09. apr. 2026Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Drög að stefnu um opin og ábyrg vísindi í samráðsgátt
Stefnudrögin byggja á þeirri meginforsenduað þekking sem verður til í opinberlega fjármögnuðu vísindastarfi eigi að vera aðgengileg öllum. Með opinni miðlun rannsóknaniðurstaðna, -gagna og -aðferða er stuðlað að auknu gagnsæi, betri nýtingu opinbers fjár, meiri endurnýtanleika og auknum samfélagslegum ávinningi. Jafnframt er lögð rík áhersla á að opin miðlunhaldist ávallt í hendur við ábyrgð, öryggi, siðferði, persónuvernd og vernd hugverkaréttinda.