23. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál
Ríkissjóður kaupir eigin bréf fyrir 24 milljarða króna
Ríkissjóður keypti í vikunni eigin skuldabréf af Seðlabanka Íslands samtals að fjárhæð 24 ma.kr. Um er að ræða óverðtryggð ríkisbréf í flokkunum RIKB 20, RIKB 22, RIKB 25 og RIKB 31 fyrir samtals um 22,5 ma.kr. að nafnvirði og í flokknum RIKS 21 fyrir um 0,3 ma.kr. að nafnvirði. Uppgjör viðskipta fer fram í dag.