13. mar. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Fiskeldi, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir
Bein útsending á fimmtudagsmorgun frá málþingi um áhættumat erfðablöndunar
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, boðar til málþings um áhættumat vegna mögulegrar erfðablöndunar milli eldislaxa og náttúrulegra laxastofna á Íslandi, fimmtudaginn 14. mars kl. 9:00. Málþingið fer fram í fyrirlestrasal á 1. hæð í Sjávarútvegshúsinu að Skúlagötu 4. Bein útsending verður frá málþinginu á vef Stjórnarráðsins.