Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1501–1550 af 3245
    Raða eftir:
    23. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Úkraína, Fastanefnd Íslands hjá S.þ., Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Ályktun um frið í Úkraínu hlaut afgerandi stuðning

    Yfirgnæfandi meirihluti aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna samþykkti í kvöld ályktun um réttlátan og viðvarandi frið í Úkraínu. Tveggja daga neyðarfundi um Úkraínu í allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna lauk nú fyrir stundu.​

    22. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Evrópusamvinna, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    EES-skýrslan rædd á Alþingi

    Framkvæmd EES-samningsins var tekin til sérstakrar umræðu á Alþingi í gær þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra mælti fyrir árlegri skýrslu um málefnið.

    21. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Orka, Úkraína, Utanríkismál

    Raforkubúnaður af ýmsu tagi til Úkraínu

    Íslensk dreifi- og veitufyrirtæki hafa sent nauðsynlegan raforkubúnað af ýmsu tagi til Úkraínu. Með sendingunni er brugðist við þörf landsins fyrir ýmsan búnað sem mun nýtast til uppbyggingar á raforkukerfinu eftir árásir rússneska hersins.

    20. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál

    Málefni Úkraínu efst á baugi á öryggisráðstefnunni í München

    Utanríkisráðherra tók þátt í árlegri ráðstefnu um öryggismál sem fór fram í München í Þýskalandi um helgina. Á ráðstefnunni koma saman ríflega eitt þúsund þátttakendur, þar á meðal fjölmargir þjóðarleiðtogar, utanríkisráðherrar og varnarmálaráðherrar ásamt fræðafólki og öðrum skoðanamótandi aðilum á sviði öryggis- og varnarmála.

    18. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Jafnrétti, Mannréttindi, Utanríkismál

    Standa með konum í Afganistan og Íran

    Frelsisskerðing kvenna og stúlkna í Afganistan var til umræðu á morgunverðarfundi kvenkyns utanríkisráðherra í dag. Fundurinn var haldinn í tengslum við Öryggisráðstefnuna í München sem fer fram um helgina og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra sækir.

    17. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Annað, Föstudagspóstur

    Föstudagspóstur 17. febrúar 2023

    febrúar 2023 / Utanríkisráðuneytið Föstudagspóstur 17. febrúar 2023 Upplýsingadeildin heilsar ykkur á þessum fagra föstudegi

    16. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Viðræður um rafræn viðskipti við Singapúr

    Singapúr og aðildarríki EFTA hafa sammælst um að hefja viðræður að samkomulagi um rafræn viðskipti. Þetta var ákveðið á fjarfundi fulltrúa EFTA-ríkjanna og Singapúr í morgun.

    15. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Úkraína, Fastanefnd Íslands hjá NATO, Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál

    Efling fælingar og varna og aukinn stuðningur við Úkraínu

    Tveggja daga fundi varnarmálaráðherra Atlantshafsbandalagsins lauk í Brussel í dag 15. febrúar. Meginefni fundarins voru stuðningur við varnarbaráttu Úkraínu og efling sameiginlegs viðbúnaðar og varna bandalagins.

    14. feb. 2023Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Sendiráð Íslands í París, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Nýtt alþjóðlegt verkefni um kortlagningu aðgerða til samdráttar í losun gróðurhúsalofttegunda á vettvangi OECD

    OECD hefur hleypt af stokkunum nýju alþjóðlegu verkefni um kortlagningu aðgerða til samdráttar í losun gróðurhúsalofttegunda (IFCMA). Ísland, sem aðildarríki OECD, tekur þátt í IFCMA í gegnum fjármála- og efnahagsráðuneytið, umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytið og fastanefnd Íslands gagnvart OECD í París.

    10. feb. 2023Annað, Brussel-vaktin, Utanríkisráðuneytið

    Framkvæmdaáætlun græna sáttmálans

    Að þessu sinni er fjallað um framkvæmdaáætlun græna sáttmálans, fund leiðtogaráðs Evrópusambandsins (ESB), reglugerð um erlenda styrki sem geta haft óæskileg áhrif á innri markað ESB Evrópska færniárið 2023, óformlega fundi samkeppnis- og viðskiptaráðherra ESB og ráðherra vísindarannsókna, verðþak á rússneskar olíuvörur, tilmæli ráðherraráðs ESB til aðildarríkjanna um lágmarksframfærslu, áherslumál ESB gagnvart Evrópuráðinu 2023-2024, frumvarp til laga um breytingu á lögum um Evrópska efnahagssvæðið og skýrslu um formennskutíð Íslands í fastanefnd EFTA á seinni hluta árs 2022.

    10. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Annað, Föstudagspóstur

    Föstudagspósturinn 10. febrúar 2023

    febrúar 2023 / Utanríkisráðuneytið Föstudagspósturinn 10. febrúar 2023 Heil og sæl

    08. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Síerra Leóne, UNICEF, Utanríkismál

    Ísland styður við vatns- og hreinlætisverkefni í Síerra Leóne

    ​Nýju samstarfsverkefni Íslands, stjórnvalda í Síerra Leóne og Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) um uppbyggingu vatns- og hreinlætisaðstöðu í sjávarbyggðum landsins var formlega hleypt af stokkunum við hátíðlega athöfn í fiskiþorpinu Goderich í dag.

    07. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Sveitin leggur af stað til Tyrklands í kvöld

    Hópur íslenskra sérfræðinga á sviði aðgerðastjórnunar í rústabjörgun á hamfarasvæðum leggur af stað til jarðskjálftasvæðanna í Tyrklandi í kvöld.

    07. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Íslenskir sérfræðingar á leið til hamfarasvæðanna í Tyrklandi

    Hópur íslenskra sérfræðinga á sviði aðgerðastjórnunar í rústabjörgun á hamfarasvæðum heldur brátt til jarðskjálftasvæðanna í Tyrklandi. Stefnt er að því að sveitin, sem starfar innan vébanda Slysavarnafélagsins Landsbjargar, fljúgi á vettvang með flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SIF.

    06. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Annað, Föstudagspóstur

    Föstudagspóstur á mánudegi, 6. febrúar 2023

    febrúar 2023 / Utanríkisráðuneytið Föstudagspóstur á mánudegi, 6. febrúar 2023 Heil og sæl, Föstudagspósturinn heilsar ykkur á fyrsta mánudegi febrúarmánaðar

    03. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Evrópuráðið, Forsætisráðuneytið

    Forseti Kósovó í heimsókn á Íslandi

    Formennska Íslands í Evrópuráðinu, tvíhliðasamskipti og staða friðarviðræðna milli Serbíu og Kósovó voru efst á baugi á fundum Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra og Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra með Vjosa Osmani, forseta Kósovó, sem fram fóru hér á landi í gær.

    01. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Brexit, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Fríverslunarsamningur við Bretland gengur formlega í gildi

    Fríverslunarsamningur Íslands og Bretlands gengur formlega í gildi í dag, 1. febrúar. Sem kunnugt er var hafist handa við gerð hans á árinu 2020 vegna útgöngu Bretlands úr ESB og þar með EES-samningnum.

    01. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Ræður og greinar

    Nálægð og traust í tvíhliða þróunarsamvinnu

    01 febrúar 2023 / Utanríkisráðuneytið Nálægð og traust í tvíhliða þróunarsamvinnu Þær áskoranir sem jarðarbúar standa frammi fyrir eru risavaxnar. Heimurinn er enn í sárum eftir kórónuveirufaraldurinn og verð á matvælum og öðrum nauðþurftum hefur hvarvetna hækkað, meðal annars vegna röskunar á aðfangakeðjum og afleiðinga innrásar Rússlands í Úkraínu. Yfir öllu hvílir einnig skuggi loftslagsbreytinga og áhrifa þeirra á allt líf á plánetunni okkar

    31. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Loftslagsmál, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra á Arctic Frontiers-ráðstefnunni

    Innrás Rússlands í Úkraínu og afleiðingar hennar fyrir norðurslóðasamstarf voru efst á baugi í umræðum utanríkisráðherra Íslands, Noregs og Svíþjóðar og ráðuneytisstjóra finnska utanríkisráðuneytisins á ráðstefnunni Arctic Frontiers í Tromsø í dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra undirstrikaði hve skaðleg áhrif innrásin hefði haft á norðurslóðasamvinnu og ekki væri hægt að halda áfram eins og ekkert hefði í skorist.

    27. jan. 2023Annað, Brussel-vaktin, Utanríkisráðuneytið

    Grænn iðnaður og ríkisstuðningur

    Að þessu sinni er fjallað um viðbrögð Evrópusambandsins (ESB) við nýjum stuðningsaðgerðum við grænan iðnað í Bandaríkjunum, þátttöku Íslands í loftslagsbandalagi utanríkisviðskiptaráðherra, fjármálareglur ESB, fund fjármála- og efnahagsráðherra ESB, fund innanríkisráðherra ESB, opið samráð um endurskoðun reglna um evrópskan raforkumarkað, málshöfðun Danmerkur til ógildingar á tilskipun um lágmarkslaun og heimsókn formanns stýrihóps stjórnarráðsins um framkvæmd EES-samningsins.

    27. jan. 2023Annað, Brussel-vaktin, Utanríkisráðuneytið

    Grænn iðnaður og ríkisstuðningur

    Að þessu sinni er fjallað um viðbrögð Evrópusambandsins (ESB) við nýjum stuðningsaðgerðum við grænan iðnað í Bandaríkjunum, þátttöku Íslands í loftslagsbandalagi utanríkisviðskiptaráðherra, fjármálareglur ESB, fund fjármála- og efnahagsráðherra ESB, fund innanríkisráðherra ESB, opið samráð um endurskoðun reglna um evrópskan raforkumarkað, málshöfðun Danmerkur til ógildingar á tilskipun um lágmarkslaun og heimsókn formanns stýrihóps stjórnarráðsins um framkvæmd EES-samningsins.

    27. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Dómsmálaráðuneytið, Utanríkismál, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    27. janúar helgaður minningu fórnarlamba helfararinnar

    Ákveðið hefur verið að 27. janúar ár hvert verði á Íslandi helgaður minningu fórnarlamba helfararinnar​ og þá verði vakin sérstök athygli á aðdraganda hennar og þeim hryllingi sem í henni fólst. Forsætisráðherra, utanríkisráðherra og mennta- og barnamálaráðherra hafa sammælst um að hefja vinnu til þess að móta þær leiðir sem farnar verða í þessu augnamiði hér á landi.

    26. jan. 2023Alþjóðamál, Evrópuráðið, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpaði þing Evrópuráðsins í Strassborg

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti í dag ávarp á þingi Evrópuráðsins í Strassborg og svaraði spurningum þingmanna. Málefni Úkraínu, formennska Íslands í Evrópuráðinu og staða mannréttinda og lýðræðis í heiminum voru meðal þess sem forsætisráðherra ræddi í ávarpinu.

    25. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Úkraína, Utanríkismál

    Fyrsti fundur utanríkisráðherra Norðurlandanna undir formennsku Íslands

    Stuðningur við Úkraínu, norrænt samstarf og ástand og horfur á Vestur-Balkanskaga og í Afganistan voru helstu umræðuefnin á fjarfundi utanríkisráðherra Norðurlanda í dag. Fundur ráðherranna var sá fyrsti í yfirstandandi formennsku Íslands í norrænni samvinnu.

    24. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Efnahagssamráð Íslands og Bandaríkjanna

    Efnahagssamráð Íslands og Bandaríkjanna fór fram í utanríkisráðuneytinu í dag. Þetta er í fjórða skipti sem árlegt samráð ríkjanna á sviði efnahagsmála er haldið en það var formlega sett á fót árið 2019. Samráðið hefur reynst mikilvægur vettvangur til að taka upp mál sem varða hagsmuni Íslands og vekja athygli á hindrunum í vegi fyrirtækja og fjárfesta ásamt því að vera góður vettvangur til að skiptast á upplýsingum, skilgreina sameiginlega hagsmuni og efla enn frekar tvíhliða samskipti Íslands og Bandaríkjanna á sviði viðskipta- og efnahagsmála.

    24. jan. 2023Mannréttindi og jafnrétti, Evrópuráðið, Mannréttindi, Dómsmálaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Oddný Mjöll Arnardóttir kjörin dómari við Mannréttindadómstól Evrópu

    Þing Evrópuráðsins kaus í dag Oddnýju Mjöll Arnardóttur dómara við Mannréttindadómstól Evrópu. Oddný Mjöll var ein af þremur sem tilnefnd voru sem dómaraefni af hálfu íslenskra stjórnvalda.

    24. jan. 2023Rit og skýrslur, Utanríkisráðuneytið

    Skýrsla utanríkisráðherra um framkvæmd EES-samningsins 2021-2022.

    Skýrsla utanríkisráðherra um framkvæmd EES-samningsins 2021-2022.

    20. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Ísland eykur stuðning sinn við Úkraínu

    Ísland mun veita tveimur milljónum punda, eða rúmlega 360 milljónum króna, í sérstakan stuðningssjóð fyrir Úkraínu (International Fund for Ukraine) sem bresk stjórnvöld settu á laggirnar á síðasta ári.Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra tilkynnti um þetta á fundi ríkjahóps sem styður varnarbaráttu Úkraínu (Ukraine Defence Contact Group) sem haldinn var í Ramstein í Þýskalandi í dag.

    20. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Annað, Föstudagspóstur

    Föstudagspósturinn 20. janúar 2023

    janúar 2023 / Utanríkisráðuneytið Föstudagspósturinn 20. janúar 2023 Heil og sæl

    19. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Ræður og greinar, Úkraína

    Ávarp ráðherra á fundi fastafulltrúa ÖSE

    19 janúar 2023 / Utanríkisráðuneytið Ávarp ráðherra á fundi fastafulltrúa ÖSE Thank you, Mr. Chair, Secretary General, Excellencies, It is my honour and pleasure to address you here today on behalf of the Icelandic Presidency of the Council of Europe and to share with you the priorities for our tenure as well as some reflections on the importance of cooperation between our two organizations. As we all know, we are meeting in dire times

    19. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Ráðherra kynnti áherslur Íslands í Evrópuráðinu fyrir fastafulltrúum ÖSE

    Staða Evrópu í kjölfar innrásarstríðs Rússlands í Úkraínu og mikilvægi þess að Evrópuráðið og ÖSE standi vörð um lýðræðislegar stofnanir, alþjóðalög og mannréttindi voru í brennidepli í ávarpi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra á fundi fastafulltrúa Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) í Vín í dag.

    13. jan. 2023Annað, Brussel-vaktin, Utanríkisráðuneytið

    30 ár frá staðfestingu laga um Evrópska efnahagssvæðið

    Að þessu sinni er fjallað um staðfestingu laga nr. 2/1993, um Evrópska efnahagssvæðið, breytingar á viðskiptakerfi með losunarheimildir og stofnun félagslegs loftslagssjóðs, orkumál – samkomulag um markaðsleiðréttingakerfi fyrir gas o.fl., orkuskiptaverkefnið WHISPER og spillingarmál í Evrópuþinginu.

    13. jan. 2023Annað, Brussel-vaktin, Utanríkisráðuneytið

    30 ár frá staðfestingu laga um Evrópska efnahagssvæðið

    Að þessu sinni er fjallað um staðfestingu laga nr. 2/1993, um Evrópska efnahagssvæðið, breytingar á viðskiptakerfi með losunarheimildir og stofnun félagslegs loftslagssjóðs, orkumál – samkomulag um markaðsleiðréttingakerfi fyrir gas o.fl., orkuskiptaverkefnið WHISPER og spillingarmál í Evrópuþinginu.

    13. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Ísland veitir viðbótarframlag til mannúðaraðstoðar

    Í ljósi bágs mannúðarástands víða um heim ákvað Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra að veita 250 milljón króna viðbótarframlag til alþjóðlegrar mannúðaraðstoðar um áramótin.

    13. jan. 2023Utanríkisráðuneytið

    Fréttaannáll sendiskrifstofa 2022

    Utanríkisráðuneytið hefur tekið saman yfirlit yfir fjölbreytta starfsemi sendiskrifstofa Íslands á árinu 2022 í meðfylgjandi fréttaannál.

    12. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Norrænt samstarf, Utanríkismál

    Friður eitt helsta áhersluefnið í formennsku Íslands

    Formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni 2023 var ýtt úr vör á upphafsviðburði í Norræna húsinu í dag en hún hófst formlega á nýju ári. Yfirskrift formennskunnar er „Norðurlönd - afl til friðar“ og vísar til þeirrar áherslu sem lögð er á frið sem undirstöðu þeirra sameiginlegu gilda sem Norðurlönd byggja samvinnu sína á: mannréttindi, lýðræði og velferð.

    09. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Annað, Síerra Leóne, Þróunarsamvinna, UNICEF, V-Afríka, Sameinuðu þjóðirnar

    Nýtt heildstætt verkefni um uppbyggingu vatns- og hreinlætisaðstöðu í sjávarbyggðum í Síerra Leóne

    Fulltrúar utanríkisráðuneytisins og UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, í Síerra Leóne, undirrituðu nýverið samstarfssamning um áframhaldandi stuðning við uppbyggingu vatns- og hreinlætisaðstöðu í sjávarbyggðum í Síerra Leóne. Um er að ræða umfangsmikið og samþætt verkefni til fjögurra ára, frá 2022 til 2026, sem mun ná til sextán afskekktra fiskiþorpa þar sem innviðir og grunnþjónusta er afar takmörkuð.

    04. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Ræður og greinar

    Árið þegar hugrekkið minnti á mikilvægi sitt

    04 janúar 2023 / Utanríkisráðuneytið Árið þegar hugrekkið minnti á mikilvægi sitt Allt frá morgni 24. febrúar þegar ég var vakin um miðja nótt til vegna þeirra válegu tíðinda sem bárust frá Úkraínu og fram á síðustu daga ársins hefur stríðsrekstur Rússlands í landi verið nánast alltumlykjandi í störfum mínum sem utanríkisráðherra. Fyrstu daga innrásarinnar bar flestum saman um að varnir Úkraínu dygðu ekki nema í örfáa daga

    30. des. 2022Utanríkisráðuneytið

    Fréttaannáll utanríkisráðuneytisins árið 2022

    Árið 2022 hefur verið viðburðurðaríkt í starfsemi utanríkisþjónustunnar. Líkt og fram kemur í meðfylgjandi fréttaannál setti árásarstríð Rússlands í Úkraínu mark sitt á árið með afgerandi hætti. Rekja má ríflega þriðjung færslna annálsins með beinum hætti til stríðsins og eru þá ótaldir tvíhliða og marghliða fundir utanríkisráðherra þar sem málefni Úkraínu voru í brennidepli.

    29. des. 2022Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðasamningar, Lög og réttur

    Gildistaka samninga um afmörkun landgrunnsins í Síldarsmugunni

    Tveir samningar um afmörkun landgrunnsins í Síldarsmugunni svonefndu öðluðust gildi fyrr í þessum mánuði. Samningarnir eru annars vegar við Noreg og við Danmörku fyrir hönd Færeyja hins vegar og taka til landgrunnsins handan 200 mílna lögsögumarkanna milli Færeyja, Íslands, meginlands Noregs og Jan Mayen.

    29. des. 2022Utanríkisráðuneytið, Ræður og greinar

    Í hlýju hjarta Afríku

    29 desember 2022 / Utanríkisráðuneytið Í hlýju hjarta Afríku Nýverið hlotnaðist mér sá heiður að heimsækja Afríkuríkið Malaví. Markmið heimsóknarinnar var að sjá með eigin augum árangur tvíhliða þróunarsamvinnuverkefna í landinu. Ekkert hefði hins vegar getað búið mig undir upplifunina, svo snortin var ég af viðtökum fólks

    23. des. 2022Utanríkisráðuneytið, Annað, Föstudagspóstur

    Föstudagspóstur á Þorláksmessu

    desember 2022 / Utanríkisráðuneytið Föstudagspóstur á Þorláksmessu Heil og sæl. Við heilsum ykkur á Þorláksmessu og förum yfir það helsta sem hefur drifið á daga utanríkisþjónustunnar síðustu tvær vikurnar

    22. des. 2022Norðurslóðir, Utanríkisráðuneytið

    Samstarf utanríkisráðuneytisins og Fulbright stofnunarinnar um norðurslóðir endurnýjað

    Samstarfssamningur utanríkisráðuneytisins og Menntastofnunar Íslands og Bandaríkjanna, Fulbright stofnunarinnar, um fræðastyrki í norðurslóðafræðum var endurnýjaður í utanríkisráðuneytinu í dag.

    21. des. 2022Utanríkisráðuneytið, Lög og réttur, Utanríkismál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Áfrýjunarnefnd EUIPO fellst á allar kröfur Íslands

    Áfrýjunarnefnd Hugverkastofu Evrópusambandsins hefur hafnað öllum kröfum bresku verslanakeðjunnar Iceland Foods Ltd. varðandi notkun á orðmerkinu Iceland. Fyrirtækið getur ekki lengur hindrað að íslensk fyrirtæki auðkenni sig með upprunalandinu við markaðssetningu á EES-svæðinu á vörum sínum og þjónustu.

    16. des. 2022Annað, Brussel-vaktin, Utanríkisráðuneytið

    Formennskuáætlun Svía og viðskiptakerfi með losunarheimildir í flugi

    Að þessu sinni er fjallað um formennskuáætlun Svía, fund leiðtogaráðs Evrópusambandsins (ESB), breytingar á viðskiptakerfi með losunarheimildir í flugi, nýjar reglur um kolefnisjöfnunargjald við landamæri, orkumál – framhald umræðna um markaðsleiðréttingakerfi fyrir gas og verðþak, fund Schengen-ráðsins, tillögur að nýjum reglum um notkun upplýsinga við landamæraeftirlit og löggæslu, gervihnattakerfi fyrir örugg fjarskipti, kvótasetningu ESB fyrir fiskveiðiárið 2023, nýja landbúnaðarstefnu ESB, afnám hindrana við útflutning á íslensku skyri, samkomulag ráðherraráðs ESB og Ungverjalands í kjölfar deilna um réttarríkið og heimsókn ráðuneytisstjóra matvælaráðuneytisins til Brussel.

    16. des. 2022Annað, Brussel-vaktin, Utanríkisráðuneytið

    Formennskuáætlun Svía og viðskiptakerfi með losunarheimildir í flugi

    Að þessu sinni er fjallað um formennskuáætlun Svía, fund leiðtogaráðs Evrópusambandsins (ESB), breytingar á viðskiptakerfi með losunarheimildir í flugi, nýjar reglur um kolefnisjöfnunargjald við landamæri, orkumál – framhald umræðna um markaðsleiðréttingakerfi fyrir gas og verðþak, fund Schengen-ráðsins, tillögur að nýjum reglum um notkun upplýsinga við landamæraeftirlit og löggæslu, gervihnattakerfi fyrir örugg fjarskipti, kvótasetningu ESB fyrir fiskveiðiárið 2023, nýja landbúnaðarstefnu ESB, afnám hindrana við útflutning á íslensku skyri, samkomulag ráðherraráðs ESB og Ungverjalands í kjölfar deilna um réttarríkið og heimsókn ráðuneytisstjóra matvælaráðuneytisins til Brussel.

    13. des. 2022Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar Norðurlanda og Kanada funduðu

    Innrás Rússlands í Úkraínu og áframhaldandi stuðningur Norðurlandanna og Kanada við Úkraínu, samstarf á norðurslóðum og málefni Atlantshafsbandalagsins voru efst á baugi á fjarfundi ríkjanna í dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra tók þátt í fundinum.

    13. des. 2022Utanríkisráðuneytið, Úkraína, Utanríkismál

    Viðbótarframlag til Úkraínu vegna vetrarkulda

    Ísland leggur þrjár milljónir bandaríkjadala í alþjóðlega sjóði sem hafa það að markmiði að styðja Úkraínu við að takast á við yfirvofandi vetrarhörkur. Tilkynnt var um framlagið á ráðstefnu í París í dag.

    12. des. 2022Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Níu tonn af hlýju frá Íslandi til Úkraínu

    Níu tonn af hlýju frá Íslandi voru um borð í kanadískri herflutningavél sem flaug frá Keflavíkurflugvelli áleiðis til Úkraínu í dag. Um að ræða vetrarútbúnað fyrir varnarsveitir Úkraínu og almenning sem er annars vegar afrakstur sjálfboðavinnu þúsunda Íslendinga og hins vegar kaup utanríkisráðuneytisins á margvíslegum vetrarbúnaði.

    10. des. 2022Utanríkisráðuneytið, Evrópuráðið, Mannréttindi, Úkraína, Fastanefnd Íslands hjá Evrópuráðinu, Utanríkismál

    Áhersla á aðgerðir gegn refsileysi fyrir brot Rússa í Úkraínu

    Í tilefni alþjóðlega mannréttindadagsins í dag 10. desember vekur utanríkisráðherra, í hlutverki sínu sem forseti ráðherranefndar Evrópuráðsins, sérstaka athygli á mikilvægi aðgerða gegn refsileysi fyrir þau mannréttindabrot og aðra glæpi sem Rússar hafa framið í Úkraínu. Fastafulltrúi Úkraínu hjá Evrópuráðinu ræddi stöðuna í Úkraínu og ábyrgðarskyldu vegna glæpa í tengslum við innrásina á opnum fundi í Reykjavík í gær.

    • First
    • Prev
    • 29
    • 30
    • 31
    • 32
    • 33
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband