14. mar. 2026Ræður og greinar, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Mikilvægasta auðlindin
Nýsköpun er mikilvægur aflgjafi hvers samfélags. Að fá hugmyndir og koma þeim í verk, finna nýjar lausnir á gömlum vanda, að hagnýta rannsóknir og vísindi fyrir samfélag og atvinnulíf. Án nýsköpunar yrði býsna fátæklegt um að litast hér á landi. Auðlindirnar okkar eru betur nýttar með því að virkja hugvitið í meira mæli.Ég er þeirrar skoðunar að framtíð verðmætasköpunar, og um leið velferðar þjóðarinnar, byggi á öflugri nýsköpun - í víðum skilningi. Þess vegna hefur menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið lagt áherslu á aukið samspil milli þeirra málaflokka sem varða sköpun með einum eða öðrum hætti: milli háskóla og rannsókna, stuðningsumhverfis nýsköpunar og skapandi greina.