04. apr. 2019Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Formennska Íslands 2019, Norrænt samstarf, Vinnumál
Ísland fullgildir samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunar (ILO) um vinnuskilyrði farmanna
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, afhenti í dag Guy Ryder, forstjóra Alþjóðavinnumálastofnunar, skjal til staðfestingar á fullgildingu Íslands á samþykkt Alþjóðavinnumálstofnunarinnar nr. 186 um vinnuskilyrði farmanna. Guy Ryder er staddur hér á landi í tengslum við norræna ráðstefnu um framtíðarskipan vinnumála og breytingar á vinnumarkaði sem haldin er í Hörpu í tilefni af aldarafmæli Alþjóðavinnumálastofnunarinnar. Hann sat sömuleiðis fund Norrænu ráðherranefndarinnar um vinnumál í Safnahúsinu í gær.