Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 2001–2050 af 3013
    Raða eftir:
    28. jún. 2019Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Heilbrigðisstefna til ársins 2030 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun

    Heilbrigðisstefna – stefna fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu til ársins 2030 er nú aðgengileg sem skýrsla heilbrigðisráðuneytisins á vef Stjórnarráðsins. Heilbrigðisstefnan var samþykkt sem ályktun frá Alþingi 4. júní síðastliðinn. Fimm ára aðgerðaáætlun heilbrigðisstefnu 2019 til 2023 hefur einnig verið birt á skýrsluformi á vefnum. Aðgerðaáætlunin var lögð fram sem þingskjal 149. löggjafarþingi 2018 – 2019 (Þingskjal 1704 — 961. mál.

    24. jún. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Drög að stefnu í málefnum fólks með heilabilun

    Hér með eru birt til umsagnar drög að stefnu um málefni einstaklinga með heilabilum. Drögin vann Jón Snædal öldrunarlæknir að beiðni heilbrigðisráðherra. Umsagnarfrestur er til 15. ágúst næstkomandi.

    24. jún. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Aðgerðaáætlun til að draga úr sykurneyslu landsmanna

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti fyrir ríkisstjórn síðastliðinn föstudag áætlun sem Embætti landlæknis hefur unnið um aðgerðir til að draga úr sykurneyslu landsmanna. Á fundi ríkisstjórnarinnar var ákveðið að skipa starfshóp sem falið verður að innleiða áætlunina. Heilbrigðisráðherra fjallar um málið í eftirfarandi blaðagrein í dag.

    21. jún. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Umsækjendur um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurlands

    Sex sækja um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurlands sem heilbrigðisráðuneytið auglýsti laust til umsóknar í lok maí. Umsóknarfrestur rann út 18. júní síðastliðinn.

    21. jún. 2019Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Niðurstöður hönnunarsamkeppni um nýtt hjúkrunarheimili á Höfn í Hornafirði

    BASALT arkítektar ásamt verkfræðistofunni EFLU voru hlutskarpastir í hönnunarsamkeppni um nýtt hjúkrunarheimili sem byggt verður á Höfn í Hornafirði. Sautján tillögur bárust, þrjár hlutu verðlaun og tvær viðurkenningu. Niðurstöður dómnefndar eru meðfylgjandi.

    21. jún. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Viðmið fyrir umföllun um geðheilbrigðismál í fjölmiðlum

    Heilbrigðisráðherra skipaði í október á liðnu ári starfshóp sem falið var að setja fram ábendingar fyrir fjölmiðla um hvernig best megi fjalla um geðheilbrigðismál án þess að alið sé á fordómum. Starfshópurinn var skipaður í samræmi við ályktun Alþingis um stefnu og aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum til fjögurra ára. Starfshópurinn hefur samið drög að viðmiðum fyrir fjölmiðla í þessu skyni og eru þau nú til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda.

    20. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Heimsmarkmiðin, Dómsmálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Sameinuðu þjóðirnar birta landsrýniskýrslu Íslands um heimsmarkmiðin

    Sameinuðu þjóðirnar hafa birt á vef sínum skýrslu íslenskra stjórnvalda um innleiðingu heimsmarkmiðanna.

    19. jún. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Vel heppnaðir kynningarfundir um nýja heilbrigðisstefnu fyrir norðan og vestan

    Opinn kynningarfundur sem Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra efndi til um heilbrigðisstefnu til ársins 2030 var haldinn á Ísafirði í gær og annar fundur á Akureyri fyrir viku. Ráðherra mun standa fyrir sambærilegum fundum í öllum heilbrigðisumdæmum landsins í samvinnu við heilbrigðisstofnanir umdæmanna. Umfjöllunin snýst um efni og innleiðingu stefnunnar og líkleg áhrif hennar á heilbrigðisþjónustu við íbúa í viðkomandi heilbrigðisumdæmum og á landsvísu.

    19. jún. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Alþjóðleg könnun á viðhorfum fólks til bólusetninga

    Hér á landi telja 97% almennings að bólusetningar séu áhrifaríkar til að koma í veg fyrir sjúkdóma og 99% telja bólusetningar mikilvægar fyrir börn. Aftur á móti eru um 40% aðspurða í vafa um öryggi bóluefna. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri alþjóðlegri skoðanakönnun um ýmis heilbrigðismál þar sem meðal annars var spurt um afstöðu fólks til bólusetninga.

    14. jún. 2019Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið

    Markviss vinna skilar árangri

    14 júní 2019 / Heilbrigðisráðuneytið Markviss vinna skilar árangri Heilbrigðisráðuneytið Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar: Í fréttum vikunnar kom fram að dauðsföllum vegna ofneyslu lyfseðilsskyldra lyfja fækkaði um helming á fyrstu mánuðum ársins miðað við sama tímabil í fyrra, úr tuttugu í níu. Við sjáum að þróun undanfarinna ára hefur hér verið snúið við en misnotkun lyfja sem valdið geta ávana og fíkn hefur farið hratt vaxandi undanfarin ár og haft í för með sér alvarlegar afleiðingar. Til marks um það er fjölgun dauðsfalla fólks undir fertugu vegna ofneyslu lyfseðilsskyldra lyfja úr að meðaltali fimmtán á ári á tímabilinu 2001-2015 í rúmlega þrjátíu dauðsföll árið 2018

    14. jún. 2019Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið, Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis

    Úrskurður nr. 3/2019

    Kærð var ákvörðun Embættis landlæknis sem synjaði kæranda um útgáfu CCPS-vottorðs. Ráðuneytið staðfesti ákvörðun embættisins.

    13. jún. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Ný heilbrigðisstefna kynnt á opnum fundi á Ísafirði 18. júní

    Heilbrigðisstefna til ársins 2030 kynnt 18. júní á hjúkrunarheimilinu Eyri á Ísafirði.

    12. jún. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Heilbrigðismál

    Opinn kynningarfundur um heilbrigðisstefnu til ársins 2030

    Efnt var til opins kynningarfunda um nýsamþykkta heilbrigðisstefnu í Hofi á Akureyri 12. júní. Fjallað var um hvað felst í stefnunni, hvaða breytingar hún er líkleg til að hafa í för með sér og hvers vegna hún skiptir svo miklu máli, hvort heldur í þéttbýli eða í dreifðari byggðum landsins.

    09. jún. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Ný heilbrigðisstefna kynnt á opnum fundi á Akureyri 12. júní

    Efnt verður til opinna kynningarfunda um nýsamþykkta heilbrigðisstefnu til ársins 2030 í öllum heilbrigðisumdæmum landsins og verður fyrsti fundurinn haldinn í Hofi á Akureyri 12. júní næstkomandi. Fjallað verður um hvað felst í stefnunni, hvaða breytingar hún er líkleg til að hafa í för með sér og hvers vegna hún skiptir svo miklu máli, hvort heldur í þéttbýli eða í dreifðari byggðum landsins.

    07. jún. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Lýðheilsuvísar: Heilsa og líðan fólks eftir landshlutum

    Tæplega 30% fullorðinna og rúmlega 70% framhaldsskólanema ná ekki nægum svefni. – Dagleg neysla orkudrykkja meðal framhaldsskólanema hefur aukist úr 21,7% árið 2016 í 54,6% árið 2018. – Dregið hefur úr ávísunum sýklalyfja til barna. – Þátttaka í skimun fyrir leghálskrabbameini og brjóstakrabbameini hefur minnkað síðastliðin ár. – Um 60% landsmanna telja sig mjög hamingjusama. Þetta og margt fleira má lesa út úr nýjum lýðheilsuvísum Embættis landlæknis.

    05. jún. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Minnt á samráðsferli um rafræna fylgiseðla

    Drög að stefnu um rafrænar lyfjaupplýsingar eru til umsagnar í samráðsgátt á vegum Lyfjastofnunar Evrópu o.fl. Stefnan fjallar um samræmingu upplýsinga um lyf á Evrópska efnahagssvæðinu og eru þar sett fram ýmis rök fyrir margvíslegum ávinningi af notkun rafrænna fylgiseðla. Hagsmunaaðilum og almenningi er gefinn kostur á að segja álit sitt á stefnudrögunum. Nánar er fjallað um málið á vef Lyfjastofnunar.

    05. jún. 2019Heilbrigðisráðuneytið

    Fyrsti ársfundur Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

    „Hér fyrir þig“ eru ný einkunnarorð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sem kynnt voru á ársfundi stofnunarinnar í liðinni viku. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra ræddi í ávarpi um margþætt og mikilvæg hlutverk heilsugæslunnar, helstu áskoranir í heilbrigðismálum og tækifærin sem felast í forvörnum og heilsueflingu þar sem heilsugæslan getur haft mikil áhrif. Ársskýrsla Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins kom út í tilefni ársfundarins og er aðgengileg á vef stofnunarinnar.

    04. jún. 2019Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Hinn þögli faraldur - Þjónusta við fólk með ákominn heilaskaða

    júní 2019 / Heilbrigðisráðuneytið Hinn þögli faraldur - Þjónusta við fólk með ákominn heilaskaða Hinn þögli faraldur. Þjónusta við fólk með ákominn heilaskaða - skýrsla starfshóps (júní 2019)

    04. jún. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Þjónusta við fólk með ákominn heilaskaða

    Starfshópur sem Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skipaði til að fjalla um þjónustu við fólk með ákominn heilaskaða og leiðir til að bæta hana hefur skilað ráðherra skýrslu með tillögum sínum.

    04. jún. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisstefna til ársins 2030 samþykkt á Alþingi

    Samþykkt var á Alþingi í gær tillaga Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra til þingsályktunar um heilbrigðisstefnu til ársins 2030. Tillagan var samþykkt með 45 atkvæðum og án mótatkvæða. „Heilbrigðisstefnan er sameign okkar allra, lýðræðislega kjörið Alþingi stendur að baki henni. Þetta eru mikilvæg tímamót“ sagði heilbrigðisráðherra sem kynnti heilbrigðisstefnuna á blaðamannafundi í gær.

    29. maí 2019Forsætisráðuneytið, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið, Landbúnaður, Lýðheilsa og forvarnir, Innviðaráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ísland í fararbroddi í aðgerðum til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmis

    Ísland ætlar að vera í farabroddi í aðgerðum til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmis. Þá ætla íslensk stjórnvöld, innan ramma alþjóðlegra skuldbindinga og á grundvelli lýðheilsusjónarmiða, að koma í veg fyrir dreifingu matvæla sem í greinast sýklalyfjaónæmar bakteríur.

    28. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Greiðsluþátttaka vegna tæknifrjóvgunar aukin umtalsvert

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur sett reglugerð sem kveður á um aukna greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í kostnaði þeirra sem fara í tæknifrjóvgun. Þegar reglugerðin tekur gildi verður greiðsluþátttaka sjúkratrygginga vegna tæknifrjóvgunar orðin meiri en hún hefur áður verið. „Það er ánægjulegt að geta gert þessa breytingu, því hún jafnar aðgengi fólks að mikilvægri þjónustu“ segir ráðherra.

    27. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Endurskoðað stjórnskipulag við uppbyggingu Landspítala

    Ábyrgð á öllum verkþáttum sem varða uppbyggingu nýs Landspítala verður á einni hendi samkvæmt drögum að nýju skipulagi sem heilbrigðisráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneytið hafa þróað. Markmiðið er að ná betri heildaryfirsýn yfir alla þætti verkefnisins þar sem í senn er horft til heildarskipulags, nýbygginga, nýtingar og aðlögunar eldri bygginga og rekstrar sjúkrahúss. Tillaga þessa efnis var samþykkt á fundi ríkisstjórnar sl. föstudag.

    27. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið

    Heilbrigðisráðherra skrifar um heilsueflingu

    „Það er tímabært að breyta um kúrs og forgangsraða fjármunum til verkefna sem stuðla að bættri heilsu og auknum lífsgæðum alla ævi" segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra í nýrri blaðagrein þar sem hún fjallar um mikilvægi heilsueflingar á öllum æviskeiðum.

    27. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Vel sótt vinnustofa um uppbyggingu árangursríkra geðheilsuteyma

    Heilbrigðisráðuneytið hélt fyrir helgi vinnustofu með fulltrúum geðheilsuteyma af öllu landinu og fulltrúum notenda geðheilbrigðisúrræða um uppbyggingu árangursríkra geðheilsuteyma á landsvísu. Mikill áhugi var fyrir vinnustofunni og komust færri að en vildu.

    27. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Reglugerð um tilkynningar til þátttakenda í vísindarannsóknum á heilbrigðissviði

    Birt hefur verið til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda reglugerð heilbrigðisráðherra sem kveður á um í hvaða tilfellum og hvernig eigi að tilkynna þátttakanda í vísindarannsókn um mikilvæga þætti sem koma fram við gerð rannsóknar og varðar heilsu hans.

    24. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Bið eftir aðgerðum: margþættur vandi sem kallar á fjölbreyttar úrlausnir

    Ný úttekt Embættis landlæknis með ýtarlegri greiningu á biðlistum vegna valinna aðgerða og ástæðum þess að ekki hefur náðst ásættanlegur árangur við að stytta biðtíma varpar ljósi á margþættan vanda sem þarf að takast á við eftir ólíkum leiðum. Eftirspurn eftir liðskipaaðgerðum hefur aukist verulega á liðnum árum og umfram spár. Þróunin er sambærileg hér og hjá öðrum þjóðum. ​ ​ ​ ​ ​ ​ ​ ​ ​

    24. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    InterRAI-mælitækin og framkvæmd færni- og heilsumats

    Vinnuhópur á vegum heilbrigðisráðherra hefur skilað skýrslu með ýtarlegum tillögum um úrbætur við notkun InterRAI- mælitækjanna í öldrunarþjónustu og ýmsum breytingum á framkvæmd færni- og heilsumats. Hópurinn skilaði ráðherra skýrslu sinni í gær.

    24. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ávarp heilbrigðisráðherra á þingi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar

    Harald Aspelund, sendiherra í Genf, flutti ræðu Svandísar Svavarsdóttur á 72. þingi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar sem nú stendur yfir í Genf. Yfirskrift ræðunnar var Heilbrigðisþónusta fyrir alla – Skiljum engan eftir (e. Universal health coverage: leaving no-one behind) og fjallaði um megináherslur Íslands í heilbrigðismálum og þau verkefni sem nú eru í forgangi af hálfu stjórnvalda.

    24. maí 2019Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    InterRAI-mælitækin og færni og heilsumat

    maí 2019 / Heilbrigðisráðuneytið InterRAI-mælitækin og færni og heilsumat InterRAI-mælitækin og færni- og heilsumat Skýrsla vinnuhóps um áframhaldandi vinnu í kjölfar úttektar KPMG fyrir Embætti landlæknis (maí 2019)

    20. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Fastanefndir, Líf og heilsa, Fastanefnd og sendiráð Íslands í Genf, Sendiskrifstofa

    72. þing Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar-innar

    Í dag hófst í Genf 72. þing Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Áhugasamir geta fylgst með beinni útsendingu frá þinginu á vefnum.

    16. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Þrjátíu ný dagdvalarrými fyrir fólk með heilabilun

    Opnuð hefur verið í Hrafnistu í Laugarási ný dagdvöl ætluð fólki með heilabilun, með aðstöðu fyrir 30 einstaklinga. Aðstöðunni var komið á fót með breytingum á húsnæði sem ekki var lengur unnt að nýta til reksturs hjúkrunarrýma. Heilbrigðisráðherra gerði nýsköpun og getuna til að sjá tækifæri í breyttum aðstæðum að umtalsefni í ávarpi sem hún flutti við vígslu deildarinnar.

    16. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Ráðherra hitti fulltrúa notenda geðheilbrigðisþjónustu á samráðsfundi

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hitti á fundi í heilbrigðisráðuneytinu í vikunni fulltrúa notenda geðheilbrigðisþjónustu. Þetta er í annað sinn sem slíkur samráðsfundur er haldinn en áformað er að halda þá tvisvar á ári. Verið er að ráða fulltrúa notenda inn í geðheilsuteymi Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

    14. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Auglýst eftir veitendum geðheilbrigðisþjónustu í fangelsum

    Sjúkratryggingar Íslands hafa auglýst eftir áhugasömum aðila til að útfæra og veita geðheilbrigðisþjónustu við fanga í öllum fangelsum landsins. Auknir fjármunir til að efla geðheilbrigðisþjónustu við fanga eru tryggðir í fjárlögum þessa árs.

    14. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Heilbrigðismál

    Nýmæli í þjónustu Sjúkrahússins á Akureyri

    Bjarni Jónasson, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri, fjallaði um ýmis nýmæli í þjónustu sjúkrahússins í ávarpi á ársfundi þess í liðinni viku. Hann sagði frá bættu vinnulagi sem hefur gert kleift að fjölga gerviliðaaðgerðum til muna og gerði einnig rafrænar lausnir og fjarþjónustu að umtalsefni. Elsa B. Friðfinnsdóttir, skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu sótti fundinn og flutti ávarp fyrir hönd heilbrigðisráðherra.

    14. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið

    Frumvarp um þungunarrof samþykkt á Alþingi

    Frumvarp Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um þungunarrof var samþykkt sem lög frá Alþingi í gær. Markmið laganna er að tryggja að sjálfsforræði kvenna sem óska eftir þungunarrofi sé virt með því að veita þeim öruggan aðgang að heilbrigðisþjónustu í samræmi við ákvæði laganna.

    14. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Norræn ráðstefna: JÖFNUÐUR - HEILSA - VELLÍÐAN

    Boðað er til ráðstefnu um jöfnuð, heilsu og vellíðan sem haldin verður í Reykjavík 29. maí 2019 í samvinnu við Norrænu ráðherranefndina. Skráning er hafin.

    10. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið

    Frumvarp til nýrra lyfjalaga til umsagnar í samráðsgátt

    Drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra til nýrra lyfjalaga eru komin til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda í kjölfar endurskoðunar. Umsagnarferli lýkur 3. júní næstkomandi.

    10. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Miklar breytingar með nýrri reglugerð um dvöl á sjúkrahóteli

    Heilbrigðisráðherra hefur undirritað nýja reglugerð um dvöl á sjúkrahóteli. Nýja sjúkrahótelið við Hringbraut er tekið til starfa og voru fyrstu gestirnir innritaðir í byrjun vikunnar. Reglugerðin felur í sér grundvallarbreytingar sem rýmka verulega rétt fólks til að dvelja á sjúkrahóteli frá því sem verið hefur.

    09. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ný lög um ófrjósemisaðgerðir

    Frumvarp heilbrigðisráðherra til laga um ófrjósemisaðgerðir hefur verið samþykkt á Alþingi. Með lögun er skýrt kveðið á um rétt fólks til ófrjósemisaðgerðir, að þær skuli vera gjaldfrjálsar og framkvæmdar af þeim sem hafa tilskilda menntun og reynslu.

    08. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra skrifar: Stöndum vörð um heilbrigðisþjónustuna

    „Það er stefna mín og lögbundin skylda að stofna ekki til samninga um veitingu heilbrigðisþjónustu sem vega að stoðum hins opinbera þjónustukerfis" skrifar Svandís Svavarsdóttir meðal annars í blaðagrein þar sem hún fjallar um ríkið sem kaupanda heilbrigðisþjónustu.

    07. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Brjóstapúðar áfram til skoðunar

    Athygli er vakin á tilkynningu Embættis landlæknis og Lyfjastofnunar varðandi brjóstapúða af ákveðinni gerð, vegna tengsla þeirra við sjaldgæft eitilfrumukrabbamein (BIA-ALCL; breast implant-associated anaplastic large cell lymphoma). Púðarnir sem sjónir hafa einkum beinst að eru með hrjúfu yfirborði og framleiddir af lyfjafyrirtækinu Allergan. Hætt var að selja þessa púða í Evrópu í lok síðasta árs, líkt og fram kom í tilkynningu frá Lyfjastofnun í desember síðastliðnum.

    06. maí 2019Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Sjúkrahúsið á Akureyri hlýtur ISO-vottun, fyrst íslenskra heilbrigðisstofnana

    Sjúkrahúsið á Akureyri hefur fengið endunýjaða gæðavottun á starfsemi sinni sem það hlaut fyrst árið 2015, auk þess að hljóta nú vottun samkvæmt alþjóðlega gæðastaðlinum ISO 9001:2015. Sjúkrahúsið er fyrsta heilbrigðisstofnunin hér á landi sem hlýtur slíkar viðurkenningar.

    24. apr. 2019Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Lyfjamál, Heilbrigðisráðuneytið

    Tímamótasamstarf norrænna þjóða á sviði lyfjamála staðfest

    Samstarf Íslands, Danmerkur og Noregs á sviði lyfjamála var staðfest með undirritun samkomulags í Reykjavík í gær. Lægra lyfjaverð, öruggara framboð lyfja og þar með aukið öryggi sjúklinga er sá ávinningur sem stefnt er að með samstarfinu. Með þessu eru orðin að veruleika áform um samvinnu sem hafa verið á dagskrá í norrænu samstarfi um langt árabil.

    12. apr. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Stuðningur við aldraða til sjálfstæðrar búsetu verði aukinn

    Efnt verður til samstarfsverkefnis með áherslu á heilsueflingu aldraða og markvissari þjónustu við þá sem þurfa stuðning til að geta búið á eigin heimili vegna heilsubrests. Ríkisstjórnin samþykkti tillögu heilbrigðisráðherra þessa efnis á fundi sínum í dag. Undirbúningur verkefnisins verður á hendi ráðuneyta heilbrigðis- forsætis- félags- og fjármála, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Embættis landlæknis og mun starfshópur þessara aðila skila tillögum um fyrirkomulag þess til heilbrigðisráðherra í júní næstkomandi.

    12. apr. 2019Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Dómsmálaráðuneytið

    Samstarf um stofnun og rekstur Bergsins Headspace - lágþröskuldaþjónustu fyrir ungt fólk

    Á grundvelli tillagna frá stýrihópi stjórnarráðsins í málefnum barna hafa félags- og barnamálaráðherra, heilbrigðisráðherra, mennta- og menningarmálaráðherra, dómsmálaráðherra og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra ákveðið að taka þátt í samstarfi um stofnun og rekstur þverfaglegs móttöku- og stuðningsúrræðis fyrir ungt fólk. Um er að ræða tilraunaverkefni til tveggja ára og munu ráðherrarnir verja 30 milljónum króna á ári til verkefnisins þ.m.t. í formi stöðugilda.

    11. apr. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Sameiginlegt norrænt útboð á lyfjum: Birting útboðsgagna

    Undirbúningi að fyrsta sameiginlega norræna lyfjaútboðinu er lokið og útboðsgögn hafa nú verið birt. Vonir standa til að samvinnan geti meðal annars aukið afhendingaröryggi lyfja sem skortur hefur verið á að undanförnu.

    10. apr. 2019Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Atvinnuvegir, Samgöngur og fjarskipti, Vinnumál, Atvinnuvegaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Viðbrögð stjórnvalda vegna gjaldþrots WOW air

    Stjórnvöld hafa brugðist við með fjölmörgum aðgerðum frá því að flugfélagið WOW air hætti starfsemi 28. mars sl. Ráðherrar hafa fundað með fulltrúum vinnumálastofnana og heilbrigðisstofnana.

    09. apr. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Samningur um göngudeildarþjónustu SÁÁ

    Heilbrigðisráðherra staðfesti nýlega samning milli Sjúkratrygginga Íslands og SÁÁ; sjúkrastofnunar um áfengis- og vímuefnameðferð, sem fjallar um þjónustu á göngudeildum SÁÁ í Reykjavík og á Akureyri.

    09. apr. 2019Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra fjallaði um norræna baráttu gegn sýklalyfjaónæmi

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra gerði grein fyrir vinnu Norrænu ráðherranefndarinnar gegn auknu sýklalyfjaónæmi á þingi Norðurlandaráðs sem haldið er í Kaupmannahöfn í dag. Norðurlandaþjóðirnar hafa aukið samstarf sitt í þessum efnum, enda er sýklalyfjaónæmi alvarlegt og vaxandi heilbrigðisvandamál í heiminum.

    • First
    • Prev
    • 39
    • 40
    • 41
    • 42
    • 43
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband