05. okt. 2010Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir, Úrskurðir
Mál nr. 53/2010
Mál þetta lýtur að 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, en skýringar kæranda fyrir fjarveru sinni á boðuðu námskeiði á vegum Vinnumálastofnunar voru ekki taldar réttlæta fjarveru hans á námskeiðinu og var ákvörðun Vinnumálastofnunar um tímabundna niðurfellingu á rétti hans til atvinnuleysisbóta staðfest. Kærandi sætir ítrekunaráhrifum, sbr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, og var réttur hans til atvinnuleysisbóta felldur niður í 60 daga.