10. mar. 2026Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir
1341/2026. Úrskurður frá 10. mars 2026
Deilt var um rétt til aðgangs að gögnum í vörslu utanríkisráðuneytis um lokun sendiráðs Íslands í Moskvu. Ákvörðun ráðuneytisins að hafna beiðni um aðgang að gögnunum var byggð á því að þau vörðuðu málefni starfsmanna, teldust vinnugögn eða hefðu að geyma upplýsingar um samskipti við önnur ríki eða fjölþjóðastofnanir. Úrskurðarnefndin staðfesti að hluti gagnanna varðaði starfssamband viðkomandi starfsmanna, en að kærandi ætti rétt á upplýsingum um föst launakjör sem tilgreindar væru í gögnunum. Þá taldi nefndin að kærandi ætti rétt á tilteknum gögnum sem uppfylltu ekki skilyrði þess að teljast vinnugögn í skilningi upplýsingalaga, og sömuleiðis gögnum sem teldust ekki hafa að geyma samskipti við önnur ríki eða fjölþjóðastofnanir. Að öðru leyti var ákvörðun ráðuneytisins staðfest.