Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1451–1500 af 3887
    Raða eftir:
    31. ágú. 2021Rit og skýrslur, Sveitarstjórnir og byggðamál, Byggðamál, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Störf án staðsetningar - staða og framtíðarhorfur

    Skýrsla um stöðu og framtíðarhorfur verkefnisins Störf án staðsetningar, gefin út á vegum fjármála- og efnahagsráðuneytis, forsætisráðuneytis og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis.

    29. ágú. 2021Forsætisráðuneytið

    Afmælisgjöf til menningarhússins Hofs

    Ríkisstjórn Íslands og Akureyrarbær tilkynntu í dag um sameiginlega gjöf til menningarhússins Hofs á Akureyri en haldið var upp á fyrsta áratug starfseminnar þar í dag.

    27. ágú. 2021Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra undirritar viðbótarsamning við Stígamót

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Guðrún Gísladóttir, fyrir hönd Stígamóta, undirrituðu samstarfssamning í Stjórnarráðinu í dag.

    26. ágú. 2021Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Tilslakanir og aðferðafræði temprunar ákveðin á fundi ríkisstjórnar

    Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögur sóttvarnalæknis um tilslakanir frá núgildandi reglum sem voru ræddar á fundi ríkisstjórnar í morgun. Lagt er til að þær taki gildi þann 28. ágúst eða á laugardag og fela þær í sér full afköst í sundlaugum og líkamsrækt í stað 75% eins og verið hefur, iðkendum verði fjölgað í 200 manns á íþróttaæfingum og -keppnum og sviðslistum, eins metra regla falli niður meðal áhorfenda á sitjandi viðburðum, veitingasala heimiluð í hléum og leyfilegur hámarksfjöldi gesta á veitingastöðum fari úr 100 í 200 í rými.

    25. ágú. 2021Forsætisráðuneytið

    Umsækjendur um embætti skrifstofustjóra á skrifstofu stefnumála

    Alls bárust 22 umsóknir um embætti skrifstofustjóra á skrifstofu stefnumála í forsætisráðuneytinu.

    24. ágú. 2021Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Ríkisstjórnin samþykkir tillögur flóttamannanefndar

    Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu forsætisráðherra, félags- og barnamálaráðherra, dómsmálaráðherra og utanríkisráðherra um að fallast á tillögur flóttamannanefndar vegna þess ófremdarástands sem hefur skapast í Afganistan í kjölfar valdatöku talibana.

    23. ágú. 2021Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Ítarlegri greining á stöðu eldri borgara í Tekjusögunni

    Vefurinn tekjusagan.is hefur verið uppfærður með nýjum gögnum. Í vetur óskaði Félag eldri borgara eftir viðbótum við Tekjusöguna - gagnagrunni stjórnvalda um kjör landsmanna - til að sýna betur fram á hvernig kjör eldri borgara hefðu þróast.

    20. ágú. 2021Forsætisráðuneytið, Heimsmarkmiðin, Utanríkisráðuneytið

    Ríkisstjórnin fundar með Ungmennaráði heimsmarkmiðanna

    Ríkisstjórnin átti í dag fund með Ungmennaráði heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Á fundinum kynntu fulltrúar ungmennaráðsins fyrir ríkisstjórn tillögur sínar að framgangi heimsmarkmiðanna hér á landi. Um er að ræða 40 tillögur á sviði menntamála, heilbrigðismála og umhverfismála. Í framhaldinu áttu ráðherrar samtal við ungmennaráðið um tillögurnar og sýn ungmennanna á verkefnið framundan.

