Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Umhverfi og náttúruvernd
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1251–1300 af 1862
    Raða eftir:
    09. maí 2021Ferðaþjónusta, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ferðamála- og umhverfisráðherrar beina rúmum 70 milljónum til innviða og landvörslu við gosstöðvarnar

    Rúmum 70 milljónum króna verður varið til innviðauppbyggingar og landvörslu við gosstöðvarnar við Fagradalsfjall samkvæmt tillögum ferðamálaráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra, sem fjallað hefur verið um í ríkisstjórn.

    07. maí 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Landgræðsla og skógrækt, Umhverfi og náttúruvernd

    Drög að landgræðsluáætlun og landsáætlun í skógrækt til kynningar

    Drög að landgræðsluáætlun og landsáætlun í skógrækt eru nú til kynningar á vefsíðum Landgræðslunnar og Skógræktarinnar. Vinna við áætlanirnar tvær er í samræmi við lög um landgræðslu og lög um skóga og skógrækt.

    06. maí 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Ráðherra skipar vísindanefnd til að fjalla um áhrif loftslagsbreytinga

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur skipað nefnd, sem falið hefur verið að vinna að gerð vísindaskýrslu um áhrif loftslagsbreytinga á náttúrufar og samfélag á Íslandi.

    05. maí 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Skrifstofu loftslagsþjónustu og aðlögunar komið á fót

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra greindi frá því á ársfundi Veðurstofu Íslands, sem haldinn var í dag, að komið verði á fót nýrri skrifstofu loftslagsþjónustu og aðlögunar hjá Veðurstofu Íslands.

    05. maí 2021Umhverfi og náttúruvernd, Covid-19, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Nýsköpun, Loftslagsmál, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Umræðuskjal um Landbúnaðarstefnu fyrir Ísland kynnt

    Landnýting, loftslagsmál og umhverfisvernd, nýsköpun og tækni eru þrjár lykilbreytur sem munu marka landbúnaðarstefnu fyrir Ísland til framtíðar. Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, stóð í dag fyrir fjarfundi þar sem kynntvar Ræktum Ísland! umræðuskjal um landbúnaðarstefnu fyrir Ísland.

    03. maí 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Umbætur í girðingamálum geta skilað margþættum ávinningi

    Starfshópur um umbætur og hagræðingu vegna girðinga í eigu hins opinbera hefur skilað umhverfis- og auðlindaráðherra skýrslu þar sem birtar eru tölur um umfang girðinga á vegum opinberra aðila, stofnana og sveitarfélaga.

    03. maí 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Auknir hvatar til fjárfestinga í umhverfisvænum eignum

    Alþingi samþykkti á dögunum frumvarp Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra um breytingar á lögum um tekjuskatt, sem felur í sér aukna hvata fyrir einkaaðila til fjárfestinga í eignum sem teljast umhverfisvænar (grænar eignir) og stuðla að grænni umbreytingu.

    29. apr. 2021Rit og skýrslur, Umhverfi og náttúruvernd, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Hringrásarhagkerfið

    apríl 2021 / Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið Hringrásarhagkerfið Hringrásarhagkerfi er hagkerfi þar sem vörur, hlutir og efni halda verðmæti sínu og notagildi eins lengi og mögulegt er. Hringrásarhagkerfið

    29. apr. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Frumvarp sem stuðlar að endurvinnslu glers samþykkt á Alþingi

    Alþingi samþykkti í vikunni frumvarp Guðmundar Inga Guðbrandssonar, umhverfis- og auðlindaráðherra, um breytingar á lögum um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota drykkjarvöruumbúða. Samþykkt frumvarpsins hefur í för með sér að hægt verður að hefja markvissa vinnu við endurvinnslu á einnota glerumbúðum á þessu ári.

    27. apr. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Endurheimt vistkerfa, verkefni í þágu loftslagsmála, jarðvegsverndar og líffræðilegrar fjölbreytni

    Ísland er eitt af vistfræðilega verst förnu löndum Evrópu. Þetta sagði Þórunn W. Pétursdóttir, sviðsstjóri sjálfbærni og loftslags hjá Landgræðslunni í erindi sem hún hélt á umhverfisþingi í dag.

    27. apr. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Þurfum að ná 85% nýskráningarhlutfalli fyrir nýorkubíla

    Íslendingar þurfa að taka sig verulega á ætli þeir að standast skuldbindingar Parísarsamkomulagsins. Þetta sagði Sigurður Ingi Friðleifsson, framkvæmdastjóri Orkuseturs, í erindi sínu Orkuskipti í samgöngum – á ferð til framtíðar á Umhverfisþingi í dag.

    27. apr. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Dagur umhverfisins

    Viðurkenningar veittar fyrir umhverfismál

    Umhverfis- og auðlindaráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, veitti Íslandsbanka í dag Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á síðasta ári. Við sama tækifæri voru nemendur í Foldaskóla, Öldutúnsskóla og Húsaskóla útnefndir Varðliðar umhverfisins.

    27. apr. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Umhverfisþing hafið - bein útsending

    Útsending frá Umhverfisþingi hófst kl. 13 í dag. Mikill áhugi er á þinginu, sem að þessu sinni er haldið rafrænt, og voru í gær um 400 manns búin að skrá sig.

    26. apr. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Ísland stígur frekari skref varðandi F-gös

    Aðild Íslands að svonefndri Kigali-breytingu við Montréal-bókunina tók gildi í gær, 25. apríl. Breytingin snýst um að fasa út flúoröðuðum gróðurhúsalofttegundum (F-gösum).

    26. apr. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Umhverfisþing haldið á morgun

    Umtalsverður áhugi er á Umhverfisþingi sem haldið er á morgun og hafa nú á fjórða hundrað manns tilkynnt um þátttöku sína, en vegna kórónuveirufaraldursins fer þingið fram rafrænt.

    23. apr. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Aðlögun að loftslagsbreytingum í brennidepli ráðherrafundar

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, gerði vinnu íslenskra stjórnvalda um aðlögunarstefnu vegna loftslagsbreytinga að umtalsefni á fundi umhverfisráðherra Evrópusambandsríkja og EFTA ríkja í dag.

    21. apr. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Ráðherra opnar Hornstrandastofu

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, opnaði í dag formlega Hornstrandastofu á Ísafirði. Í ljósi samkomutakmarkana ávarpaði ráðherra gesti í gegnum fjarfundarbúnað.

    19. apr. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Náttúruvernd, Dagur umhverfisins

    Umhverfisþing 27. apríl – skráning hafin

    Skráning er hafin á XII. Umhverfisþing sem haldið verður þriðjudaginn 27. apríl. Umfjöllunarefni þingsins eru náttúruvernd, loftslagsmál og hringrásarhagkerfið. Þingið fer fram rafrænt og stendur frá kl. 13 – 16.

    16. apr. 2021Umhverfi og náttúruvernd, Skipulagsmál, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Mælt fyrir heildarlögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til nýrra heildarlaga um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Með frumvarpinu er lögð til sameining á löggjöf um umhverfismat framkvæmda og löggjöf um umhverfismat áætlana.

    16. apr. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Mælt fyrir breytingum á rammaáætlun og þingsályktunartillögu um staðsetningu vindorkuvera

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, mælti á Alþingi í vikunni fyrir frumvarpi til breytinga á lögum um rammaáætlun og tillögu til þingsályktunar um staðsetningu vindorkuvera í landslagi og náttúru Íslands.

    15. apr. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Ræddu um Norðurlöndin sem fyrirmynd í að flýta fyrir orkuskiptum í samgöngum

    Stjórnvöld um allan heim gegna mikilvægu hlutverki í því að flýta fyrir nauðsynlegum orkuskiptum í samgöngum, sagði Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, í ávarpi sínu á rafrænum viðburði World Resources Institute og norrænna sendiráða í Washington í dag. Umfjöllunarefni fundarins var græn umskipti í samgöngum, leiðir Norðurlandanna að því marki og möguleikar Bandaríkjanna til þess að draga af þeim lærdóm.

    15. apr. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Frumvarp til innleiðingar á hringrásarhagkerfi lagt fram á Alþingi

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra hefur mælt fyrir frumvarpi sem felur í sér innleiðingu Evróputilskipana sem er ætlað að skapa skilyrði fyrir myndun hringrásarhagkerfis. Tilgangurinn er að ýta undir bætta endurvinnslu úrgangs, draga úr myndun hans og draga stórlega úr urðun. Frumvarpið felur í sér breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, lögum um meðhöndlun úrgangs og lögum um úrvinnslugjald.

    15. apr. 2021Loftslagsmál, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Ráðherra undirritar Bratislava yfirlýsingu

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, undirritaði í dag s.k. Bratislava yfirlýsingu er hann tók þátt í fundi Forest Europe, en fjöldi ráðherra skógarmála í Evrópu sátu fundinn. Forest Europe er samstarf ráðherra á því sviði í álfunni sem hefur það markmið að efla og samhæfa, vernd, ræktun og nýtingu skóga í Evrópu.

    14. apr. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Ráðherra mælir fyrir frumvarpi um lögfestingu markmiðs um kolefnishlutleysi

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis og auðlindaráðherra, mælti á Alþingi í gær fyrir frumvarpi til laga sem festir í lög markmið um að Ísland nái kolefnishlutleysi árið 2040.

    14. apr. 2021Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Skipulagsmál, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Áhersla á loftslag, landslag og lýðheilsu í þingsályktunartillögu ráðherra

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis og auðlindaráðherra, mælti á Alþingi í gær fyrir þingsályktunartillögu um endurskoðaða landsskipulagsstefnu 2015-2026.

    13. apr. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Evrópusamvinna, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, LIFE

    Ísland tekur þátt í LIFE-áætlun Evrópusambandsins

    Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að taka þátt í LIFE-áætlun Evrópusambandsins (ESB). LIFE er ein af samstarfsáætlunum ESB sem hefur fjármagnað verkefni á sviði loftslags- og umhverfismála frá árinu 1992. Ísland hefur ekki verið aðili að áætluninni til þessa.

    30. mar. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Umsóknafrestur vegna styrkja til fráveituframkvæmda framlengdur

    Frestur fyrir sveitarfélög til að skila inn umsóknum um styrki til fráveituframkvæmda hefur verið framlengdur til 15. apríl. Skila skal inn umsóknum á rafrænu formi á eyðublaðavef Stjórnarráðsins.

    29. mar. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Uppfærður viðauki við úrgangsforvarnir birtur

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur birt uppfærslu á viðauka við stefnuna Saman gegn sóun – almenn stefna um úrgangsforvarnir 2016–2027.

    26. mar. 2021Atvinnuvegir, Líf og heilsa, Umhverfi og náttúruvernd, Ferðaþjónusta, Náttúruvernd, Almannaöryggi, Atvinnuvegaráðuneytið

    Framkvæmdir fjármagnaðar vegna ferðamanna við gosstöðvar á Reykjanesi

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur ákveðið að Framkvæmdasjóður ferðamannastaða leggi allt að 10 milljónir kr til að bæta aðgengi fyrir þá sem vilja skoða jarðeldana á Reykjanesi.

    25. mar. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Breyting á reglugerð um verndun vatnasviðs og lífríkis Þingvallavatns í samráðsgátt

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur sett til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda drög að reglugerð um framkvæmd verndunar vatnasviðs og lífríkis Þingvallavatns.

    24. mar. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Loftslagssjóður úthlutar 170 milljónum króna til 24 verkefna

    Loftslagssjóður hefur úthlutað 170 milljónum króna til 24 verkefna. Alls hlutu 12 nýsköpunarverkefni og 12 kynningar- og fræðsluverkefni styrk að þessu sinni. Hlutverk Loftslagssjóðs er að styðja við nýsköpunarverkefni á sviði loftslagsmála og verkefni sem lúta að kynningu og fræðslu um áhrif loftslagsbreytinga.

    23. mar. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Friðlýsingar, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Ráðherra stækkar friðlýst svæði við Varmárósa

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, skrifaði í dag undir stækkun á friðlandinu við Varmárósa í Mosfellsbæ.

    23. mar. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Landbúnaður, Framkvæmd búvörusamninga, Atvinnuvegir

    Sigurborg stýrir verkefni um endurskoðun reglna og stjórnsýslu um dýrasjúkdóma

    Sigurborg Daðadóttir, yfirdýralæknir, hefur verið ráðin tímabundið til starfa í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Hún mun taka að sér endurskoðun á regluverki og stjórnsýslu um dýrasjúkdóma.

    19. mar. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Friðlýsingar, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Geysir og Kerlingarfjöll friðlýst gegn orkuvinnslu

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, undirritaði í dag friðlýsingu Geysis og Kerlingarfjalla gegn orkuvinnslu í samræmi við lög um verndar- og orkunýtingaráætlun (rammaáætlun). Um er að ræða tvær friðlýsingar háhitasvæða í verndarflokki rammaáætlunar. Innan þeirra eru fimm orkukostir sem Alþingi ákvað árið 2013 að myndu fara í verndarflokk.

    18. mar. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Opnað á umsóknir um styrki til að efla hringrásarhagkerfið

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum lögaðila, þ.m.t. sveitarfélaga, um styrki til verkefna sem stuðla að eflingu hringrásarhagkerfis á Íslandi.

    10. mar. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Almenningur, hagaðilar og fræðasamfélag taki þátt í að móta leiðina að kolefnishlutleysi

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur falið Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands að hefja samráð vegna viðamikils verkefnis stjórnvalda um að ná kolefnishlutleysi á Íslandi 2040. Verkefnið ber heitið; Í átt að kolefnishlutleysi og felur í sér að almenningur, hagsmunaaðilar og fræðasamfélagið muni ræða hvernig kolefnishlutlaust Ísland geti litið út og leiðir að því markmiði. Hluta verkefnisins er hleypt af stokkunum nú, með símakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands stýrir.

    09. mar. 2021Umhverfi og náttúruvernd, Ferðaþjónusta, Friðlýsingar, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Rúmum 1,5 milljarði veitt til innviða og náttúruverndar á ferðamannastöðum

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, gerðu í dag grein fyrir úthlutun fjármuna til uppbyggingu innviða, náttúruverndar og annarra verkefna á ferðamannastöðum árið 2021. Samtals er nú úthlutað 764 milljónum króna úr Landsáætlun um uppbyggingu innviða og 807 milljónum úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða sem gerir kleift að halda áfram því mikilvæga verkefni að byggja upp innviði á ferðamannastöðum.

    09. mar. 2021Atvinnuvegir, Umhverfi og náttúruvernd, Byggðamál, Covid-19, Ferðaþjónusta, Landgræðsla og skógrækt, Atvinnuvegaráðuneytið

    Kynningarfundur í dag: Ráðherrar kynna úthlutun ársins úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða og Landsáætlun um uppbyggingu innviða

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar, og nýsköpunarráðherra og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra munu kynna úthlutun ársins 2021 úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða og Landsáætlun um uppbyggingu innviða á sameiginlegum fundi á morgun þriðjudag, 9. mars. Kynningin hefst kl. 13:30 og verður haldin í Norræna húsinu.

    05. mar. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Reglugerð um meðferð plöntuverndarvara og útrýmingarefna til kynningar í samráðsgátt

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur sett til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda drög að reglugerð um meðferð plöntuverndarvara og útrýmingarefna. Reglugerðin tekur við af reglugerð um meðferð varnarefna, sem innleiðir tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins um aðgerðarramma Evrópusambandsins til að ná fram sjálfbærri notkun varnarefna.

    05. mar. 2021Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Skipulagsmál, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Áhersla á loftslag, landslag og lýðheilsu í nýrri tillögu Skipulagsstofnunar

    Ásdís Hlökk Theódórsdóttir, forstjóri Skipulagsstofnunar, afhenti í dag Guðmundi Inga Guðbrandssyni, umhverfis- og auðlindaráðherra, tillögu stofnunarinnar að viðauka við Landsskipulagsstefnu 2015–2026.

    04. mar. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Umhverfisþing haldið 27. apríl

    Umhverfis- og auðlindaráðherra boðar til XII. Umhverfisþings þriðjudaginn 27. apríl 2021. Í ljósi samkomutakmarkana vegna Covid-19 faraldursins fer þingið fram með rafrænum hætti.

    03. mar. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Yfir hundrað milljónum króna úthlutað í styrki til fjölbreyttra umhverfisverkefna

    Árlega veitir umhverfis- og auðlindaráðuneytið styrki til umhverfisverkefna og reksturs félagasamtaka sem starfa að umhverfismálum á grundvelli umsókna

    02. mar. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Ráðherra friðlýsir Látrabjarg

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, skrifaði í dag undir friðlýsingu Látrabjargs. Viðstaddir undirskriftina voru fulltrúar Bjargtanga, félags land- og sumarhúsaeigenda á Hvallátrum við Látrabjarg, sem friðlýsingin hefur verið unnin í nánu samstarfi við.

    24. feb. 2021Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Kanna kosti þess að koma Svæðisgarði Snæfellsness á lista UNESCO

    Skoðað verður hvort landsvæði Svæðisgarðsins á Snæfellsnesi verði tilnefnt á skrá Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO). Umhverfis- og auðlindaráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, og formaður stjórnar Svæðisgarðsins á Snæfellsnesi, Björg Ágústsdóttir, undirrituðu í dag samkomulag í gestastofu Snæfellsness á Breiðabliki um forathugun á slíkri tilnefningu.

    24. feb. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Dagur umhverfisins, Umhverfi og náttúruvernd

    Óskað eftir tilnefningum til Kuðungsins

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnun, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári eru þess verðug að hljóta umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn fyrir árið 2020. Kuðungurinn verður afhentur í tengslum við Dag umhverfisins.

    23. feb. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Ráðherra hvetur til alþjóðasamnings um plast í hafi

    Brýnt er að ná alþjóðlegu samkomulagi um aðgerðir gegn plastmengun í hafi. Norðurlöndin hafa gert leiðarvísi um mögulegt efni slíks samnings, sem gæti nýst ríkjum heims sem leiðsögn í umfjöllun Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNEP) um aðgerðir til að koma böndum á plastmengun.

    18. feb. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Menntamál

    Kallað eftir nemendaverkefnum fyrir Varðliða umhverfisins

    Varðliðar umhverfisins, verkefnasamkeppni grunnskólabarna í 5. til 10 bekk er nú hafin í 14. sinn. Samkeppninni er ætlað að hvetja börn og unglinga til góðra verka í umhverfisvernd, vekja athygli á sýn þeirra á umhverfismál og kalla eftir leiðsögn yngri kynslóðarinnar á því sviði.

    17. feb. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Endurvinnsla glers í forgangi í frumvarpi ráðherra

    Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til breytinga á lögum um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota drykkjarvöruumbúða. Verði frumvarpið að lögum felur það í sér að hægt verður að hefja endurvinnslu á einnota glerumbúðum á þessu ári.

    16. feb. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Kvískerjasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki

    Kvískerjasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2021. Horft verður sérstaklega til umsókna sem tengjast störfum og áhugasviði Kvískerjasystkina.

    10. feb. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Frumvarp um markmið um kolefnishlutleysi í samráðsgátt

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur sett til kynningar í Samráðsgátt drög að frumvarpi sem ætlað er að festa í lög markmið um að ná kolefnishlutleysi Íslands árið 2040. Frumvarpið felur í sér breytingu á lögum um loftslagsmál og er í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar frá árinu 2017

    • First
    • Prev
    • 24
    • 25
    • 26
    • 27
    • 28
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband