Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1551–1600 af 3887
    Raða eftir:
    29. apr. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    999/2021. Úrskurður frá 13. apríl 2021.

    Deilt var um synjun Náttúrufræðistofnunar Íslands á beiðni kæranda um aðgang að greinargerð sem tekin var saman af starfsmanni stofnunarinnar. Synjun stofnunarinnar var byggð á því að um vinnugögn væri að ræða sem heimilt væri að undanþiggja með vísan til 5. tölul. 6. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fór yfir gögnin og staðfesti synjun stofnunarinnar.

    29. apr. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    998/2021. Úrskurður frá 13. apríl 2021.

    Deilt var um afgreiðslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu á beiðni A um upplýsingar um á hvaða grundvelli 14 nafngreindir einstaklingar hefðu verið ráðnir hjá embættinu. Að mati úrskurðarnefndarinnar sneri beiðni kæranda að upplýsingum sem undanþegnar eru aðgangi á grundvelli 4. tölul. 6. gr., sbr. 7. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin taldi lögreglustjóra því heimilt að synja beiðni kæranda um upplýsingar að undanskildum upplýsingum um starfstitla.

    29. apr. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    997/2021. Úrskurður frá 13. apríl 2021.

    A kærði synjun Herjólfs ohf. á beiðni um upplýsingar varðandi gámaflutninga á tilteknu tímabili. Úrskurðarnefndin taldi Herjólf ohf. ekki hafa lagt sjálfstætt mat á umbeðin gögn með hliðsjón af ákvæðum upplýsingalaga. Beiðni kæranda hefði því ekki hlotið þá efnislegu meðferð á lægra stjórnsýslustigi sem nefndinni væri fært að endurskoða og lagði úrskurðarnefndin því fyrir félagið að taka málið til nýrrar meðferðar.

    29. apr. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    996/2021. Úrskurður frá 13. apríl 2021.

    A, blaðamaður, kærði synjun fjármála- og efnahagsráðuneytisins á beiðni hans um upplýsingar um bætur vegna ólögmætra ráðninga. Ráðuneytið reisti synjunina aðallega á því að um væri að ræða upplýsingar sem væru undanþegnar upplýsingarétti, sbr. 7. gr. upplýsingalaga, þar sem þær vörðuðu „umsókn um starf“. Úrskurðarnefndin féllst ekki á að gögnin hefðu að geyma slíkar upplýsingar. Þá taldi úrskurðarnefndin gögnin ekki heldur hafa að geyma viðkvæmar upplýsingar sem leynt skuli fara skv. 9. gr. upplýsingalaga. Lagði úrskurðarnefndin því fyrir fjármála- og efnahagsráðuneytið að veita kæranda aðgang að þeim.

    29. apr. 2021Forsætisráðuneytið

    Ísland í brennidepli loftslagsráðstefnu FP

    Viðtal við Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, var lokaviðburður tveggja daga alþjóðlegrar loftslagsráðstefnu hins virta stjórnmálatímarits Foreign Policy, Climate Summit, sem lauk í gær.

    29. apr. 2021Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

    Stefna Íslands um gervigreind

    apríl 2021 / Forsætisráðuneytið Stefna Íslands um gervigreind Stefna Íslands um gervigreind

    28. apr. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    995/2021. Úrskurðrur frá 30. mars 2021.

    A kærði synjun Herjólfs ohf. á beiðni um nöfn umsækjenda um starf á skrifstofu félagsins. Úrskurðarnefndin staðfesti synjun félagsins með vísan til þess að ekki sé skylt að veita aðgang að upplýsingum um nöfn umsækjenda um starf hjá lögaðilum sem falla undir upplýsingalög, ólíkt því sem gildir um umsækjendur um starf hjá hinu opinbera.

    28. apr. 2021Forsætisráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Ráðherrar heimsækja Carbfix á Hellisheiði

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra heimsóttu Carbfix á Hellisheiði í dag. Ráðherrarnir fengu kynningu á starfsemi fyrirtækisins og Carbfix tækninni sem byggir á íslensku hugviti sem bindur koldíoxíð varanlega í bergi á innan við tveimur árum.

    28. apr. 2021Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Námskeið í gervigreind fyrir alla

    Stjórnvöld, í samstarfi við Háskólann í Reykjavík og Háskóla Íslands, hafa opnað 30 klukkustunda vefnámskeið um gervigreind sem er opið öllum almenningi.

    20. apr. 2021Covid-19, Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið

    COVID-19: Aðgerðir á landamærum hertar tímabundið

    Stjórnvöld kynna í dag tímabundnar hertar aðgerðir á landamærunum til að sporna við útbreiðslu COVID-19 innanlands. Markmiðið er að skapa aðstæður sem gera kleift að aflétta sem mest takmörkunum innanlands þrátt fyrir mikla útbreiðslu faraldursins erlendis. Bólusetningu hér á landi miðar vel og eftir því sem hlutfall bólusettra hækkar skapast forsendur til að slaka á takmörkunum, jafnt innanlands og á landamærunum.

    16. apr. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    994/2021. Úrskurður frá 30. mars 2021.

    A, fréttamaður, kærði synjun ríkisskattstjóra á beiðni hans um afhendingu tiltekinna gagna varðandi skráningu raunverulegra eigenda á véllæsilegu formi. Úrskurðarnefndin taldi ríkisskattstjóra skylt að verða við beiðni kæranda um afhendingu umbeðinna gagna á því formi sem þau væru varðveitt hjá embættinu í samræmi við fyrirmæli 1. mgr. 18. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin lagði fyrir ríkisskattstjóra að afhenda kæranda umbeðin gögn á rafrænu formi.

    16. apr. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    993/2021. Úrskurður frá 30. mars 2021.

    A, fréttamaður, kærði ákvörðun fjármála- og efnahagsráðuneytis að synja honum um aðgang að samantektum um byggingu nýs Landspítala og öðrum skyldum gögnum, aðallega því um vinnugögn væri að ræða í skilningi 8. gr. upplýsingalaga, sbr. 5. tölul. 6. gr. laganna. Úrskurðarnefndin taldi skilyrði 8. gr. ekki uppfyllt, því gögnin höfðu verið unnin í samvinnu við Framkvæmdasýslu ríkisins. Önnur ákvæði upplýsingalaga voru ekki talin standa því í vegi að kæranda yrðu afhent umbeðin gögn. Lagði úrskurðarnefndin því fyrir fjármála- og efnahagsráðuneytið að veita kæranda aðgang að þeim.

    15. apr. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    992/2021. Úrskurður frá 30. mars 2021.

    Deilt var um afgreiðslu Garðabæjar á beiðni kæranda um aðgang að tilteknum gögnum er vörðuðu hann sjálfan, eiginkonu hans og dóttur. Var kæranda m.a. synjað um aðgang að ákveðnum gögnum á þeim grundvelli að um vinnugögn væri að ræða. Úrskurðarnefndin taldi að gögnin uppfylltu ekki þau skilyrði að teljast vinnugögn, sbr. 8. gr. upplýsingalaga, og lagði fyrir Garðabæ að veita kæranda aðgang að þeim. Úrskurðarnefndin taldi að tilteknir hlutar beiðni kæranda hefðu ekki hlotið þá meðferð sem nefndinni væri fært að endurskoða og var þeim vísað til Garðabæjar til nýrrar meðferðar og afgreiðslu. Loks var hluta beiðni kæranda vísað frá nefndinni, þar sem viðkomandi gögn lægju ekki fyrir í skilningi upplýsingalaga.

    15. apr. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    991/2021. Úrskurður frá 30. mars 2021

    A, fréttamaður, kærði synjun Biskupsstofu á beiðni hans um aðgang að upplýsingum um kaupanda og kaupverð fasteignar við Laugaveg 31. Synjun Biskupsstofu var reist á því að þjóðkirkjan félli utan við gildissvið upplýsingalaga og vísaði m.a. til nýlegra lagabreytinga. Úrskurðarnefndin fékk ekki séð að þær breytingar sem gerðar hefðu verið nýlega á ákvæðum laga nr. 78/1997 leiddu til þess að formleg staða þjóðkirkjunnar sem handhafa framkvæmdarvalds hafi breyst og þar með staða hennar m.t.t. gildissviðs upplýsingalaga. Það var því niðurstaða úrskurðarnefndar um upplýsingamál að Biskupsstofu hafi borið að leysa úr beiðni kæranda um aðagang að gögnum á grundvelli ákvæða upplýsingalaga nr. 140/2012.…

    15. apr. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    990/2021. Úrskurður frá 30. mars 2021.

    A, blaðamaður kærði synjun Ferðamálastofu á beiðni um upplýsingar um fjölda komu- og brottfararfarþega. Synjun Ferðamálastofu var reist á því að umbeðin gögn væru eign Isavia ohf. og merkt sem trúnaðargögn. Úrskurðarnefndin tók fram að af upplýsingalögum leiddi að réttur til aðgangs að upplýsingum væri lögbundinn og yrði ekki takmarkaður nema á grundvelli laganna. Ekki væri heimilt að víkja frá ákvæðum laganna með því að heita trúnaði um gögn eða með vísan til þess að þau teldust eign annars aðila. Úrskurðarnefndin taldi Ferðamálastofu ekki hafa lagt sjálfstætt mat á umbeðin gögn með hliðsjón af ákvæðum upplýsingalaga.…

    15. apr. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    989/2021. Úrskurður frá 30. mars 2021.

    Deilt var um rétt kæranda, blaðamanns, til aðgangs að athugasemdum sem borist höfðu Reykjavíkurborg við tillögur aðalskipulags. Úrskurðarnefndin féllst ekki á þá afstöðu Reykjavíkurborgar að umbeðin gögn teldust ekki afhent sveitarfélaginu og því ekki fyrirliggjandi fyrr en að liðnum umsagnarfresti og þau hefðu hlotið formlega umfjöllun kjörinna fulltrúa á fundi. Úrskurðarnefndin taldi Reykjavíkurborg ekki hafa lagt sjálfstætt mat á umbeðin gögn með hliðsjón af ákvæðum upplýsingalaga. Beiðni kæranda hefði því ekki hlotið þá efnislegu meðferð á lægra stjórnsýslustigi sem nefndinni væri fært að endurskoða og lagði úrskurðarnefndin því fyrir Reykjavíkurborg að taka málið til nýrrar meðferðar.

    15. apr. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    988/2021. Úrskurður frá 30. mars 2021.

    A beindi kæru til úrskurðarnefndarinnar sem laut að því hvort Vestmannaeyjabæ væri almennt heimilt að afgreiða beiðnir um upplýsingar með því að vísa á vefslóð þar sem þær væri að finna. Í því sambandi vísaði kærandi til þess að hann ætti hvorki prentara né tölvu. Úrskurðarnefndin vísaði kærunni frá þar sem ágreiningsefnið félli utan við úrskurðarvald nefndarinnar.

    15. apr. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    987/2021. Úrskurður frá 30. mars 2021.

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að fylgiskjölum húsaleigusamnings Vegagerðarinnar við einkaaðila sem gerður var í kjölfar auglýsingar og útboðs Ríkiskaupa. Þar sem kærandi var þátttakandi í útboðinu var leyst úr kærunni á grundvelli 14. gr. upplýsingalaga. Talið var að hagsmunir kæranda til aðgangs að gögnunum vægju þyngra en hagsmunir þess einkaaðila sem Vegagerðin gekk til samninga við í kjölfar útboðsins af því að upplýsingarnar í gögnunum færu leynt, sbr. 3. mgr. 14. gr. laganna. Var synjun Vegagerðarinnar því felld úr gildi það lagt fyrir stofnunina að veita kæranda aðgang að gögnunum.

    14. apr. 2021Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Forsætisráðuneytið

    Ný lög um Vísinda- og nýsköpunarráð

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, mælti í gær fyrir frumvarpi til nýrra laga um Vísinda- og nýsköpunarráð. Markmið þess er að styrkja langtímastefnumótun í vísinda- og nýsköpunarmálum með heildrænni nálgun á málaflokkinn, skýrari hlutverkum helstu aðila og öflugri sjálfstæðri gagnagreiningu. Ætlunin er einnig að tryggja betri eftirfylgni og aukið samstarf og samhæfingu á milli ráðuneyta.

    13. apr. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    986/2021. Úrskurður frá 17. mars 2021.

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að upplýsingum hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu vegna meints hraðaksturs á tiltekinni lögreglubifreið. Úrskurðarnefndin taldi ekki forsendur til að rengja þá staðhæfingu lögreglustjóra að kæranda hefði verið afhent öll fyrirliggjandi gögn sem tengdust málinu. Kærunni var því vísað frá úrskurðarnefndinni. Þá taldi úrskurðarnefndarin að meðferð lögreglustjóra á beiðni kæranda hafi ekki verið í samræmi við málshraðareglu 17. gr. upplýsingalaga

    12. apr. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    985/2021. Úrskurður frá 17. mars 2021.

    Kærð var synjun Hafrannsóknarstofnunar á beiðni kæranda um aðgang að upplýsingum um aflatölur yfir stangveiði síðustu tíu ára fyrir jarðir við Hvítá og Ölfusá. Kæran barst því tæpum mánuði eftir að kærufrestur skv. 1. mgr. 22. gr. upplýsingalaga rann út. Úrskurðarnefndin taldi skilyrði 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga ekki uppfyllt og var kærunni því vísað frá.

    12. apr. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    984/2021. Úrskurður frá 17. mars 2021.

    Deilt var um synjun ríkisskattstjóra á beiðni A, fréttamanns, um afhendingu upplýsinga um þá rekstraraðila og/eða fyrirtæki sem hafa nýtt sér heimild til frestunar gjalddaga staðgreiðslu launa og tryggingargjalds. Úrskurðarnefnd um upplýsingar féllst á með ríkisskattstjóra að umræddar upplýsingar féllu undir 1. mgr. 117. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt. Úrskurðarnefndin taldi ákvæðið fela í sér sérstaka þagnarskyldureglu sem takmarkaði upplýsingarétt almennings, sbr. 3. mgr. 4. gr. upplýsingalaga. Var því kærunni vísað frá úrskurðarnefndinni.

    12. apr. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    983/2021. Úrskurður frá 17. mars 2021.

    Deilt var um synjun ríkisskattstjóra á beiðni Neytendasamtakanna um aðgang að uppfærðu hreyfingayfirliti vegna innheimtu stjórnvaldssekta sem Neytendastofa lagði á tiltekið fyrirtæki. Ákvörðun ríkisskattstjóra byggði á 1. mgr. 20. gr. laga nr. 150/2019, um innheimtu opinberra skatta og gjalda. Úrskurðarnefnd taldi ákvæðið fela í sér sérstaka þagnarskyldureglu sem takmarkaði upplýsingarétt almennings, sbr. 3. mgr. 4. gr. upplýsingalaga. Var kærunni því vísað frá úrskurðarnefndinni.

    12. apr. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    982/2021. Úrskurður frá 17. mars 2021.

    Deilt var um afgreiðslu dómsmálaráðuneytisins á beiðni A um upplýsingar í tengslum við aðdraganda þess að ráðuneytið veitti starfsmanni þess leyfi frá störfum úr ráðuneytinu til að sinna öðru starfi hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu. Að mati úrskurðarnefndarinnar sneri beiðni kæranda að upplýsingum sem undanþegnar eru aðgangi á grundvelli 4. tölul. 6. gr., sbr. 7. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin taldi ráðuneytinu því heimilt að synja beiðni kæranda um upplýsingar er vörðuðu aðdraganda og grundvöll þess að starfsmaður ráðuneytisins var fluttur frá ráðuneytinu.

    10. apr. 2021Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Forsætisráðuneytið

    Heilsa og velferð til umræðu á fundi Vísinda- og tækniráðs

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra stýrði í gær 42. fundi Vísinda- og tækniráðs en þar voru til umfjöllunar málefni tengd heilsu og velferð.

    09. apr. 2021Forsætisráðuneytið

    Gervigreindarstefna fyrir Ísland

    Nefnd um ritun gervigreindarstefnu fyrir Ísland hefur skilað forsætisráðherra tillögum að stefnunni en þær voru kynntar á fundi ríkisstjórnar í morgun. Forsætisráðherra skipaði nefndina í október 2020 og var henni falið að skila tillögum að skýrri framtíðarsýn um hvernig íslenskt samfélag geti unnið með gervigreind öllum til hagsbóta. Fjölmargir aðilar hafa verið kallaðir til og tillögurnar hafa farið í samráðsgátt stjórnvalda.

    08. apr. 2021Efnahagsmál og opinber fjármál, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpaði ársfund Seðlabanka Íslands

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti í gær ávarp á 60. ársfundi Seðlabanka Íslands. Í ávarpi sínu fór forsætisráðherra m.a. yfir þær aðgerðir sem stjórnvöld hafa gripið til vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Markmið aðgerðanna væru skýr; annars vegar að verja líf og heilsu fólks og hins vegar að tryggja afkomuöryggi fólks og styðja við atvinnulífið.

    31. mar. 2021Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Ísland í efsta sæti Alþjóðaefnahagsráðsins um kynjajafnrétti tólfta árið í röð

    Ísland mælist í efsta sæti á kynjajafnréttislista Alþjóðaefnahagsráðsins, (e; World Economic Forum) tólfta árið í röð. Skýrslan: Global Gender Gap Report kemur nú út í fimmtánda skiptið og tekur til 156 ríkja. Mælikvarðarnir taka til fjögurra meginsviða kynjajafnréttis: Stjórnmála, menntunar, atvinnu og heilbrigðis.

    26. mar. 2021Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Launabil og jöfnuður - greinargerðir fyrir Þjóðhagsráð

    mars 2021 / Forsætisráðuneytið Launabil og jöfnuður - greinargerðir fyrir Þjóðhagsráð Markmið þessarar umfjöllunar er að styrkja þekkingargrunn fyrir umræðu um launabil og jöfnuð á Íslandi og samanburð við önnur lönd. Hér er ekki ætlunin að taka afstöðu til efnisins heldur frekar fjalla gagnrýnið um hugtök og gögn sem eru gagnleg fyrir umræðuna, draga athygli að styrkleikum þeirra og takmörkunum og veita, eins og kostur er, innsýn í dreifingu launa á Íslandi

    25. mar. 2021Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Hliðarviðburður stjórnvalda á 65. fundi kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna

    Hliðarviðburðurinn: Áherslur stjórnvalda á Íslandi í Covid-faraldrinum og útrýming kynbundins ofbeldis fór fram í dag. Viðburðurinn sem var rafrænn var haldinn af íslenskum stjórnvöldum í tengslum við 65. fund kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna.

    25. mar. 2021Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra opnar alþjóðlega ráðstefnu um stafræna tækni og lýðræði

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra opnaði alþjóðlegu ráðstefnuna Democracy in a Digital Future í dag. Forsætisráðuneytið, í samvinnu við Rannsóknarsetrið EDDU við Háskóla Íslands, Alþingi og fjölmiðlanefnd, stendur fyrir ráðstefnunni sem lýkur á morgun, 26. mars.

    24. mar. 2021Covid-19, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Vegna frétta um bann framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um útflutning á bóluefni

    Í ljósi fréttaflutnings í fjölmiðlum um að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hafi ákveðið að banna útflutning á bóluefni gegn kórónuveirunni til Íslands, auk annarra landa, vilja forsætisráðuneytið og utanríkisráðuneytið árétta eftirfarandi. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fékk í dag skýr skilaboð frá Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar ESB, um að nýjar reglur ESB um útflutningshömlur á bóluefni muni ekki hafa áhrif á afhendingar bóluefna til Íslands frá aðildarríkjum ESB, í samræmi við þá samninga sem gerðir hafa verið.

    23. mar. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Loftslagsmál, Forsætisráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Framlög til loftslagsaðgerða aukin um milljarð á ári

    Framlög til loftslagsmála verða aukin um 1 ma.kr. á ári á tímabilinu 2022-2031 samkvæmt áætlunum ríkisstjórnarinnar. Þetta kemur fram í fjármálaáætlun 2022-2026 sem fjármála- og efnahagsráðherra kynnti í gær og er liður í að mæta hertum markmiðum Íslands um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda.

    19. mar. 2021Forsætisráðuneytið

    Sif Gunnarsdóttir skipuð í embætti forsetaritara

    Embætti forsetaritara var auglýst laust til umsóknar 27. nóvember 2020 og bárust 60 umsóknir um embættið. Er það niðurstaða forseta Íslands og forsætisráðherra á grundvelli heildarmats á umsóknum, greinargerð hæfnisnefndar og öðrum gögnum málsins að Sif Gunnarsdóttir sé hæfust umsækjenda til að hljóta skipun í embætti forsetaritara.

    18. mar. 2021Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra á 65. fundi kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti í dag ávarp á árlegum fundi kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna (CSW65), sem stendur yfir dagana 15. til 26. mars. Fundurinn og viðburðir honum tengdir fara fram með rafrænum hætti.

    18. mar. 2021Almannaöryggi, Forsætisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Ný stefna í almannavarna- og öryggismálum

    Fjórði fundur almannavarna- og öryggismálaráðs var haldinn 15. mars sl. Á fundinum var samþykkt ný stefna í almannavarna- og öryggismálum. Í stefnunni endurspeglast áherslur ríkisstjórnarinnar að standa vörð um traustar almannavarnir og að tryggja órofa virkni mikilvægra innviða.

    17. mar. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    981/2021. Úrskurður frá 22. febrúar 2021.

    Kærð var afgreiðsla Kennarasambands Íslands og skólastjórafélag Íslands á beiðni um gögn. Þar sem upplýsingalög gilda ekki um beiðnina var kærunni vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

    17. mar. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    980/2021. Úrskurður frá 22. febrúar 2021.

    Deilt var um ákvörðun atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins á beiðni kæranda um aðgang að greiningarvinnu sem ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra byggði áform sín um endurskipulagningu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands á. Synjun ráðuneytisins var byggð á því að hluti gagnanna væru vinnugögn sem heimilt væri að undanþiggja með vísan til 5. tölul. 6. gr. upplýsingalaga. Þá væri hluti þeirra gögn sem felld yrðu undir 1. tölul. 6. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fór yfir þau gögn sem kæranda var synjað um aðgang að og staðfesti synjun ráðuneytisins að undanskildu einu gagni sem sent hafði verið þar sem fyrir lá að það var unnið af öðru stjórnvaldi og teldist ekki vinnugagn.

    17. mar. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    979/2021. Úrskurður frá 22. febrúar 2021.

    A kærði afgreiðslu Herjólfs ohf. á beiðni um upplýsingar um gjaldskrá Herjólfs ohf. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi Herjólf ohf. hafa svarað kæranda með fullnægjandi hætti og vísað kæranda á hvar umbeðnar upplýsingar væri að finna. Kærunni var því vísað frá nefndinni.

    17. mar. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    978/2021. Úrskurður frá 22. febrúar 2021.

    Deilt var um afgreiðslu Lindarhvols ehf. á beiðni um aðgang að fjórum fundargerðum félagsins þar sem málefni Klakka ehf. höfðu verið til umfjöllunar. Við meðferð málsins hjá úrskurðarnefndinni veitti Lindarhvoll ehf. kæranda aðgang að útdrætti úr sex fundargerðum. Úrskurðarnefndin fékk ekki séð að Lindarhvoll ehf. hefði tekið afstöðu til þess hvort veita ætti kæranda aðgang að fundargerðunum í heild sinni. Var þeim þætti kærunnar því vísað frá úrskurðarnefndinni. Kæran laut einnig að synjun Lindarhvols ehf. á að afhenda kæranda greinargerð setts ríkisendurskoðanda um starfsemi Lindarhvols ehf. Úrskurðarnefnin áréttaði fyrri niðurstöðu sína þess efnis að greinargerðin væri undirorðin sérstakri þagnarskyldu. Var synjun Lindarhvols ehf. á að afhenda greinargerðina því staðfest.

    17. mar. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    977/2021. Úrskurður frá 22. febrúar 2021.

    Beiðni kæranda um endurupptöku úrskurðar nr. 935/2020 var hafnað. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi skilyrði 24. gr. stjórnsýslulaga um endurupptöku ekki uppfyllt og að ekki væru rökstuddar vísbendingar um að á úrskurðinum væru verulegir annmarkar að lögum.

    17. mar. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    976/2021. Úrskurður frá 22. febrúar 2021.

    Deilt var um afgreiðslu fjármála- og efnahagsráðuneytisins á beiðni kæranda, blaðamanns, um aðgang að 40 fundargerðum Lindarhvols ehf. án útstrikana. Úrskurðarnefndin taldi ótvírætt að þær upplýsingar sem afmáðar voru hafi ýmist að geyma upplýsingar um svo mikilvæga fjárhags- eða viðskiptahagsmuni þeirra einstaklinga og lögaðila sem um var fjallað að heimilt væri að afmá þær á grundvelli 9. gr. upplýsingalaga. Þá taldi nefndin hluta upplýsinganna bera með sér að þær félli undir þagnarskylduákvæði 2. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002. Ákvörðun ráðuneytisins var því staðfest.

    17. mar. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    975/2021. Úrskurður frá 22. febrúar 2021.

    Kærandi kærði afgreiðslu Vestmannaeyjabæjar á nokkrum fjölda beiðna um aðgang að upplýsingum. Kærurnar lutu að því að beiðnunum hefði ekki verið svarað að liðnum 7-22 dögum frá dagsetningu þeirra og leit úrskurðarnefndin svo á að um væri að ræða kærur vegna óhóflegra tafa á meðferð þeirra, sbr. 17. gr. upplýsingalaga og 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga. Með hliðsjón af mati á efni beiðnanna og fjölda beiðna sem kærandi hefur beint til sveitarfélagsins komst úrskurðarnefndin að þeirri niðurstöðu að ekki væri um óhóflega töf á meðferð beiðnanna að ræða. Var kærunum því vísað frá úrskurðarnefndinni í einu lagi.

    17. mar. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    974/2021. Úrskurður frá 22. febrúar 2021.

    Kærandi kærði afgreiðslu Herjólfs ohf. á nokkrum fjölda beiðna um aðgang að upplýsingum. Kærurnar lutu að því að beiðnunum hefði ekki verið svarað að liðnum 7-22 dögum frá dagsetningu þeirra og leit úrskurðarnefndin svo á að um væri að ræða kærur vegna óhóflegra tafa á meðferð þeirra, sbr. 17. gr. upplýsingalaga og 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga. Með hliðsjón af mati á efni beiðnanna og fjölda beiðna sem kærandi hefur beint til félagsins komst úrskurðarnefndin að þeirri niðurstöðu að ekki væri um óhóflega töf á meðferð beiðnanna að ræða. Var kærunum því vísað frá úrskurðarnefndinni í einu lagi.

    17. mar. 2021Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Forsætisráðuneytið

    Alþjóðaráðstefna um lýðræði og stafræna tækni

    Forsætisráðuneytið, í samvinnu við Rannsóknarsetrið EDDU við Háskóla Íslands, Alþingi og fjölmiðlanefnd, stendur fyrir alþjóðlegu ráðstefnunni Democracy in a Digital Future dagana 25. og 26. mars nk.

    15. mar. 2021Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

    Kortlagning kynjasjónarmiða - Stöðuskýrsla 2021

    mars 2021 / Forsætisráðuneytið Kortlagning kynjasjónarmiða - Stöðuskýrsla 2021 Í stöðuskýrslunni, sem nú kemur út í annað sinn, má finna greiningu á stöðu kynjanna á flestum þeim málefnasviðum sem fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar tekur til. Öll ráðuneyti hafa unnið jafnréttismat á málefnasviðum og málaflokkum sem þau bera ábyrgð á en efni skýrslunnar er tekið saman af forsætisráðuneytinu og fjármála- og efnahagsráðuneytinu

    15. mar. 2021Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19, Vinnumál, Forsætisráðuneytið

    Hefjum störf – umfangsmiklar vinnumarkaðsaðgerðir fyrir atvinnuleitendur og atvinnulífið

    Markmiðið er að með átakinu verði til allt að 7.000 tímabundin störf í samvinnu við atvinnulífið, opinberar stofnanir, sveitarfélög og félagasamtök.

    12. mar. 2021Dómsmálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Efnahagsmál og opinber fjármál, Forsætisráðuneytið

    Tekið tillit til kynjasjónarmiða við ákvarðanatöku

    Kynjasjónarmið á flestum þeim málefnasviðum sem fjármálaáætlun tekur til hafa verið kortlögð í stöðuskýrslu sem kynnt var á fundi ríkisstjórnarinnar í dag. Á fundinum var samþykkt að nýta niðurstöður skýrslunnar við stefnumótun og að tekið yrði tillit til kynja- og jafnréttissjónarmiða við ákvarðanatöku. Einnig var samþykkt að taka saman heildstætt yfirlit yfir áhrif COVID-19 á kynin.

    12. mar. 2021Covid-19, Heilbrigðisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Skýrsla um árangursmat mismunandi aðgerða á landamærum

    Hópur vísindafólks við Háskóla Íslands, undir handleiðslu Thors Aspelund, hefur rannsakað áhrif mismunandi sóttvarnaaðgerða á landamærum. Verkefnið var unnið í framhaldi af styrk ríkisstjórnarinnar til rannsókna á áhrifum sóttvarnaaðgerða á þróun COVID-19.

    12. mar. 2021Forsætisráðuneytið, Velsæld

    Mælikvarðar um hagsæld og lífsgæði birtir á nýjum vef

    Hagstofa Íslands hefur opnað nýjan vef: Velsældarvísar: Miðlun mælikvarða um hagsæld og lífsgæði á Íslandi sem er ætlað að gefa heildarmynd af hagsæld og lífsgæðum landsmanna yfir tíma. Á vefsíðunni má finna upplýsingar um 39 velsældarmælikvarða auk velsældarkvarða embættis landslæknis sem mælir andlega líðan fólks.

    • First
    • Prev
    • 30
    • 31
    • 32
    • 33
    • 34
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband