hans. Samkvæmt 1. mgr. greinarinnar er heimilt að vísa EES- eða EFTA-borgara eða aðstandanda hans úr landi ef það er nauðsynlegt með skírskotun til allsherjarreglu, almannaöryggis eða almannaheilbrigðis. Í 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga segir að brottvísun samkvæmt 1. mgr. 95. gr. sé heimil ef framferði viðkomandi feli í sér raunverulega, yfirvofandi og nægilega alvarlega ógn gagnvart grundvallarhagsmunum samfélagsins. Ákvörðun um brottvísun skuli ekki eingöngu byggjast á almennum forvarnaforsendum. Ef viðkomandi hafi verið dæmdur til refsingar eða sérstakar ráðstafanir ákvarðaðar, sé brottvísun af þessari ástæðu því aðeins heimil, að um sé að ræða háttsemi sem geti gefið til kynna að viðkomandi muni fremja refsivert brot á ný. Fyrri refsilagabrot nægi ekki ein og sér til þess að brottvísun sé beitt.

Hugtökin allsherjarregla og almannaöryggi eru ekki skilgreind nánar í íslenskum lögum. Í 27. gr. sambandsborgaratilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2004/38, kemur fram að aðildarríki geti takmarkað réttinn til frjálsrar farar og dvalar á grundvelli allsherjarreglu, almannaöryggis eða almannaheilbrigðis. Ráðstafanir sem gerðar eru á grundvelli allsherjarreglu og almannaöryggis skulu vera í samræmi við meðalhóf og eingöngu byggðar á framferði viðkomandi einstaklings og mati á því hvort hans persónulega hegðun feli í sér raunverulega og nægilega alvarlega ógn gegn grundvallarhagsmunum samfélagsins. Röksemdirnar skulu ekki byggðar á almennum forvörnum. Í leiðbeiningum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um túlkun sambandsborgaratilskipunarinnar frá árinu 2009 kemur fram að almannaöryggi nái til innra og ytra öryggis ríkis og allsherjarregla komi í veg fyrir að unnið sé gegn þjóðskipulaginu. Þá kemur fram að skýra þurfi framangreind skilyrði þröngt.

Við túlkun á framangreindum lagaákvæðum er unnt að líta til dóma Evrópudómstólsins á þessu sviði, sbr. 6. gr. EES-samningsins og 2. mgr. 3. gr. samnings milli EFTA-ríkjanna um stofnun eftirlitsstofnunar og dómstóls. Hefur Evrópudómstóllinn í dómaframkvæmd sinni vísað til þeirrar viðurkenndu meginreglu þjóðaréttar að ríki hafi, með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar sínar, rétt til að stjórna aðgengi erlendra ríkisborgara að landsvæði sínu og dvöl þeirra þar. Má sjá slíka nálgun m.a. í dómum dómstólsins í málum nr. C-41/74 (Van Duyn), frá 4. desember 1974 og nr. C-33/07 frá 10. júlí 2008, þar sem m.a. kemur fram að aðildarríki hafi heimild til að meta hvenær takmarka skuli réttinn til frjálsrar farar á grundvelli allsherjarreglu en slíkar undantekningar beri að túlka þröngt. Er því ljóst að við túlkun og beitingu framangreindra ákvæða um allsherjarreglu og almannaöryggi er stjórnvöldum falið svigrúm til að skilgreina nánar hvenær aðstæður eru slíkar að nauðsynlegt sé að takmarka frjálsa för til verndar allsherjarreglu og almannaöryggis. Slíkt mat verði þó ávallt að hvíla á málefnalegum grundvelli og taka mið af inntaki skuldbindinga íslenska ríkisins.

Í greinargerð vísar kærandi til þess að framferði hans geti ekki talist ógn við íslenskt samfélag með vísan til allsherjarreglu og almannaöryggis. Kærandi hafi ekki hlotið dóm hér á landi og hafi einungis undirgengist sektargerðir. Alvarlega sé vegið að rétti fólks til frjálsrar farar verði honum brottvísað á umræddum grundvelli.

Líkt og fram kemur í málsatvikalýsingu skráði kærandi dvöl sína hér á landi 28. nóvember 2018. Kærandi hefur gengist undir tvær sektargerðir, dags. 4. apríl 2024, fyrir brot gegn umferðarlögum, lögum um leigubifreiðaakstur, áfengislögum, lögum um ávana- og fíkniefni auk vopnalaga og dags. 2. júní 2025 fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Í umsögn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er m.a. rakið að kærandi hafi byrjað brotaferil sinn hér á landi 14. mars 2023. Hann hafi verið skráður sakborningur í 15 málum sem feli í sér 29 brot gegn almennum hegningarlögum eða umferðarlögum. Mál kæranda snúi flest að sölu og dreifingu áfengis og vímuefna og fíkniefna. Það sé mat lögreglu að kærandi muni halda áfram brotaferli sínum og ógna grundvallarhagsmunum samfélagsins. Nú séu sex opin mál skráð á kæranda sem feli í sér ellefu brot í heildina.

Samkvæmt skýrslu lögreglu, dags. 29. desember 2025, var kærandi stöðvaður við akstur bifreiðar við almennt eftirlit lögreglu. Vakti það athygli lögreglu að tveir ólögráða drengir sætu í aftursætum bifreiðarinnar. Kærandi hafi viðurkennt að fá greitt fyrir að skutla fólki án þess að hafa réttindi til þess. Kærandi hafi verið handtekinn vegna gruns um sölu fíkniefna. Við líkamsleit á kæranda hafi fundist reiðufé. Við leit í bifreið hans hafi fundist mikið magn áfengis, fíkniefna og lyfja í sölueiningum auk fjármuna. Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur nr. R-262/2026, þann 17. janúar 2026, var kærandi úrskurðaður í gæsluvarðhald til 23. janúar 2026. Í úrskurðinum kemur m.a. fram að Lögreglu hafi borist tilkynning 17. janúar 2026 um aðila sem hafi verið sagður vera að selja ungmennum áfengi úr bifreið sinni. Við leit í bifreið kæranda hafi fíkniefni, fíknilyf og mikið magn áfengis fundist ásamt greiðsluposa og reiðufé. Við húsleit heima hjá kæranda hafi fundist gríðarlegt magn fjármuna, fíkniefna og fíknilyfja. Samkvæmt lögregluskýrslu hafi við húsleit verið lagt hald á mikið magn reiðufjár, þ.e. 19.117.500 íslenskar krónur, 100.680 evrur, 370 pund, 8.850 danskar krónur, 200 norskar krónur, 40 kanadískir dalir, 100 sænskar krónur og 500 færeyskar krónur. Umbúnaður efna og lyfja hafi bent til mikils skipulags og sé kærandi undir grun um skipulagða brotastarfsemi. Lögregla telji miklar líkur á því að kærandi eigi samverkamenn. Í úrskurðinum kemur fram að meint brot kæranda geti varðað 173. gr. a almennra hegningarlaga sem geti varðað allt að 12 ára fangelsisrefsingu og 4. og 19. gr., sbr. 27. gr. áfengislaga sem einnig geti varðað fangelsisrefsingu. Samkvæmt mati dómsins sé rökstuddur grunur um að kærandi hafi gerst sekur um háttsemi sem fangelsisrefsing sé lögð við með vísan til þeirra húsleitar sem fór fram í málinu. Úrskurðurinn var staðfestur af Landsrétti 19. janúar 2026.

Hinn 31 mars 2026 barst kærunefnd samantekt frá Lögreglustjóranum á Vesturlandi, þar sem fram kemur að lögreglu hafi borist tilkynning 29. mars 2026 um meintan ölvunarakstur þar sem kærandi hafi verið undir stýri í bifreið sem var lagt úti í vegarkanti. Við leit í bifreiðinni hafi fundist fíkniefni og umtalsvert reiðufé. Með hliðsjón af framangreindu sé kærandi grunaður um sölu- og dreifingu ávana- og fíkniefna, peningaþvætti og tengsl við skipulagða brotastarfsemi. Einnig barst kærunefnd tilkynning frá Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu um að kærandi sæti lögreglurannsókn vegna gruns um ólöglega sölu áfengis og peningaþvættis vegna máls, dags. 25. september 2026.

Við mat á því hvort framferði kæranda sé þess eðlis að skilyrði 1. mgr. 95. gr. laga um útlendinga sé uppfyllt, sbr. 27. gr. Sambandsborgaratilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2004/38, verður einkum að líta til þess að samkvæmt gögnum frá lögreglu hófst brotaferill kæranda hér á landi árið 2023 og hefur brotahegðun hans stigmagnast frá þeim tíma. Lögreglan hefur haft ítrekuð afskipti af kæranda vegna margvíslegra brota sem eru enn til rannsóknar eða hefur verið lokið með sektargerð. Stór hluti þeirra hafa verið sala og dreifing fíkniefna, lyfja og áfengis líkt og að framan er rakið. Einnig er rökstuddur grunur um að hann tengist skipulagðri brotastarfsemi. Löggjafinn hér á landi hefur tekið skýra afstöðu gegn sölu og dreifingu fíkniefna með lögum um ávana- og fíkniefni auk almennra hegningarlaga. Ítrekuð afskipti lögreglu af kæranda vegna framangreindra brota frá árinu 2023 og opnar rannsóknir á hendur kæranda vegna margvíslegra brota benda eindregið til þess að kærandi muni halda áfram brotahegðun sinni.

Áréttað er að einstök refsiverð afbrot fela ekki sjálfkrafa í sér alvarlega ógn gagnvart grundvallarhagsmunum samfélagsins, sbr. til hliðsjónar niðurlag 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga. Þvert á móti þarf mat stjórnvalda á 1. og 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga að endurspegla háttsemi og brotastarfsemi málsaðila í víðara samhengi. Í því samhengi ber m.a. að líta til tíðni brota og lengdar brotaferils til samræmis við dvalarleyfi. Að auki hefur, í úrskurðaframkvæmd kærunefndar, verið litið til málaskrár lögreglu sem vísbendingu um hegðunarmynstur brotamanna, til viðbótar við önnur gögn, sbr. til hliðsjónar dóm Landsréttar nr. 419/2022, dags. 1. desember 2023. Þá hefur einkum verið litið til þess hvort að hegðun og framferði viðkomandi sé með þeim hætti að lögregla hafi þurft að hafa ítrekuð afskipti af þeim. Þrátt fyrir að ekki liggi fyrir dómur um meint brot kæranda er um að ræða rökstuddan grun lögreglu og bera gögn málsins með sér að meint brotastarfsemi hans hafi verið umfangsmikil og skipulögð.

Í viðbótarathugasemdum vísar kærandi til þess að honum hafi verið birt ákæra og bíði hann málsmeðferðar fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur vegna hennar. Ekki skuli ákvarða brottvísun fyrr en því sakamáli hafi verið lokið. Kærandi eigi rétt á að vera viðstaddur aðalmeðferð í máli sínu, sbr. 164. gr. laga um meðferð sakamála. Vísar kærandi einnig til sjónarmiða á sviði sakamálaréttarfars um sakleysi uns sekt sé sönnuð.

Ljóst er að hin kærða ákvörðun er stjórnvaldsákvörðun sem tekin er á grundvelli laga um útlendinga af þar til bæru stjórnvaldi, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga um útlendinga. Meint refsiverð háttsemi kæranda og meðferð sakamáls á hendur honum á grundvelli laga um meðferð sakamála er ekki til skoðunar í máli þessu. Áréttað er að ákvörðun um brottvísun girðir ekki fyrir að kærandi geti tekið til varna í umræddu sakamáli. Um mál þetta gilda efnis- og málsmeðferðarreglur laga um útlendinga og stjórnsýslulaga. Er framangreindum málsástæðum kæranda því hafnað.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að framferði kæranda feli í sér raunverulega og yfirvofandi ógn gagnvart grundvallarhagsmunum samfélagsins í skilningi 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga og er skilyrðum fyrir brottvísun samkvæmt 1. mgr. 95. gr. laga um útlendinga fullnægt. Háttsemi kæranda gefur til kynna að hann muni fremja refsiverð afbrot á ný, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga. Enn fremur bera framangreindar upplýsingar frá Lögreglustjórunum á Vesturlandi og á höfuðborgarsvæðinu með sér að lögregla hafi í tvígang haft afskipti af kæranda vegna samskonar brota og liggja til grundvallar ákvörðun um brottvísun í máli kæranda eftir að ákvörðun Útlendingastofnunar var tekin og birt fyrir kæranda. Rennir það enn frekari stoðum undir framangreinda niðurstöðu og ljóst að kærandi er líklegur til þess að halda áfram brotastarfsemi sinni.

Í 97. gr. laga um útlendinga eru ákvæði um takmarkanir á heimild til brottvísunar skv. 95. gr. laga um útlendinga. Í a-lið 1. mgr. 97. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að brottvísun skv. ákvæði 95. gr. skuli ekki ákveða ef viðkomandi hefur rétt til ótímabundinnar dvalar skv. 87. gr. nema alvarlegar ástæður liggi til þess á grundvelli allsherjarreglu eða almannaöryggis. Samkvæmt skráningu í Þjóðskrá skráði kærandi dvöl sína hér á landi 28. nóvember 2018 og var það mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi öðlast rétt til ótímabundinnar dvalar, sbr. 87. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt upplýsingum frá Skattinum greiddi kærandi staðgreiðslu af launum frá lok árs 2018 til 2020, að undanskildum einum mánuði sem hann fékk greiddar atvinnuleysisbætur. Þá greiddi kærandi staðgreiðslu af launum meirihluta ársins 2021 og frá árinu 2022 og fram á mitt árið 2024. Hluta árs 2021, árs 2024 og allt árið 2025 fékk kærandi greiddar atvinnuleysisbætur úr Atvinnuleysistryggingasjóði. Með vísan til gagna frá Skattinum verður mat Útlendingastofnunar um að kærandi hafi öðlast rétt til ótímabundinnar dvalar staðfest og lagt til grundvallar í málinu. Með vísan til fyrri umfjöllunar um ítrekuð brot kæranda, sem rökstuddur grunur er um, teljast ástæður sem liggja til grundvallar brottvísunar hans alvarlegar með vísan til almannaöryggis í skilningi a-liðar 1. mgr. 97. gr. laga um útlendinga og stendur því ákvæðið ekki í vegi fyrir brottvísun kæranda.

Í 2. mgr. 97. gr. laga um útlendinga koma fram takmarkanir á heimild til brottvísunar samkvæmt 95. gr. laganna. Í ákvæðinu segir að brottvísun skuli ekki ákveða ef það, með hliðsjón af málsatvikum og tengslum EES- eða EFTA-borgara eða aðstandanda hans við landið, myndi fela í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart viðkomandi eða nánustu aðstandendum hans. Við matið skuli m.a. taka mið af lengd dvalar á landinu, aldri, heilsufari, félagslegri og menningarlegri aðlögun, fjölskyldu og fjárhagsaðstæðum og tengslum viðkomandi við heimaland sitt, sbr. 2. mgr. 97. gr. laga um útlendinga.

Við mat á ósanngjarnri ráðstöfun gagnvart málsaðila eða nánustu aðstandendum í skilningi 2. mgr. 97. gr. laga um útlendinga verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Í dómaframkvæmd hefur Mannréttindadómstóll Evrópu vísað til þeirrar viðurkenndu meginreglu þjóðaréttar að ríki hafi, með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar sínar, rétt til að stjórna aðgengi erlendra ríkisborgara að landsvæði sínu og dvöl þeirra þar. Þá hefur dómstóllinn lagt til grundvallar að aðildarríki mannréttindasáttmálans hafi vald til þess að brottvísa útlendingi sem hefur hlotið dóma fyrir refsiverð afbrot enda sé það nauðsynlegt með tilliti til allsherjarreglu, svo sem í máli Üner gegn Hollandi (46410/99) frá 18. október 2006. Þó verði að horfa til þess hvort ákvörðunin skerði rétt viðkomandi til friðhelgi einkalífs og fjölskyldu samkvæmt 8. gr. mannréttindasáttmálans. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um, stefna að lögmætu markmiði, og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans. Þau sjónarmið sem mannréttindadómstóllinn hefur lagt til grundvallar í málum af þessum toga eru t.a.m. eðli þess brots sem viðkomandi hefur gerst sekur um, lengd dvalar viðkomandi í því ríki sem tekur ákvörðun um brottvísun og félags-, menningar-, og fjölskyldutengsl viðkomandi við dvalarríki og heimaríki, sbr. t.d. mál Balogun gegn Bretlandi (nr. 60286/09) frá 4. október 2013 og Ndidi gegn Bretlandi (nr. 41215/15) frá 14. september 2017. Dómstóllinn hefur almennt veitt ríkjum talsvert svigrúm til mats þegar kemur að brottvísun aðila vegna alvarlegra brota með vísan til almannaöryggis þótt aðili hafi fjölskyldutengsl, sbr. t.d. mál Üner gegn Hollandi.

Dvöl kæranda hér á landi hefur varað frá árinu 2018. Af framangreindum gögnum frá Skattinum verður ráðið að atvinnutengsl hans við landið séu nokkur og hefur að ofan verið komist að þeirri niðurstöðu að kærandi njóti af þeim sökum rétt til ótímabundinnar dvalar. Aftur á móti hefur lögregla haft afskipti af kæranda frá árinu 2023, líkt og þegar hefur verið rakið, og er brotahegðun kæranda, sem er að hluta til enn til rannsóknar, til marks um lítinn ásetning til félags- og menningarlegrar aðlögunar að íslensku samfélagi. Af gögnum málsins verður ráðið að atvinnuþátttaka kæranda hafi farið minnkandi í samræmi við stigmagnandi brotahegðun hans.

Að framangreindu virtu stendur 2. mgr. 97. gr. laga um útlendinga ekki í vegi fyrir brottvísun kæranda frá landinu. Verður ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun því staðfest.

Samkvæmt 1. mgr. 96. gr. laga um útlendinga felur brottvísun samkvæmt 1. mgr. 95. gr. í sér bann við komu til landsins síðar. Í sama ákvæði er kveðið á um að endurkomubann geti verið varanlegt eða tímabundið en þó ekki styttra en tvö ár. Við mat á því skuli sérstaklega litið til atriða sem talin eru upp í 1. og 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga. Með hinni kærðu ákvörðun var kæranda bönnuð endurkoma til Íslands í sjö ár. Að málsatvikum virtum og með hliðsjón af alvarleika og tíðni ítrekaðra brota kæranda verður endurkomubannið staðfest. Er því ekki fallist á varakröfu kæranda um að marka honum skemmra endurkomubann. Athygli er vakin á því að samkvæmt 2. mgr. 96. gr. laga um útlendinga er heimilt að fella endurkomubann úr gildi ef nýjar aðstæður mæla með því og rökstutt er að orðið hafi verulegar breytingar á þeim aðstæðum sem réttlættu ákvörðun um endurkomubann. Endurkomubann kæranda tekur gildi þegar hann verður fluttur úr landi, sbr. 4. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga skal að jafnaði veita útlendingi frest í 7-30 daga til að yfirgefa landið sjálfviljugur. Samkvæmt c-lið ákvæðisins er m.a. heimilt að veita styttri frest eða fella hann niður í tilvikum þegar slíkt telst nauðsynlegt vegna öryggis ríkisins eða almannahagsmuna. Að teknu tilliti til málsatvika og þar sem komist hefur verið að þeirri niðurstöðu að brottvísa beri kæranda á grundvelli 1. mgr. 95. gr. laga um útlendinga er rétt að fella frest kæranda til sjálfviljugrar heimfarar niður með vísan til c-liðar 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Að öllu framangreindu virtu verður ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun og endurkomubann kæranda staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur nefndin þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur nefndin tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Jóna Aðalheiður Pálmadóttir

Vera Dögg Guðmundsdóttir

Var efnið hjálplegt?