Úrskurður nr. 481/2026
Hinn 29. október 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 481/2026
í stjórnsýslumáli nr. KNU26020085
Kæra [...]
- Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 19. febrúar 2026 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Filippseyja (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 12. febrúar 2026, um að synja henni um langtímavegabréfsáritun á Íslandi.
Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að fallist verði á beiðni hennar um langtímavegabréfsáritun, nú skammtímadvalarleyfi, á grundvelli 1. mgr. 21. gr. laga um útlendinga.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik og málsmeðferð
Með ákvörðun norska sendiráðsins í Bangkok í Taílandi fékk kærandi útgefna vegabréfsáritun fyrir Schengen-svæði 9. janúar 2026. Áritunin heimilaði kæranda eina komu á Schengen-svæði og dvöl í allt að 31 dag á tímabilinu 25. janúar til 11. mars 2026. Kærandi kom inn á Schengen-svæðið 27. janúar 2026. Hinn 30. janúar 2026 lagði kærandi fram umsókn um langtímavegabréfsáritun fyrir dvöl umfram 90 daga. Umsókn kæranda var lögð fram á Íslandi. Samkvæmt umsókninni var tilgangur dvalar kæranda að heimsækja frænda sinn hér á landi og óskaði kærandi eftir að framlengja heimsókn sína til 14. apríl 2026 til þess að vera viðstödd skírn frænku sinnar en kærandi væri ein af guðmæðrum hennar. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 12. febrúar 2026. Fram kom í ákvörðuninni að kærandi ætti ekki aðstandendur hér á landi í skilningi þágildandi a-liðar 2. mgr. 5. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 1. mgr. 69. gr. laga um útlendinga. Þá vísaði Útlendingastofnun til d- og e-liðar 1. mgr. 7. gr. reglugerðar um útlendinga.
Með tölvubréfi, dags. 19. febrúar 2026, lagði kærandi fram stjórnsýslukæru og önnur rök fyrir kæru. Beiðni um frestun réttaráhrifa var lögð fram með tölvubréfi, dags. 23. febrúar 2026. Í ljósi ákvörðunarorða hinnar kærðu ákvörðunar auk niðurstöðu málsins er ekki ástæða til þess að fresta réttaráhrifum.
3 Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð kemur fram að kærandi óski eftir að framlengja gildistíma vegabréfsáritunar sinnar umfram 90 daga einkum i þeim tilgangi að geta verið viðstödd skírn frænku sinnar sem eigi að fara fram 11. apríl 2026. Þá vilji kærandi frekari tíma til að rækta tengsl við ættingja sína og skoða sig um á Íslandi. Kærandi áréttar að hún hyggist ekki dveljast ótímabundið á Íslandi og sé tilbúin að leggja fram uppfærða ferðatryggingu og gögn sem sýni fram á framfærslu. Í meðfylgjandi gögnum hefur kærandi meðal annars lagt fram boðsbréf frænda síns vegna heimsóknar, dags. 19. febrúar 2026.
4 Langtímavegabréfsáritun
4.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerðar um útlendinga og stjórnsýslulaga. Með lögum um vegabréfsáritanir nr. 37/2026, sem tóku gildi 4. maí 2026, voru m.a. gerðar breytingar á 21. gr. laga um útlendinga. Breytingarnar fólu í sér að nú geta umsækjendur sem óska eftir dvöl umfram 90 daga lagt fram umsókn til Útlendingastofnunar um skammtímadvalarleyfi í stað umsóknar um langtímavegabréfsáritun.
Í þágildandi 1. mgr. 21. gr. laga um útlendinga kom fram að heimilt væri að veita langtímavegabréfsáritun þegar umsækjandi óskaði eftir dvöl umfram 90 daga en tilgangur dvalar væri ekki af ástæðu sem tilgreind væri almennt í dvalarleyfisflokkum og ekki væri ætlun umsækjanda að setjast að á landinu. Vegabréfsáritun samkvæmt ákvæðinu yrði ekki veitt til lengri tíma en 180 daga. Í þágildandi a-lið 2. mgr. 5. gr. reglugerðar um útlendinga kom fram að heimilt væri að gefa út langtímavegabréfsáritun, m.a. til aðstandenda, sbr. 1. mgr. 69. gr. laga um útlendinga, sem hygðust koma í lengri heimsókn hingað til lands. Heimilt væri að víkja frá aldursskilyrði foreldra umsækjanda við útgáfu langtímavegabréfsáritunar.
Eftir framangreindar breytingar orðast 21. gr. laga um útlendinga svo:
Útlendingastofnun er heimilt að veita útlendingi skammtímadvalarleyfi þegar umsækjandi óskar eftir dvöl umfram 90 daga en tilgangur dvalar er ekki af ástæðu sem tilgreind er almennt í dvalarleyfisflokkum og ekki er ætlun umsækjanda að setjast að á landinu. Skammtímadvalarleyfi samkvæmt þessu ákvæði verður ekki veitt til lengri tíma en 180 daga og skal aðeins veitt einu sinni á hverju 12 mánaða tímabili. Útlendingi er ekki heimil dvöl hér á landi umfram gildistíma dvalarleyfis.
Heimilt er að afturkalla skammtímadvalarleyfi ef útlendingur brýtur gegn skilyrðum þess, t.d. með því að stunda atvinnu á innlendum vinnumarkaði án heimildar.
Dvöl samkvæmt ákvæði þessu getur ekki verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis eða skapað grundvöll lögheimilis hér á landi samkvæmt lögum um lögheimili og aðsetur.
Umsókn um dvalarleyfi samkvæmt ákvæði þessu skal hafnað ef líklegt er talið að umsækjandi muni ekki yfirgefa landið þegar leyfi hans rennur út.
Á grundvelli 5. mgr. 21. gr. laga um útlendinga, eins og þeim var breytt með lögum um vegabréfsáritanir, setti ráðherra reglugerð nr. 725/2026 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Með reglugerðinni voru gerðar breytingar á II. kafla reglugerðar um útlendinga en kaflinn fjallar um skammtímadvalarleyfi.
Samkvæmt 1. mgr. 3. gr. reglugerðar um útlendinga má veita útlendingi skammtímadvalarleyfi að fenginni umsókn og að uppfylltum skilyrðum laga ef jafnframt er fullnægt skilyrðum samkvæmt reglugerðinni. Í 2. mgr. segir að skammtímadvalarleyfi feli í sér heimild til dvalar hér á landi í allt að 180 daga. Dvöl útlendings þegar sótt er um slíkt dvalarleyfi skuli vera í samræmi við 49. gr. laga um útlendinga nema annað sé tekið fram. Í 3. mgr. kemur fram að samfelld dvöl útlendings hér á landi skuli ekki vara lengur en 180 daga í senn og skuli gildistími dvalarleyfis taka mið af því. Dvöl í öðru ríki sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu skuli jafngilda dvöl hér á landi. Þá segir í 4. mgr. að útlendingi sé ekki heimil dvöl hér á landi umfram gildistíma dvalarleyfis. Þrátt fyrir það sé útlendingi, sem sé undanþeginn áritunarskyldu heimil dvöl innan Schengen-svæðisins í allt að 90 daga að loknum gildistíma leyfisins.
Samkvæmt 1. mgr. 5. gr. reglugerðar um útlendinga er heimilt að gefa út skammtímadvalarleyfi í þeim tilvikum sem greinir í a- og b-liðum ákvæðisins. Samkvæmt a-lið 1. mgr. ákvæðisins er heimilt að gefa út skammtímadvalarleyfi til nánustu fjölskyldumeðlima en til þeirra teljast hjúskaparmaki, foreldri, barn og systkini sem hyggjast koma í lengri heimsókn hingað til lands. Samkvæmt b-lið 1. mgr. er heimilt að gefa út skammtímadvalareyfi til listamanna, vísindamanna eða íþróttamanna, enda kalli dvöl þeirra ekki á útgáfu atvinnuleyfis. Fjallað er nánar um skilyrði fyrir veitingu skammtímadvalarleyfis í reglugerðinni.
4.2 Niðurstaða
Fyrir liggur að kærandi lagði fram umsókn um langtímavegabréfsáritun 30. janúar 2026 til að vera viðstödd skírn frænku sinar, dags. 11. apríl 2026, rækta tengsl við frændfólk sitt og skoða Ísland.
Með ákvörðun, dags. 12. febrúar 2026, synjaði Útlendingastofnun umsókn kæranda með þeim rökum að kærandi ætti ekki nána ættingja í skilningi þágildandi a-liðar 2. mgr. 5. gr. reglugerðar um útlendinga og þá væri tilgangur dvalar hennar ekki í samræmi við b- og c-lið ákvæðisins. Uppfyllti kærandi því ekki skilyrði fyrir útgáfu langtímavegabréfsáritunar samkvæmt þágildandi 1. mgr. 21. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt þágildandi a-lið 2. mgr. 5. gr. reglugerðar um útlendinga var heimilt að gefa út langtímavegabréfsáritun til aðstandenda, sbr. 1. mgr. 69. gr. laga um útlendinga, sem hygðust koma í lengri heimsókn hingað til lands. Samkvæmt 1. mgr. 69. gr. laga um útlendinga teljast til nánustu aðstandenda maki, sambúðarmaki, börn viðkomandi yngri en 18 ára í forsjá hans og á framfæri og foreldrar 67 ára og eldri. Fyrir liggur að frændfólk kæranda teljast ekki til nánustu aðstandenda kæranda í skilningi framangreinds ákvæðis. Þá verður ekki talið að framlenging á heimsókn kæranda til þess að hún geti verið viðstödd skírn frænku sinnar falli undir sérstakan lögmætan tilgang í skilningi b- eða c-liðar þágildandi 5. gr. reglugerðar um útlendinga. Voru skilyrði langtímavegabréfsáritunar því ekki uppfyllt þegar Útlendingastofnun tók hina kærðu ákvörðun.
Með framangreindri breytingu á reglugerð um útlendinga voru skilyrði fyrir skammtímadvalarleyfi rýmkuð en nú heyra systkini undir aðstandendur í skilningi reglugerðarinnar, en frændtengsl falla enn utan gildissviðs ákvæðisins. Þá höfðu framangreindar laga- og reglugerðarbreytingar ekki tekið gildi, þegar Útlendingastofnun tók ákvörðun um umsókn kæranda um langtímavegabréfsáritun 12. febrúar 2026, en þær tóku gildi 12. maí 2026. Loks er sá dvalartími sem 1. mgr. 21. gr. laga um útlendinga kveður á um jafnframt liðinn.
Með vísan til framangreinds er ljóst að kærandi uppfyllti ekki þágildandi skilyrði 2. mgr. 5. gr. reglugerðar um útlendinga og var því ekki rétt að veita henni langtímavegabréfsáritun á grundvelli 1. mgr. 21. gr. laga um útlendinga. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Útlendingastofnunar um synjun á langtímavegabréfsáritun staðfest.
Athugasemdir við málsmeðferð
Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi inn á Schengen-svæðið 27. janúar 2026 á grundvelli vegabréfsáritunar sem heimilaði dvöl í allt að 31 dag á tímabilinu 25. janúar til 11. mars 2026. Með umsókn sinni um langtímavegabréfsáritun, dags. 30. janúar 2026, óskaði kærandi eftir að framlengja áritunina til 14. apríl 2026. Umsókn kæranda laut því ekki að framlengingu umfram 90 daga og byggði rökstuðningur hinnar kærðu ákvörðunar meðal annars á því að skilyrði fyrir útgáfu langtímavegabréfsáritunar væru ekki uppfyllt þar sem kærandi hygðist ekki dvelja hér á landi lengur en 90 daga. Í ljósi framangreinds hefði Útlendingastofnun verið rétt að leiðbeina kæranda um þann möguleika að leggja fram umsókn um framlengingu á áritun sinni á grundvelli 34. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, sbr. leiðbeiningarskyldu stjórnvalda samkvæmt 7. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Jóna Aðalheiður Pálmadóttir
Vera Dögg Guðmundsdóttir