    19. ágú. 2021Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

    Samræmd skipting stjórnsýslunnar

    ágúst 2021 / Forsætisráðuneytið Samræmd skipting stjórnsýslunnar Skýrsla starfshóps um samræmda skiptingu stjórnsýslunnar

    18. ágú. 2021Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra tók við yfirlýsingu kvennasamtaka um að uppræta verði ofbeldi gegn konum og stúlkum

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók í dag á móti yfirlýsingu um að uppræta verði kynbundið og kynferðislegt ofbeldi gegn konum og stúlkum. Yfirlýsingin var afhent forsætisráðherra með rafrænum hætti að loknum heimsfundi kvennasamtaka og aðgerðarsinna sem berjast gegn kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi.

    18. ágú. 2021Forsætisráðuneytið

    Skýrsla um samræmda skiptingu stjórnsýslunnar

    Starfshópur um samræmda skiptingu stjórnsýslunnar hefur skilað forsætisráðherra skýrslu sinni. Verkefni hópsins sem var skipaður síðastliðinn vetur var að fara yfir möguleika þess að samræma skiptingu stjórnsýslunnar í umdæmi í þeim tilgangi að bæta yfirsýn og samanburð á ýmsum þáttum íslensks samfélags.

    17. ágú. 2021Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpaði World Pride Í Kaupmannahöfn

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ávarpaði fund World Pride með norrænum jafnréttisráðherrum í Kaupmannahöfn í gær. Á fundinum var sjónum beint að velferð unga fólksins í hinsegin samfélaginu og mikilvægi þess að Norðurlöndin snúi bökum saman þegar kemur að því styrkja stöðu og réttindi hinsegin fólks.

    16. ágú. 2021Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra opnar ráðstefnu gegn kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi í Hörpu

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti í dag opnunarávarp á Reykjavík Dialogue í Hörpu, viðburði sem helgaður er baráttunni gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi. Annars vegar er um að ræða alþjóðlega ráðstefnu 16.-17. ágúst og hins vegar heimsfund aðgerðasinna og kvennasamtaka 17.-18. ágúst.

    12. ágú. 2021Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Ráðstefna og heimsfundur kvennasamtaka í Hörpu 16.-18. ágúst

    Reykjavík Dialogue hefst í Hörpu 16. ágúst nk. og stendur til 18. ágúst. Viðburðurinn er helgaður baráttunni gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi. Annars vegar er um að ræða alþjóðlega ráðstefnu frá 16.-17. ágúst og hins vegar heimsfund aðgerðasinna og kvennasamtaka frá 17.-18. ágúst.

    11. ágú. 2021Forsætisráðuneytið

    Ríkisstjórnin fundaði með sveitarstjórnarfólki á Suðurnesjum

    Sumarfundur ríkisstjórnarinnar var haldinn á Suðurnesjum í gær. Auk hefðbundins ríkisstjórnarfundar og vinnufundar hitti ríkisstjórnin fulltrúa fjögurra sveitarfélaga á svæðinu.

    10. ágú. 2021Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Kynntu aðgerðir til að efla skapandi greinar

    Sett verður á fót sérstakt markaðsráð Skapandi Íslands, Listaháskólinn fer í nýtt húsnæði, stofnað verður rannsóknarsetur skapandi greina við Bifröst, Hagstofan mun birta menningarvísa og ritað hefur verið undir samning stjórnvalda og Listaháskólans um kvikmyndanám. Ríkisstjórnin kynnti í dag 5 aðgerðir úr aðgerðaáætlun sinni til eflingar skapandi greina.

    10. ágú. 2021Forsætisráðuneytið

    73% aðgerða lokið

    Tekist hefur að ljúka 138 aðgerðum af 189 í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar á kjörtímabilinu eða um ¾ af þeim aðgerðum sem lágu fyrir að ráðist yrði í á fyrsta fundi ríkisstjórnarinnar þann 1. desember 2017.

    09. ágú. 2021Forsætisráðuneytið

    Sumarfundur ríkisstjórnarinnar á Suðurnesjum

    Ríkisstjórnarfundur verður haldinn í Salthúsinu í Grindavík á morgun, þriðjudaginn 10. ágúst kl. 10. Ríkisstjórnin mun einnig eiga þar fund með fulltrúum sveitarfélaga innan sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.

    06. ágú. 2021Covid-19, Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Bólusettir farþegar með tengsl við Ísland fari í sýnatöku

    Bólusettir farþegar með tengsl við Ísland þurfa frá og með 16. ágúst að fara í sýnatöku innan 48 klukkustunda frá komu til landsins. Þetta var ákveðið á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun.

    04. ágú. 2021Forsætisráðuneytið

    Ríkisráðsfundur á Bessastöðum

    Ríkisráð Íslands hefur verið kvatt saman til reglulegs fundar á Bessastöðum á morgun, fimmtudaginn 5. ágúst, kl. 11.00.

    27. júl. 2021Forsætisráðuneytið

    Ríkisstjórnin styrkir Norræna félagið á Íslandi

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita Norræna félaginu á Íslandi 5 milljóna króna styrk í tilefni 100 ára afmælis félagsins á næsta ári.

    27. júl. 2021Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpaði ráðstefnu SÞ um matvælaframleiðslu

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti í gær ávarp á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um matvælaframleiðslu í heiminum. Ráðstefnan, sem fram fer í Róm og á netinu, er undirbúningur fyrir Matvælaráðstefnu SÞ, Food System Summit, sem haldin verður í september.

    20. júl. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1032/2021. Úrskurður frá 7. júlí 2021.

    A blaðamaður, kærði synjun forsætisráðuneytisins á beiðni hans um aðgang að öllum gögnum varðandi samkvæmi, móttökur, veislur og aðra slíka viðburði sem verið hafi á vegum ráðuneytisins eða ráðherra á tilteknu tímabili. Ráðuneytið synjaði beiðninni ýmist þar sem hluti gagnanna var ekki fyrirliggjandi eða þegar aðgengilegar á vefsvæðinu opnirreikningar.is. Úrskurðarnefndin taldi ekki forsendur til að rengja þær staðhæfingar ráðuneytisins. Þá vísaði ráðuneytið til þess að beiðni kæranda væri of víðtæk til að unnt væri að afmarka hana við umbeðin gögn og leiðbeindi ráðuneytið því kæranda um að afmarka beiðni sína nánar sem hann hafi ekki gert. Úrskurðarnefndin taldi beiðnina ekki uppfylla skilyrði 1. mgr. 15. gr. upplýsingalaga og vísaði kærunni frá.

    20. júl. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1031/2021. Úrskurður frá 7. júlí 2021.

    A blaðamaður, kærði synjun dómsmálaráðuneytisins á beiðni hans um aðgang að öllum gögnum varðandi samkvæmi, móttökur, veislur og aðra slíka viðburði sem verið hafi á vegum ráðuneytisins eða ráðherra á tilteknu tímabili. Ráðuneytið synjaði beiðninni ýmist þar sem hluti gagnanna var ekki fyrirliggjandi eða þegar aðgengilegar á vefsvæðinu opnirreikningar.is. Úrskurðarnefndin taldi ekki forsendur til að rengja þær staðhæfingar ráðuneytisins. Þá vísaði ráðuneytið til þess að beiðni kæranda væri of víðtæk til að unnt væri að afmarka hana við umbeðin gögn og leiðbeindi ráðuneytið því kæranda um að afmarka beiðni sína nánar sem hann hafi ekki gert. Úrskurðarnefndin taldi beiðnina ekki uppfylla skilyrði 1. mgr. 15. gr. upplýsingalaga og vísaði kærunni frá.

    20. júl. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1030/2021. Úrskurður frá 7. júlí 2021.

    A blaðamaður, kærði synjun fjármála- og efnahagsráðuneytisins á beiðni hans um aðgang að öllum gögnum varðandi samkvæmi, móttökur, veislur og aðra slíka viðburði sem verið hafi á vegum ráðuneytisins eða ráðherra á tilteknu tímabili. Ráðuneytið synjaði beiðninni ýmist þar sem hluti gagnanna var ekki fyrirliggjandi eða þegar aðgengilegar á vefsvæðinu opnirreikningar.is. Úrskurðarnefndin taldi ekki forsendur til að rengja þær staðhæfingar ráðuneytisins. Þá vísaði ráðuneytið til þess að beiðni kæranda væri of víðtæk til að unnt væri að afmarka hana við umbeðin gögn og leiðbeindi ráðuneytið því kæranda um að afmarka beiðni sína nánar sem hann hafi ekki gert. Úrskurðarnefndin taldi beiðnina ekki uppfylla skilyrði 1. mgr. 15. gr. upplýsingalaga og vísaði kærunni frá.

    20. júl. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1029/2021. Úrskurður frá 7. júlí 2021.

    A blaðamaður, kærði synjun félagsmálaráðuneytisins á beiðni hans um aðgang að öllum gögnum varðandi samkvæmi, móttökur, veislur og aðra slíka viðburði sem verið hafi á vegum ráðuneytisins eða ráðherra á tilteknu tímabili. Ráðuneytið synjaði beiðninni ýmist þar sem hluti gagnanna var ekki fyrirliggjandi eða þegar aðgengilegar á vefsvæðinu opnirreikningar.is. Úrskurðarnefndin taldi ekki forsendur til að rengja þær staðhæfingar ráðuneytisins. Þá vísaði ráðuneytið til þess að beiðni kæranda væri of víðtæk til að unnt væri að afmarka hana við umbeðin gögn og leiðbeindi ráðuneytið því kæranda um að afmarka beiðni sína nánar sem hann hafi ekki gert. Úrskurðarnefndin taldi beiðnina ekki uppfylla skilyrði 1. mgr. 15. gr. upplýsingalaga og vísaði kærunni frá.

    20. júl. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1028/2021. Úrskurður frá 7. júlí 2021.

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að skýrslu KPMG ehf. til sveitarstjórnar Borgarbyggðar um skoðun á innra eftirliti og fjárhagskerfi. Synjun sveitarfélagsins var byggð á því að skýrslan teldist vinnuskjal í skilningi 8. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin taldi skjalið ekki uppfylla skilyrði upplýsingalaga fyrir því að teljast vinnugagn enda unnið af utanaðkomandi fyrirtæki og lagði fyrir sveitarfélagið að veita kæranda aðgang að gögnunum.

    20. júl. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1027/2021. Úrskurður frá 7. júlí 2021.

    Deilt var um afgreiðslu Framkvæmdasýslu ríkisins á beiðni um aðgang að gögnum. Kærandi sem hafði fengið afhent ýmis gögn taldi enn vanta tiltekið minnisblað. Framkvæmdasýsla ríkisins tók fram að umrætt minnisblað væri ekki fyrirliggjandi hjá stofnuninni og leiðbeindi jafnframt kæranda um hvar það ætti að liggja fyrir. Að mati nefndarinnar var þannig ekki um að ræða synjun um aðgang að fyrirliggjandi gögnum, sbr. 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga, og var málinu vísað frá.

    20. júl. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1026/2021. Úrskurður frá 28. júní 2021.

    A blaðamaður, kærði synjun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins á beiðni hans um aðgang að öllum gögnum varðandi samkvæmi, móttökur, veislur og aðra slíka viðburði sem verið hafi á vegum ráðuneytisins eða ráðherra á tilteknu tímabili. Ráðuneytið synjaði beiðninni ýmist þar sem hluti gagnanna var ekki fyrirliggjandi eða þegar aðgengilegar á vefsvæðinu opnirreikningar.is. Úrskurðarnefndin taldi ekki forsendur til að rengja þær staðhæfingar ráðuneytisins. Þá vísaði ráðuneytið til þess að beiðni kæranda væri of víðtæk til að unnt væri að afmarka hana við umbeðin gögn og leiðbeindi ráðuneytið því kæranda um að afmarka beiðni sína nánar sem hann hafi ekki gert. Úrskurðarnefndin taldi beiðnina ekki uppfylla skilyrði 1. mgr. 15. gr. upplýsingalaga og vísaði kærunni frá.

    20. júl. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1025/2021. Úrskurður frá 28. júní 2021.

    Kærð var afgreiðsla embættis ríkislögmanns á beiðni kæranda um aðgang að samningum sem embættið hefur gert vegna krafna um greiðslu skaða- og/eða miskabóta á nánar tilgreindum tímabilum.. Embætti ríkislögmanns taldi beiðni kæranda útheimta svo umfangsmikla vinnu að heimilt væri að synja beiðninni með vísan til 1. tölul. 4. mgr. 15. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin taldi embættið ekki hafa rökstutt nægilega að undantekningarregla 1. tölul. 4. mgr. 15. gr. upplýsingalaga ætti við í málinu. Ákvörðunin var því felld úr gildi og lagt fyrir embættið að taka beiðni kæranda til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.

    20. júl. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1024/2021. Úrskurður frá 28. júní 2021.

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að rótargreiningu vegna atviks sem átti sér stað á Sjúkrahúsinu á Akureyri í ágúst 2018. Synjun sjúkrahússins var reist á því að um vinnugögn væri að ræða. Á það féllst úrskurðarnefndin ekki enda lá fyrir að rótargreiningin hafði verið kynnt utanaðkomandi sérfræðingi. Úrskurðarnefndin taldi því sjúkrahúsinu skylt að verða við beiðni kæranda um aðgang að umbeðnum gögnum.

    20. júl. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1023/2021. Úrskurður frá 28. júní 2021.

    Deilt var um afgreiðslu Kópavogsbæjar á beiðni um aðgang að gögnum í tengslum við skipulagsvinnu. Í málinu lá fyrir að Kópavogsbær hafði leiðbeint kæranda um það hvar gögnin væri að finna auk þess sem sveitarfélagið tók sömu gögn saman fyrir kæranda og afhenti honum. Að mati úrskurðarnefndarinnar hafði kæranda ekki verið synjað um aðgang að gögnum frá sveitarfélaginu í skilningi upplýsingalaga og var kærunni því vísað frá.

    20. júl. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1022/2021. Úrskurður frá 28. júní 2021.

    A fréttamaður, kærði synjun heilbrigðisráðuneytisins á beiðni hans um aðgang að gögnum. Ráðuneytið tók fram að öll fyrirliggjandi gögn hefðu verið afhent að undanskildu minnisblaði, sem ekki hefði fallið undir gagnabeiðni kæranda auk þess sem það væri undanþegið upplýsingarétti almennings sbr. 1. tölul. 6. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin taldi að ekki væru forsendur til að rengja framangreinda staðhæfingu ráðuneytisins og vísaði kærunni frá.

    19. júl. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1021/2021. Úrskurður frá 28. júní 2021.

    Deilt var um synjun skattrannsóknarstjóra á beiðni A, fréttamanns, um aðgang að öllum ársreikningum erlendra félaga sem embættið hefði undir höndum og tengdust S ehf. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál komst að þeirri niðurstöðu að umbeðin gögn lytu að rannsókn sakamáls í skilningi 1. mgr. 4. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 að teknu tilliti til hlutverks skattrannsóknarstjóra samkvæmt lögum. Kæru var því vísað frá úrskurðarnefndinni.

    19. júl. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1020/2021. Úrskurður frá 28. júní 2021.

    A fréttamaður, kærði afgreiðslu ríkisskattstjóra á beiðni hans um aðgang að gögnum um skráningu raunverulegra eigenda. Úrskurðarnefndin taldi ríkisskattstjóra skylt að verða við beiðni kæranda um afhendingu umbeðinna gagna á því formi sem þau væru varðveitt hjá embættinu í samræmi við fyrirmæli 1. mgr. 18. gr. upplýsingalaga og lagði fyrir embættið að afhenda umbeðin gögn á rafrænu formi. Þá felldi nefndin ákvörðun ríkisskattstjóra um að strika yfir upplýsingar um nafnverð hlutafjár í eigu lögaðila úr gildi og vísaði til nýrrar meðferðar. Að öðru leyti var ákvörðun ríkisskattstjóra staðfest.

    06. júl. 2021Forsætisráðuneytið

    Ísland tekur þátt í alþjóðlegri könnun OECD um traust

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu forsætisráðherra um þátttöku Íslands í alþjóðlegri könnun um traust á vegum Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD.

    06. júl. 2021Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

    Ársskýrsla forsætisráðherra fyrir 2020

    júlí 2021 / Forsætisráðuneytið Ársskýrsla forsætisráðherra fyrir 2020 Ársskýrsla forsætisráðherra fyrir 2020

    05. júl. 2021Forsætisráðuneytið, Stjórnarráðið, Dómsmálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ársskýrslur ráðherra birtar

    Ársskýrslur ráðherra fyrir árið 2020 eru komnar út. Markmiðið með skýrslunum sem koma nú út í fjórða sinn er að auka gagnsæi um ráðstöfun og nýtingu fjármuna en þeim er einnig ætlað að vera grundvöllur fyrir umræðu um stefnumörkun og forgangsröðun hins opinbera.

    03. júl. 2021Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpaði Oddahátíð

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tengdi saman sögu og tilurð kirkjustaðarins Odda sem hluta af menningarsögulegu og sameiginlegu minni Íslendinga við samfélagsmiðla nútímans í erindi sem hún flutti á 30 ára afmælishátíð Oddafélagsins á Rangárvöllum í dag.

    03. júl. 2021Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra undirritar þrjá samninga í tengslum við átaksverkefnið Kynslóð jafnréttis

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir talskona Stígamóta, Þorbjörg Inga Jónsdóttir, f.h. stjórnar Bjarmahlíðar, og Elín G. Einarsdóttir, f.h. stjórnar Bjarkarhlíðar, undirrituðu þrjá samninga í Stjórnarráðinu í gær.

    02. júl. 2021Forsætisráðuneytið

    Ræddu mannréttindi í Belarús

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fundaði með Sviatlönu Tsikhanouskaya, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Belarús í dag og ræddu þær stuðning Íslands við málstað umbótahreyfinga þar í landi.

    02. júl. 2021Forsætisráðuneytið

    Umboðsmaður barna afhendir forsætisráðherra ársskýrslu embættisins fyrir 2020

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Salvör Nordal, umboðsmaður barna, funduðu í Stjórnarráðinu​í dag þar sem umboðsmaður barna kynnti ársskýrslu embættisins fyrir árið 2020 fyrir forsætisráðherra.

    01. júl. 2021Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra kynnir skuldbindingar Íslands í Kynslóð jafnréttis

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kynnti skuldbindingar íslenskra stjórnvalda í átaksverkefni UN Women Kynslóð jafnréttis á ráðstefnu franskra stjórnvalda í París í dag.

    01. júl. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1019/2021. Úrskurður frá 14. júní 2021.

    Deilt var um afgreiðslu Skipulagsstofnunar á beiðni kæranda um afhendingu allra gagna í máli er varðaði umsókn kæranda um að hljóta skráningu á lista yfir þá sem heimilt er að sinna gerð skipulagsáætlana. Úrskurðarnefndin taldi kæranda sem umsækjanda um að hljóta skráningu á umræddan lista aðila stjórnsýslumáls í skilningi stjórnsýslulaga og átti því rétt til aðgangs að gögnum í málinu á grundvelli ákvæða IV. kafla stjórnsýslulaga. Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. upplýsingalaga gilda lögin ekki um aðgang að upplýsingum samkvæmt stjórnsýslulögum og var kæru af þeim sökum vísað frá nefndinni.

    01. júl. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1018/2021. Úrskurður frá 14. júní 2021.

    Kærðar voru tafir á afgreiðslu Kópavogsbæjar á beiðni um gögn varðandi ráðningu í starf. Kærandi var meðal umsækjanda um starfið og átti því rétt til aðgangs að gögnum í málinu á grundvelli 15. gr. stjórnsýslulaga. Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. upplýsingalaga gilda lögin ekki um aðgang að upplýsingum samkvæmt stjórnsýslulögum og var kæru af þeim sökum vísað frá nefndinni.

    01. júl. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1017/2021. Úrskurður frá 14. júní 2021.

    Deilt var um afgreiðslu embættis landlæknis á beiðni kæranda, A fréttamanns, um aðgang að samningum um bóluefni vegna Covid-19 og fundargerðum. Synjun landlæknis var reist á því að umrædd gögn væru ekki fyrirliggjandi hjá embættinu. Úrskurðarnefndin taldi að ekki væru forsendur til að rengja framangreinda staðhæfingu embættisins. Ákvörðun embættis landlæknis, um að synja beiðni kæranda um aðgang að samningi um Moderna bóluefnið var hins vegar felld úr gildi og lagt fyrir embættið að taka beiðnina til nýrrar meðferðar þar sem fyrir lá að sóttvarnarlæknir hafði fengið samninginn sendan. Kærunni var vísað frá að öðru leyti.

    01. júl. 2021Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra fundaði með forseta Frakklands í París

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra átti í dag fund með Emmanuel Macron, forseta Frakklands, en síðast fór slíkur fundur fram árið 1999.

    30. jún. 2021Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherrar Íslands og Finnlands funduðu í París

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra átti í dag fund með Sönnu Marin, forsætisráðherra Finnlands, en þær eru staddar í París á ráðstefnu á vegum franskra stjórnvalda um verkefnið Kynslóð jafnréttis.

    30. jún. 2021Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Forsætisráðherra á opnun Kynslóðar jafnréttis

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra verður viðstödd opnunarviðburð ráðstefnu franskra stjórnvalda um átaksverkefnið Kynslóð jafnréttis (Generation Equality Forum), í París Frakklandi í dag. Ísland er eitt forysturíkja verkefnisins og veitir aðgerðabandalagi um aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi forystu ásamt Bretlandi, Kenía og Úrúgvæ. Frönsk og mexíkósk stjórnvöld fara ásamt stofnun Sameinuðu þjóðanna um kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna, UN Women, með yfirstjórn verkefnisins.

    29. jún. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1016/2021. Úrskurður frá 26. maí 2021.

    Deilt var um afgreiðslu kærunefndar útlendingamála á beiðni kæranda um aðgang að úrskurðum kærunefndarinnar í málum er varða flóttabörn. Kærunefndin taldi ljóst að beiðni kæranda hafi verið reist á 33. gr. upplýsingalaga og að samkvæmt 2. mgr. 20. gr. laganna sæti slíkar ákvarðanir ekki endurskoðunar úrskurðarnefndarinnar um upplýsingamál og því bæri að vísa kærunni frá. Úrskurðarnefndin taldi ljóst að stjórnvaldi sé almennt ekki heimilt að synja beiðni um upplýsingar eingöngu á grundvelli 33. gr. upplýsingalaga án þess að taka fyrst afstöðu til beiðninnar á grundvelli meginreglu 1. mgr. 5. gr. laganna nema fyrir liggi með skýrum hætti að þær upplýsingar sem farið er fram á séu undirorpnar takmörkunum samkvæmt upplýsingalögum.…

    • First
    • Prev
    • 28
    • 29
    • 30
    • 31
    • 32
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband