Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1051–1100 af 3887
    Raða eftir:
    14. feb. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1127/2023. Úrskurður frá 30. janúar 2023

    Blaðamaður kærði synjun Barna- og fjölskyldustofu á beiðni hans um gögn sex meðferðarheimila. Synjunin byggði á því að afgreiðsla beiðninnar tæki svo mikinn tíma og krefðist svo mikillar vinnu að ekki væri af þeim sökum fært að verða við henni, sbr. 1. tölul. 4. mgr. 15. gr. upplýsingalaga, enda þyrfti að yfirfara gögnin og afmá viðkvæmar persónugreinanlegar upplýsingar, sbr. 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að í ljósi umfangs beiðninnar og viðkvæms eðlis gagnanna ætti undantekning 1. tölul. 4. mgr. 15. gr. upplýsingalaga við í málinu og staðfesti ákvörðun Barna- og fjölskyldustofu.

    14. feb. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1126/2023. Úrskurður frá 30. janúar 2023

    Kærð var ákvörðun ríkislögreglustjóra um að synja kæranda um aðgang að gögnum. Meðan málið var til meðferðar hjá úrskurðarnefnd um upplýsingamál lést kærandi. Nefndin taldi að réttur kæranda til aðgangs að umbeðnum gögnum teldist varða persónubundin réttindi hans með þeim hætti að dánarbú hans eða erfingjar gætu ekki átt lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins á sama grundvelli og kærandi. Af þeim sökum var óhjákvæmilegt að vísa málinu frá úrskurðarnefndinni.

    14. feb. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1125/2023. Úrskurður frá 30. janúar 2023

    Kærð var synjun Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf. á beiðni um aðgang að niðurstöðu úttektar mannauðsráðgjafa. Synjun félagsins var byggð á því að um vinnugagn væri að ræða í skilningi 8. gr. upplýsingalaga, sbr. 5. tölul. 6. gr. laganna, auk þess sem umbeðin gögn vörðuðu málefni starfsmanna, sem undanþegin væru upplýsingarétti almennings á grundvelli 7. gr. laganna. Úrskurðarnefndin taldi úttektina ekki uppfylla skilyrði upplýsingalaga fyrir því að teljast vinnugagn, þar sem hún var unnin af utanaðkomandi fyrirtæki. Þá taldi nefndin að takmörkunarákvæði 7. gr. upplýsingalaga gæti ekki átt við um skjalið í heild. Var ákvörðunin því felld úr gildi og lagt fyrir félagið að taka beiðnina til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.

    14. feb. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1124/2023. Úrskurður frá 30. janúar 2023

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að tölfræðiupplýsingum hjá utanríkisráðuneyti í tengslum við breytingar á reglugerð um vegabréf. Þar sem fyrir lá að þær upplýsingar sem óskað var eftir höfðu ekki verið teknar saman tók úrskurðarnefndin afstöðu til þeirra fyrirliggjandi gagna sem hefðu að geyma umbeðnar upplýsingar. Úrskurðarnefndin taldi ótvírætt að gögnin féllu undir ákvæði 2. tölul. 10. gr. upplýsingalaga og staðfesti synjun utanríkisráðuneytisins.

    14. feb. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1123/2023. Úrskurður frá 30. janúar 2023

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að tölfræðiupplýsingum hjá utanríkisráðuneyti í tengslum við breytingar á reglugerð um vegabréf. Þar sem fyrir lá að þær upplýsingar sem óskað var eftir höfðu ekki verið teknar saman tók úrskurðarnefndin afstöðu til þeirra fyrirliggjandi gagna sem hefðu að geyma umbeðnar upplýsingar. Úrskurðarnefndin taldi ótvírætt að gögnin féllu undir ákvæði 2. tölul. 10. gr. upplýsingalaga og staðfesti synjun utanríkisráðuneytisins.

    13. feb. 2023Forsætisráðuneytið

    Ásgerður Pétursdóttir skipuð í peningastefnunefnd

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur skipað Ásgerði Pétursdóttur, lektor í hagfræði við Háskólann í Bath á Englandi, í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands frá 21. febrúar nk. til næstu fimm ára. Ásgerður tekur sæti Gylfa Zoëga sem setið hefur í peningastefnunefnd frá árinu 2009 en hann hefur setið hámarksskipunartíma í nefndinni.

    10. feb. 2023Atvinnuvegaráðuneytið, Neytendamál, Forsætisráðuneytið

    Neytendur munu geta fylgst með daglegu matvöruverði á einum stað

    Samningur um sérstaka Matvörugátt þar sem neytendur geta fylgst með verði á helstu neysluvörum stærstu matvöruverslana landsins var undirritaður í dag í Ráðherrabústaðnum. Gáttin er hluti af aðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna kjarasamninga sem gerðir voru á almennum vinnumarkaði í desember þar sem kveðið er á um að veittur verði stuðningur til að auka aðhald á neytendamarkaði með því að bæta aðgengi almennings að upplýsingum um þróun verðlags og skapa þannig hvata fyrir fyrirtæki til að halda aftur af verðhækkunum.

    03. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Evrópuráðið, Forsætisráðuneytið

    Forseti Kósovó í heimsókn á Íslandi

    Formennska Íslands í Evrópuráðinu, tvíhliðasamskipti og staða friðarviðræðna milli Serbíu og Kósovó voru efst á baugi á fundum Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra og Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra með Vjosa Osmani, forseta Kósovó, sem fram fóru hér á landi í gær.

    02. feb. 2023Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Um 90% aðgerða í framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum lokið eða komnar vel á veg

    Tæplega 90% aðgerða í framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum fyrir árin 2020-2023 er annað hvort lokið eða þær komnar vel á veg. Vinna við aðrar aðgerðir er í öllum tilfellum hafin.

    31. jan. 2023Forsætisráðuneytið

    Skýrsla úttektarnefndar um árangur Seðlabanka Íslands

    Nefnd þriggja óháðra sérfræðinga hefur skilað forsætisráðherra skýrslu sinni um hvernig Seðlabanka Íslands hefur tekist að uppfylla markmið um stöðugt verðlag, fjármálastöðugleika og framkvæmd fjármálaeftirlits.

    27. jan. 2023Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Ávarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í Evrópuráðsþinginu 26. janúar 2023

    27 janúar 2023 / Forsætisráðuneytið Ávarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í Evrópuráðsþinginu 26. janúar 2023 Thank you, Mr. President, Dear/Madam Secretary General, Secretary General of the Assembly, Distinguished Parliamentarians, Distinguished Ambassadors C'est un honneur de m'adresser à vous aujourd'hui au nom de la Présidence islandaise du Conseil de l'Europe et à l'approche du quatrième Sommet des chefs d'État et de Gouvernement qui se tiendra à Reykjavik en mai

    27. jan. 2023Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Ávarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í Evrópuráðsþinginu 26. janúar 2023

    27 janúar 2023 / Forsætisráðuneytið Ávarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í Evrópuráðsþinginu 26. janúar 2023 Thank you, Mr. President, Dear/Madam Secretary General, Secretary General of the Assembly, Distinguished Parliamentarians, Distinguished Ambassadors C'est un honneur de m'adresser à vous aujourd'hui au nom de la Présidence islandaise du Conseil de l'Europe et à l'approche du quatrième Sommet des chefs d'État et de Gouvernement qui se tiendra à Reykjavik en mai

    27. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Dómsmálaráðuneytið, Utanríkismál, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    27. janúar helgaður minningu fórnarlamba helfararinnar

    Ákveðið hefur verið að 27. janúar ár hvert verði á Íslandi helgaður minningu fórnarlamba helfararinnar​ og þá verði vakin sérstök athygli á aðdraganda hennar og þeim hryllingi sem í henni fólst. Forsætisráðherra, utanríkisráðherra og mennta- og barnamálaráðherra hafa sammælst um að hefja vinnu til þess að móta þær leiðir sem farnar verða í þessu augnamiði hér á landi.

    26. jan. 2023Alþjóðamál, Evrópuráðið, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpaði þing Evrópuráðsins í Strassborg

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti í dag ávarp á þingi Evrópuráðsins í Strassborg og svaraði spurningum þingmanna. Málefni Úkraínu, formennska Íslands í Evrópuráðinu og staða mannréttinda og lýðræðis í heiminum voru meðal þess sem forsætisráðherra ræddi í ávarpinu.

    25. jan. 2023Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra fundaði með kanslara Þýskalands í Berlín

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, áttu tvíhliðafund í Berlín í dag. Á fundinum ræddu þau m.a. um tvíhliða samtarf Íslands og Þýskalands, málefni Úkraínu, stöðu öryggismála í Evrópu og málefni norðurslóða.

    24. jan. 2023Mannréttindi og jafnrétti, Evrópuráðið, Mannréttindi, Dómsmálaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Oddný Mjöll Arnardóttir kjörin dómari við Mannréttindadómstól Evrópu

    Þing Evrópuráðsins kaus í dag Oddnýju Mjöll Arnardóttur dómara við Mannréttindadómstól Evrópu. Oddný Mjöll var ein af þremur sem tilnefnd voru sem dómaraefni af hálfu íslenskra stjórnvalda.

    19. jan. 2023Forsætisráðuneytið

    Aðgerðaáætlun um eflingu barnamenningar til umsagnar í Samráðsgátt

    Drög að tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun um eflingu barnamenningar fyrir árin 2024-2028 hafa verið birt í Samráðsgátt stjórnvalda og eru opin almenningi til umsagnar.

    17. jan. 2023Forsætisráðuneytið

    Fréttaannáll forsætisráðuneytisins 2022

    Verkefni forsætisráðuneytisins á árinu 2022 voru fjölbreytt að vanda eins og sjá má í fréttaannál ráðuneytisins.

    16. jan. 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Ný Þjóðarhöll – staðan og næstu skref

    Ný þjóðarhöll mun umbylta umgjörð í kringum landsliðsfólk í fjölmörgum íþróttagreinum, stórbæta aðstöðu fyrir börn og ungmenni og aðra íþróttaiðkendur auk þess að vera fjölnota hús fyrir þjóðina alla samkvæmt tillögum framkvæmdanefndar. Hún verður 19.000m2 að stærð, mun taka 8.600 manns í sæti og allt að 12.000 manns á tónleikum. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri kynntu í dag stöðu og næstu skref við byggingu nýrrar Þjóðarhallar í Laugardalnum.

    16. jan. 2023Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Norðurlönd – afl til friðar - Grein Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra og Guðmundar Inga Guðbrandssonar samstarfsráðherra Norðurlanda á Vísi 12. janúar 2023

    16 janúar 2023 / Forsætisráðuneytið Norðurlönd – afl til friðar - Grein Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra og Guðmundar Inga Guðbrandssonar samstarfsráðherra Norðurlanda á Vísi 12. janúar 2023 Samstarf Norðurlanda hvílir á sterkum menningarlegum, sögulegum og samfélagslegum tengslum. Norrænt samstarf byggir á þeirri sýn að þegar löndin leggja krafta sína saman skili það auknum árangri í að takast á við mikilvægustu áskoranir samtímans

    16. jan. 2023Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Norðurlönd – afl til friðar - Grein Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra og Guðmundar Inga Guðbrandssonar samstarfsráðherra Norðurlanda á Vísi 12. janúar 2023

    16 janúar 2023 / Forsætisráðuneytið Norðurlönd – afl til friðar - Grein Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra og Guðmundar Inga Guðbrandssonar samstarfsráðherra Norðurlanda á Vísi 12. janúar 2023 Samstarf Norðurlanda hvílir á sterkum menningarlegum, sögulegum og samfélagslegum tengslum. Norrænt samstarf byggir á þeirri sýn að þegar löndin leggja krafta sína saman skili það auknum árangri í að takast á við mikilvægustu áskoranir samtímans

    12. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Norrænt samstarf, Utanríkismál

    Friður eitt helsta áhersluefnið í formennsku Íslands

    Formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni 2023 var ýtt úr vör á upphafsviðburði í Norræna húsinu í dag en hún hófst formlega á nýju ári. Yfirskrift formennskunnar er „Norðurlönd - afl til friðar“ og vísar til þeirrar áherslu sem lögð er á frið sem undirstöðu þeirra sameiginlegu gilda sem Norðurlönd byggja samvinnu sína á: mannréttindi, lýðræði og velferð.

    12. jan. 2023Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Ísland í fararbroddi varðandi rétt einstaklinga til að breyta opinberri kynskráningu

    Ísland er eitt af níu ríkjum í Evrópu sem hefur innleitt kerfi sem byggir á sjálfsákvörðunarrétti einstaklinga sem vilja breyta opinberri kynskráningu sinni. Þar að auki er Ísland eina landið sem tryggir sjálfsákvörðunarrétt kynsegin einstaklinga til að skrá sig í samræmi við eigin kynvitund, þ.e. með hlutlausri skráningu.

    06. jan. 2023Stjórnskipan og þjóðartákn, Forsætisráðuneytið

    Sérfræðingar vinna greinargerðir um kafla stjórnarskrárinnar sem fjalla um Alþingi, dómstóla og mannréttindi

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur falið fjórum sérfræðingum að taka saman greinargerðir um þá kafla stjórnarskrárinnar sem fjalla um Alþingi, dómstóla og mannréttindi.

    05. jan. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1122/2022. Úrskurður frá 19. desember 2022

    Kærð var synjun Orkuveitu Reykjavíkur á beiðni um aðgang að upplýsingum um nöfn umsækjenda um stöðu forstjóra félagsins. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál vísaði til þess að samkvæmt 1. mgr. 7. gr. upplýsingalaga næði réttur almennings almennt ekki til gagna í málum sem vörðuðu umsóknir um starf hjá þeim aðilum sem heyrðu undir upplýsingalög. Undantekningar frá þessari reglu væru hins vegar að finna vegna umsókna um opinbera starfsmenn en þá væri skylt að veita upplýsingar um nöfn og starfsheiti umsækjenda um starf þegar umsóknar frestur væri liðinn. Úrskurðarnefndin taldi hugtakið opinbera starfsmenn aðeins taka til starfsmanna stjórnvalda. Því gæti ákvæði 2. mgr. 7. gr.…

    05. jan. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1121/2022. Úrskurður frá 19. desember 2022

    Kærð var afgreiðsla Heilbrigðiseftirlits Suðurlands á beiðni kæranda um áætlun fyrirtækisins Terra um hreinsun á úrgangi. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands kvað gögnin ekki fyrirliggjandi en vísaði kæranda á vefsíðu sína þar sem upplýsingar um málið væru aðgengilegar. Úrskurðarnefndin hafði ekki forsendur til að rengja þá staðhæfingu Heilbrigðiseftirlits Suðurlands að áætlunin lægi ekki fyrir hjá eftirlitinu. Þar sem ekki lá fyrir synjun á beiðni um aðgang að gögnum var kærunni vísað frá úrskurðarnefndinni.

    05. jan. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1120/2022. Úrskurður frá 19. desember 2022

    Í málinu gerði kærandi athugasemdir við að tiltekin símtöl sem hann hefði óskað aðgangs að hjá Kópavogsbæ væru ekki til í formi upptöku. Þá var deilt um synjun Kópavogsbæjar á beiðni hans um lista yfir símtöl milli tiltekins einstaklings og skipulagsdeildar bæjarins. Loks laut kæran að aðfinnslum kæranda við skjölun og vistun gagna hjá bænum. Úrskurðarnefndin hafði ekki forsendur til að rengja þá staðhæfingu að þau símtöl sem kærandi óskaði aðgangs að hefðu ekki verið hljóðrituð. Þá taldi úrskurðarnefndin að Kópavogsbæ væri óskylt að búa til lista yfir símtöl við skipulagsdeild bæjarins, með vísan til 3. málsl. 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012.…

    05. jan. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1119/2022. Úrskurður frá 19. desember 2022

    Deilt var um afgreiðslu Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf. á beiðni kæranda um aðgang að upplýsingum um starfsmannaveltu hjá félaginu. Félagið kvað slíkar upplýsingar ekki vera fyrirliggjandi, auk þess sem þær væru undanþegnar upplýsingarétti samkvæmt 7. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Úrskurðarnefndin hafði ekki forsendur til að rengja þá staðhæfingu Herjólfs að upplýsingar um starfsmannaveltu hjá félaginu væru ekki fyrirliggjandi. Þá væri Herjólfi ekki skylt að taka saman þau gögn þar sem umbeðnar upplýsingar væri að finna, þar sem ljóst þætti að slík gögn heyrðu undir takmörkunarákvæði 7. gr. upplýsingalaga. Þar sem ekki lá fyrir synjun á beiðni um aðgang að gögnum var kærunni vísað frá úrskurðarnefndinni.

    05. jan. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1118/2022. Úrskurður frá 19. desember 2022

    Kærð var synjun Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf. á beiðni um aðgang að skjali með úrbótaáætlun vegna ýmissa þátta í rekstri Herjólfs. Synjun félagsins var byggð á því að um vinnugögn væri að ræða sem heimilt væri að undanþiggja aðgangi kæranda með vísan til 5. tölul. 6. gr. upplýsingalaga, sbr. 8. gr. sömu laga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fór yfir gögnin og taldi að félaginu hefði verið heimilt að synja kæranda um aðgang að skjalinu. Var ákvörðun félagsins því staðfest.

    05. jan. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1117/2022. Úrskurður frá 19. desember 2022

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að upplýsingum vegna ráðgjafarvinnu lögmannstofu fyrir fjármála- og efnahagsráðuneytið á tilteknu tímabili. Kæranda höfðu verið afhentir reikningar þar sem afmáðar voru að hluta til m.a. upplýsingar um einingarverð og magn með vísan til 2. málsl. 9. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Að mati úrskurðarnefndarinnar var ekki nægilega í ljós leitt að umræddar upplýsingar næðu til svo mikilvægra fjárhags- eða viðskiptahagsmuna að þær væru sérstaklega til þess fallnar að valda lögmannsstofunni tjóni yrðu þær gerðar opinberar. Þá taldi nefndin að viðskiptahagsmunir lögmannsstofunnar vægju ekki eins þungt og hagsmunir almennings að upplýsingum um ráðstöfun opinberra hagsmuna.…

    05. jan. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1116/2022. Úrskurður frá 19. desember 2022

    Kærð var synjun Lyfjastofnunar á beiðni um aðgang að samantekt um aukaverkanir vegna Covid-19-bóluefna sem innihéldi sundurliðun á því hvaða skammtur bóluefnis hefði valdið aukaverkun. Ákvörðun Lyfjastofnunar byggðist á því að slík samantekt væri ekki fyrirliggjandi og að stofnuninni væri óskylt að búa hana til, sbr. 3. málsl. 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga. Var það mat úrskurðarnefndarinnar að slík samantekt teldist ekki fyrirliggjandi í skilningi 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga þar sem ekki væri hægt að kalla upplýsingar þar að lútandi fram með tiltölulega einföldum hætti úr gagnagrunni stofnunarinnar. Var kærunni því vísað frá.

    05. jan. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1115/2022. Úrskurður frá 19. desember 2022

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að gögnum hjá Háskóla Íslands sem vörðuðu hann sjálfan. Ákvörðun háskólans byggðist á því að þau gögn sem aðgangur kæranda skyldi takmarkaður að teldust vera vinnugögn í skilningi 8. gr. upplýsingalaga, sbr. 5. tölul. 6. gr. sömu laga. Úrskurðarnefndin taldi að stærstur hluti gagnanna tilheyrði stjórnsýslumáli kæranda, en fyrir lá að honum hafði verið sagt upp störfum hjá háskólanum. Sá hluti kærunnar heyrði ekki undir gildissvið upplýsingalaga, sbr. 2. mgr. 4. gr. laganna. Nefndin féllst á að þau gögn sem eftir stæðu uppfylltu skilyrði upplýsingalaga fyrir því að teljast vinnugögn og að háskólanum hefði verið heimilt að synja kæranda um aðgang að þeim. Var ákvörðun Háskóla Íslands því staðfest en kærunni að öðru leyti vísað frá.

    03. jan. 2023Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Ár andstæðna - Áramótagrein Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í Morgunblaðinu 31. desember 2022

    03 janúar 2023 / Forsætisráðuneytið Ár andstæðna - Áramótagrein Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í Morgunblaðinu 31. desember 2022 Árið 2022 er að mörgu leyti þversagnakennt ár þegar kemur að athafna- og efnahagslífi landsmanna. Annars vegar hefur þjóðin náð sér feykivel á strik eftir faraldurinn, sérstaklega ef litið er á atvinnulífið og ferðaþjónustuna

    03. jan. 2023Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Ár andstæðna - Áramótagrein Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í Morgunblaðinu 31. desember 2022

    03 janúar 2023 / Forsætisráðuneytið Ár andstæðna - Áramótagrein Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í Morgunblaðinu 31. desember 2022 Árið 2022 er að mörgu leyti þversagnakennt ár þegar kemur að athafna- og efnahagslífi landsmanna. Annars vegar hefur þjóðin náð sér feykivel á strik eftir faraldurinn, sérstaklega ef litið er á atvinnulífið og ferðaþjónustuna

    03. jan. 2023Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Framtíðin er björt - Áramótagrein Katrínar Jakobsdóttur í Fréttablaðinu 31. desember 2022

    03 janúar 2023 / Forsætisráðuneytið Framtíðin er björt - Áramótagrein Katrínar Jakobsdóttur í Fréttablaðinu 31. desember 2022 Undanfarin ár hafa ýmsir valið orð ársins. Þannig hefur Árnastofnun fylgst með málnotkun landsmanna en árið 2020 valdi stofnunin orðið sóttkví orð ársins og 2021 var orðið bólusetning

    03. jan. 2023Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Framtíðin er björt - Áramótagrein Katrínar Jakobsdóttur í Fréttablaðinu 31. desember 2022

    03 janúar 2023 / Forsætisráðuneytið Framtíðin er björt - Áramótagrein Katrínar Jakobsdóttur í Fréttablaðinu 31. desember 2022 Undanfarin ár hafa ýmsir valið orð ársins. Þannig hefur Árnastofnun fylgst með málnotkun landsmanna en árið 2020 valdi stofnunin orðið sóttkví orð ársins og 2021 var orðið bólusetning

    31. des. 2022Forsætisráðuneytið

    Áramótaávarp forsætisráðherra 2022

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti áramótaávarp sitt í kvöld. Meðal þess sem forsætisráðherra ræddi í ávarpinu var launamunur kynjanna, staða íslenskrar tungu, líðan barna og ungmenna og velsæld landsmanna.

    31. des. 2022Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Áramótaávarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra 2022

    31 desember 2022 / Forsætisráðuneytið Áramótaávarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra 2022 Kæru landsmenn! Daginn sem ég fæddist, 1. febrúar 1976, birtist í Þjóðviljanum grein eftir Halldóru Sveinsdóttur Sóknarkonu sem var nýfarin að vinna öll hefðbundin heimilisstörf á spítala. Hún var á byrjunarlaunum þrátt fyrir að hafa unnið nákvæmlega sömu störf í 23 ár á eigin heimili

    31. des. 2022Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Áramótaávarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra 2022

    31 desember 2022 / Forsætisráðuneytið Áramótaávarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra 2022 Kæru landsmenn! Daginn sem ég fæddist, 1. febrúar 1976, birtist í Þjóðviljanum grein eftir Halldóru Sveinsdóttur Sóknarkonu sem var nýfarin að vinna öll hefðbundin heimilisstörf á spítala. Hún var á byrjunarlaunum þrátt fyrir að hafa unnið nákvæmlega sömu störf í 23 ár á eigin heimili

    30. des. 2022Forsætisráðuneytið

    Ríkisráðsfundur á Bessastöðum á gamlársdag

    Ríkisráð Íslands hefur verið kvatt saman til reglulegs fundar á Bessastöðum á morgun, laugardaginn 31. desember, kl. 11.00.

    29. des. 2022Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Sjónvarpsþættir um skaðsemi hatursorðræðu

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, undirrituðu í gær samning við Ketchup Productions um framleiðslu sjónvarpsþátta um skaðsemi hatursorðræðu. Greiðslur ráðuneytanna vegna verkefnisins nema alls fimm milljónum króna.

    29. des. 2022Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðuneytið og Stígamót gera samning um Sjúktspjall

    Forsætisráðuneytið og Stígamót hafa gert samstarfssamning um framhald verkefnisins Sjúktspjall. Um er að ræða nafnlaust netspjall þar sem ungmenni á aldrinum 13-20 ára geta rætt við ráðgjafa Stígamóta um kynferðisofbeldi og ofbeldi í nánum samböndum.

    22. des. 2022Forsætisráðuneytið

    Yfirlýsing forsætisráðherra vegna máls Erlu Bolladóttur

    Samkomulag hefur náðst milli íslenska ríkisins og Erlu Bolladóttur vegna gæsluvarðhalds sem Erla sætti fyrir meinta aðild að hvarfi Geirfinns Einarssonar. Erla var sýknuð af þeim ákærum í Hæstarétti 1980 en hún mátti sæta frelsissviptingu í tæpa átta mánuði vegna málsins.

    22. des. 2022Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðuneytið styrkir samtök sem styðja við þolendur ofbeldis

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur ákveðið að veita sex stofnunum og samtökum styrk nú í aðdraganda jóla. Þær stofnanir eða samtök sem um ræðir eru Bjarkarhlíð, Bjarmahlíð, Kvennaathvarfið, Rótin/Konukot, Sigurhæðir og Stígamót og rennur ein milljón króna til hverrar stofnunar eða alls um 6 milljónir króna.

    21. des. 2022Rit og skýrslur, Alþjóðasamningur um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, Skýrslur frá Íslandi, Forsætisráðuneytið

    Sjötta skýrsla Íslands um framkvæmd alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi

    Í samræmi við 40. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi hafa íslensk stjórnvöld tekið saman sjöttu skýrslu sína um framkvæmd samningsins og valfrjálsra bókana við hann.

    20. des. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1114/2022. Úrskurður frá 5. desember 2022

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að gögnum um greiðslur sem Isavia hefur fengið vegna sérleyfa um verslun með útivistarfatnað og minjagripi í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á tilteknu tímabili. Synjun Isavia byggðist annars vegar á því að hluti gagnanna heyrði ekki undir gildissvið upplýsingalaga samkvæmt 3. mgr. 36. gr. upplýsingalaga og hins vegar að meðferð beiðninnar um þau gögn sem eftir stæðu útheimti svo mikinn tíma og vinnu að ekki sé fært að verða við henni, sbr. 1. tölul. 4. mgr. 15. gr. laganna. Úrskurðarnefndin féllst ekki á að yfirferð á reikningum gæti tekið svo langan tíma að undantekningarákvæði 1. tölul. 4. mgr. 15. gr. ætti við.…

    20. des. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1113/2022. Úrskurður frá 5. desember 2022

    Kærð var afgreiðsla Ísafjarðarbæjar á beiðni kæranda í kjölfar úrskurðar úrskurðarnefndar um upplýsingamál nr. 1077/2022, þar sem beiðninni hafði verið vísað aftur til Ísafjarðarbæjar til nýrrar meðferðar og afgreiðslu. Samkvæmt Ísafjarðarbæ lágu þau gögn sem kærandi óskaði eftir ekki fyrir hjá sveitarfélaginu. Þar sem ekki teldist um synjun að ræða í skilningi 20. gr. upplýsingalaga var kærunni vísað frá nefndinni.

    20. des. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1112/2022. Úrskurður frá 5. desember 2022

    Deilt var um afgreiðslu sveitarfélags á beiðni kæranda um aðgang að gögnum sem vörðuðu málefni og starfslok kæranda hjá sveitarfélaginu. Sveitarfélagið taldi að öll umbeðin gögn hefðu verið afhent kæranda, að undanskildum tilteknum tölvupóstssamskiptum sem væru undanþegin afhendingarskyldu samkvæmt 3. og 4. tölul. 6. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin féllst hvorki á að sveitarfélaginu hafi verið heimilt að synja kæranda um aðgang að gögnunum með vísan til 3. tölul. 6. gr. laganna, né að önnur takmörkunarákvæði upplýsingalaga ættu við um gögnin. Var sveitarfélaginu því gert að veita kæranda aðgang að samskiptum við almannatengil og lögmann, en kærunni var að öðru leyti vísað frá úrskurðarnefndinni.

    20. des. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1111/2022. Úrskurður frá 5. desember 2022

    Kærð var synjun heilbrigðisráðuneytis á beiðni um aðgang að samningum íslenska ríkisins um kaup á bóluefnum gegn COVID-19. Synjun ráðuneytisins byggðist aðallega á því að mikilvægir almannahagsmunir krefðust þess að aðgangur kæranda yrði takmarkaður, sbr. 2. tölul. 10. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin féllst á það með ráðuneytinu að umbeðin gögn hefðu að geyma upplýsingar um samskipti við önnur ríki og fjölþjóðastofnanir sem mikilvægir almannahagsmunir stæðu til að færu leynt. Að fenginni þeirri niðurstöðu var að mati nefndarinnar óþarft að kanna hvort skilyrði 9. gr. upplýsingalaga væru uppfyllt til takmörkunar á rétti kæranda til aðgangs. Var synjun ráðuneytisins því staðfest.

    19. des. 2022Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra á leiðtogafundi JEF-ríkjanna í Riga

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók í dag þátt í fundi leiðtoga þátttökuríkja í Sameiginlegu viðbragðssveitinni (e. Joint Expeditonary Force, JEF) í Riga í Lettlandi. Þetta er í annað skiptið sem leiðtogarnir koma saman frá því að til JEF-samstarfsins var stofnað en fyrra skiptið var í London í mars sl.

    • First
    • Prev
    • 20
    • 21
    • 22
    • 23
    • 24
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband