Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Atvinnuvegir
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1051–1100 af 1950
    Raða eftir:
    12. sep. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Evrópsku kvikmyndaverðlaunin haldin í Hörpu um helgina: Stærsti viðburður sinnar tegundar á Íslandi

    Evrópsku kvikmyndaverðlaunin verða haldin í Hörpu á laugardag. Þetta er einn stærsti viðburður af þessari tegund sem haldinn hefur verið á Íslandi og fyrsti svokallaði A-lista viðburðurinn sem haldinn hefur verið hér á landi. Þau Ilmur Kristjánsdóttir og Hugleikur Dagsson verða kynnar hátíðarinnar. ​

    12. sep. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Talað fyrir íslenskri tónlist í Los Angeles

    Íslensk tónlist og tónlistariðnaðurinn á Íslandi voru umræðuefni funda Lilju D. Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra með einu stærsta tónlistarfyrirtæki veraldar, Universal Music Group (UMG), ásamt því að heimsækja umboðsskrifstofuna Milk & Honey Management, sem fer meðal annars með umboð fyrir listamenn Dua Lipa og Kanye West & umboðsskrifstofuna John Silva Management sem heldur utan um listamenn eins Foo Fighters, Nirvana og Norah Jones.

    11. sep. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Um 9 milljarða kvikmyndaverkefni til Íslands

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra leiddi sendinefnd á vegum Íslandsstofu og Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar (ÚTÓN) með áherslu á kvikmyndir og tónlist. Markmið ferðarinnar er að kynna Ísland sem áfangastað sköpunar, kynna íslenska menningu og hvetja til erlendrar fjárfestingar í skapandi greinum á Íslandi.

    08. sep. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Safnstjóri Listasafns Íslands: Umsóknarfrestur til 20. september 2022.

    Embætti safnstjóra Listasafns Íslands er laust til umsóknar. Safnstjóri Listasafns Íslands stjórnar starfsemi og rekstri safnsins og mótar listræna stefnu þess.

    07. sep. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Kynnti Ísland sem vænlegan tökustað fyrir Netflix

    Umgjörð kvikmyndagerðar á Íslandi og hækkaðar endurgreiðslur vegna kostnaðar í kvikmyndagerð voru ræddar á fundi Lilju D. Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra með fulltrúum Netflix í Los Angeles ásamt því að kynna sér starfsemi fyrirtækisins.

    06. sep. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Ákvörðun verðlagsnefndar um hækkun heildsöluverðs og lágmarksverðs til framleiðenda

    Verðlagsnefnd búvara hefur tekið ákvörðun um hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda og heildsöluverðs mjólkur og mjólkurafurða sem nefndin verðleggur.

    05. sep. 2022Efnahagsmál og opinber fjármál, Neytendamál, Viðskipti, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Lilja fundaði með Edmund Phelps – Nóbelsverðlaunahafa í hagfræði

    „Það var einkar ánægjulegt að hitta loksins Edmund Phelps og afar áhugavert að heyra hans skoðanir á málefnum líðandi stundar. Ljóst er að alþjóðahagkerfið er að fást við afar umfangsmiklar áskoranir í kjölfar heimsfaraldursins og svo innrásar Rússa í Úkraínu,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.

    03. sep. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Menningarmál, Menntamál, Viðskipti, Ríkisstjórn, Atvinnuvegir

    Hálf öld frá einvígi aldarinnar: Haldin verður samkeppni um minnisvarða

    Um þessar mundir eru 50 ár liðin frá því að skákeinvígi aldarinnar fór fram í Laugardalshöll milli þeirra Bandaríkjamannsins Bobby Fischers og Sóvíetmannsins Boris Spasskís. Þessara tímamóta var minnst í sal Skáksögufélagsins á Hótel Natura en einvígið er að mörgum talið einn hápunkta kalda stríðsins en skákmennirnir tveir tefldu röð skáka í Reykjavík í júlí og ágústmánuði árið 1972.

    02. sep. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Matvælaráðherra veitir undanþágu fyrir innflutningi áburðar

    Að fenginni umsögn Matvælastofnunar hefur Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra veitt undanþágu frá reglugerð um hámarks innihald kadmíum í fosfór í innfluttum áburði.

    01. sep. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Niðurstöður tilboðsmarkaðar fyrir greiðslumark mjólkur

    Markaður með greiðslumark í mjólk var haldinn þann 1.september. Matvælaráðuneytinu bárust 99 gild tilboð um kaup og sölutilboð voru 23.

    30. ágú. 2022Rit og skýrslur, Atvinnuvegir, Auðlindir, Landbúnaður, Landgræðsla og skógrækt, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Land og líf - Landgræðsluáætlun og landsáætlun í skógrækt

    Aðgerðaáætlun í landgræðslu og skógrækt 2022-2026

    29. ágú. 2022Auðlindir, Umhverfi og náttúruvernd, Norðurslóðir, Viðskipti, Atvinnuvegir, Menningarmál, Atvinnuvegaráðuneytið

    Lilja fundaði með Douglas Jones

    Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra og Douglas Jones undirráðherra Bandaríkjanna í málefnum Evrópu og Evrasíu, funduðu um málefni norðurslóða og samstarf landanna ásamt Geir Oddssyni ræðismanni Íslands í Grænlandi. Fundurinn var hluti af ferð ráðherra á Grænlandsþing Hringborðs norðurslóða sem fór fram um helgina í Nuuk á Grænlandi.

    26. ágú. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auglýsingar tollkvóta, Landbúnaður, Atvinnuvegir, Niðurstöður útboða

    Niðurstaða úthlutunar á ESB tollkvótum á landbúnaðarafurðum fyrir tímabilið 1. september til 31. desember 2022

    Mánudaginn 15. ágúst sl. rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum frá Evrópusambandinu samkvæmt reglugerð nr. 301/2022 fyrir tímabilið 1. september til 31. desember 2022. Útboðsverð tollkvóta ræðst af lægsta samþykkta tilboði í hverjum vörulið, þ.e. jafnvægisverði. Tilboð eru samþykkt frá hæsta boði til þess lægsta innan þess magns tollkvóta sem í boði er. Samtals bárust 25 gild tilboð í tollkvótann.

    26. ágú. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Matvælaráðherra endurnýjar samning um loftslagsvænan landbúnað

    Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, undirritaði í dag samning um verkefnið Loftslagsvænn landbúnaður. Meginmarkmið verkefnisins er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá landbúnaði og landnýtingu ásamt því að auka kolefnisbindingu í jarðvegi og gróðri. Verkefnið byggir á samstarfi Landgræðslunnar, Matvælaráðuneytis, Ráðgjafarmiðstöð Landbúnaðarins, Skógræktarinnar og Umhverfis-, orku og loftslagsráðuneytisins.

    26. ágú. 2022Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Verslun, Viðskipti, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Undirrituðu samstarf um faggildingu

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, og Ulf Hammarström, forstjóri sænsku faggildingarstofunnar SWEDAC, undirrituðu í dag endurnýjað og uppfært samkomulag um samstarf á vettvangi faggildingar. Samkomulagið styður við sameiginlega sýn Norðurlandanna á vegum norrænum ráðherranefndarinnar um að gera Norðurlöndin að sjálfbærasta og samþættasta svæði heims árið 2030. Faggilding gegnir í því sambandi lykilatriði við að efla samkeppnishæfni og efla traust og fagþekkingu innan norrænu hagkerfanna.

    26. ágú. 2022Auðlindir, Landgræðsla og skógrækt, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Matvælaráðherra gefur út fyrstu sameinuðu stefnuna í landgræðslu og skógrækt

    Matvælaráðherra hefur gefið út fyrstu sameinuðu stefnuna í landgræðslu og skógrækt auk aðgerðaáætlunar. Stefnan er unnin samkvæmt nýlegum lögum um landgræðslu og um skóga og skógrækt. Stefna stjórnvalda í landgræðslu og skógrækt felur í sér framtíðarsýn, gildi og áherslur í málaflokknum og endurspeglast að verulegu leyti í þeim lögum sem gilda um málaflokkinn. Stefnan ræðst einnig af þróun mála á alþjóðlegum vettvangi og skuldbindingum Íslands í samstarfi við aðrar þjóðir, svo sem á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og annarra alþjóðlegra stofnana.

    25. ágú. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Harpa Þórsdóttir er nýr þjóðminjavörður

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra hefur skipað Hörpu Þórsdóttur til að gegna embætti þjóðminjavarðar.

    24. ágú. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Neytendamál, Atvinnuvegir

    Þorgeir Örlygsson fv. forseti Hæstaréttar leiðir starfshóp sem skoðar breytingu á stofnanaumgjörð samkeppnis- og neytendamála á Íslandi

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar og viðskiptaráðherra, hefur skipað starfshóp sem falið er að skoða leiðir til að skapa eftirliti samkeppnis- og neytendamála nýja stjórnsýslulega stöðu innan stofnanakerfis ríkisins. Í sáttmála um ríkisstjórnarsamstarf Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna er kveðið á um að stefnt verði að sameiningu Samkeppniseftirlitsins og Neytendastofu. Þá er einnig stefnt að því að kannaðir verði eftir atvikum kostir á sameiningu við aðrar stofnanir þar með talið fyrirtækjaskrá, ársreikningaskrá og hlutafélagaskrá sem aukið geti samlegðaráhrif og skilvirkni í opinberu eftirliti.

    24. ágú. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Skipulagsmál, Byggðamál, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir

    Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir umsóknum

    Opnað hefur verið verið fyrir umsóknir um styrki úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða vegna framkvæmda á árinu 2023. Umsóknarfrestur er til kl. 13 miðvikudaginn 5. október.

    19. ágú. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Matvælasjóður, Atvinnuvegir

    Matvælaráðherra úthlutar 584,6 milljónum úr Matvælasjóði

    Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur úthlutað 584,6 milljónum króna úr Matvælasjóði. Alls hljóta 58 verkefni styrk en 211 umsóknir bárust til sjóðsins.

    19. ágú. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Hönnun, Atvinnuvegir, Iðnaður, Neytendamál

    Faggildingar á Íslandi - Opinn kynningarfundur

    Menningar- og viðskiptaráðuneytið og faggildingarsvið Hugverkastofunnar í samvinnu við Samtök verslunar- og þjónustu og Samtök iðnaðarins bjóða til opins kynningarfundar um málefni faggildingar á Íslandi. Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 25. ágúst kl. 10-12 á 1. hæð í Húsi atvinnulífsins í Borgartúni 35.

    19. ágú. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Siglingar, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Matvælaráðherra kynnir áform um að greiða fyrir orkuskiptum í sjávarútvegi

    Að ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra hafa verið kynnt í samráðsgátt tvö áform um lagasetningu sem ætlað er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda fiskiveiðiflotans og hraða orkuskiptum í samræmi við markmið stjórnvalda.

    17. ágú. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Fiskeldi, Atvinnuvegir

    Matvælaráðherra leggur grunn að metnaðarfullri stefnumótun í lagareldi

    Samkvæmt ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra er hafin vinna við gerð skýrslu á stöðu lagareldis á Íslandi. Lagareldi er yfirheiti yfir sjókvía-, land-, þörunga- og úthafseldi.

    17. ágú. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Fyrsta íslenska tónlistarstefnan og frumvarp til heildarlaga um tónlist kynnt í Samráðsgátt

    „Þetta eru mikil tímamót, en með stefnunni og lögum um tónlist vinnum við að því að efla tónlist á landinu öllu og mörkum í fyrsta sinn heildarramma fyrir málefni tónlistar sem lengi hefur vantað. Með þessu viljum við búa tónlistinni hagstæð skilyrði til að vaxa og dafna um ókomna tíð,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.

    15. ágú. 2022Neytendamál, Rafræn viðskipti, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Frumvarp um rafrænar skuldaviðurkenningar í Samráðsgátt

    Með breytingum sem lagðar eru til í frumvarpsdrögum um rafrænar skuldaviðurkenningar verður hægt að gefa út, undirrita og þinglýsa lánaskjölum vegna fasteignakaupa og bifreiðakaupa alfarið á rafrænu formi. Menningar- og viðskiptaráðuneytið hefur lagt fram frumvarp þess efnis í Samráðsgátt stjórnvalda en þjóðhagslegur ávinningur af rafrænum þinglýsingum er að lágmarki metinn 1,2 – 1,7 milljarðar króna.

    11. ágú. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Atvinnuvegir, Menningarmál, Menntamál, Norrænt samstarf, Forsætisráðuneytið

    Kynntu sér Oodi bókasafnið í Helsinki

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra heimsóttu Oodi, eða Óður nýlegt almenningsbókasafn í Helsinki. Heimsóknin var hluti af ferð ráðherra á 74. þing Norðurlandaráðs sem fram fór í borginni.

    26. júl. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Auglýsingar tollkvóta, Atvinnuvegir

    Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins

    Auglýst er eftir umsóknum um tollkvóta fyrir innflutning á landbúnaðarvörum upprunnum í ríkjum Evrópusambandsins og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabilið 1. september – 31. desember 2022.

    15. júl. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Greiðslur til bænda í undirbúningi

    Unnið er að því í matvælaráðuneytinu að undirbúa greiðslur til bænda samkvæmt tillögum spretthóps sem matvælaráðherra skipaði í júní. Tillögurnar voru að styðja landbúnað sérstaklega með 2,5 milljarða króna framlagi.

    12. júl. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Auðlindir, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Orka, Atvinnuvegir

    Græni dregillinn fundar í fyrsta skipti - stýrihópur um eflingu umhverfis- og loftslagsvænar nýfjárfestingar

    Stýrihópur um eflingu umhverfis- og loftslagsvænar nýfjárfestingar eða Græni dregillinn, kom saman í fyrsta skipti í Grósku á mánudag. Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra skipaði stýrihópinn í síðasta mánuði.

    11. júl. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Atvinnuvegir

    21 verkefni hlýtur styrk úr Lóu – nýsköpunarstyrkjum fyrir landsbyggðina

    Hundrað umsóknir um Lóu nýsköpunarstyrk bárust í ár. Áhugi á þörungarækt var áberandi í umsóknum en verkefnin eru afar fjölbreytt.

    08. júl. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Líf og heilsa, Byggðamál, Ferðaþjónusta, Leit og björgun, Löggæsla, Atvinnuvegir

    Skýrsla verkefnastjórnar: Öryggi ferðamanna sameiginlegt viðfangsefni allra

    Verkefnastjórnin leggur til nokkrar aðgerðir þar á meðal að hafin verði vinna við að skilgreina tilgreind áhættusvæði og gert að skyldu að áhættumeta umrædd svæði með reglubundnum hætti.

    07. júl. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Matvælaráðherra eykur aflaheimildir til strandveiða um 1.074 tonn

    Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur undirritað breytingu á reglugerð um veiðar í atvinnuskyni. Við breytinguna aukast aflaheimildir til strandveiða um 874 tonn af þorski sem fengust í skiptum fyrir heimildir á makríl á skiptimarkaði, 50 ónýtt tonn sem voru færð frá frístundaveiðum og 150 ónýtt tonn vegna línuívilnunar. Samtals er því 1.074 tonnum bætt við strandveiðipottinn.

    07. júl. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Tilboðsmarkaður 1. september 2022 með greiðslumark í mjólk

    Markaður fyrir greiðslumark mjólkur verður haldinn þann 1. september næstkomandi.

    07. júl. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Nýliðunarstuðningur í landbúnaði 2022

    Opnað hefur verið fyrir umsóknir um nýliðunarstuðning í landbúnaði. Markmið stuðningsins er að aðstoða nýliða við að hefja búskap og auðvelda ættliðaskipti í landbúnaði.

    30. jún. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Auglýst eftir umsóknum um jarðræktarstyrki í garðyrkju.

    Opnað hefur verið fyrir rafrænar umsóknir um jarðræktarstyrki í garðyrkju vegna útiræktunar á grænmeti, kartöflum og garðávöxtum til manneldis á Afurð.is. Gert er ráð fyrir sérstakri álagsgreiðslu á jarðræktarstyrki í garðyrkju vegna alvarlegrar stöðu í matvælaframleiðslu á Íslandi, sem reiknuð verður á grunni hefðbundinna umsókna.

    29. jún. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Atvinnuvegir

    Nýr sjóður Norðurlandanna tileinkaður menningarstarfi á Norðurslóðum

    Lilja Alfreðsdóttir menningar og viðskiptaráðherra situr nú ráðstefnu um list á norðurslóðum (e. Arctic Arts Summit) sem fer fram í Whitehorse í Kanada.

    29. jún. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Landbúnaðarháskólinn vinnur tillögur um kornrækt fyrir matvælaráðherra

    Landbúnaðarháskóla Íslands hefur verið falið að vinna drög að aðgerðaáætlun til eflingar kornræktar. Áætlunin er unnin að beiðni Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra í kjölfar funda með sérfræðingum á sviði kornræktar við Landbúnaðarháskólann. Mikilvægi innlendrar kornræktar hefur aukist verulega í takti við aukið vægi fæðuöryggis síðustu misseri. Einnig kemur fram í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur að unnin verði aðgerðaáætlun um eflingu kornræktar á kjörtímabilinu.

    28. jún. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Ráðherra heimsótti kvikmyndaskóla í Vancouver

    Kvikmyndaskólinn í Vancouver er framsækinn kvikmyndaskóli sem er leiðandi á heimsvísu í kvikmynda og sjónvarpsgerð. Skólinn starfar náið með atvinnulífinu í British Columbia en nemendur vinna með hinum ýmsu fyrirtækjum sem tengjast kvikmyndaiðnaði í skólaverkefnum sínum. Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra heimsótti Kvikmyndaskóla Vancouver á ferð sinni í Norður-Ameríku.

    28. jún. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir, Iðnaður, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Afnám löggildingar valdra iðngreina í samráðsgátt – hattasaumsiðn aldrei náð flugi

    Breytingar á reglugerð nr. 940/1999 um löggiltar iðngreinar hafa verið birtar í Samráðsgátt. Tillögurnar eru afrakstur vinnu sem ráðist var í í kjölfar úrbótatillaga sem settar voru fram í samkeppnismati Efnahags- og framkvæmdanefndarinnar (OECD) síðla árs 2020.

    27. jún. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Alþjóðamál, Aðalræðisskrifstofa Íslands í Winnipeg, Sendiráð Íslands í Ottawa, Atvinnuvegir

    Lilja heiðursgestur á skandínavísku sólstöðuhátíðinni í Kanada

    „Ég er heilluð af samfélaginu hér og það er einstakt að upplifa hversu fólk er meðvitað um uppruna sinn og er stolt af honum. Hér kemur fólk saman til að fagna norrænni arfleið sinni og halda menningu okkar og sögu á lofti,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, en hún var heiðursgestur á skandínavísku sólstöðuhátíðinni og ávarpaði hátíðina. Ríflega 1100 gestir voru viðstaddir hátíðina sem allir hafa norræna tengingu á einn eða annan hátt en talið er að um 1 milljón Kanadabúa séu af Skandinavískum uppruna.

    27. jún. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Opnað fyrir rafrænar umsóknir um jarðræktarstyrki og landgreiðslur

    Opnað hefur verið fyrir rafrænar umsóknir í Afurð (www.afurd.is) fyrir jarðræktarstyrki og landgreiðslur vegna framkvæmda á yfirstandandi ári. Umsóknum skal skilað eigi síðar en mánudaginn 3. október nk.

    24. jún. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Norrænir ráðherrar auka samstarf til að tryggja fæðuöryggi

    Fundur matvælaráðherra í norrænu ráðherranefndinni héldu sinn árlega fund í Tromsö í Norður-Noregi 22. júní. Ráðherrarnir 10 lýstu yfir miklum vilja til að efla samstarf milli Norðurlandanna til að bregðast við áhrifum Úkraínustríðsins á fæðuöryggi landanna.

    24. jún. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Atvinnuvegir

    Lilja skipar vinnuhóp sem skoðar gjaldtöku og arðsemi viðskiptabankanna

    Í vinnuhópnum munu eiga sæti fulltrúar tilnefndir af Hagfræðistofnun HÍ, Neytendasamtökunum, ASÍ, Samtökum fjármálafyrirtækja og fjármála- og efnahagsráðherra.

    24. jún. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir

    Fæðuöryggi og matvælaöryggi eru ekki það sama

    Síðustu misseri hafa hugtökin „fæðuöryggi“ og „matvælaöryggi“ verið mikið notuð í umræðunni enda hafa bæði sterkari skírskotun til stjórnvalda og almennings vegna breyttrar heimsmyndar.

    23. jún. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Reglugerð um blóðtöku úr fylfullum hryssum kynnt á Samráðsgátt

    Reglugerðin er unnin í framhaldi af skýrslu sem starfshópur skilaði til Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra í lok maí. Hópurinn var skipaður í lok árs 2021 til að skoða starfsemi, regluverk, eftirlit og löggjöf vegna blóðtöku úr fylfullum hryssum.

    16. jún. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auglýsingar tollkvóta, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Niðurstöður um úthlutun á WTO tollkvóta á landbúnaðarafurðum fyrir tímabilið 1. júlí 2022 til 30. júní 2023

    Föstudaginn 3. júní 2022 rann út umsóknarfrestur um tollkvóta vegna innflutnings á nauta-, svína-, ​kinda-, geita- og alifuglakjöti, unnum kjötvörum, smjöri og ostum og eggjum á grundvelli reglugerðar nr. 562/2022, og breytingareglugerð nr. 588/2022, fyrir tímabilið 1. júlí 2022 til 30. júní 2023. ​

    16. jún. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Hærri endurgreiðslur vegna kvikmyndaframleiðslu samþykktar á Alþingi

    Alþingi hefur samþykkt frumvarp Lilju Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra um að hækka endurgreiðslur vegna kvikmyndaframleiðslu á Íslandi úr 25% í 35%. Frumvarpið öðlast strax gildi en málið er hluti af stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og liður í kvikmyndastefnu fyrir Ísland til ársins 2030 sem menningarmálaráðherra kynnti árið 2020.

    15. jún. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir

    Frumvarp ferðamálaráðherra samþykkt: Lánstími ferðaábyrgðasjóðs verður tíu ár

    Lánstími lána ferðaábyrgðasjóðs verður tíu ár í stað sex, en ný lög um sjóðinn voru samþykkt á Alþingi í dag.

    15. jún. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Atvinnuvegir, Menningarmál

    Til hamingju sviðslistir!

    „Sviðslistir eru nú komnar með sína eigin miðstöð líkt og aðrar listgreinar - Til hamingju,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra en hún ávarpaði formlega opnun Sviðslistarmiðstöðvar á þriðjudag.

    14. jún. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Auðlindin okkar

    „Auðlindin okkar“ tekin til starfa

    Hafin er vinna fjögurra starfshópa og samráðsnefndar sem matvælaráðherra skipaði til að greina áskoranir og tækifæri í sjávarútvegi og tengdum greinum. Hópunum er jafnframt gert að meta þjóðhagslegan ávinning fiskveiðistjórnunarkerfisins.

    • First
    • Prev
    • 20
    • 21
    • 22
    • 23
    • 24
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband