12. sep. 2017Húsnæðis- og mannvirkjamál, Mannréttindi og jafnrétti, Vinnumál, Félags- og fjölskyldumál, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Útgjöld til félagsmála hækka um 17,8 milljarða króna
Í frumvarpi til fjárlaga ársins 2018 er gert ráð fyrir að bætur almannatrygginga og atvinnuleysistrygginga hækki um 4,7% 1. janúar næstkomandi. Auk þess hækkar framfærsluviðmið lífeyrisþega sem búa einir úr 280.000 kr. á mánuði í 300.000 kr. eða um rúmlega 7%.