Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Covid-19
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 651–700 af 908
    Raða eftir:
    22. maí 2020Dómsmálaráðuneytið, Covid-19, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra í heimsókn í Kvennaathvarfið

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, heimsótti Kvennaathvarfið í dag og fékk kynningu á starfsemi þess. Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins, tók á móti forsætisráðherra og Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, skrifstofustjóra skrifstofu jafnréttismála, sýndi þeim húsnæðið og fór yfir þær úrbætur sem ráðist verður í á komandi mánuðum.

    22. maí 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Fjöldamörk úr 50 í 200 manns og fleiri tilslakanir

    Ný auglýsing heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar tekur gildi mánudaginn 25. maí. Þar með verður allt að 200 manns heimilt að koma saman í stað 50 nú, heimilt verður að opna líkamsræktarstöðvar með sömu takmörkunum og gilda um sund- og baðstaði og öllum veitingastöðum, þar með töldum krám og skemmtistöðum, og einnig spilasölum, verður heimilt að hafa opið til kl. 23.00. Hvatt er til þess að viðhalda tveggja metra nálægðarmörkum eftir því sem kostur er, eins og nánar er fjallað um í auglýsingunni. Auglýsingin er í fullu samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Ráðherra kynnti ákvörðun sína um breytingar á takmörkun á samkomum á fundi ríkisstjórnar í morgun.

    22. maí 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Hægt að áætla fjárhæðir stuðningslána og lokunarstyrkja í reiknivél á Ísland.is

    Fyrirtæki geta nú kannað hvernig þau falla undir úrræði sem stjórnvöld hafa kynnt vegna Covid-19 í reiknivél á vefnum Ísland.is. Senn verður opnað fyrir móttöku umsókna um lokunarstyrki og stuðningslán á vefnum, auk þess sem þar er að finna upplýsingar um viðbótarlán.

    20. maí 2020Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Covid-19

    COVID-19 faraldurinn efst á baugi á fundum utanríkisráðherra með kollegum sínum

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, hefur undanfarna daga átt tvíhliða fundi með kollegum sínum í Króatíu, Grænlandi og Kanada. Einnig ræddi hann í dag við varnarmálaráðherra Norðurhópsins á fjarfundi. Viðbrögð við COVID-19 heimsfaraldrinum voru efst á baugi á fundunum.

    20. maí 2020Innviðaráðuneytið, Byggðamál, Covid-19, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Sautján aðgerðir kynntar til að efla sveitarfélög á Suðurnesjum

    Í nýrri samantekt starfshóps um stöðu sveitarfélaga á Suðurnesjum er kynnt aðgerðaáætlun með 17 aðgerðum til að bæta þjónustu og efla sveitarfélög á svæðinu.

    20. maí 2020Dómsmálaráðuneytið, Covid-19, Útlendingar

    Dvalarleyfi framlengt um mánuð

    Dómsmálaráðherra hefur sett nýtt reglugerðarákvæði í reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga sem tekur á dvöl þeirra sem ekki komast út landi af ástæðum sem skapast vegna Covid-19.Um er að ræða framlengingu á fyrra ákvæði til 1. júlí 2020 í stað 1.júní 2020 áður.

    20. maí 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19, Atvinnuvegaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Kynntu áherslur ríkisstjórnarinnar í nýsköpun og vísindum

    Milljarður í samfélagslegar áskoranir, aðgerðaráætlun um fjórðu iðnbyltinguna og samstarf við Carlsberg-sjóðinn m.a. um áhrif loftslagsbreytinga á hafið.

    20. maí 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Mótvægisráðstafanir stjórnvalda vegna heimsfaraldurs kórónuveiru kynntar í ríkisstjórn

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra kynnti í ríkisstjórn í gær umfang mótvægisráðstafana stjórnvalda vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Á síðustu vikum hafa forsendur almennt breyst í þá veru að áhrif faraldursins verði djúpstæðari og langvinnari en áður var gert ráð fyrir og að sama skapi hafa afkomuhorfur versnað.

    20. maí 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Út úr kófinu - vísindi, nýsköpun og áskoranir framtíðarinnar

    Forsætisráðherra, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra hafa boðað til blaðamannafundar í dag kl. 12.00 þar sem forsætisráðherra kynnir markáætlun og skýrslu um fjórðu iðnbyltinguna,

    19. maí 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Sjávarútvegur, Covid-19, Atvinnuvegir

    Heimilt að flytja 25% aflamarks

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð þar sem heimild til flutnings aflamarks í botnfisktegundum yfir á næsta fiskveiðiár er aukin tímabundið úr 15% í 25%. Er þetta gert til að stuðla að meiri sveigjanleika við veiðar og vinnslu til að bregðast við áhrifum COVID-19 á íslenskan sjávarútveg.

    19. maí 2020Innviðaráðuneytið, Covid-19, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Starfshópi falið að meta stöðu sveitarfélaga vegna Covid-19 faraldursins

    Starfshópur á vegum stjórnvalda, ríkis og sveitarfélaga, hefur verið skipaður til að meta stöðu einstakra sveitarfélaga vegna Covid-19 faraldursins.

    19. maí 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Áhersla á samstöðu þjóða á þingi WHO

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra þakkaði fyrir leiðsögn og forystu WHO og hvatti til samstöðu þjóða þegar hún ávarpaði þing Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar sem nú stendur yfir. Þingið er haldið í skugga heimsfaraldurs COVID-19 sem er meginumfjöllunarefnið og setur jafnframt mark sitt á umgjörð þess þar sem það er haldið á Netinu.

    18. maí 2020Innviðaráðuneytið, Byggðamál, Covid-19, Ferðaþjónusta, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Ný samantekt Byggðastofnunar: Mörg sveitarfélög illa stödd vegna hruns ferðaþjónustu

    Byggðastofnun hefur gert samantekt á áhrifum niðursveiflu í ferðaþjónustu á atvinnuástand á landsbyggðinni en í henni er mikilvægi ferðaþjónustunnar greint eftir svæðum og sveitarfélögum.

    16. maí 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Þing Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar haldið í skugga Covid-19

    þing Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) hefst á mánudaginn og stendur í tvo daga. Þingið er haldið í skugga COVID-19 heimsfaraldursins. Það fer fram á Netinu og meginumfjöllunarefnið verður faraldurinn og viðbrögð þjóða við honum. Hægt verður að fylgjast beint með þinginu í streymi á vef stofnunarinnar sem hefst með ávarpi Dr Tedros Adhanom Ghebreyesus, framkvæmdastjóra WHO. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra tekur þátt í þinginu og ávarpar það fyrir Íslands hönd. ​

    15. maí 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Covid-19, Standard og Poor's

    S&P Global Ratings staðfestir A/A-1 lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs - horfur eru áfram stöðugar

    Alþjóðlega matsfyrirtækið S&P Global Ratings hefur staðfest A/A-1 lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands með stöðugum horfum. S&P reiknar með neikvæðum hagvexti um 7,5% á yfirstandandi ári vegna verulegra neikvæðra áhrifa Covid-19 á ferðaþjónustu. Hógvær nettó skuldastaða hins opinbera veitir þó viðspyrnu við því áfalli sem kórónufaraldurinn hefur á íslenskt efnahagslíf.

    15. maí 2020Innviðaráðuneytið, Covid-19, Flug og flugvellir, Samgöngur og fjarskipti

    Lágmarks millilandaflug tryggt í sumar með nýjum samningi við Icelandair

    Samið hefur verið við Icelandair um að tryggja flug til Evrópu og Bandaríkjanna til og með 27. júní.

    15. maí 2020Dómsmálaráðuneytið, Covid-19, Lög og réttur

    Fjárhagsleg endurskipulagning atvinnufyrirtækja og aðgerðir gegn kennitöluflakki

    Ríkisstjórnin hefur samþykkt frumvarp dómsmálaráðherra um einföldun á fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækja og aðgerðir til að sporna við kennitöluflakki.

    15. maí 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19

    Stafrænt hakkaþon 22.-25. maí 2020

    Miðar að því að vinna að áskorunum sem steðja að íslensku samfélagi vegna Covid-19.

    15. maí 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Stuðningur vegna greiðslu launakostnaðar á uppsagnarfresti

    Frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra sem kveður á um stuðning úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti var samþykkt af ríkisstjórn og þingflokkum stjórnarflokkanna í dag. Frumvarpinu er ætla að koma til móts við fyrirtæki sem orðið hafa fyrir verulegri fjárhagslegri röskunar á atvinnurekstri vegna farsóttarinnar. Markmið stuðningsins er að draga úr líkum á fjöldagjaldþrotum fyrirtækja og tryggja réttindi launafólks.

    15. maí 2020Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Covid-19, Dómsmálaráðuneytið

    Frumvörp um framhald hlutastarfaleiðar og aukinn stuðning við fyrirtæki samþykkt í ríkisstjórn

    Ríkisstjórnin samþykkti í morgun frumvörp fjármála- og efnahagsráðherra, félags- og barnamálaráðherra og dómsmálaráðherra. Frumvörpin eru hluti af framhaldsaðgerðum stjórnvalda í efnahagsmálum vegna heimsfaraldurs kórónaveiru sem kynntar voru þann 28. apríl sl.

    15. maí 2020Líf og heilsa, Covid-19, Heilbrigðisráðuneytið

    Heimilt að opna sundlaugar og baðstaði 18. maí, með ákveðnum skilyrðum

    Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis um að heimila opnun sundlauga og baðstaða 18. maí næstkomandi. Fjöldi sundgesta verður takmarkaður og rík áhersla lögð á hreinlæti og sóttvarnir. Auglýsing sem kveður á um heimildina hefur verið send Stjórnartíðindum til birtingar ásamt ýtarlegum leiðbeiningum sóttvarnalæknis.

    15. maí 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Dómsmálaráðuneytið, Covid-19

    Verkefnisstjórn falinn undirbúningur að sýnatöku hjá komufarþegum

    Verkefnisstjórn sem heilbrigðisráðherra skipar mun stýra undirbúningi og framkvæmd við sýnatöku og greiningar á COVID-19 meðal farþega sem koma til landsins, í samræmi við ákvörðun stjórnvalda. Heilbrigðisráðherra og dómsmálaráðherra kynntu minnisblað varðandi þetta á fundi ríkisstjórnarinnar í dag. Stefnt er að því að eigi síðar en 15. júní geti ferðamenn sem koma til landsins farið í skimun á Keflavíkurflugvelli eða framvísað vottorði sem sóttvarnalæknir metur gilt kjósi þeir það fremur en að fara í sóttkví. Tveimur vikum eftir að skimun hefst verður verkefnið metið og tekin ákvörðun um framhaldið á grundvelli þess.

    14. maí 2020Covid-19, Hönnun, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu, stafrænar flíkur og vatnavellíðan meðal styrkþega Hönnunarsjóðs

    Hönnunarsjóður hefur úthlutað 26 styrkjum til ólíkra verkefna á vegum hönnunar og arkitektúrs. Að þessu sinni voru 25 milljónum úthlutað en alls bárust 126 umsóknir um 237 milljónir.

    14. maí 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Mikill kippur í kortanotkun og vegaumferð eykst eftir rýmkun samkomubanns

    Umsvif í hagkerfinu hafa tekið vel við sér á ný samhliða því sem faraldur COVID-19 hér á landi hefur rénað og samkomubann var rýmkað. Vegaumferð og kortavelta drógust mikið saman í upphafi faraldursins en greinileg vatnaskil urðu í seinni hluta apríl þegar umsvif byrjuðu að aukast á ný.

    14. maí 2020Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntamál, Covid-19

    Atvinnuástand, aðstæður og líðan háskólanema

    Mennta- og menningarmálaráðuneyti og Landssamtök íslenskra stúdenta ásamt aðildarfélögum þess hafa tekið höndum saman við að kortleggja atvinnuástand og aðstæður háskólanema vegna COVID-19.

    13. maí 2020Menntamál, Vinnumál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Covid-19, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Tækifæri fyrir námsmenn: Aðgerðir stjórnvalda vegna sumarstarfa og sumarnáms

    Aðgerðir stjórnvalda vegna sumarnáms og sumarstarfa voru kynntar á fundi Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra og Ásmundar Einars Daðasonar félags- og barnamálaráðherra í Háskólanum í Reykjavík í dag.

    12. maí 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Ferðatakmarkanir rýmkaðar í skrefum

    Nýjar reglur um sóttkví taka gildi á föstudaginn og gilda til 15. júní. Samkvæmt þeim verður þeim sem koma til landsins áfram skylt að fara í sóttkví í 14 daga, en heimild til að beita vinnusóttkví verður rýmkuð og skýrð nánar. Kjarninn í breytingunni felst í því að skilyrði fyrir vinnusóttkví verða ekki lengur bundin við kerfislega eða efnahagslega mikilvæga starfsemi. Fyrst og fremst verður horft til þess að viðkomandi umgangist ekki aðra meðan á sóttkví stendur eins og nánar verður skýrt í nýjum reglum heilbrigðisráðherra. Stefnt er að því að eigi síðar en 15. júní verði ferðatakmarkanir rýmkaðar til muna með innleiðingu reglna um sýnatöku sem geta komið í stað sóttkvíar við komu fólks til landsins.

    12. maí 2020Forsætisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Covid-19, Atvinnuvegaráðuneytið

    Sýnataka á Keflavíkurflugvelli

    Ríkisstjórnin ákvað í morgun að stefna að frá og með 15. júní næstkomandi geti þeir sem koma til landsins farið í COVID-19 próf á Keflavíkurflugvelli. Reynist það neikvætt þurfi þeir ekki að fara í 2ja vikna sóttkví.

    12. maí 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Búið að semja við alla viðskiptabankana um veitingu viðbótarlána

    Samningar hafa verið undirritaðir við viðskiptabankana fjóra um veitingu viðbótarlána til fyrirtækja, svonefndra brúarlána. Fjármála- og efnahagsráðuneytið fól Seðlabanka Íslands að annast framkvæmd á ábyrgðum ríkissjóðs (tengill á samning) og hefur bankinn undirritað samninga við Arion banka, Íslandsbanka, Kviku og Landsbankann.

    12. maí 2020Dómsmálaráðuneytið, Covid-19, Jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Áhrif COVID-19 á jafnrétti kynjanna á Norðurlöndunum

    Rætt var um viðbrögð Norðurlandanna í tengslum við COVID – 19 og jafnrétti kynjanna á fundi norrænna ráðherra jafnréttismála sem haldinn var í morgun.

    11. maí 2020Innviðaráðuneytið, Covid-19, Flug og flugvellir, Samgöngur og fjarskipti

    Samið að nýju til að tryggja lágmarks millilandaflug og innanlandsflug

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur endurnýjað samning við Icelandair um flug til Evrópu og Bandaríkjanna til og með 16. maí.

    08. maí 2020Innviðaráðuneytið, Covid-19, Norrænt samstarf, Samgöngur og fjarskipti, Flug og flugvellir

    Norrænir samgönguráðherrar vilja auka samvinnu á sviði samgöngumála

    Norrænir samgönguráðherrar vilja auka samvinnu og koma á fót starfshópi til að að greina möguleg samstarfsverkefni á sviði samgangna.

    08. maí 2020Innviðaráðuneytið, Covid-19, Umferð, Samgöngur og fjarskipti

    Öllum leigubifreiðastjórum gert kleift að leggja inn atvinnuleyfi sitt

    Frumvarp hefur verið lagt fram á Alþingi til að tryggja að allir eigubifreiðastjórar hafi heimild að leggja inn atvinnuleyfi sitt.

    08. maí 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Fundur heilbrigðisyfirvalda og Evrópuskrifstofu WHO

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Alma D. Möller landlæknir áttu í gær tvíhliða fund með Dr. Hans Kluge, forstjóra Evrópuskrifstofu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) og fleiri fulltrúum stofnunarinnar. Umfjöllunarefnið var kórónuveirufaraldurinn og COVID-19 þar sem ráðherra og landlæknir gerðu grein fyrir þróuninni og stöðu mála hér á landi. Á fundinum bauð Dr. Kluge Íslandi aðkomu að vettvangi á vegum WHO þar sem fjallað er um aðferðir og mismunandi próf sem þróuð hafa verið til mótefnamælinga vegna veirunnar.

    08. maí 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19

    3.400 sumarstörf fyrir námsmenn auglýst á næstunni

    4,5 sinnum stærra átak en ráðist var í eftir hrunið árið 2008

    08. maí 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Athygli heilbrigðisstofnana vakin á mikilvægri könnun

    Undanfarið hafa fjölmargar opinberar stofnanir brugðist við heimsfaraldri kórónuveiru með ýmsum breytingum á starfsemi sinni sem meðal annars hafa miðað að því að tryggja notendum mikilvæga opinbera þjónustu. Ýmsar nýjar lausnir hafa orðið til sem stuðlað geta að varanlegum umbótum. Fjármála- og efnahagsráðuneytið stendur nú fyrir könnun á slíkum lausnum hjá stofnunum hins opinbera. Heilbrigðisráðuneytið vekur athygli á þessari könnun og hvetur stjórnendur heilbrigðisstofnana um allt land til að taka þátt í henni.

    07. maí 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Greining á mögulegri stærðargráðu áfalls vegna heimsfaraldurs kórónuveiru

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur unnið greiningar sem miða að því að varpa ljósi á mögulega stærðargráðu áfallsins sem hagkerfið stendur frammi fyrir vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.

    05. maí 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Nýsköpun, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Könnun á nýjum lausnum stofnana vegna heimsfaraldurs kórónuveiru

    Undanfarið hafa fjölmargar opinberar stofnanir brugðist við heimsfaraldri kórónuveiru með ýmsum breytingum á starfsemi sinni sem miðað hafa að því að tryggja að hægt sé að sinna verkefnum stofnana og veita opinbera þjónustu. Sem dæmi um breytingar má nefna aukna stafræna þjónustu í gegnum Ísland.is og nýjar samskiptaleiðir við veitingu heilbrigðisþjónustu.

    05. maí 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa, Ræður og greinar

    Bjartari tímar

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fjallar í blaðagrein um breytingarnar varðandi takmarkanir á samkomum sem tóku gildi í gær. Hún segir þetta merkan áfanga og til marks um hve vel hefur tekist hér á landi að hafa stjórn á útbreiðslu kórónuveirunnar, verja heilbrigðiskerfið og vernda viðkvæma hópa. Hún minnir á að verkefninu sé þó langt í frá lokið, mikilvægt sé að allir haldi áfram vöku sinni, vinni saman og skilji engan eftir nú þegar bjartari tímar eru framundan og sumarið á næsta leiti.

    05. maí 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa, Ræður og greinar

    Bjartari tímar

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fjallar í blaðagrein um breytingarnar varðandi takmarkanir á samkomum sem tóku gildi í gær. Hún segir þetta merkan áfanga og til marks um hve vel hefur tekist hér á landi að hafa stjórn á útbreiðslu kórónuveirunnar, verja heilbrigðiskerfið og vernda viðkvæma hópa. Hún minnir á að verkefninu sé þó langt í frá lokið, mikilvægt sé að allir haldi áfram vöku sinni, vinni saman og skilji engan eftir nú þegar bjartari tímar eru framundan og sumarið á næsta leiti.

    05. maí 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigði í okkar höndum

    Í dag er alþjóðlegi handþvottadagurinn sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur staði fyrir ár hvert frá árinu 2009 undir yfirskriftinni „Björgum mannslífum: Þvoum okkur um hendur.“ Að þessu sinni er sjónum beint að heilbrigðisstarfsfólki og þeirra þætti í að tryggja öryggi sjúklinga og fyrirbyggja smit með reglubundnum og góðum handþvotti. COVID-19 faraldurinn er skýrt dæmi um hvað veirusmit geta breiðst hratt út og afgerandi áminning um mikilvægi handþvottar. Því er óhætt að segja að heilbrigði sé í okkar allra höndum þar sem við getum haft mikil áhrif með reglulegum handþvotti.

    05. maí 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Covid-19, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Aðgerðum í loftslagsmálum flýtt

    Alls verður 550 milljónum króna ráðstafað aukalega í ár til loftslagsmála í sérstöku tímabundnu fjárfestingaátaki ríkisstjórnarinnar sem Alþingi samþykkti í lok mars til að vinna gegn samdrætti í hagkerfinu vegna Covid-19 heimsfaraldursins. Búið er að útfæra nánar skiptingu fjármagnsins milli verkefna sem tengjast orkuskiptum og kolefnisbindingu í þágu loftslagsmála auk þess sem Loftslagssjóður verður styrktur.

    05. maí 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19, Dómsmálaráðuneytið

    Aukinn kraftur í aðgerðir og vitundarvakningu gegn ofbeldi

    Aðgerðateymi á að stýra og samræma vinnu við útfærslu aðgerða gegn ofbeldi.

    04. maí 2020Mennta- og barnamálaráðuneytið, Covid-19, Menntamál

    Framhaldsskólar opna að nýju: Ráðherra heimsækir Menntaskólann við Hamrahlíð

    Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra heimsótti Menntaskólann við Hamrahlíð í morgun þegar fyrsti hefðbundni skóladagurinn hófst þar eftir að takmörkunum á skólahaldi var aflétt.

    04. maí 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Nýjar reglur um takmarkanir á samkomum hafa tekið gildi

    Á miðnætti aðfaranótt 4. maí tóku gildi nýjar reglur heilbrigðisráðherra um takmarkanir á samkomum. Fjöldamörk hafa verið hækkuð úr 20 í 50 manns, takmarkanir á fjölda nemenda í leik- og grunnskólum hafa verið felldar niður og sömuleiðis vegna íþróttaiðkunar og æskulýðsstarfs barna á leik- og grunnskólaaldri. Framhalds- og háskólar hafa verið opnaðir á ný og ýmsir þjónustuveitendur opnuðu í morgun dyr sínar fyrir viðskiptavinum. Áfram gildir reglan um tveggja metra nálægðartakmörk hjá fullorðnum og gæta þarf að hreinlæti og sóttvörnum líkt og áður.

    03. maí 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19

    Ávarp forsætisráðherra

    Við verðum að vanda okkur því verkefninu er langt í frá lokið, sagði Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, í ávarpi til íslensku þjóðarinnar í kvöld, degi áður en fyrsta skrefið er stigið í afléttingu samkomubanns á morgun.

    01. maí 2020Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntamál, Covid-19

    Snertihlustun, trefjaleir, sjóveikihermir og framtíðarskógar: Úthlutað úr Nýsköpunarsjóði námsmanna

    Í fyrstu úthlutun Nýsköpunarsjóðs námsmanna fyrir árið 2020 hljóta 74 fjölbreytt verkefni styrki sem alls nema um 106 milljónum kr.

    30. apr. 2020Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Covid-19, Atvinnuvegaráðuneytið

    Staða Icelandair

    Undanfarnar vikur hefur fulltrúum stjórnvaldaverið haldið upplýstum um stöðu Icelandair þar sem fram hefur komið að félagið vinnur að fjárhagslegri endurskipulagningu og söfnun nýs hlutafjár.

    30. apr. 2020Menningarmál, Covid-19, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Stuðningur við íþrótta- og æskulýðsstarf vegna COVID-19

    Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands verður falið að úthluta 450 milljóna kr. stuðningi ríkisins til íþróttahreyfingarinnar til þess að mæta áhrifum COVID-19. Samningur þess efnis var undirritaður í gær.

    30. apr. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Eftirlitsnefnd vegna viðbótarlána skipuð

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað þriggja manna nefnd til að hafa eftirlit með framkvæmd veitingar viðbótarlána lánastofnana með ríkisábyrgð. Í nefndinni eiga sæti; Einar Páll Tamimi, formaður, Kristrún Heimisdóttir og Ásta Dís Óladóttir.

    • First
    • Prev
    • 12
    • 13
    • 14
    • 15
    • 16
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband