Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1101–1150 af 1821
    Raða eftir:
    17. jún. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menntamál, Menningarmál

    Sjóðurinn Gjöf Jóns Sigurðssonar

    Í reglum frá árinu 1881 um Gjöf Jóns Sigurðssonar er kveðið á um að fé úr sjóðnum megi veita,

    16. jún. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál

    Menningarsjóðir úthluta 120 milljónum til bókasafna, tónlistarmanna og hljóðritunar

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, veitti í dag styrki úr þremur menningarsjóðum – tónlistarsjóði, hljóðritasjóði og bókasafnasjóði við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu. Þetta er síðari úthlutun tónlistarsjóðs sem að þessu sinni veitir styrki til 100 tónlistartengdra verkefna að upphæð rúmlega 71 milljóna króna. Til úthlutunar var 50 milljóna viðbót stjórnvalda, viðspyrnuúrræði vegna heimsfaraldursins. Bókasafnasjóður veitir alls 20 milljónir króna til níu verkefna. Hljóðritasjóður veitir alls 29 milljónir króna til 59 verkefna

    16. jún. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Hærri endurgreiðslur vegna kvikmyndaframleiðslu samþykktar á Alþingi

    Alþingi hefur samþykkt frumvarp Lilju Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra um að hækka endurgreiðslur vegna kvikmyndaframleiðslu á Íslandi úr 25% í 35%. Frumvarpið öðlast strax gildi en málið er hluti af stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og liður í kvikmyndastefnu fyrir Ísland til ársins 2030 sem menningarmálaráðherra kynnti árið 2020.

    16. jún. 2022Innviðaráðuneytið, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Lög og réttur, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ný lög um fjarskipti samþykkt á Alþingi

    Í frumvarpinu má finna nýmæli sem stuðla að nauðsynlegri áframhaldandi uppbyggingu og framþróun á fjarskiptamarkaði.

    15. jún. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Covid-19, Menningarmál

    Viðspyrnuaðgerðir ríkisstjórnarinnar: Aukaúthlutun listamannalauna og Sviðslistasjóðs

    Sviðslistasjóður veitir 25 milljónum króna til 9 verkefna leikárið 2022/23 í þessari auka úthlutun og fylgja þeim 42 listamannalaunamánuðir úr launasjóði sviðslistafólks, 8 mánuðir voru veittir þremur einstaklingum utan sviðslistahópa. Alls voru 200 mánuðir til úthlutunar listamannalauna, 50 mánuðir til sviðslistafólks og 150 til tónlistarflytjenda.

    15. jún. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menntamál, Háskólar

    Þróunarsjóður eflir tengsl milli háskóla, samfélags og atvinnulífs

    Á ársfundi Háskóla Íslands sem fram fór í dag fagnaði háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra góðum árangri skólans og ítrekaði mikilvægi tengsla milli háskóla og atvinnulífs.

    15. jún. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Atvinnuvegir, Menningarmál

    Til hamingju sviðslistir!

    „Sviðslistir eru nú komnar með sína eigin miðstöð líkt og aðrar listgreinar - Til hamingju,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra en hún ávarpaði formlega opnun Sviðslistarmiðstöðvar á þriðjudag.

    15. jún. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Jafnrétti, Nýsköpun, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Aukin tækifæri fylgja fjölbreytileika í nýsköpun

    Jafnræði í íslenskri nýsköpun með sérstakri áherslu á að auka hlut kvenna var yfirskrift vorfundar Tækniþróunarsjóðs sem fram fór í dag.

    14. jún. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menntamál, Háskólar

    Skipun úttektarnefndar vegna umsóknar Kvikmyndaskóla Íslands um háskólaviðurkenningu

    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur að tillögu gæðaráðs íslenskra háskóla skipað þriggja manna úttektarnefnd til að meta umsókn Kvikmyndaskóla Íslands um háskólaviðurkenningu.

    13. jún. 2022Forsætisráðuneytið, Covid-19, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Skýrsla starfshóps um félags- og heilsufarslegar aðgerðir vegna áhrifa heimsfaraldurs á viðkvæma hópa

    Starfshópur sem ríkisstjórnin fól að vinna tillögur um félags- og heilsufarslegar aðgerðir vegna áhrifa heimsfaraldurs kórónuveiru á viðkvæma hópa hefur skilað skýrslu til forsætisráðherra.

    09. jún. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Líf og heilsa, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Heilbrigðismál, Lyfjamál, Nýsköpun, Heilbrigðisráðuneytið

    Tækifæri í auknu norrænu samstarfi um þróun, nýsköpun og framleiðslu bóluefna

    Niðurstöður norrænnar greiningarvinnu benda til þess að ýmis tækifæri geti falist í auknu samstarfi Norðurlanda á sviði nýsköpunar, þróunar og framleiðslu á bóluefnum.

    09. jún. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Loftslagsmál, Nýsköpun, Orka, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Fjárfestingartækifæri kynnt á orkuráðstefnu í Kanada

    Ráðherra hefur kynnt frumkvöðlastarf í sjálfbærri nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa á Íslandi og hvernig hugvitið spilar lykilhlutverk í að Ísland uppfylli markmið um kolefnishlutleysi árið 2040.

    08. jún. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál

    Efnilegir höfundar fengu nýræktarstyrk

    Nýræktarstyrki í ár hljóta þau Guðmundur Magnússon, Nína Ólafsdóttir og Örvar Smárason, en Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra afhenti þá. Miðstöð íslenskra bókmennta veitir styrkina til nýrra höfunda og nemur hver styrkur 500 þúsund krónum. 60 umsóknir bárust um Nýræktarstyrki í

    08. jún. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menntamál, Háskólar

    Nýtt húsnæði menntavísindasviðs HÍ stórbætir aðstöðu kennaranáms á Íslandi

    Nýtt húsnæði menntavísindasviðs eykur getu háskólans til að útskrifa kennara og fagfólk í hæsta gæðaflokki til starfa í skólakerfinu og menntageiranum á Íslandi.

    07. jún. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menntamál

    Útgáfa handbókar um viðurkenningu háskóla

    Út er komin leiðbeinandi handbók um viðurkenningu háskóla. Handbókin lýsir þeim kröfum sem gerðar eru til umsókna um viðurkenningu ráðherra til að fá að starfa sem háskóli og leiðbeinir frekar með tillögum að gögnum sem leggja má fram til stuðnings slíkri umsókn.

    07. jún. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Líflegar og gagnlegar umræður á fundi um Tónlistarmiðstöð

    Opið samtal, samráð við hagaðila og lausnamiðuð nálgun eru leiðarljós vinnu við nýja Tónlistarmiðstöð. Tónverkamiðstöð, Tónskáldafélag Íslands og Félag tónskálda og textahöfunda boðuðu því til kynningarfundar um vinnu við Tónlistarmiðstöð fyrir félagsmenn sína. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, ávarpaði fundinn og ræddi við félagsmenn um vinnuna. Líflegar og gagnlegar umræður sköpuðust á fundinum sem var vel sóttur.

    07. jún. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Loftslagsmál, Nýsköpun, Orka, Auðlindir

    Virkja þarf hugvit, þekkingu og nýsköpun til að ná markmiðum um kolefnishlutleysi

    Þrátt fyrir að hafa verið frumkvöðlar í nýtingu umhverfisvænna orkugjafa, svo sem vatnsorku og jarðhita, og í dag leiðtogar á heimsvísu þegar kemur að endurnýjanlegri orkuframleiðslu og sérþekkingu á því sviði, þarf íslenska þjóðin að taka höndum saman til að ná settum markmiðum.

    03. jún. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Jafnrétti, Nýsköpun, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Kvenfrumkvöðlar forsenda þess að hugvitið verði stærsta útflutningsgreinin

    Árið 2021 fóru einungis 2% af heildarfjárfestingum vísisjóða til kvennateyma á meðan 45% fóru til karlateyma. Alls fór 53% fjármagnsins til blandaðra teyma.

    03. jún. 2022Forsætisráðuneytið, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ríkisstjórnin styrkir verkefnið Í fótspor Árna Magnússonar í Vesturheimi

    Ríkisstjórnin hefur ákveðið að styrkja Stofnun Árna Magnússonar og Heiðursráð Þjóðræknisfélags Íslendinga um 5 m.kr. af ráðstöfunarfé sínu vegna vinnu við uppbyggingu gagnagrunns um handrit og önnur vestur-íslensk menningarverðmæti.

    02. jún. 2022Innviðaráðuneytið, Netöryggi, Samgöngur og fjarskipti, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Sigurvegarar krýndir í Netöryggiskeppni Íslands 2022

    Í Netöryggiskeppninni leysa keppendur gagnvirk verkefni sem líkja eftir raunverulegum öryggisgöllum sem upp hafa komið á síðustu árum.

    01. jún. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Iðnaður, Loftslagsmál, Orka, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Íslenskt ál það umhverfisvænasta á heimsvísu

    Íslenskur áliðnaður er á grænni vegferð og stefnir á kolefnishlutleysi 2050.

    01. jún. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Mannauðsmál ríkisins

    HVIN kveður stimpilklukkuna fyrst ráðuneyta

    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið (HVIN) hefur formlega afnumið stimpilklukkuna, fyrst ráðuneyta, að frumkvæði ráðherra.

    29. maí 2022Forsætisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Tilkynnt um úthlutun styrkja úr Barnamenningarsjóði

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Lilja D. Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, tilkynntu í dag, á degi barnsins, um úthlutun styrkja úr Barnamenningarsjóði Íslands. Alls hljóta 34 verkefni styrk að þessu sinni en heildarfjárhæð styrkja nemur 92 milljónum króna. Er þetta í fjórða sinn sem styrkjum er úthlutað úr sjóðnum.

    27. maí 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menntamál, Jafnrétti, Menntun fyrir alla, Menningarmál

    Stefna um íslenskt táknmál í Samráðsgátt

    Menningar- og viðskiptaráðuneytið kynnir til samráðs í Samráðsgátt stjórnvalda drög að stefnu um íslenskt táknmál og meðfylgjandi aðgerðaáætlun.

    27. maí 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Þrír nýir skrifstofustjórar í háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu

    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur skipað í tvö embætti skrifstofustjóra hjá ráðuneytinu að undangenginni auglýsingu um störfin. Að loknu heildarmati í kjölfar skýrslu hæfnisnefndar var það mat ráðherra að Sigríður Valgeirsdóttir og Ari Sigurðsson skyldu skipuð í embættin. Þá hefur Jón Vilberg Guðjónsson verið fluttur í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu yfirstjórnar í ráðuneytinu.

    27. maí 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Loftslagsmál, Nýsköpun, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið

    Hugvitið nýtt til að draga úr kolefnislosun byggingariðnaðar

    Askur - mannvirkjarannsóknarsjóður veitir styrki til mannvirkjarannsókna með áherslu á aukna þekkingu, umbætur og nýsköpun til að mæta samfélagslegum áskorunum mannvirkjagerðar. Á Nýsköpunarvikunni sem fór fram nýlega kynntur nokkrir styrkhafar Asksins nýsköpunarverkefni sín. Slík verkefni eru í lykilhlutverki þegar kemur að vistvænni mannvirkjagerð, auknum gæðum bygginga og heilnæmi.

    26. maí 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Alþjóðamál, Menningarmál

    Opið fyrir umsóknir í Grænlandssjóð: Verkefni sem efla samskipti milli Grænlands og Íslands

    Grænlandssjóður auglýsir eftir styrkumsóknum í sjóðinn. Umsóknarfrestur er til og með 22. júní 2022.

    23. maí 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Atvinnuvegir

    Ráðherra mælti fyrir frumvarpi um kvikmyndaendurgreiðslur

    „Mikill áhugi er á þessum áformum ríkisstjórnarinnar, bæði hér heima fyrir og ekki síður erlendis. Þannig bíða nokkur stór og áhugaverð erlend verkefni, sem reiðubúin eru að hefja tökur á þessu ári, eftir formlegri ákvarðanatöku stjórnvalda og umræddri lagabreytingu,“ sagði Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra í framsöguræðu sinni á Alþingi þar sem hún fjallaði um breytingar á lögum um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi. Ráðherra sagði mikið til þess unnið að afgreiða frumvarpið sem lög frá Alþingi fyrir þinglok á vorþingi.

    23. maí 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Samgöngur og fjarskipti, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Menntamál

    Opinn viðtalstími ráðherra í Grósku

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra verður með opna viðtalstíma í Grósku miðvikudaginn 25. maí milli klukkan 9:30 og 11:30.

    20. maí 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Atvinnuvegir

    Aðstoðarframkvæmdastjóri Microsoft Cloud les Arnald Indriðason

    Óhætt er að segja að það kom menningarmálaráðherra skemmtilega á óvart að Scott Guthrie er einlægur aðdáandi rithöfundarins Arnalds Indriðasonar og virðist hafa lesið flestar bækur hans.

    19. maí 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Menningarmál

    Þróun gervigreindartækni nýtist tungumálum eins og íslensku

    „Eitt af því sem liðsinnt getur framþróun tungumála eins og íslensku er ör þróun gervigreindar, þar felast mörg tækifæri sem flest eru ókönnuð enn,“ segir Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra heimsótti fyrirtækið OpenAi í San Fransisco í vikunni. Heimsóknin var liður í fundaröð sendinefndar Guðna Th. Jóhannessonar forseta Íslands til Bandaríkjanna sem miðar að því tryggja að íslenska verði hluti af stafrænum tæknilausnum framtíðarinnar.

    19. maí 2022Innviðaráðuneytið, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Leit og björgun, Öryggis- og varnarmál, Almannaöryggi, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Samstarf Neyðarlínunnar og farsímafyrirtækjanna stuðlar að auknu öryggi

    Kynning á samstarfi Neyðarlínunnar og farsímafyrirtækjanna Nova, Vodafone og Símans fór fram í dag. Um er að ræða mikilvægt og tímabært verkefni þar sem viðeigandi aðilar hafa tekið höndum saman um tryggja gott farsímasamband á fáförnum og afskekktum stöðum á Íslands. Þetta skapar aukið öryggi þar sem víðar verður hægt að ná sambandi við neyðarnúmerið 112 sem og önnur símanúmer.

    19. maí 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Mannauðsmál ríkisins, Menningarmál, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Fyrsti kjarasamningur vegna danshöfunda í Þjóðleikhúsinu undirritaður

    Félag íslenskra listamanna í kvikmyndum og sviðslistum (FÍL) og íslenska ríkið hafa undirritað kjarasamning fyrir danshöfunda í Þjóðleikhúsinu.

    17. maí 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Iðnaður, Netöryggi, Nýsköpun, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Forgangsverkefni háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins kynnt fyrir fullum sal í Grósku

    Áslaug Arna Sigurbjrönsdóttir kynnti nýtt ráðuneyti, helstu áherslur og forgangsverkefni þess og nýtt verklag við góðar undirtektir fyrir fullum sal í Grósku í gær.

    16. maí 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Nýsköpun, Heilbrigðismál

    Innleiðing nýsköpunar í heilbrigðisþjónustu styrkt sérstaklega

    Við kynningu á nýju háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti í dag greindi ráðherra frá þeirri ákvörðun sinni um að styrkja sérstaklega innleiðingu nýsköpunar í heilbrigðisþjónustu.

    13. maí 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál

    Endurnýjuðu samning um Film in Iceland: Kynna landið sem stórkostlegan tökustað

    Vaxandi áhugi hefur verið á Íslandi sem tökustað og verkefni Film in Iceland, er að kynna Ísland sem áhugaverðan tökustað, endurgreiðslukerfi vegna framleiðslu kvikmynda- og sjónvarpsefnis, innviði íslenska kvikmyndaumhverfisins og að taka við fyrirspurnum erlendra framleiðanda og aðstoða þá eftir fremsta megni. Rennir þetta mikilvægum stoðum undir þau markmið stjórnvalda að efla íslenskan kvikmyndaiðnað og gera Ísland að eftirsóknarverðum tökustað fyrir fjölbreytt kvikmynda- og sjónvarpsverkefni.

    13. maí 2022Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Stærri kvikmyndaverkefni fá 35% endurgreiðslu kostnaðar: Ráðherra leggur fram frumvarp á vorþingi

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra mun leggja fram frumvarp um breytingu á lögum um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Alþingi nú á vorþingi.

    13. maí 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Covid-19, Menningarmál

    Rekstrarsamningar undirritaðir við ÚTÓN og Tónverkamiðstöð

    „Það er alltaf gleðilegt að renna styrkari stoðum undir íslenska tónlist, tónlistarmenn, og tónverkasöguna eins og við gerum með þessum samningum. ÚTÓN og Tónverkamiðstöð hafa staðið í stafni í þessum málum. Viðspyrnustyrkurinn vegna heimsfaraldursins mun einnig hafa mikið að segja. Við ætlum að halda vel á spilunum í þessum málum, segir Lilja.

    12. maí 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Menntamál

    Ráðherra kynnir nýtt háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti á Nýsköpunarviku

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra kynnir nýtt ráðuneyti í Grósku mánudaginn 16. maí klukkan 12:10.

    11. maí 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál

    Ráðherra fundaði með HBO, Netflix og Amazon

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, fundaði með fulltrúum bandarískra kvikmyndaframleiðenda til að ræða tækifæri fyrir erlend framleiðslufyrirtæki þegar kemur að kvikmyndagerð á Íslandi.

    11. maí 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Úkraína, Menningarmál

    Lilja hitti meðlimi Pussy Riot á æfingu

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, hitti meðlimi hljómsveitarinnar Pussy Riot á æfingu sveitarinnar í Reykjavík. Hljómsveitin undirbýr tónleikaröð sína um Evrópu hér á landi og hefur verið við æfingar í Þjóðleikhúsinu. Listamaðurinn Ragnar Kjartansson hefur verið þeim innan handar hér á landi.

    10. maí 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál

    Kvikmyndaendurgreiðslur í Samráðsgátt: Stærri verkefni fái 35% endurgreiðslu kostnaðar

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, hefur sett drög að frumvarpi um breytingu á lögum um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar í Samráðsgátt stjórnvalda. Endurskoðun laganna er áherslumál í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og upplýsti ráðherra ríkisstjórn um stöðu vinnunnar sl. föstudag.

    09. maí 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Menningarmál

    Ráðherra ávarpaði UNESCO fund í Perlunni

    „Ísland hefur lengi verið hluti af UNESCO og við erum ákaft stuðningsfólk fjölþjóðahyggju. Við vinnum sleitulaust að markmiðum UNESCO og gildum stofnunarinnar og á Íslandi deilum við sýn UNESCO um að stuðla að friði og öryggi á grundvelli samvinnu ríkja með samtali á vettvangi menningar, menntunar , samskipta og vísinda,“ segir Lilja, en Ísland var kjörið í framkvæmdanefnd UNESCO í fyrra.

    07. maí 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Norrænt samstarf, Menningarmál

    Lilja fundaði með menningarmálaráðherrum Norðurlandanna

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, fundaði með menningarmálaráðherrum Norðurlandanna í Óperuhúsinu í Ósló þann 4. maí. Þetta var fyrsti ráðherrafundur ársins undir formennsku Noregs. Aðild að samstarfinu eiga Danmörk, Finnland, Ísland, Noregur og Svíþjóð auk Álandseyja, Færeyja og Grænlands.

    07. maí 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menntamál, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál

    Tímamót í sögu Listaháskóla Íslands sem fær framtíðarhúsnæði í Tollhúsinu

    Viljayfirlýsing um framtíðarhúsnæði Listaháskóla Íslands í Tollhúsinu við Tryggvagötu var undirrituð í dag. Undirritun yfirlýsingarinn er sérstakt fagnaðarefni þar sem skólinn mun nú get sameinað alla sína starfsemi undir einu þaki í fyrsta skipti frá stofnun hans.

    06. maí 2022Menningarmál, Norrænt samstarf, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Fleiri handrit koma til landsins og aukin áhersla á rannsóknir

    „Ég er mjög ánægð með gang vinnunnar og legg mikla áherslu á að breytingar verði gerðar á handritasáttmálanum. Eins og ég hef sagt áður þá viljum við fá fleiri handrit lánuð til lengri tíma og við viljum vinna þetta með dönskum stjórnvöldum,“ segir ráðherra.

    06. maí 2022Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Ríkisstjórnin samþykkir mótvægisaðgerðir vegna verðbólgu

    Ráðist verður í mótvægisaðgerðir til að draga úr áhrifum verðbólgu á lífskjör viðkvæmustu hópa samfélagsins. Tillaga þess efnis frá forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, innviðaráðherra, félags- og vinnumarkaðsráðherra og menningar- og viðskiptaráðherra var samþykkt á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun.

    06. maí 2022Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Nýsköpun, Upplýsingatæknimál ríkisins

    Græn nýsköpun í brennidepli á nýsköpunardegi hins opinbera

    Nýsköpunardagur hins opinbera verður haldinn 17. maí næstkomandi. Viðburðurinn fer fram árlega og er markmiðið að hvetja til aukinnar nýsköpunar hjá hinu opinbera. Þemað í ár er græn nýsköpun og er dagskráin afar fjölbreytt. Erindi sem flutt verða snúa jafnt að nýjum tækifærum í nýsköpun, sem og reynslusögum af vel heppnuðum verkefnum.

    30. apr. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menntamál, Barnaréttur, Jafnrétti, Menningarmál

    Lilja afhjúpaði risastórt lestrarrúm á Borgarbókasafninu: Segðu mér sögu til heiðurs barnabókahöfundum

    „Barnabókmenntir eru oft fyrsta snerting barnsins við heim menningar og lista og skapar rætur fjölbreyttra blóma sem blómstra í börnunum okkar og eru mikilvægur hlekkur í skapandi og gefandi uppeldi. Undanfarin ár hafa stjórnvöld lagt aukna áherslu á að styðja við barnabókmenntir og hefur útgáfa á barnabókum stóraukist í kjölfarið. Við eigum barnabókahöfundum mikið að þakka fyrir að auðga barnæsku okkar og samfélag. Við þá vil ég segja kærar þakkir“ segir Lilja Alfreðsdóttir.

    29. apr. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Covid-19, Menningarmál

    Listamannalaun fyrir ungt sviðslista- og tónlistarfólk samþykkt á Alþingi

    „Við getum verið ótrúlega stolt af þeirri miklu frumsköpun og framleiðslu á menningu sem okkar frábæra listafólk drífur áfram, jafnvel þótt á móti blási. Mannsandinn nærist meðal annars á menningu, því að skemmta sér í góðra vina hópi, sækja tónleika, leiksýningar eða aðra menningarviðburði. Við höfum einsett okkur að styðja við menningu og listir í gegnum faraldurinn og stjórnvöld munu halda áfram að skapa menningu í landinu góð skilyrði,“ segir ráðherra.

    • First
    • Prev
    • 21
    • 22
    • 23
    • 24
    • 25
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband