Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Líf og heilsa
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1651–1700 af 2497
    Raða eftir:
    14. feb. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Þróun þjónustu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins 2014 – 2019

    Fjallað er um þjónustu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í máli og myndum, um þróun hennar og árangur, í nýrri samantekt á vef stofnunarinnar. Aðgengi að þjónustu heilsugæslunnar hefur verið bætt til muna með nýjungum og breyttu skipulagi, sálfræðingar og sjúkraþjálfarar starfa nú á öllum heilsugæslustöðvunum 15 og skipulögð heilsuvernd fyrir aldraða er í sókn. Um þetta og margt fleira má lesa um í samantektinni, auk tölfræðiupplýsinga um notkun þjónustunnar og hvernig hún hefur þróast frá ári til árs.

    13. feb. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Landspítali, stærsta stofnun landsins, kominn með jafnlaunavottun

    Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85, í kjölfar úttektar Versa vottunar ehf. Í janúar síðastliðnum hlaut Sjúkrahúsið á Akureyri einnig jafnlaunavottun og nýverið bættist Lyfjastofnun í hóp þeirra stofnana heilbrigðisráðuneytisins sem hafa innleitt jafnlaunakerfi í samræmi við jafnlaunastaðalinn og hlotið jafnlaunavottun.

    13. feb. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Almannatryggingar og lífeyrir

    Frumvarp til breytinga á lögum um slysatryggingar almannatrygginga til umsagnar

    Birt hafa verið í samráðsgátt drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um slysatryggingar almannatrygginga. Markmið fyrirhugaðra breytinga er að skýra betur réttarstöðu slysatryggðra samkvæmt lögunum og að einfalda löggjöfina. Umsagnarfrestur er til 27. febrúar næstkomandi.

    13. feb. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilsugæslan nýtur mikils trausts

    Notendur heilsugæsluþjónustu hjá heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu bera almennt mikið traust til heilsugæslunnar (74%), eru ánægðir með þjónustuna (79%) og telja viðmót og framkomu starfsfólks gott (90%). Þetta er meðal þess sem lesa má úr niðurstöðu þjónustukönnunar sem fyrirtækið Maskína vann fyrir Sjúkratryggingar Íslands (SÍ).

    11. feb. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Vegna umfjöllunar um þjónustu Landspítala við transbörn

    Vegna frétta í fjölmiðlum um transteymi barna- og unglingageðdeildar Landspítala (BUGL) hefur spítalinn sent frá sér tilkynningu þar sem áréttað er að þjónusta fyrir þennan hóp er eftir sem áður veitt á BUGL. Unnið sé að því að finna bót á erfiðri stöðu sem skapast hefur vegna skorti á fagmenntuðu starfsfólki til að manna transteymið.

    10. feb. 2020Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Sjúklingar borga minna

    Minnkun greiðsluþátttöku sjúklinga er eitt af þeim atriðum sem ég hef sett í sérstakan forgang í embætti heilbrigðisráðherra. Í fjármálaáætlun stjórnvalda til ársins 2024 eru 3,5 milljarðar króna sérstaklega ætlaðir til að draga úr kostnaði sjúklinga vegna heilbrigðisþjónustu og auka á móti framlög hins opinbera. Fyrir áramót kynnti ég áform um ráðstöfun 1,1 milljarðs króna af þeirri upphæð til að minnka greiðsluþátttöku sjúklinga á næstu tveimur árum.

    07. feb. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Samningur um tannlækningar barna framlengdur

    Sjúkratryggingar Íslands og Tannlæknafélag Íslands hafa undirritað samning sem kveður á um framlengingu rammasamnings um tannlækningar barna sem rann út um síðustu áramót. Framlengdur samningur gildir til loka janúar árið 2021. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur staðfest framlengdan samning með undirritun.

    07. feb. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Líf og heilsa

    Styðjandi samfélag, verkefni fyrir fólk með heilabilun, stutt af félags- og barnamálaráðherra

    Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, ávarpaði í dag fund í Ketilshúsinu á Akureyri sem haldinn var til að marka upphaf verkefnisins Styðjandi samfélag.

    07. feb. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Starfshópur um heilsueflingu aldraðra

    Heilbrigðisráðherra hefur falið starfshópi að móta tillögur um samstarfsverkefni til að vinna að heilsueflingu aldraðra og stuðla þannig að því að þeir geti búið sem lengst í heimahúsum. Hópurinn er tekinn til starfa. Gert er ráð fyrir að hann ljúki vinnu sinni með tillögum til ráðherra í lok maí næstkomandi.

    05. feb. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ásthildur Knútsdóttir skipuð skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað Ásthildi Knútsdóttur í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu lýðheilsu og forvarna í heilbrigðisráðuneytinu til næstu fimm ára. Ráðherra skipar Ásthildi að undangengnu mati ráðgefandi nefndar sem metur hæfni umsækjenda. Niðurstaða nefndarinnar var að Ásthildur væri mjög vel hæf til að gegna starfinu.

    05. feb. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Félagasamtökum úthlutað 95 m.kr. til verkefna á sviði heilbrigðisþjónustu

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra úthlutaði í gær 95 milljónum króna af safnliðum fjárlaga til félagasamtaka sem starfa að heilbrigðismálum. Að þessu sinni var áhersla lögð á verkefni tengd heilsueflingu aldraðra og kvennaheilsu. Alls hlutu 27 félagasamtök styrki til 32. aðskilinna verkefna sem miða að því að veita einstaklingum eða hópum stuðning, fræðslu og ráðgjöf.

    04. feb. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Reglugerð til umsagnar: Viðurkenning á faglegri menntun og hæfi heilbrigðisstarfsfólks frá öðrum ríkjum EES

    ​Birt hafa verið til umsagnar drög að nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra sem varðar viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi heilbrigðisstarfsmanna frá öðrum ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins og Sviss. Reglugerðin helst í hendur við frumvarp ráðherra menntamála um breytingu á lögum nr. 26/2010 sem miðast við að leiða í lög öll nauðsynleg nýmæli tilskipunar Evrópusambandsins 2013/55/EB hvað þetta varðar.

    04. feb. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir, Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Landbúnaður, Lýðheilsa og forvarnir, Lyfjamál, Heilbrigðisráðuneytið

    Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóður stofnaður

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, stofnuðu í dag Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóð og undirrituðu úthlutunarreglur sjóðsins með formlegum hætti.

    31. jan. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Auglýst eftir umsóknum um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra

    Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra auglýsir eftir umsóknum um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2020. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land.

    31. jan. 2020Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Umhverfi og náttúruvernd, Heilbrigðismál, Lýðheilsa og forvarnir, Vopn sprengiefni og skoteldar, Dómsmálaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Mengun af völdum skotelda og tillögur um aðgerðir

    Niðurstöður starfshóps og tillögur.

    30. jan. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra skrifar: Viðbrögð við kórónaveiru

    Í lok árs 2019 bárust fregnir af alvarlegum lungnasýkingum í Wuhan-borg í Kína, þá af óþekktum orsökum. Í kjölfarið var staðfest að um sýkingar af völdum kórónaveiruafbrigðis væri að ræða. Sýking af völdum veirunnar hefur nú þegar verið greind hjá um sex þúsund manns, einkum í Kína. Sennilega er veiran upprunin í dýrum en hefur nú öðlast hæfileika til að sýkja menn og staðfest er að hún getur smitast manna á milli en óljóst er hversu smitandi hún er. Ekkert smit hefur verið staðfest á Íslandi.

    30. jan. 2020Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Viðbrögð við kórónaveiru

    ​Í lok árs 2019 bárust fregnir af alvarlegum lungnasýkingum í Wuhan-borg í Kína, þá af óþekktum orsökum. Í kjölfarið var staðfest að um sýkingar af völdum kórónaveiruafbrigðis væri að ræða. Sýking af völdum veirunnar hefur nú þegar verið greind hjá um sex þúsund manns, einkum í Kína. Sennilega er veiran upprunin í dýrum en hefur nú öðlast hæfileika til að sýkja menn og staðfest er að hún getur smitast manna á milli en óljóst er hversu smitandi hún er. Ekkert smit hefur verið staðfest á Íslandi.

    29. jan. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Almannatryggingar og lífeyrir

    Tillögur að breytingum á lögum um slysatryggingar almannatrygginga

    Slysahugtak gildandi laga verður rýmkað, skýrt kveðið á um að tryggingavernd laganna nái einnig til bótaskyldra atvinnusjúkdóma og bætt við nýrri lagagrein þar sem atvinnusjúkdómar verða í fyrsta skipti skilgreindir í íslenskum lögum. Þetta eru meðal mikilvægra réttarbóta sem starfshópur á vegum heilbrigðisráðherra sem unnið hefur að endurskoðun laga um slysatryggingar almannatrygginga leggur til að verði gerðar. Hópurinn hefur skilað ráðherra skýrslu með tillögum sínum.

    29. jan. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Fjárframlag til áframhaldandi meðferðar við lifrarbólgu C

    Landspítalinn og lyfjafyrirtækið Gilead hafa framlengt samstarfssamning sinn um meðferð sjúklinga með lifrarbólgu C hér á landi. Gilead mun áfram leggja til án endurgjalds lyfið Harvoni handa þeim sem þurfa á meðferð að halda. Heilbrigðisráðherra hefur lagt Landspítala til tæpar 30 milljónir króna vegna eftirstöðva kostnaðar við verkefnið á síðasta ári og veitt vilyrði fyrir áframhaldandi stuðningi á þessu ári og því næsta sem svarar tæpum 30 milljónum króna á ári. Fjármunirnir fara í rekstur og utanumhald verkefnisins, birtingu á rannsóknarniðurstöðum og þátttöku í vísindaþingum.

    28. jan. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Upplýsingamiðlun sóttvarnalæknis vegna kórónaveirunnar á íslensku og ensku

    Athygli er vakin á upplýsingamiðlun sóttvarnalæknis vegna kórónaveirunnar (2019-nCoV) á vef embættis landlæknis. Þar eru upplýsingar til heilbrigðisstarfsfólks, leiðbeiningar og fræðsla fyrir almenning, upplýsingar og fræðsla tengd alþjóðaflugi og fleira. Sóttvarnalæknir mun birta nýjar og mikilvægar upplýsingar á vef embættisins eftir því sem efni standa til.

    27. jan. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Óvissustig vegna kórónaveiru

    Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna í samráði við sóttvarnalækni og embætti landlæknis vegna kórónaveiru (2019-nCoV). Ekkert smit hefur verið staðfest á Íslandi.

    27. jan. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Ný skýrsla landlæknis um heilsugæslu á Suðurnesjum

    Ráðist hefur verið í ýmsar úrbætur varðandi rekstur og þjónustu heilsugæslu Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja sem raktar eru í nýrri eftirfylgniskýrslu embættis landlæknis. Ýmsir gæðavísar hafa verið innleiddir, teymisvinna hefur verið aukin og betur hefur gengið að manna í stöður lækna og hjúkrunarfræðinga. Sem stendur eru allar hjúkrunarstöður fullmannaðar. Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu embættisins.

    24. jan. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mistök í svari við fyrirspurn um kjör hjúkrunarfræðinga

    Í upphafi árs svaraði heilbrigðisráðuneytið skriflegri fyrirspurn þingmannsins Maríu Hjálmarsdóttur um launamun hjúkrunarfræðinga eftir sjúkrahúsum.

    22. jan. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Úthlutun styrkja til gæðaverkefna í heilbrigðisþjónustu

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra veitti í gær styrki til sjö gæðaverkefna í heilbrigðisþjónustunni. Gæðastyrkir hafa verið veittir árlega frá árinu 2001.

    18. jan. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Átakshópur skipaður vegna bráðamóttöku Landspítala

    Skipaður hefur verið átakshópur um lausnir á vanda bráðamóttöku Landspítala. Í hópnum eiga sæti tveir fulltrúar heilbrigðisráðuneytisins og tveir frá Landspítalanum. Vilborg Hauksdóttir, fyrrverandi skrifstofustjóri og til skamms tíma settur ráðuneytisstjóri í heilbrigðisráðuneytinu mun leiða starf hópsins en einnig verður frá ráðuneytinu sérfræðingur á sviði gagnagreiningar.

    17. jan. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Framtíðarsýn um bráðaþjónustu og sjúkraflutninga til 2030

    Starfshópur sem heilbrigðisráðherra fól að gera tillögur að framtíðarskipulagi sjúkraflutninga á Íslandi í samræmi við heilbrigðisstefnu til ársins 2030 hefur skilað ráðherra niðurstöðum sínum. Meginniðurstaða hópsins er að umsjón með sjúkraflutningum á landinu öllu þurfi að vera á einni hendi. Lagt er til að sett verði á fót miðstöð bráðaþjónustu og sjúkraflutninga (MBS) sem hafi víðtækt hlutverk með það að markmiði að samræma þjónustuna, veita faglegan stuðning, annast þjálfun og þróun fagstétta á þessu sviði og sinna gæðaeftirliti.

    16. jan. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Átakshópur skipaður vegna bráðamóttöku Landspítala

    Átakshópur verður skipaður til að finna lausnir á brýnum vanda bráðamóttöku Landspítala og hrinda þeim í framkvæmd. Þetta er sameiginleg niðurstaða fundar heilbrigðisráðherra, landlæknis og forstjóra Landspítalans sem haldinn var í heilbrigðisráðuneytinu í dag.

    16. jan. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Frumvarp til breytinga á lögum um sjúkratryggingar til umsagnar

    Birt hafa verið til umsagnar í samráðsgátt drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra til breytinga á lögum um sjúkratryggingar. Áformaðar breytingar eru meðal annars liður í framkvæmd heilbrigðisstefnu til ársins 2030.

    16. jan. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Samið til tveggja ára um rekstur og þjónustu hjúkrunarheimila

    Tekist hafa samningar milli Sjúkratrygginga Íslands og rekstraraðila hjúkrunarheimila um allt land um rekstur og þjónustu hjúkrunarheimila. Samið var við hvern og einn rekstraraðila en samningarnir eru samhljóða og taka til 2.468 hjúkrunar- og dvalarrýma. Andvirði þeirra nemur um 32,5 milljörðum króna á ári á verðlagi þessa árs. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur staðfest samningana sem gilda til ársloka 2021.

    16. jan. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Staðreyndir um heilbrigðisstofnanir og fjárveitingar síðustu ára

    Framlög ríkisins til Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins jukust um 24% á árabilinu 2017 – 2020. Aukningin til Landspítala nam um 12% á sama tímabili, 8% til Sjúkrahússins á Akureyri og 10% að meðaltali til heilbrigðisstofnananna sex sem starfa um allt land. Staðhæfingar sem fram hafa komið í opinberum umræðum, meðal annars um stórfelldan niðurskurð á Landspítala og heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni, eiga ekki við rök að styðjast.

    15. jan. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Skýrsla starfshóps um geðrækt í skólum

    Starfshópur á vegum embættis landlæknis sem unnið hefur tillögur um innleiðingu geðræktarstarfs, forvarna og stuðnings við börn og ungmenni í skólastarfi hefur skilað niðurstöðum sínum til heilbrigðisráðherra. Vinna starfshópsins er liður í framkvæmd þingsályktunar um stefnu og aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum.

    14. jan. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Annáll heilbrigðisráðuneytisins 2019

    Í meðfylgjandi annál má fá gott yfirlit í máli og myndum um fjölbreytt verkefni og markverð tíðindi úr störfum heilbrigðisráðuneytisins á liðnu ári.

    13. jan. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Endurgreiðslur tannlæknakostnaðar barna með skarð í gómi og vör

    Öllum börnum sem fæðast með skarð í efri tannboga eða með klofinn góm er tryggður réttur til endurgreiðslu vegna tannlækninga og tannréttinga sem nemur 95% af gjaldskrá tannlæknis, að undangengnu mati á þörf, samkvæmt reglugerð sem tók gildi 1. janúar síðastliðinn.

    11. jan. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ár hjúkrunar - heilbrigðisráðherra skrifar:

    Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) tileinkar árið 2020 hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum. ,,Ein stærsta áskorun sem heilbrigðiskerfi þjóða standa frammi fyrir nú er mönnunarvandi, t.d. í hjúkrunarfræði. Kjör skipta meginmáli við lausn á þessu máli og ljóst er að nauðsynlegt er að bæta kjör hjúkrunarfræðinga ljósmæðra og annarra stétta heilbrigðisstarfsfólks. Þá á ég við kjör í víðu samhengi, þ.e. laun, vinnutími og starfsumhverfi og full viðurkenning á menntun og ábyrgð" segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra í blaðagrein þar sem hún vekur athygli á ákvörðun WHO og því hve mikilvægt málefni er um að ræða.

    10. jan. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Reglugerð um endurgreiðslur vegna þjónustu sjúkraþjálfara

    Heilbrigðisráðherra hefur sett reglugerð sem tryggir endurgreiðslur sjúkratrygginga vegna þjónustu sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara sem starfa án samnings við Sjúkratryggingar Íslands. Reglugerðin tekur gildi 12. janúar næstkomandi. Endurgreiðslur skulu miðast við gjaldskrá sem Sjúkratryggingar Íslands setja. Meðan sjúkraþjálfarar hækka ekki verðskrá sína umfram gjaldskrá stofnunarinnar verður hlutfall endurgreiðslu til sjúklinga það sama og verið hefur. ​

    10. jan. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Lækkun komugjalda í heilsugæslu og aðrar gjaldskrárbreytingar 1. janúar

    Almenn komugjöld í heilsugæslu lækkuðu 1. janúar síðastliðinn úr 1.200 krónum í 700 krónur. Gjaldskrár vegna heilbrigðisþjónustu að öðru leyti hækkuðu um 2,5%. Bótafjárhæðir slysatrygginga almannatrygginga og dagpeningar sjúkratryggðra hækkuðu um 3,2%.

    09. jan. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Samið um þjónustu Ljóssins

    Sjúkratryggingar Íslands hafa gert þjónustusamning við Ljósið um endurhæfingarþjónustu við fólk sem greinst hefur með krabbamein. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur staðfest samninginn sem tók gildi 1. janúar síðastliðinn og gildir til ársloka 2023. Alls eru 220 milljónir króna tryggðar rekstri Ljóssins í fjárlögum þessa árs.

    08. jan. 2020Líf og heilsa, Neytendamál, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ráðherra skipar samstarfsráð MAST

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað samstarfsráð Matvælastofnunar.

    07. jan. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Nýmæli í nýrri reglugerð um ferðakostnað sjúkratryggðra

    Sjúkratryggingar greiða fargjald eins fylgdarmanns með konu sem þarf að ferðast til að fæða barn á heilbrigðisstofnun samkvæmt nýrri reglugerð um ferðakostnað sjúkratryggðra og aðstandenda þeirra innanlands sem tók gildi 1. janúar sl. Þetta er nýmæli og sömuleiðis ákvæði þar sem komið er til móts við ferðakostnað nýrnasjúkra sem þurfa á reglubundinni blóðskilunarmeðferð að halda.

    07. jan. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Reglugerðarbreyting í þágu sykursjúkra

    Reglugerð heilbrigðisráðherra sem kveður á um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í nýjum búnaði fyrir sykursjúka með insúlínháða sykursýki tók gildi 1. janúar síðastliðinn. Búnaðurinn hefur til þessa ekki staðið til boða sjúklingum með sykursýki hér á landi. Með reglugerðinni er einnig kveðið á um aukinn rétt fólks sem er nýgreint með sykursýki til niðurgreiddra blóðstrimla til blóðsykursmælinga.

    07. jan. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Reglubundin bólusetning barna við hlaupabólu og bólusetning við kíghósta fyrir áhættuhópa

    Öll börn sem fædd eru 1. janúar 2019 eða síðar eiga nú rétt á bólusetningu við hlaupabólu án endurgjalds. Reglugerð þessa efnis tók gildi 1. janúar síðastliðinn. Reglugerðin kveður einnig á um bólusetningu við kíghósta fyrir sérstaka áhættuhópa og mælir sóttvarnalæknir með slíkum bólusetningum fyrir barnshafandi konur.

    07. jan. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Tillögum Embættis landlæknis vegna bráðamóttöku LSH hrint í framkvæmd

    Heilbrigðisráðuneytið hefur lagt allt kapp á að hrinda í framkvæmd aðgerðum sem embætti landlæknis lagði til í hlutaúttekt vegna alvarlegrar stöðu á bráðamóttöku Landspítalans fyrir ári. Aðgerðirnar hafa skilað árangri og bíða nú nokkru færri einstaklingar á deildum spítalans vegna útskriftarvanda en þegar úttektin var gerð.

    06. jan. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Árið 2020 helgað hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum

    Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) tileinkar árið 2020 hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum. Stofnunin bendir á að þessar starfsstéttir gegni þýðingarmiklu í heilbrigðisþjónustu hvers samfélags og standi jafnvel alfarið undir opinberri heilbrigðisþjónustu í sumum þeirra. Markmiðið er að vekja athygli á þessu mikilvæga hlutverki, stuðla að því að það sé metið og viðurkennt og ýta undir að þjóðir heims fjárfesti í menntun og störfum hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra.

    27. des. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Hönnunarsamkeppni um nýtt hjúkrunarheimili á Húsavík

    Efnt hefur verið til samkeppni um hönnun á nýju 60 rýma hjúkrunarheimili á Húsavík sem leysa mun af hólmi dvalar- og hjúkrunarheimilið Hvamm. Heilbrigðisráðuneytið og sveitarfélögin Norðurþing, Skútustaðahreppur, Tjörneshreppur og Þingeyjarsveit standa saman að byggingu heimilisins.

    23. des. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tilraunaverkefni um sjúkraþyrlu í bígerð

    Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu heilbrigðisráðherra sem felur í sér undirbúning tilraunaverkefnis um notkun sjúkraþyrlu til að styrkja sjúkraflutninga í landinu og veita þannig bráðveikum og slösuðum sérhæfða þjónustu með sem skjótustum hætti. Heilbrigðisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra hefur verið falið að útfæra fjármögnun og tímasetningu verkefnisins.

    23. des. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Landlækni heimilað að halda skrá um heilabilunarsjúkdóma

    Embætti landlæknis hefur verið veitt heimild með lögum til að setja á fót gagnagrunn um heilabilunarsjúkdóma. Þingmannafrumvarp þessa efnis var samþykkt á Alþingi nýverið. Ákvörðun Alþingis er í samræmi við tillögur til aðgerða í drögum að stefnu í málefnum fólks með heilabilun sem verið að leggja á lokahönd í heilbrigðisráðuneytinu.

    23. des. 2019Atvinnuvegaráðuneytið, Líf og heilsa

    Tveggja vikna einangrun í stað fjögurra

    Í nýjum drögum er lagt til að einangrun dýranna verði stytt úr fjórum vikum í 14 sólarhringa.

    23. des. 2019Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Drög að frumvarpi til laga um lækningatæki til umsagnar

    Birt hafa verið til umsagnar drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra til laga um lækningatæki. Meginmarkmiðið er að tryggja gæði og öryggi lækningatæka í þágu almennings og sjúklinga. Frumvarpið fjallar meðal annars um auknar kröfur til framleiðenda lækningatækja, eftirlit með þeim og eftirfylgni á markaði. Áhersla er lögð á rekjanleika lækningatækja, m.a. til að tryggja að hægt sé að innkalla gölluð tæki hratt og örugglega. Frestur til að skila umsögn um frumvarpið er til 10. janúar næstkomandi.

    19. des. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Milljörðum varið til að lækka greiðsluþátttöku sjúklinga

    Komugjöld í heilsugæslu verða felld niður í áföngum, niðurgreiðslur sjúkratrygginga fyrir tannlæknisþjónustu og lyf verða auknar og sömuleiðis vegna tiltekinna hjálpartækja og reglur um ferðakostnað verða rýmkaðar. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti í dag áform um ráðstöfun 1,1 milljarðs króna á næstu tveimur árum til að lækka greiðsluþátttöku sjúklinga. Hluti aðgerðanna kemur til framkvæmda 1. janúar næstkomandi. Í fjármálaáætlun stjórnvalda eru 3,5 milljarðar króna ætlaðir til að draga úr kostnaði sjúklinga vegna heilbrigðisþjónustu til ársins 2024.

    19. des. 2019Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Aukin fræðsla um heilabilun

    19 desember 2019 / Heilbrigðisráðuneytið Aukin fræðsla um heilabilun Heilbrigðisráðuneytið Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar: Skilningur á aðstæðum og líðan fólks með heilabilun er mikilvæg forsenda þess að komið sé fram við það af þeirri virðingu sem því ber og að það fái viðeigandi þjónustu í öllum aðstæðum. Með það markmið í huga ákvað ég á dögunum að veita Alzheimersamtökunum 15 milljóna króna styrk til að hrinda í framkvæmd tveimur fræðsluverkefnum sem snúa að þjónustu við aldraða og fólki með heilabilun. Fræðsluverkefni Alzheimersamtakanna varða annars vegar svokölluð styðjandi samfélög og hins vegar jafningjafræðslu á hjúkrunarheimilum

    • First
    • Prev
    • 32
    • 33
    • 34
    • 35
    • 36
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband