Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Líf og heilsa
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1851–1900 af 2497
    Raða eftir:
    07. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Brjóstapúðar áfram til skoðunar

    Athygli er vakin á tilkynningu Embættis landlæknis og Lyfjastofnunar varðandi brjóstapúða af ákveðinni gerð, vegna tengsla þeirra við sjaldgæft eitilfrumukrabbamein (BIA-ALCL; breast implant-associated anaplastic large cell lymphoma). Púðarnir sem sjónir hafa einkum beinst að eru með hrjúfu yfirborði og framleiddir af lyfjafyrirtækinu Allergan. Hætt var að selja þessa púða í Evrópu í lok síðasta árs, líkt og fram kom í tilkynningu frá Lyfjastofnun í desember síðastliðnum.

    06. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Sjúkrahúsið á Akureyri hlýtur ISO-vottun, fyrst íslenskra heilbrigðisstofnana

    Sjúkrahúsið á Akureyri hefur fengið endunýjaða gæðavottun á starfsemi sinni sem það hlaut fyrst árið 2015, auk þess að hljóta nú vottun samkvæmt alþjóðlega gæðastaðlinum ISO 9001:2015. Sjúkrahúsið er fyrsta heilbrigðisstofnunin hér á landi sem hlýtur slíkar viðurkenningar.

    02. maí 2019Menningarmál, Menntamál, Líf og heilsa, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ný stefnumótun í íþróttamálum: öryggi, aðgengi og fagmennska

    Ný stefnumótun í íþróttamálum var kynnt í dag en hún var unnin í samstarfi mennta- og menningarmálaráðuneytisins og íþróttanefndar ríkisins.

    24. apr. 2019Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Lyfjamál, Heilbrigðisráðuneytið

    Tímamótasamstarf norrænna þjóða á sviði lyfjamála staðfest

    Samstarf Íslands, Danmerkur og Noregs á sviði lyfjamála var staðfest með undirritun samkomulags í Reykjavík í gær. Lægra lyfjaverð, öruggara framboð lyfja og þar með aukið öryggi sjúklinga er sá ávinningur sem stefnt er að með samstarfinu. Með þessu eru orðin að veruleika áform um samvinnu sem hafa verið á dagskrá í norrænu samstarfi um langt árabil.

    12. apr. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Stuðningur við aldraða til sjálfstæðrar búsetu verði aukinn

    Efnt verður til samstarfsverkefnis með áherslu á heilsueflingu aldraða og markvissari þjónustu við þá sem þurfa stuðning til að geta búið á eigin heimili vegna heilsubrests. Ríkisstjórnin samþykkti tillögu heilbrigðisráðherra þessa efnis á fundi sínum í dag. Undirbúningur verkefnisins verður á hendi ráðuneyta heilbrigðis- forsætis- félags- og fjármála, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Embættis landlæknis og mun starfshópur þessara aðila skila tillögum um fyrirkomulag þess til heilbrigðisráðherra í júní næstkomandi.

    11. apr. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Sameiginlegt norrænt útboð á lyfjum: Birting útboðsgagna

    Undirbúningi að fyrsta sameiginlega norræna lyfjaútboðinu er lokið og útboðsgögn hafa nú verið birt. Vonir standa til að samvinnan geti meðal annars aukið afhendingaröryggi lyfja sem skortur hefur verið á að undanförnu.

    09. apr. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Samningur um göngudeildarþjónustu SÁÁ

    Heilbrigðisráðherra staðfesti nýlega samning milli Sjúkratrygginga Íslands og SÁÁ; sjúkrastofnunar um áfengis- og vímuefnameðferð, sem fjallar um þjónustu á göngudeildum SÁÁ í Reykjavík og á Akureyri.

    09. apr. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra fjallaði um norræna baráttu gegn sýklalyfjaónæmi

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra gerði grein fyrir vinnu Norrænu ráðherranefndarinnar gegn auknu sýklalyfjaónæmi á þingi Norðurlandaráðs sem haldið er í Kaupmannahöfn í dag. Norðurlandaþjóðirnar hafa aukið samstarf sitt í þessum efnum, enda er sýklalyfjaónæmi alvarlegt og vaxandi heilbrigðisvandamál í heiminum.

    09. apr. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Tækjakostur heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni efldur

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið skiptingu rúmlega 420 milljóna króna af fjárlögum sem varið verður til að efla tækjakost heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni þar sem endurnýjunarþörf er orðin brýn.

    05. apr. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Aukin heilbrigðisþjónusta við fanga

    Fjárframlög til heilbrigðisþjónustu við fanga eru aukin og aðgengi að þjónustunni bætt með meiri viðveru heilbrigðisstarfsfólks samkvæmt nýgerðum samningi Sjúkratrygginga Íslands og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins um heilbrigðisþjónustu í fangelsinu á Hólmsheiði. Samningsgerð er hafin um stórbætta geðheilbrigðisþjónustu í fangelsum landsins.

    05. apr. 2019Forsætisráðuneytið, Líf og heilsa, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ráðherranefnd um matvælastefnu fyrir Ísland

    Ákveðið hefur verið að vinna áfram að mótun matvælastefnu fyrir Ísland. Umboð verkefnisstjórnar, sem unnið hefur að áfangaskýrslu um málefnið frá því í ágúst 2018, verður endurnýjað og fjölgað í verkefnisstjórninni.

    05. apr. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Forgangsröðun til að stytta bið sjúklinga eftir tilteknum aðgerðum

    Liðskiptaaðgerðir, augasteinsaðgerðir, tilteknar kvenlíffæraaðgerðir og brennsluaðgerðir vegna gáttatifs verða í forgangi við ráðstöfun 840 milljóna króna sem ætlaðar eru til að stytta bið sjúklinga eftir mikilvægum aðgerðum.

    02. apr. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Tilraunaverkefni um bætt aðgengi að þjónustu sérgreinalækna á landsbyggðinni

    Íbúum í umdæmi Heilbrigðisstofnunar Austurlands hefur verið tryggt aðgengi að þjónustu bæklunarlækna og þvagfæraskurðlækna með samningum stofnunarinnar við Sjúkrahúsið á Akureyri og Landspítalann. Heilbrigðisráðuneytið hefur veitt stofnuninni 15 milljónir króna til að standa straum af samningunum í eitt ár.

    02. apr. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisþjónusta á Suðurnesjum efld vegna aukins atvinnuleysis

    Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fær aukna fjármuni til að efla ýmsa þætti í þjónustu sinni og laga hana að breyttum þörfum og aðstæðum íbúa vegna stóraukins atvinnuleysis á svæðinu. Ríkisstjórnin samþykkti tillögu Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra þessa efnis á fundi sínum í dag.

    29. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Óskar Reykdalsson skipaður forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að skipa Óskar Reykdalsson forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins til fimm ára.

    28. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Norrænt samstarf, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Norrænt samstarf til bjargar slösuðum í kjölfar stórbruna

    Norðurlandaþjóðirnar hafa skipulagt formlegt samstarf sín á milli með viðbragðsáætlun sem unnt er að virkja ef margir slasast af völdum bruna. Samstarfið getur skipt sköpum við björgun mannslífa ef margir þarfnast sérhæfðrar meðferðar vegna alvarlegra brunasára. Fjallað var um samstarfið í tengslum við fund norrænna félags- og heilbrigðisráðherra í Reykjavík í gær.

    27. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Efnahagsmál og opinber fjármál, Fjármálaáætlun

    Fjármálaáætlun og megináherslurnar í heilbrigðismálum

    Stórauknum fjármunum verður varið til að lækka greiðslubyrði sjúklinga vegna heilbrigðisþjónustu, styrkja geðheilbrigðisþjónustuna um allt land og efla heilbrigðisþjónustu við aldraða samkvæmt fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Áætlunin endurspeglar áherslur heilbrigðisráðherra og markmið heilbrigðisstefnu til ársins 2030.

    27. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Líf og heilsa, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Norrænt samstarf

    Framtíð Norðurlandaþjóða byggist á velferð barna og ungmenna

    Norrænt samstarf á sviði velferðarmála var í brennidepli þegar norrænir ráðherrar félags- og heilbrigðismála hittust á árlegum fundi sínum í dag sem að þessu var haldinn í Reykjavík. Sem fyrr kom glöggt fram á fundinum hvað norrænu þjóðirnar eru skyldar í mörgum efnum, hafa svipaðar áherslur og leggja allar sem ein ríka áherslu á velferðarkerfin sem einn af mikilvægustu hornsteinum samfélagsins. ​

    27. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Úthlutun 77 milljóna króna til verkefna á sviði heilbrigðismála

    Heilbrigðisráðherra úthlutaði í liðinni viku 77 milljónum króna til frjálsra félagasamtaka sem vinna að margvíslegum verkefnum á sviði heilbrigðismála. Að þessu sinni var áhersla lögð á styrki til verkefna sem lúta að geðheilbrigði barna og ungs fólks og verkefna í þágu fólks með heilabilun.

    27. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Líf og heilsa, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Norrænt samstarf, Formennska Íslands 2019

    Fullt hús á norrænni ráðstefnu um geðheilbrigði barna

    Á fimmta hundrað manns sækja norræna ráðstefnu um geðheilbrigði barna sem haldin verður á Grand hótel á morgun. Fjöldi manns er á biðlista. Streymt verður frá ráðstefnunni og vitað er að margir munu fylgjast með streyminu, hérlendis og erlendis.

    22. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Skýrari heimildir til kvörtunar vegna heilbrigðisþjónustu og einfaldari málsmeðferð

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti á fundi sínum í ríkisstjórn í morgun frumvarp sitt til breytinga á lögum um landlækni og lýðheilsu og lögum um réttindi sjúklinga. Markmið breytinganna er að skýra kvörtunarheimildir vegna heilbrigðisþjónustu og einfalda málsmeðferð í slíkum málum.

    21. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Úthlutun styrkja til gæðaverkefna í heilbrigðisþjónustu

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra veitti í dag rúmar tvær milljónir króna í styrki til fimm gæðaverkefna í heilbrigðisþjónustu. Verkefnin eru á ólíkum sviðum en hafa hvert og eitt skýran tilgang í þágu notenda þeirrar þjónustu sem um ræðir. „Metnaðarfull verkefni sem geta haft mikil áhrif“ sagði heilbrigðisráðherra við styrkveitinguna í dag.

    20. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heimild fyrir rekstri neyslurýma verði leidd í lög

    Frumvarp Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra sem kveður á um lagaheimild til að stofna og reka neyslurými hefur verið lagt fram á Alþingi. Markmiðið með rekstri neyslurýma er að draga úr skaðlegum afleiðingum af notkun ávana- og fíkniefna.

    19. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Lýðheilsa og forvarnir, Líf og heilsa

    Um 90 milljónum króna úthlutað til lýðheilsuverkefna

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra úthlutaði í dag tæpum 90 milljónum króna úr lýðheilsusjóði til fjölbreyttra verkefna og rannsókna um allt land. Alls hlutu styrki 172 verkefni á sviði geðræktar næringar, hreyfingar, tannverndar og áfengis- vímu- og tóbaksvarna.

    14. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Norrænt samstarf

    Vestnorrænir heilbrigðisráðherrar funduðu í Færeyjum

    Lyfjamál og mönnun heilbrigðisþjónustunnar voru þau málefni sem hæst bar á árlegum tveggja daga fundi heilbrigðisráðherra Íslands, Færeyja og Grænlands sem lauk í Færeyjum í gær. Ráðherrarnir ræddu meðal annars möguleika á samstarfi við menntun heilbrigðisstarfsfólks og mönnun heilbrigðisþjónustunnar.

    11. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Staðreyndir um mislinga á heimsvísu

    Dauðsföllum af völdum mislinga á heimsvísu fækkaði um 80% milli áranna 2000 og 2017 vegna aukinnar áherslu á bólusetningu. Áætlað er að bólusetning fyrir mislingum hafi komið í veg fyrir 21,1 milljón dauðsfalla á þessu árabili. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur tekið saman staðreyndir um mislinga og bólusetningu við þeim og segir stofnunin bólusetningu við sjúkdómnum með ábatasömustu fjárfestingum til að efla lýðheilsu.

    11. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra skrifar um bætt skipulag krabbameinsskimana

    „Með markvissum skimunum er hægt að ná enn betri árangri í baráttunni gegn krabbameini" segir í blaðagrein Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra í dag. Ráðherra fjallar þar um áformaðar breytingar á fyrirkomulagi skimana í samræmi við tillögur skimunarráðs og Embættis landlæknis sem tengjast einnig innleiðingu íslenskrar krabbameinsáætlunar.

    08. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Yfirlýsing vegna rekstrar og endurnýjunar sjúkrabíla

    Sjúkratryggingar Íslands hafa að ósk heilbrigðisráðuneytisins fengið opnun útboðs vegna kaupa á sjúkrabílum frestað fram í ágúst. Ástæðan eru samningaviðræður milli ráðuneytisins og Rauða krossins á Íslandi sem þarf að leiða til lykta, en forsenda þess að útboð geti farið fram er að samkomulag náist í viðræðum milli aðila. Heilbrigðisráðuneytið og Rauði krossinn hafa sammælst um eftirfarandi yfirlýsingu til upplýsingar um stöðu viðræðnanna.

    07. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Framlagningu frumvarps til lyfjalaga frestað til hausts

    Þörf er á lengra samráðsferli og frekari gögnum svo unnt sé að ljúka vinnu við frumvarp til nýrra lyfjalaga sem heilbrigðisráðherra áformaði að leggja fram á Alþingi í vor. Ráðherra hefur því ákveðið að fresta framlagningu þess til haustsins.

    05. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Tillögur að breyttu skipulagi skimana fyrir krabbameinum til framtíðar

    Embætti landlæknis og skimunarráð hafa skilað heilbrigðisráðherra tillögum að breyttu skipulagi á stjórnun, staðsetningu og framkvæmd skimana fyrir krabbameinum. Landlæknir telur framtíðarlausn á fyrirkomulagi þessara mála nauðsynlega svo skipuleggja megi skimanir til langs tíma.

    04. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Formennska Íslands 2019, Norrænt samstarf, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Norrænt samstarf: Mikilvæg ráðstefna um geðheilbrigði barna 28. mars

    Geðrækt, forvarnir og snemmtæk íhlutun er viðfangsefni stórrar norrænnar ráðstefnu um geðheilbrigði barna í Reykjavík 28. mars. Ráðstefnan er haldin að frumkvæði Íslands sem leiðir samstarf á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar á þessu ári.

    01. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Skoðunarhandbók um markaðseftirlit með lækningatækjum gefin út í fyrsta sinn

    Lyfjastofnun hefur gefið út skoðunarhandbók um markaðseftirlit með lækningatækjum og er þetta fyrsta handbókin sem gefin er út um þetta efni hér á landi.

    01. mar. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Áherslur í heilbrigðismálum og tiltekin forgangsverkefni

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur á grunni heilbrigðisstefnu til ársins 2030 ákveðið að setja nú þegar tiltekin verkefni í forgang þar sem þörf fyrir skýrar ákvarðanir og markvissar aðgerðir er mjög brýn. Ráðherra fjallar um þetta í blaðagrein í dag.

    28. feb. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Gildistaka laga um rafrettur 1. mars 2019

    Ný lög um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur öðlast gildi á morgun, 1. mars. Í lögunum er kveðið á um innflutning, markaðssetningu, notkun og öryggi þessa varnings og ráðstafanir til að sporna við notkun barna á rafrettum.

    28. feb. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Stuðningsteymi á Landspítala fyrir langveik börn í burðarliðnum

    Landspítalinn auglýsir á næstunni eftir fagfólki til starfa í nýju ráðgjafar- og stuðningsteymi fyrir langveik börn og fjölskyldur þeirra. Heilbrigðisráðherra ákvað á síðasta ári að veita spítalanum 40 milljónir króna til að koma teyminu á fót.

    28. feb. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Vegna ákvörðunar SÁÁ um tímabundna lokun göngudeildarþjónustu á Akureyri

    Samningviðræður standa yfir milli Sjúkratrygginga Íslands og SÁÁ um rekstur göngudeildarþjónustu á Akureyri. Fjárframlag af hálfu ríkisins til starfseminnar er tryggt í fjárlögum þessa árs. Það kemur því á óvart að SÁÁ ætli að loka göngudeildarþjónustunni tímabundið frá og með morgundeginum vegna kostnaðar, líkt og fram hefur komið í fjölmiðlum.

    26. feb. 2019Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðismál, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Um 790 hjúkrunarrými á framkvæmdaáætlun til ársins 2023

    Alls eru 790 hjúkrunarrými á framkvæmdaáætlun til ársins 2023, þar af er fjölgun um rúmlega 580 rými og endurbætur á yfir 200 rýmum. Ítarlega er fjallað um uppbyggingu á þessu sviði og hvernig þessi mál hafa þróast frá árinu 2009 í skriflegu svari Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra við fyrirspurn á Alþingi sem birt var í dag.

    26. feb. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisþjónusta: Málsmeðferð í kvörtunarmálum verði einfölduð

    Drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra sem hefur að markmiði að einfalda og skýra málsmeðferð innan Embættis landlæknis í kvörtunarmálum hefur verið birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Umsagnarfrestur er til 11. mars næstkomandi.

    25. feb. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Markús Ingólfur Eiríksson verður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að skipa Markús Ingólf Eiríksson forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja að undangengnu mati ​lögskipaðrar nefndar sem metur hæfni umsækjenda um stöður forstjóra heilbrigðisstofnana. Skipað er í embættið til fimm ára, frá 1. mars næstkomandi.

    25. feb. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Starfsáætlun Embættis landlæknis til ársins 2020

    Embætti landlæknis hefur birt starfsáætlun sína til ársins 2020. Þar kemur fram hverjar verða helstu áherslur í störfum embættisins og hvaða aðgerðir verða í forgangi. Verkefnin varða almenning, fagfólk og stjórnvöld, auk þess að snúa að innra starfi embættisins.

    22. feb. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Drög að frumvarpi varðandi neyslurými til umsagnar

    Drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni hefur verið birt til umsagnar. Markmiðið með frumvarpinu er að veita heimild til að stofna og reka neyslurými að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Umsagnarfrestur er til 4. mars næstkomandi.

    22. feb. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Drög að frumvarpi til nýrra lyfjalaga birt til umsagnar

    Birt hafa verið til umsagnar í samráðsgátt drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra til nýrra lyfjalaga. Umsagnarfrestur er til 3. mars næstkomandi. Gildandi lyfjalög eru að stofni til frá árinu 1994. Frá þeim tíma hafa verið gerðar á þeim margvíslegar breytingar og heildarendurskoðun þeirra því tímabær.

    22. feb. 2019Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Samkomulag um byggingu hjúkrunarheimilis á Húsavík

    Heilbrigðisráðuneytið og sveitarfélögin Norðurþing, Skútustaðahreppur, Tjörneshreppur og Þingeyjarsveit munu standa saman að byggingu 60 rýma hjúkrunarheimilis á Húsavík sem áætlað að verði tekið í notkun á vormánuðum ársins 2021. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Kristján Þór Magnússon sveitarstjóri Norðurþings undirrituðu samning þessa efnis í dag.

    21. feb. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Úthlutun 630 milljóna króna til að efla geðheilbrigðisþjónustu á landvísu

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra tilkynnti í dag hvernig 630 milljónum króna af fjárlögum ársins verður ráðstafað til að efla geðheilbrigðisþjónustu á landsvísu. Fénu verður varið til að fjölga stöðugildum sálfræðinga í heilsugæslu annars vegar og til að efla og byggja upp geðheilsuteymi um allt land.

    21. feb. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Faglegt álit um blóðgjafir samkynhneigðra karlmanna

    Ráðgjafanefnd um fagleg málefni blóðbankaþjónustu hefur skilað heilbrigðisráðherra faglegu áliti sínu um það hvort slaka beri á reglum sem gilda hér á landi um blóðgjafir samkynhneigðra karlmanna.

    20. feb. 2019Ræður og greinar, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Landspítali þjónustar börn og ungmenni í fíknivanda

    Landspítalinn undirbýr nú að taka að sér þjónustu við börn og ungmenni í fíknivanda í samræmi við ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra. Þessi hópur hefur hingað til fengið þjónustu af hálfu SÁÁ en nú hefur verið ákveðið að færa þetta verkefni til Landspítalans. Ráðherra fjallar um málið í blaðagrein sem birtist í dag.

    19. feb. 2019Menningarmál, Líf og heilsa, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Lyfjaeftirlit eflt

    Stjórnvöldum ber samkvæmt íþróttalögum að sinna lyfjaeftirliti og á dögunum var skrifað undir langtímasamning við Lyfjaeftirlit Íslands um starfsemi þess og fjármögnun.

    15. feb. 2019Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðismál, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Samkeppni um hönnun nýs hjúkrunarheimilis í Hornafirði

    Hönnunarsamkeppni um nýtt hjúkrunarheimili í Hornafirði fyrir 30 íbúa verður auglýst um helgina. Heimilið mun leysa af hólmi hjúkrunarheimilið Skjólgarð þar sem búa 24 einstaklingar, flestir í tvíbýli. Áætlað er að niðurstöður hönnunarsamkeppni liggi fyrir í lok maí og að heimilið verði fullbyggt og tilbúið til notkunar vorið 2021.

    15. feb. 2019Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Heilbrigðisráðherra heimsótti Sjúkratryggingar Íslands

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra heimsótti í vikunni Sjúkratryggingar Íslands, kynnti sér stofnunina og starfsemi hennar, heilsaði upp á starfsfólk og átti fund með forstjóra og sviðsstjórum.

    13. feb. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Jóhanna Fjóla skipuð forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vesturlands til eins árs

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað Jóhönnu Fjólu Jóhannesdóttur í embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vesturlands til eins árs. Jóhanna hefur gegnt starfinu sem settur forstjóri frá 1. febrúar 2017 í fjarveru Guðjóns S. Brjánssonar sem situr á Alþingi.

    • First
    • Prev
    • 36
    • 37
    • 38
    • 39
    • 40
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband