24. jún. 2015Rit og skýrslur, Dómsmálaráðuneytið
Stefna í almannavarna-og öryggismálum samþykkt
<p>Stefna í almannavarna- og öryggismálum ríkisins 2015–2017 var samþykkt í morgun á fundi almannavarna- og öryggismálaráðs og í framhaldinu skrifaði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra og formaður ráðsins, undir stefnuskjalið. Stefnan miðar að því að tryggja heildarsýn yfir áhættuþætti og inniheldur hún megináherslur fyrir málefnasvið almannavarna og 42 aðgerðir sem þykja nauðsynlegar og varða öryggi samfélagsins í víðu samhengi.</p>