10. des. 2019Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa
Geðheilsuteymi fanga sett á fót
10 desember 2019
/
Heilbrigðisráðuneytið
Geðheilsuteymi fanga sett á fót
Heilbrigðisráðuneyti
Í liðinni viku kynnti ég áform um stofnun sérstaks geðheilsuteymis fyrir fanga. Teymið mun sinna geðheilbrigðisþjónustu við fanga í öllum fangelsum landsins en verkefnið er afrakstur metnaðarfullrar samvinnu heilbrigðis- og dómsmálaráðuneyta undanfarna mánuði. Samningur þessa efnis milli Sjúkratrygginga Íslands og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins var undirritaður á fjölmiðlafundi í fangelsinu á Hólmsheiði í síðustu viku og ásamt mér kynntu Páll Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunar, og Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, hvernig unnið hefur verið að því að móta nýtt skipulag þessarar þjónustu við fanga