Úrskurður nr. 487/2026
Hinn 29. október 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 487/2026
í stjórnsýslumáli nr. KNU26100054
Beiðni um frestun framkvæmdar í máli [...]
Málsatvik
Með úrskurði nr. 418/2026, dags. 30. september 2026, staðfesti kærunefnd útlendingamála, ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 9. júlí 2026, um að gera [...], fd. [...], ríkisborgara Jamaíku, að sæta brottvísun með vísan til c-liðar 1. mgr. 99. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Þá var endurkomubann kæranda var stytt úr 16 árum í 8 ár. Úrskurður kærunefndar var birtur fyrir aðila 30. september 2026 og 1. október 2026 barst kærunefnd beiðni aðila um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar. Beiðni um frestun réttaráhrifa var synjað með úrskurði kærunefndar nr. 461/2026, dags. 16. október 2026.
Hinn 20. október 2026 lagði kærandi fram beiðni um frestun framkvæmdar í máli hans. Kærandi lagði fram gögn dagana 20., 21. og 22. október 2026.
Beiðnin er lögð fram á grundvelli lokamálsliðar 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.
Málsástæður aðila
Farið hefur verið yfir beiðni kæranda og lagt mat á öll sjónarmið er þar koma fram. Í beiðni kæranda er óskað eftir að kærunefnd taki að nýju til skoðunar hvort fresta beri framkvæmd brottvísunar hans frá Íslandi með vísan til 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi unnið að rannsókn á því hvort verulegir annmarkar hafi verið á afmörkun ákæru og málsmeðferð vegna dóms Hæstaréttar í máli hans. Kærandi vísar einkum til atriða sem héraðsdómur hafi talið ósannað í málinu og hafi heimfært háttsemina undir 209. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Landsréttur hafi komist að annarri niðurstöðu en hún byggi m.a. á því að kærandi hafi hindrað brotaþola í að komast undan. Kærandi telur rétt að kanna þurfi sérstaklega hvort sú niðurstaða hafi samræmst afmörkun og orðum ákærunnar og rétti hans til að undirbúa og halda uppi vörnum. Kærandi telur jafnframt að tilefni sé til að rannsaka hvort ákæran hafi frá upphafi byggst á nægilega skýrum og traustum rannsóknargögnum og úr hvaða gögnum þau styðjist við fyrir ritun hennar. Kærandi vísar til þess að fyrirhugað sé að leggja fram erindi til viðeigandi stjórnvalda þar sem óskað verði eftir rannsókn á framangreindum atriðum. Í tölvubréfi kæranda til kærunefndar er afrit af framangreindu erindi auk þess sem fram kemur að erindið hafi þegar verið sent á viðeigandi stjórnvald. Kærandi gerir kröfu um að nefndin taki afstöðu til þess hvort framangreint erindi geti réttlætt frestun framkvæmdar. Persónulegar aðstæður hans, sem hafi leitt til styttingar endurkomubanns, hafi verulega þýðingu við mat á afleiðingum brottvísunar og hvort rétt sé að fresta framkvæmd á meðan nýtt erindi sé til meðferðar hjá yfirvöldum. Samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga geti kærunefnd frestað framkvæmd þegar sýnt sé fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá endanlegri ákvörðun. Kærandi gerir kröfu um að nefndin meti hvort framangreint erindi teljist breyting sem 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga vísar til. Jafnframt gerir kærandi kröfu um að lagt sé mat á afleiðingar þess að framkvæmd brottvísunar fari fram áður en framangreint mat liggi fyrir.
Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Samkvæmt lokamálslið 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Röksemdir kæranda fyrir beiðni um frestun framkvæmdar lúta að því að kærandi hafi lagt fram erindi til viðeigandi yfirvalds hér á landi til þess að rannsaka tiltekin atriði er varðar ákæru og málsmeðferð fyrir dómstólum hér á landi vegna dóms Hæstaréttar nr. 27/2024, frá 18. desember 2024. Kærandi vísar einkum til atriða sem héraðsdómur hafi talið ósannað í málinu og hafi heimfært háttsemina undir annað ákvæði en Landsréttur og Hæstiréttur.
Í úrskurði nefndarinnar nr. 418/2026 var fjallað um heimildir stjórnvalda til að brottvísa kæranda en í málinu var tekin afstaða til brottvísunar kæranda úr landi á grundvelli c-liðar 1. mgr. 99. gr. laga um útlendinga. Með framangreindum dómi Hæstaréttar var kærandi sakfelldur fyrir þá háttsemi sem honum var gefið að sök og er dómurinn grundvöllur ákvörðunar um brottvísun. Þá er sérstaklega áréttað að dómur Hæstaréttar í máli kæranda er endanleg úrlausn um mál hans og verða málsástæður kæranda fyrir dómi og niðurstaða dómstóla ekki endurskoðuð af kærunefnd útlendingamála. Það var jafnframt niðurstaða nefndarinnar að brottvísun fæli ekki í sér ósanngjarna ráðstöfun í skilningi 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af tengslum hans við landið en að endurkomubann kæranda skyldi stytt í átta ár. Þær upplýsingar sem kærandi byggir á í beiðni um frestun á framkvæmd breyta ekki framangreindu mati kærunefndar. Röksemdir kæranda um að hann hafi lagt fram erindi til viðeigandi stjórnvalds til rannsóknar á atriðum í málsmeðferð kæranda fyrir dómstólum hér á landi fela ekki í sér að breyttar aðstæður hafi skapast í máli hans.
Að framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að ekki sé um breyttar aðstæður að ræða sem gefi til kynna að ástæða sé til að fallast á beiðni aðila um að fresta framkvæmd í máli hans. Beiðni kæranda er hafnað.
Úrskurðarorð:
Kröfu kæranda er hafnað.
The appellant’s request is denied.
Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,
Jóna Aðalheiður Pálmadóttir
Vera Dögg Guðmundsdóttir