Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Alþjóðamál
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 801–850 af 899
    Raða eftir:
    19. mar. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Heimsmarkmiðin, Leit og björgun, Loftslagsmál, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra tók við tillögum að endurskoðaðri norðurslóðastefnu

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra tók í dag við tillögum nefndar þingmanna úr öllum flokkum sem hann hafði falið að endurskoða stefnu Íslands í málefnum norðurslóða. Á grundvelli tillagna nefndarinnar mun utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra leggja fram á næstunni tillögu til þingsályktunar um nýja norðurslóðastefnu.

    18. mar. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti, UN Women

    Þátttaka í ákvarðanatöku og á opinberum vettvangi meginþema CSW-fundar

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra áréttaði mikilvægi jafnar þátttöku kynjanna í stjórnmálum og atvinnulífi í hringborðsumræðum á fundi kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna sem nú stendur yfir.

    06. mar. 2021Utanríkisráðuneytið, Aðgerðir gegn spillingu og mútubrotum, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Ráðherra ávarpaði fund allsherjarþingsins gegn spillingu

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, flutti í dag ávarp á sérstökum fundi í allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu. Yfirlýst markmið fundarins er að skapa vettvang fyrir alþjóðasamfélagið til að ræða sameiginlegar áskoranir við að koma í veg fyrir og vinna gegn spillingu, og greina úrlausnir þeirra áskoranna.

    05. mar. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Covid-19, Loftslagsmál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Fyrsti norræni utanríkisráðherrafundur ársins

    Alþjóðamál, öryggis- og varnarmál og COVID-19 voru efst á baugi á fundi utanríkisráðherra Norðurlanda sem fram fór í dag. Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra segir samband ríkjanna standa sterkar eftir kórónuveirufaraldurinn.

    17. jan. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór lýsir yfir áhyggjum vegna handtöku Navalní

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra hefur lýst yfir áhyggjum af handtöku rússneska stjórnarandstæðingsins Alexei Navalní sem sneri aftur til Moskvu í dag eftir að hafa dvalið í Berlín frá því að honum var byrlað taugaeitur í ágústmánuði. Guðlaugur Þór birti yfirlýsingu sína á Twitter í kvöld.

    03. des. 2020Forsætisráðuneytið, Alþjóðamál, Covid-19, Utanríkismál

    Katrín ræddi við Morrison

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, átti símafund með Scott Morrison, forsætisráðherra Ástralíu, í gær.

    16. nóv. 2020Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Mannréttindi, Utanríkismál

    Fjölmiðlafrelsi og trúfrelsi í brennidepli á ráðherrafundum

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra ávarpaði tvo ráðherrafundi um mannréttindamiðuð málefni í dag, annars vegar fund á vegum ríkjabandalags um fjölmiðlafrelsi, hins vegar fund um trúfrelsi.

    11. nóv. 2020Auðlindir, Alþjóðamál, Sjávarútvegur, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Samkomulag við Breta um framtíðarsamstarf í sjávarútvegsmálum undirritað

    Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherrar Íslands og Bretlands, Kristján Þór Júlíusson og Victoria Prentis, undirrituðu í dag samkomulag um framtíðarsamstarf ríkjanna í sjávarútvegsmálum.

    29. sep. 2020Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Jafnrétti, Mannréttindi, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra ávarpaði 75. allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna

    Mikilvægi fjölþjóðasamvinnu var meginstefið í ræðu Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í dag. Sameinuðu þjóðirnar fagna 75 ára afmæli sínu á árinu en vegna heimsfaraldurs hafa hátíðarhöld og allsherjarþingið verið með öðru sniði en fyrri ár.

    25. sep. 2020Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Jafnrétti, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra áréttaði gildi fjölþjóðlegrar samvinnu

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, tók í dag þátt í fjarfundi bandalags ríkja til eflingar fjölþjóðakerfisins í tengslum við 75. allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna sem nú stendur yfir í New York.

    17. sep. 2020Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Skýrsla Björns kynnt á utanríkisráðherrafundi Norðurlanda

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra tók þátt í fundi norrænna utanríkisráðherra á Borgundarhólmi í dag þar sem Björn Bjarnason, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, kynnti skýrslu sína um norrænt samstarf á sviði utanríkis- og öryggismála. Guðlaugur Þór átti jafnframt tvíhliða fund með Jeppe Kofod, utanríkisráðherra Danmerkur, um ýmis málefni.

    15. sep. 2020Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Brexit, Utanríkisviðskipti, Sendiráð Íslands í London, Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Utanríkisráðherra fundar í Lundúnum vegna framtíðarviðræðna við Bretland

    Viðræður Íslands og Bretlands um framtíðarsamskipti ríkjanna voru í brennidepli á fundum Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra með breskum ráðherrum og þingmönnum í dag og í gær.

    09. sep. 2020Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norrænt samstarf, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrafundi NB8-ríkjanna í Tallinn lokið

    Ástandið í Hvíta-Rússlandi var í brennidepli á tveggja daga fundi utanríkisráðherra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna í Tallinn í Eistlandi sem lauk fyrr í dag. Í yfirlýsingu fundarins var tilræðið við rússneska stjórnarandstæðinginn Alexei Navalní fordæmt.

    04. sep. 2020Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór ræddi ástandið í Hvíta-Rússlandi á fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, flutti sameiginlegt ávarp Norðurlandanna á sérstökum fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um málefni Hvíta-Rússlands sem fram fór í dag. Lýsti Guðlaugur fyrir hönd norrænu utanríkisráðherranna miklum áhyggjum af stöðu mannréttinda í Hvíta-Rússlandi í kjölfar nýlegra forsetakosninga sem engan veginn gætu talist hafa verið frjálsar eða óháðar.

    02. sep. 2020Alþjóðamál, Norrænt samstarf, Nýsköpun, Rafræn viðskipti, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Norðurlöndin setja fimm og hálfan milljarð í sjálfbæra atvinnuþróun og nýsköpun

    Norrænu atvinnuvegaráðherrarnir hafa samþykkt áætlun sem er ætlað að koma hreyfingu á efnahagslífið í kjölfar Covid-19 og stuðla að sjálfbærum vexti í atvinnulífi á Norðurlöndum. Þau verkefni sem verða fjármögnuð eiga að styðja við sjálfbærar lausnir, hringrásarhagkerfi, stafræna þróun og nýsköpun í löndunum. Stuðningur við Nordic Smart Government er hluti af þessum áætlunum, en um er að ræða umfangsmikið samstarfsverkefni sem ætlað er að auðvelda rekstur fyrirtækja þvert á Norðurlöndin gegnum aukna samtengingu stafrænna kerfa.

    13. ágú. 2020Innviðaráðuneytið, Samgöngur og fjarskipti, Alþjóðamál, Flug og flugvellir, Dómsmálaráðuneytið

    Höfðaborgarsamningur um alþjóðleg tryggingarréttindi loftfara fullgiltur

    Höfðaborgarsamningurinn um alþjóðleg tryggingarréttindi í hreyfanlegum búnaði og bókun um búnað loftfara hafa verið fullgilt af Íslands hálfu.

    10. ágú. 2020Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    20 milljónir króna til matvælaðstoðar í Líbanon

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, hefur ákveðið að íslensk stjórnvöld veiti tuttugu milljónum króna til matvælaaðstoðar í Líbanon vegna hamfarasprenginganna í Beirút í nýliðinni viku. Framlagið kemur til viðbótar því fé sem stjórnvöld verja nú þegar til mannúðaðstoðar í landinu.

    06. ágú. 2020Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra sendir líbanska utanríkisráðherranum samúðarkveðju

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, hefur sent Charbel Wehbe, utanríkisráðherra Líbanons, samúðarkveðjur vegna sprenginganna í Beirút. Ríkisstjórn Íslands mun styðja neyðar- og mannúðarstarf þar með fjárframlagi til samstarfsstofnana Íslands á því sviði.

    23. jún. 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Alþjóðamál, Alþjóðasamningar, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ný aðgerðaáætlun í loftslagsmálum – Ísland uppfyllir skuldbindingar og gott betur

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra kynntu aðra útgáfu aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum í dag. Með aðgerðunum er áætlað að losun gróðurhúsalofttegunda á beinni ábyrgð Íslands muni hafa dregist saman um ríflega eina milljón tonna CO2-ígilda árið 2030 miðað við losun ársins 2005. Þetta þýðir að Ísland nær alþjóðlegum skuldbindingum sínum í loftslagsmálum um 29% samdrátt og gott betur, eða 35%. Til viðbótar eru aðgerðir sem eru í mótun taldar geta skilað 5-11%, eða samtals 40-46% samdrætti.

    05. jún. 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið eflt með nýju skipuriti

    Nýtt skipurit umhverfis- og auðlindaráðuneytisins hefur tekið gildi, Markmið breytinganna er að efla starfsemi ráðuneytisins til að takast á við viðamikið hlutverk þess á sviði alþjóðamála, einkum loftslagsmála.

    19. nóv. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Alþjóðasamningar, Evrópusamvinna, Utanríkismál, Sendiráð Íslands í Brussel, Sendiskrifstofa

    Innistæðutryggingar til umræðu á EES-ráðsfundi

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ítrekaði á fundi EES-ráðsins í dag að ekki kæmi til greina að Ísland tæki upp tilskipun um innistæðutrygginga nema að tryggt væri að þeim fylgdi ekki ríkisábyrgð. Á fundinum lagði ráðherra áherslu á hve vel EES-samningurinn hefði reynst báðum aðilum í þann aldarfjórðung sem liðinn er frá gildistöku hans.

    17. okt. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Sendiráð Íslands í Berlín, Sendiskrifstofa

    Utanríkisráðherrar Norðurlanda og Þýskalands fögnuðu 20 ára afmæli sendiráðanna í Berlín

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra setti í morgun afmælishátíð í tilefni af því að tuttugu ár eru liðin frá formlegri opnun norrænu sendiráðsbygginganna í Berlín. Á fundi utanríkisráðherra Norðurlanda og aðstoðarutanríkisráðherra Þýskalands bar hæst hernað Tyrklands í Sýrlandi og öryggis- og varnarsamstarf Evrópu og Bandaríkjanna.

    11. okt. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Norðurslóðir, Umhverfi og náttúruvernd

    Guðmundur Ingi ræðir náttúruvernd og loftslagsmál á Hringborði norðurslóða

    Loftslagsmál og norðurskautið eru í forgrunni tvíhliða funda sem Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur átt á ráðstefnunni Hringborði norðurslóða sem nú stendur yfir í Hörpu. Fjallað verður um Vatnajökulsþjóðgarð og friðlýst svæði á norðurslóðum á sérstakri málstofu á ráðstefnunni á morgun.

    09. okt. 2019Utanríkismál, Alþjóðamál, Ferðaþjónusta, Náttúruvernd, Norðurslóðir, Auðlindir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ísland getur haft góð áhrif á þróun Norðurslóða

    „Við deilum öll ábyrgðinni á Norðurslóðum. Saman skulum við tryggja að kynslóðir framtíðarinnar geti notið töfra Norðurslóða, líkt og við gerum í dag,“ sagði ráðherra.

    01. okt. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Alþjóðasamningar, Evrópusamvinna, Utanríkismál

    Skýrsla starfshóps um EES-samstarfið komin út

    Starfshópur skipaður af utanríkisráðherra hefur skilað skýrslu sinni um aðild Íslands að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Niðurstöður skýrslunnar voru kynntar á blaðamannafundi í utanríkisráðuneytinu í dag.

    28. sep. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Heimsmarkmiðin, Jafnrétti, Loftslagsmál, Mannréttindi, Fastanefnd Íslands hjá S.þ., Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Utanríkisráðherra ávarpaði allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra lagði áherslu á baráttuna gegn hlýnun jarðar, mannréttindi og endurbætur á alþjóðakerfinu í samræmi við grunngildi Sameinuðu þjóðanna í ræðu sem hann flutti á allsherjarþinginu í kvöld. Utanríkisráðherra ræddi einnig óöldina í Sýrlandi og Jemen og skoraði á þau ríki sem ýta undir ófriðinn að beita sér frekar fyrir friði.

    27. sep. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Heimsmarkmiðin, Mannréttindi, Fastanefnd Íslands hjá S.þ., Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Utanríkisráðherra sækir allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ávarpar í kvöld allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna sem nú stendur yfir í New York. Í dag átti utanríkisráðherra fjölmarga tvíhliða fundi auk þess sem hann undirritaði loftferðasamning Íslands og Líberíu.

    21. jún. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Þróunarsamvinna, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Íslendingar velviljaðir þátttöku í alþjóðasamstarfi

    Þorri Íslendinga er jákvæður í garð alþjóðastofnana og þátttöku Íslands í alþjóðlegu samstarfi. Þetta er niðurstaða könnunar sem Maskína gerði fyrir utanríkisráðuneytið um viðhorf Íslendinga til alþjóðasamstarfs. Íslendingar eru sérstaklega jákvæðir í garð norræns samstarfs.

    03. maí 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra tók á móti skýrslu um norrænt utanríkismálasamstarf

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra fékk í dag afhenta skýrslu norrænna alþjóðamálastofnana um framkvæmd tillagna Thorvalds Stoltenbergs um aukið samstarf Norðurlandanna í utanríkis- og öryggismálum. Skýrslan markar tíu ára afmæli Stoltenberg-tillagnanna svonefndu frá árinu 2009 um aukið samstarf Norðurlandanna á þessu sviði.

    02. maí 2019Forsætisráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Utanríkismál

    Forsætisráðherra fundar með Theresu May

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, átti tvíhliða fund með Theresu May, forsætisráðherra Bretlands, í Downingstræti 10 í morgun.

    01. maí 2019Forsætisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Forsætisráðherra fundar með Jeremy Corbyn og tekur þátt í umræðum um framtíðaráskoranir í atvinnumálum og um velsældarhagkerfi

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, átti tvíhliða fund með Jeremy Corbyn, formanni Verkamannaflokksins og leiðtoga stjórnarandstöðunnar, í breska þinginu í dag.

    30. apr. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Alþjóðasamningar, Brexit, Evrópusamvinna, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Skýrsla utanríkisráðherra um utanríkis- og alþjóðamál kynnt á Alþingi

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra flutti í dag Alþingi skýrslu sína um utanríkis- og alþjóðamál. Skýrslan gefur greinargott yfirlit yfir stöðu utanríkismála Íslands og helstu atburði á þeim vettvangi undanfarna tólf mánuði.

    01. apr. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Brexit, Mannréttindi, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór stýrði utanríkisráðherrafundi NB8 og Visegrad-ríkja

    Öryggis- og varnarmál, þróun mála í Evrópu og málefni Sameinuðu þjóðanna voru meðal umræðuefna á utanríkisráðherrafundi Norðurlandanna, Eystrasaltsríkja og Visegrad-ríkja, sem lauk í Palanga, Litháen, fyrr í dag.

    15. mar. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Ályktað um lausnir við áskorunum í umhverfismálum, sjálfbæra neyslu og plast í hafi á Umhverfisþingi Sameinuðu þjóðanna

    Umhverfisráðherrar heimsins ályktuðu m.a. um sjálfbæra neyslu og framleiðslu, úrgangsstjórnun og sjálfbæra nýtingu lands á Umhverfisþingi Sameinuðu þjóðanna í dag. Einnig voru fjölmargar ályktanir um tiltekin málefni samþykktar, þar á meðal ályktun um ferli til að ná á alþjóðavísu utan um plastmengun í hafi og örplast. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra hefur tekið þátt í fjölda leiðtogaumræðna, funda og annarra viðburða á þinginu.

    14. mar. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    „Ósjálfbær neysla okkar hefur alvarleg áhrif á umhverfi og loftslag“ – ráðherra ávarpaði Umhverfisþing SÞ

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, ávarpaði í dag Umhverfisþing Sameinuðu þjóðanna fyrir Íslands hönd. Neysla, sóun, náttúruvernd og barátta gegn plastmengun var meðal þess sem ráherra lagði áherslu á.

    11. mar. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Alþjóðamál, Umhverfi og náttúruvernd

    Umhverfisþing Sameinuðu þjóðanna sett í dag

    Umhverfisþing Sameinuðu þjóðanna hófst í Naíróbí í Kenía í dag. Á þinginu eru rædd ýmis brýn úrlausnarefni sem fyrir liggja í umhverfismálum á heimsvísu og í þetta sinn verða sjálfbær neysla og framleiðsla í brennidepli.

    26. feb. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Mannréttindi, Mannréttindi og jafnrétti

    Aukin framlög Íslands til bágstaddra í Jemen

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra tilkynnti um 30 milljóna króna viðbótarframlag til mannúðaraðstoðar í Jemen á alþjóðaráðstefnu sem nú stendur yfir í Genf. Heildarframlög íslenskra stjórnvalda til Jemen nema þá um 85 milljónum króna það sem af er ári. Guðlaugur átti einnig fund með Michelle Bachelet, mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna.

    06. feb. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Brexit, Norrænt samstarf, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra fundaði með Ann Linde

    Norrænt samstarf, útganga Bretlands úr Evrópusambandinu, öryggismál og alþjóðaviðskipti voru efst á baugi á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Ann Linde, utanríkisviðskiptaráðherra Svíþjóðar, í dag.

    18. jan. 2019Innviðaráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Flug og flugvellir, Embassy of Iceland in Tokyo, Samgöngur og fjarskipti, Alþjóðasamningar, Utanríkisráðuneytið, Sendiráð Íslands í Tókýó, Sendiskrifstofa, Heimasendiherrar

    Samkomulag við japönsk yfirvöld greiðir fyrir beinum flugsamgöngum

    Á fundi sendinefndar utanríkis- og samgönguráðuneytis við japönsk samgönguyfirvöld náðist samkomulag sem greiðir fyrir beinu áætlunar- og leiguflugi milli Íslands og Japans.

    11. des. 2018Forsætisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Ísland aðili að alþjóðasamþykkt um farendur

    Ísland tók þátt í afgreiðslu nýrrar samþykktar Sameinuðu þjóðanna um örugga, skipulagða og reglubundna fólksflutninga (e. Global Compact for Safe, Orderly and Regular Migration) á sérstakri ríkjaráðstefnu í Marrakesh í Marokkó.

    07. des. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Ísland tekur þátt í alþjóðasamþykkt um farendur

    Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í dag að Ísland tæki þátt í afgreiðslu nýrrar samþykktar Sameinuðu þjóðanna um örugga, skipulagða og reglubundna fólksflutninga. Gerðir verða ákveðnir fyrirvarar við samþykktina þar sem túlkun Íslands verður áréttuð, í samræmi við það sem helstu grannríki gera.

    30. nóv. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Utanríkismál, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Utanríkisráðuneytið

    Stefnt að sameiginlegri framkvæmd á Parísarmarkmiðum

    Drög að samkomulagi liggja fyrir milli Íslands og Noregs annars vegar og Evrópusambandsins hins vegar um sameiginlega framkvæmd á markmiðum Parísarsamningsins í loftslagsmálum til 2030.

    31. okt. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Utanríkismál, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Samgöngur og fjarskipti

    Umhverfis- og auðlindaráðherra sótti fund evrópskra ráðherra um sjálfbærar samgöngur

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, sótti óformlegan fund umhverfis- og samgönguráðherra Evrópuríkja í Graz í Austurríki, 29.-30. október.

    29. okt. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Ráðstefna Atlantshafsbandalagsins um afvopnun og takmörkun á útbreiðslu gereyðingarvopna hafin

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra lagði áherslu á afvopnun og frið í ræðu sinni á ráðstefnu Atlantshafsbandalagsins um takmörkun á útbreiðslu gereyðingarvopna og afvopnun sem hófst í Reykjavík í morgun. Varaframkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins flutti einnig ávarp við upphaf ráðstefnunnar.

    26. okt. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál, Sendiráð Íslands í London, Sendiskrifstofa

    Utanríkisráðherra fundaði með breskum ráðamönnum um Brexit

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra átti í vikunni fundi með breskum ráðamönnum um framgang samninga vegna útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu.

    16. okt. 2018Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Alþjóðamál

    Minningarathöfn markar upphaf Trident Juncture 2018 á Íslandi

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og James E. Foggo aðmíráll leiddu í morgun minningarathöfn um þau sem létu lífið vegna átaka á Atlantshafi í síðari heimsstyrjöld. Athöfnin markar upphaf varnaræfingarinnar Trident Juncture 2018 á Íslandi.

    02. okt. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Mannréttindi, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra fundaði með aðalframkvæmdastjóra UNESCO

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ræddi framboð Íslands til framkvæmdastjórnar UNESCO og lýsti áhuga á enn nánara samstarfi á fundi með aðalframkvæmdastjóra UNESCO í París í morgun. Ráðherra fundaði jafnframt með stjórnendum OECD og tók svo þátt í rakarastofuráðstefnu um jafnréttismál í höfuðstöðvum stofnunarinnar.

    01. okt. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Norðurslóðir, Utanríkismál

    EES-mál í brennidepli á fundi utanríkisráðherra Íslands og Frakklands

    Öryggismál á norðurslóðum, EES-mál, útganga Breta úr Evrópusambandinu og tvíhliða samskipti voru efst á baugi á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Jean-Yves Le Drian, utanríkisráðherra Frakklands í París í morgun.

    25. sep. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Mannréttindi, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna

    Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna var sett í dag í 73. sinn. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra var viðstaddur setningu þingsins.

    15. ágú. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Landbúnaður, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Norski utanríkisráðherrann í vinnuheimsókn

    Utanríkisráðherra Noregs heimsótti í dag bændur í Borgarfirði sem ætla að selja hey til norskra bænda. Þau Guðlaugur Þór Þórðarsson utanríkisráðherra ræddu ýmis málefni í vinnuheimsókn hennar hingað til lands.

    • First
    • Prev
    • 14
    • 15
    • 16
    • 17
    • 18
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband