Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 2051–2100 af 3887
    Raða eftir:
    09. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    825/2019. Úrskurður frá 27. september 2019

    Kærendur óskuðu eftir því að utanríkisráðuneytið veitti þeim aðgang að öllum gögnum borgaraþjónustumáls. Ráðuneytið synjaði beiðninni að hluta á þeim grundvelli að annars vegar væri um að ræða upplýsingar um viðkvæma einkahagsmuni einstaklinga, sbr. 9. gr. upplýsingalaga, en hins vegar að heimilt væri að takmarka aðgang kærenda að upplýsingum um samskipti við önnur ríki og fjölþjóðastofnanir, sbr. 2. tölul. 10. gr. laganna. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að um upplýsingarétt kærenda færi eftir 1. mgr. 14. gr. upplýsingalaga. Fallist var á röksemdir ráðuneytisins varðandi hluta umbeðinna gagna en um önnur vísaði nefndin til þess að ekki væri um viðkvæma einkahagsmuni að ræða eða mikilvægir almannahagsmunir stæðu ekki til beitingar 2. tölul. 10. gr., sbr. 3. mgr. 14.…

    09. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    824/2019. Úrskurður frá 27. september 2019

    Í málinu var deilt um þá ákvörðun Menntamálastofnunar að synja beiðni kæranda um aðgang samræmdum könnunarprófum sem lögð voru fyrir dóttur kæranda í september 2018. Fyrir lá að kærandi hafði fengið aðgang að svörum barnsins en hafði verið synjað um aðgang að prófspurningunum. Leyst var úr málinu á grundvelli 14. gr. upplýsingalaga. Fallist var á heimild Menntamálastofnunar til að synja kæranda um aðgang að prófspurningunum á grundvelli 5. tölul. 10. gr. upplýsingalaga, sbr. 2. tölul. 2. mgr. 14. gr. laganna, enda hafði stofnunin fyrirhugað að leggja annað prófið fyrir í óbreyttri mynd og hitt prófið í svo til óbreyttri mynd, haustið 2019.

    09. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    823/2019. Úrskurður frá 27. september 2019

    Deilt var um synjun sveitarfélagsins Árborgar á beiðni um skýrslu sem unnin var af sálfræðistofunni Lífi og sál og varðaði athugun á innra starfsumhverfi í Barnaskólanum [...]. Í fyrstu var kæranda synjað um aðgang að skýrslunni í heild sinni en undir rekstri málsins fékk kærandi aðgang að skýrslunni, þar sem strikað hafði verið yfir upplýsingar um einkahagsmuni tiltekinna einstaklinga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að um aðgang kæranda að skýrslunni færi samkvæmt 14. gr. upplýsingalaga. Var það mat nefndarinnar að hagsmunir kæranda af því að fá aðgang að skýrslunni vægju þyngra en hagsmunir þeirra sem upplýsingarnar vörðuðu af því að það sem strikað var yfir færi leynt, sbr. 3. mgr. 14. gr. laganna.…

    08. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Almannaöryggi

    Áttundi fundur þjóðaröryggisráðs

    Fjallað var um undirbúning stefnu Norðurlandaráðs um sameiginlegar áherslur á sviði samfélagslegs öryggis og stöðuna í öryggis- og varnarsamstarfi við önnur ríki, ekki síst á vettvangi Norðurlanda á 8. fundi þjóðaröryggisráðs sem haldinn var 1. október sl.

    04. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Listaverkið Tákn á þaki Arnarhvols

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita 6 milljónum kr. af ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar til listakonunnar Steinunnar Þórarinsdóttur.

    04. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Vinnumál, Atvinnuvegir

    Fjölbreytt atvinnutækifæri um land allt til umræðu í ríkisstjórn

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, lagði fram minnisblað á ríkisstjórnarfundi í morgun þar sem áréttað var mikilvægi þess að skoðað verði gaumgæfilega hvort að þær stofnanir sem ráðuneyti áformi að setja á laggirnar geti verið staðsettar utan höfuðborgarsvæðisins.

    04. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Lög og réttur, Rekstur og eignir ríkisins, Þjóðlendur

    Ríkisstjórnin samþykkir að leggja fram á Alþingi frumvarp um breytingu á þjóðlendulögum

    Ríkisstjórnin samþykkti að frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 58/1998 um þjóðlendur verði lagt fram á Alþingi sem stjórnarfrumvarp á fundi sínum í morgun.

    03. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Dreifing fjármagns til rannsókna, þróunar og nýsköpunar eftir landshlutum rædd á fundi Vísinda- og tækniráðs

    Á fundi Vísinda- og tækniráðs í dag kynnti Daði Már Kristófersson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, framhaldsúttekt sína um dreifingu fjármagns til rannsókna, þróunar og nýsköpunar eftir landshlutum. Í úttektinni er sjónum m.a. beint að árangurshlutfalli umsókna eftir landshlutum, þ.e. hlutfalli samþykktra umsókna af heildarfjölda umsókna á svæðinu, en á því sést að fjármagn dreifist með tiltölulega jöfnum hætti til þeirra svæða þaðan sem umsóknir berast.

    30. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Lög og réttur

    Frumvarpi forsætisráðherra til laga um heimild til að greiða bætur vegna sýknudóms Hæstaréttar í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu dreift á Alþingi

    Frumvarpi forsætisráðherra til laga um heimild til að greiða bætur vegna sýknudóms Hæstaréttar í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu hefur verið dreift á Alþingi.

    27. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Lög og réttur

    Frumvarp til laga um sanngirnisbætur afgreitt úr ríkisstjórn

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra lagði fram í ríkisstjórn í morgun frumvarp til laga um sanngirnisbætur í kjölfar sýknudóms Hæstaréttar í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu. Var samþykkt að frumvarpið verði lagt fram á Alþingi

    26. sep. 2019Dómsmálaráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra flytur ávarp á fundi um skýrslu Milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hélt opnunarávarp á kynningarfundi um skýrslu Milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (IPCC) sem kom út í gær.

    26. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Heimsmarkmiðin, Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Nýskipað ungmennaráð heimsmarkmiðanna kemur saman í fyrsta sinn

    Ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna fundaði í utanríkisráðuneytinu í dag. Um var að ræða fyrsta fund nýskipaðs ungmennaráðs en þetta er í annað sinn sem skipað er í ráðið.

    26. sep. 2019Innviðaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Samgöngur og fjarskipti, Samgönguáætlun, Samgöngusáttmálinn, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Vegasamgöngur, Loftslagsmál, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Sáttmáli undirritaður um fjölbreyttar samgöngur á höfuðborgarsvæðinu

    Í dag var undirritað tímamótasamkomulag um uppbyggingu á fjölbreyttum samgöngum á höfuðborgarsvæðinu.

    26. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Stjórnskipan og þjóðartákn

    Samráð við almenning við endurskoðun stjórnarskrár

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, kynnti fyrir hönd formanna stjórnmálaflokka sem sæti eiga á Alþingi tilhögun samráðs við almenning við endurskoðun stjórnarskrárinnar á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í dag.

    25. sep. 2019Dómsmálaráðuneytið, Heimsmarkmiðin, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Utanríkismál, Forsætisráðuneytið

    Leiðtogafundur um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og vettvangur um viðskipti og sjálfbæra þróun

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, sat opnun á leiðtogafundi um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna í New York í gær. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkur leiðtogafundur er haldinn frá því markmiðin voru samþykkt árið 2015. Þá stýrði forsætisráðherra pallborðsumræðum í dag ásamt Carlos Alvarado Quesada, forseta Kosta Ríka um heimsmarkmiðin.

    23. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Forsætisráðherra flutti ávarp á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, flutti ávarp á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York í dag. Leiðtogafundurinn er haldinn að frumkvæði aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, António Guterres, þar sem hann kallar eftir forystu leiðtoga heims í aðgerðum gegn loftslagsvánni.

    22. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Heimsmarkmiðin

    Forsætisráðherra sækir leiðtogafund um loftslagsmál á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, sækir leiðtogafund um loftslagsmál á 74. allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna sem stendur yfir þessa dagana í New York. Loftslagsfundurinn er haldinn að frumkvæði aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, António Guterres, þar sem hann kallar eftir afgerandi forystu leiðtoga heims á vettvangi loftslagsbreytinga og hvetur ríki til þess að grípa til róttækra aðgerða til þess að forðast verstu afleiðingar loftslagsvánnar og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.

    20. sep. 2019Forsætisráðuneytið

    Yfirlýsing frá forsætisráðuneytinu

    Að gefnu tilefni vill forsætisráðuneytið árétta að ríkislögmaður annast vörn í einkamálum sem höfðuð eru gegn ríkinu og hefur almennt forræði á kröfugerð og framsetningu hennar í umboði viðkomandi stjórnvalda hverju sinni.

    19. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Forsætisráðherra flutti ávarp á stofnfundi Samstarfsvettvangs stjórnvalda og atvinnulífs um loftslagsmál og grænar lausnir

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, flutti ávarp á stofnfundi Samstarfsvettvangs stjórnvalda og atvinnulífs um loftslagsmál og grænar lausnir á Grand hóteli í dag.

    19. sep. 2019Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti, Norrænt samstarf, Formennska Íslands 2019, Forsætisráðuneytið

    Alþjóðlegri #metoo-ráðstefnu lokið

    Alþjóðlegri ráðstefnu um áhrif #metoo bylgjunnar lauk í Hörpu í dag með umfjöllun um Norðurlöndin og framtíð hreyfingarinnar. Tæplega 20 konur stigu á svið og deildu stuttum hugleiðingum um framhald #metoo. Í kjölfarið slógu Reykjavíkurdætur lokataktinn og ráðstefnunni var slitið formlega.

    19. sep. 2019Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti, Norrænt samstarf, Formennska Íslands 2019, Forsætisráðuneytið

    Alþjóðlegri #metoo-ráðstefnu lokið

    Alþjóðlegri ráðstefnu um áhrif #metoo bylgjunnar lauk í Hörpu í dag með umfjöllun um Norðurlöndin og framtíð hreyfingarinnar. Tæplega 20 konur stigu á svið og deildu stuttum hugleiðingum um framhald #metoo. Í kjölfarið slógu Reykjavíkurdætur lokataktinn og ráðstefnunni var slitið formlega.

    19. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Forsætisráðherra afhenti Ian McEwan bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness í fyrsta sinn

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, afhenti Ian McEwan bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness í fyrsta sinn í Veröld, húsi Vigdísar í dag. Forsætisráðherra tilkynnti um verðlaunin í apríl sl. á Bókmenntahátíð í Reykjavík

    19. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Rannveig Sigurðardóttir og Unnur Gunnarsdóttir fluttar í starf varaseðlabankastjóra

    Rannveig Sigurðardóttir og Unnur Gunnarsdóttir hafa verið fluttar í starf varaseðlabankastjóra. Í nýjum lögum um Seðlabanka Íslands, sem samþykkt voru í júní sl, er kveðið á um að skipaðir verði þrír varaseðlabankastjórar til fimm ára í senn. Einn varaseðlabankastjórinn leiði málefni sem varða peningastefnu, annar málefni sem varða fjármálastöðugleika og sá þriðji málefni sem varða fjármálaeftirlit.

    18. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    822/2019. Úrskurður frá 10. september 2019

    Kæru var vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál þar sem beiðni kæranda laut að gögnum í tilteknu sakamáli en upplýsingalög taka ekki til slíkra gagna, sbr. 1. mgr. 4. gr. upplýsingalaga.

    18. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    821/2019. Úrskurður frá 10. september 2019

    Kæru vegna afgreiðslu dómstólasýslunnar á beiðni um aðgang að gögnum var vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál þar sem meðferð dómstólasýslunnar á gagnabeiðni er ekki kæranleg til nefndarinnar.

    18. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    820/2019. Úrskurður frá 10. september 2019

    Kæru vegna synjunar skrifstofu Alþingis á beiðni um aðgang að gögnum var vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál þar sem ákvörðunin er ekki kæranleg til nefndarinnar.

    18. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    819/2019. Úrskurður frá 10. september 2019

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að umsóknargögnum tilteknar vörumerkjarumsóknar. Ekki var fallist á það að gögnin væru undanskilin upplýsingarétti þar sem óheimilt hafi verið að veita aðgang að þeim á grundvelli ákvæðis í vörumerkjalögum sem var við gildi þegar umsóknin var lögð fram. Þá féllst nefndin ekki á að óheimilt væri að veita kæranda aðgang að gögnunum vegna 9. gr. upplýsingalaga en í þeim væri ekki að finna upplýsingar um einka- eða fjárhagsmálefni sem sanngjarnt væri og eðlilegt að leynt færu. Var því Hugverkastofunni gert að veita kæranda aðgang að umsóknargögnunum.

    18. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    818/2019. Úrskurður frá 10. september 2019

    Fallist var á rétt kæranda til aðgangs að fylgiskjali yfirlýsingar sem Grímsnes- og Grafningshreppur og Byggingarfélagið Geysir undirrituðu 27. september 2005. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ekki að fylgiskjalið, sem hafði að geyma yfirlit yfir greiðslur lóðareigenda fyrir vatnsinntak við sumarhúsalóðir í Grímsnes- og Grafningshreppi, innihéldi viðkvæmar fjárhagsupplýsingar um einstaklinga sem óheimilt væri að veita aðgang að vegna 9. gr. upplýsingalaga. Þá var kæru vegna afgreiðslu Grímsnes- og Grafningshrepps á beiðni um aðgang að undirrituðum samningi vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál þar sem umbeðið gagn væri ekki fyrirliggjandi.

    18. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    817/2019. Úrskurður frá 10. september 2019

    Kæru var vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál á þeim grundvelli að umbeðin gögn væru ekki fyrirliggjandi í skilningi upplýsingalaga og lægi ekki fyrir synjun beiðni um aðgang að gögnum sem kæranleg væri til nefndarinnar.

    18. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    816/2019. Úrskurður frá 10. september 2019

    Kæru var vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál á þeim grundvelli að umbeðin gögn væru ekki fyrirliggjandi í skilningi upplýsingalaga og því lægi ekki fyrir synjun beiðni um aðgang að gögnum sem kæranleg væri til nefndarinnar.

    18. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    815/2019. Úrskurður frá 10. september 2019

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að upplýsingum í þremur minnisblöðum Reykjavíkurborgar. Úrskurðarnefndin staðfesti ákvörðun Reykjavíkurborgar um að synja kæranda um aðgang að einu minnisblaðinu í heild sinni þar sem í því væru upplýsingar um að tilteknir einstaklingar hafi verið grunaðir um refsiverða háttsemi. Nefndin taldi minnisblaðið geyma viðkvæmar upplýsingar um einkahagi einstaklinga sem sanngjarnt væri og eðlilegt að leynt færi, sbr. 9. gr. upplýsingalaga og að ekki væri unnt að afhenda hluta þess, sbr. 3. mgr. 5. gr. laganna. Þá var staðfest ákvörðun Reykjavíkurborgar um að synja kæranda um aðgang að upplýsingum um framgang starfsmanns í starfi sem afmáðar voru úr minnisblaði, sbr. 1. mgr. 7. gr. upplýsingalaga.…

    18. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    814/2019. Úrskurður frá 10. september 2019

    Í málinu var leyst úr rétti kæranda til aðgangs að upplýsingum frá Isavia ohf. um framboð á flugsætum og farþegafjölda sem fari um Keflavíkurflugvöll, sundurliðuðum eftir flugrekstraraðilum og tímabilum, að minnsta kosti fimm ár aftur í tímann. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál staðfesti ákvörðun Isavia ohf. um að synja beiðni kæranda á þeim grundvelli að upplýsingarnar væru undirorpnar sérstakri þagnarskyldu á grundvelli 71. gr. b laga um loftferðir, nr. 60/1998.

    18. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    813/2019. Úrskurður frá 10. september 2019

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að annars vegar samningum um rannsóknarverkefni sem Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) hafi gert við ráðuneyti, stofnanir og fyrirtæki í opinberri eigu á tilteknu tímabili og hins vegar upplýsingum um húsaleigusamninga ÍSOR og kostnað vegna húsnæðis stofnunarinnar. Fallist var á rétt kæranda til aðgangs að samningum sem gerðir voru við ráðuneyti og stofnanir. Nefndin taldi hins vegar að stofnuninni væri heimilt að takmarka aðgang að samningum við fyrirtæki í opinberri eigu þar sem upplýsingar í þeim varði mikilvæga samkeppnishagsmuni ÍSOR, sbr. 4. tölul. 10. gr. upplýsingalaga.…

    17. sep. 2019Dómsmálaráðuneytið, Formennska Íslands 2019, Mannréttindi, Norrænt samstarf, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Norrænir ráðherrar jafnréttismála funda í Reykjavík

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, stýrði árlegum fundi norrænna ráðherra jafnréttismála í morgun. Á fundi ráðherranna var tekin ákvörðun um að útvíkka jafnréttissamstarf Norðurlandanna þannig að það tæki einnig til málefna hinsegin fólks. Þetta er í samræmi við breytingar sem nú þegar hafa átt sér stað á víða á Norðurlöndum og fela m.a. í sér áherslubreytingar í löggjöf til að tryggja aukna vernd gegn mismunun á grundvelli kynvitundar, kyneinkenna, kyntjáningar sem og kynhneigðar.

    17. sep. 2019Dómsmálaráðuneytið, Formennska Íslands 2019, Mannréttindi, Norrænt samstarf, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Norrænir ráðherrar jafnréttismála funda í Reykjavík

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, stýrði árlegum fundi norrænna ráðherra jafnréttismála í morgun. Á fundi ráðherranna var tekin ákvörðun um að útvíkka jafnréttissamstarf Norðurlandanna þannig að það tæki einnig til málefna hinsegin fólks. Þetta er í samræmi við breytingar sem nú þegar hafa átt sér stað á víða á Norðurlöndum og fela m.a. í sér áherslubreytingar í löggjöf til að tryggja aukna vernd gegn mismunun á grundvelli kynvitundar, kyneinkenna, kyntjáningar sem og kynhneigðar.

    17. sep. 2019Dómsmálaráðuneytið, Formennska Íslands 2019, Mannréttindi, Norrænt samstarf, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra opnaði alþjóðlega ráðstefnu um #Metoo

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, opnaði alþjóðlega ráðstefnu um #metoo sem nú stendur yfir í Hörpu. Yfir 800 manns taka þátt í ráðstefnunni og um áttatíu fyrirlesarar stíga í pontu.

    17. sep. 2019Dómsmálaráðuneytið, Formennska Íslands 2019, Mannréttindi, Norrænt samstarf, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra opnaði alþjóðlega ráðstefnu um #Metoo

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, opnaði alþjóðlega ráðstefnu um #metoo sem nú stendur yfir í Hörpu. Yfir 800 manns taka þátt í ráðstefnunni og um áttatíu fyrirlesarar stíga í pontu.

    17. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Almannaöryggi

    Samantekt frá málþingi þjóðaröryggisráðs „Samtal um fullveldi og þjóðaröryggi“ birt

    Gefin hefur verið út samantekt frá málþingi þjóðaröryggisráðs „Samtal um fullveldi og þjóðaröryggi“ sem fór fram í Hörpu 23. nóvember 2018 í samstarfi við Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Háskólann á Bifröst, Háskólann á Akureyri og Listaháskóla Íslands.

    16. sep. 2019Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Norrænt samstarf, Formennska Íslands 2019, Forsætisráðuneytið

    Alþjóðleg ráðstefna um #Metoo hefst á morgun

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra setur alþjóðlega ráðstefnu um #metoo eða #églíka í Hörpu á morgun og stendur ráðstefnan til 19. september nk. Ráðstefnan hefst kl. 14:30 með lykilerindum og umræðum norrænna ráðherra jafnréttismála.

    16. sep. 2019Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Norrænt samstarf, Formennska Íslands 2019, Forsætisráðuneytið

    Alþjóðleg ráðstefna um #Metoo hefst á morgun

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra setur alþjóðlega ráðstefnu um #metoo eða #églíka í Hörpu á morgun og stendur ráðstefnan til 19. september nk. Ráðstefnan hefst kl. 14:30 með lykilerindum og umræðum norrænna ráðherra jafnréttismála.

    16. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Líf og heilsa, Velsæld

    Forsætisráðherra fjallar um velsældarmarkmið á alþjóðlegri ráðstefnu um velsældarhagkerfi

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tók þátt í alþjóðlegri ráðstefnu um uppbyggingu velsældarhagkerfa ásamt Bjarna Benediktssyni fjármála- og efnahagsráðherra, Derek Mackay fjármála- og efnahagsráðherra Skotlands, Angel Gurría, framkvæmdastjóra Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) og Kristínu Völu Ragnarsdóttur prófessor við Háskóla Íslands í Háskóla Íslands í morgun.

    13. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Líf og heilsa, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Velsæld

    Tillögur um 39 mælikvarða um hagsæld og lífsgæði kynntar

    Heilsa skiptir fólk mestu máli þegar það metur lífsgæði sín

    11. sep. 2019Dómsmálaráðuneytið, Utanríkismál, Loftslagsmál, Mannréttindi og jafnrétti, Umhverfi og náttúruvernd, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra bauð forsetahjónum Indlands til hádegisverðar á Þingvöllum

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, bauð Shri Ram Nath Kovind, forseta Indlands, og Savita Kovind, forsetafrú, til hádegisverðar í Ráðherrabústaðinn á Þingvöllum. Þau ræddu loftslagsmál og möguleika Íslands og Indlands á auknu samstarfi á sviði endurnýjanlegra orkugjafa. Þá ræddu þau kynjajafnréttismál og fæðingarorlof.

    06. sep. 2019Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Trú og lífsskoðun, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Viðbótarsamningur íslenska ríkisins og þjóðkirkjunnar undirritaðir

    Forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, dómsmálaráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármálaráðherra, Bjarni Benediktsson, og Drífa Hjartardóttir, forseti kirkjuþings, undirrituðu í dag nýjan viðbótarsamning um fjárhagsleg málefni ríki og þjóðkirkjunnar. Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, mun einnig undirrita samninginn innan fárra daga en hún var stödd á Ísafirði við undirritunina í dag.

    06. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Líf og heilsa

    Alþjóðleg ráðstefna um uppbyggingu velsældarhagkerfa

    Á ráðstefnunni verður fjallað um samstarf Íslands, Skotlands og Nýja Sjálands um mótun velsældarhagkerfa undir yfirskriftinni Wellbeing Economy Governments (WEGo). Samstarfið felur í sér mótun sameiginlegrar sýnar á hvernig ríki geta aukið vellíðan, jöfnuð og sjálfbæran vöxt.

    06. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál

    Forsætisráðherra tekur við skýrslu umboðsmanns barna 2018

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tók við skýrslu umboðsmanns barna 2018 frá Salvöru Nordal, umboðsmanni barna í Stjórnarráðinu í morgun.

    05. sep. 2019Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Formennska Íslands 2019, Forsætisráðuneytið

    Alþjóðleg ráðstefna um áhrif #MeToo-hreyfingarinnar í Reykjavík

    Angela Davis, prófessor, rithöfundur og aktívisti, verður meðal fyrirlesara á alþjóðlegri ráðstefnu um áhrif #metoo-hreyfingarinnar sem fram fer í Hörpu 17.–19. september nk.

    05. sep. 2019Forsætisráðuneytið

    Ríkisráðsfundur á Bessastöðum

    Ríkisráð Íslands hefur verið kvatt saman til fundar á Bessastöðum föstudaginn 6. september kl. 16.00.

    04. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Loftslagsmál, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Forsætisráðherra fundaði með varaforseta Bandaríkjanna

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fundaði með Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna, í kvöld. Fundurinn fór fram í húsnæði Landhelgisgæslunnar á Suðurnesjum skömmu eftir að forsætisráðherra kom til landsins frá Svíþjóð og Danmörku.

    03. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Utanríkismál, Norrænt samstarf

    Forsætisráðherra ávarpar ársþing norrænu verkalýðshreyfinganna

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ávarpaði ársþing norrænu verkalýðshreyfinganna í Malmö í Svíþjóð síðdegis í dag.

    • First
    • Prev
    • 40
    • 41
    • 42
    • 43
    • 44
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband